Morgunblaðið - 01.11.2017, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk
gæða heimilistæki
Þvottavél tekur 17 kg og
þurrkari tekur 10 kg
Marta María
martamaria@mbl.is
Vörurnar frá BECCA leggja
áherslu á náttúrulega fegurð og að
vörurnar aðlagist þínum húðlit.
Ljómavörurnar frá BECCA hafa
notið vinsælda úti í heimi og þess
má geta að vatn er megin efnið í
vörunum sem gerir það að verkum
að farðinn frá þeim er mjög með-
færilegur.
Aqua Luminous Perfection-
farðinn er léttur en á sama tíma
með góða þekju. Ultimate Covar-
age Complexion Créme-farðinn er
með aðeins þyngri formúlu en gef-
ur manni þessa sömu léttu tilfinn-
ingu og Aqua Luminous-farðinn.
En hvernig fáum við fallega
áferð á andlitið?
Byrjaðu á því að bera á þig farða-
grunninn First light primer. Hann
vekur húðina og jafnar misfellur.
Skilur húðina eftir ferska, endur-
nærða og vakandi.
Þessi farðagrunnur er góður fyr-
ir þær sem eru með þurra og
þreytta húð og ójafna húðtóna.
Hann birtir upp daufa og líflausa
húð ásamt því að endurnýja húðina.
Köld og létt formúlan gerir það
auðvelt að dreifa úr kreminu á and-
litið en hún er hálfgegnsæ og
fjólublá á lit. Formúlan birtir húð-
ina og jafnar misfellur. Farða-
grunnurinn er fjólublár á lit þegar
hann kemur úr umbúðunum en
verður glær þegar hann er borinn á
húðina.
Backlight primer-farðagrunnur
hentar þeim sem eru með venju-
lega, feita, blandaða, þurra og við-
kvæma húð. Hann frískar upp á
þreytta og líflausa húð, dregur úr
fínum línum og hrukkur ásamt því
að jafna misfellur í húðinni.
Backligt Priming Filter-farða-
grunnurinn hjálpar þér að undir-
búa húðina fyrir farða og sér til
þess að farðinn haldist óaðfinnan-
legur fram á nótt. Formúlan er
gerð úr þremur einstökum perlum
þar sem hver og ein hefur sína teg-
und af ljóma. Sé þeim blandað sam-
an kalla þær fram einstaka, létta og
kremaða formúlu sem virkar eins
og filter sem sléttir á þér húðina. Á
sama tíma dregur E-vítamínsbætta
formúlan úr fínum línum og hrukk-
um.
Shimmering skin perfector Liq-
uid er fljótandi ljómakrem sem gef-
ur húðinni samstundis þennan
áreynslulausa og náttúrulega ljóma
sem er svo eftirsóttur. Extra fína
formúlan endurspeglast af perlum
sem aðlagar sig húðinni þinni og
gefur þér þennan heilbrigða og
náttúrulega ljóma.
Shimmering Skin Perfector
pressed er fljótandi Higlighter-
púður sem kemur í þremur litum.
Þannig þú ræður hvaða áferð
hentar þér best og kaupir hana.
Það er líka mjög sniðugt að eiga
Higlighter í vökvaformi til að
blanda út í farða fyrir extra ljóm-
andi útlit.
Shimmering Skin Perfector
Pressed-ljómapúðrið virkar eins og
sviðsljós fyrir húðina en púðrið
birtir upp þína bestu eiginleika með
einstaklega fallegum og náttúru-
legum ljóma sem er innblásinn af
glæsilegu síðdegissólinni. Þessi ein-
staka formúla er rík af ótrúlega fín-
um og ljómandi perlum sem endur-
spegla birtu til að magna upp þína
náttúrulegu útgeislun og þau
mörgu litarefni sem eru í perlunum
stilla náttúrulegu undirtóna húð-
arinnar.
Ólíkt öðru ljómapúðri er form-
úlan í Shimmering Skin Perfector
Pressed-ljómapúðrinu á þann hátt
að litarefnum er blandað við vökva
til að kalla fram óviðjafnanlega
rjómakennda áferð sem berst á
húðina líkt og silki.
Under Eye Brightening Correct-
or-litaleiðréttarinn felur dökka
bauga og misfellur undir augn-
svæðinu.
Formúlan er full af örfínum
ljósgjöfum sem gerir það að
verkum að hún sest ekki í fínar
línur eða hrukkur. Heldur
sléttir formúlan úr augnsvæð-
inu, undirbýr húðina fyrir
hyljara og birtir upp augn-
svæðið.
Dragðu fram
ljómann
Það sem einkennir góðar snyrtivörur er að þær
nái að draga fram það besta í andliti konunnar.
Þetta vita eigendur BECCA sem er splunkunýtt
snyrtivörumerki hér á landi.
Vel þekjandi
Farðarnir
frá BECCA
þekja vel.
Ljómandi Farðagrunn-
urinn First light
primer vekur húðina
og jafnar misfellur.
Revitalizing Supreme + Global
Anti-Aging Eye Cell Power Eye
Balm er splunkunýtt 24 stunda
augnkrem og maski í einni vöru.
Kremið inniheldur Moringa ex-
tract, kraftmikið efni unnið úr
samnefndri plöntu sem vinnur á
margskonar öldrunareinkennum.
Kremið dregur úr þrota, vinnur
á teygjanleika húðarinnar, þétt-
leika, hrukkum, fínum línum og
baugum.
Önnur nýjung í kreminu er
plöntufrumuseyði sem er unnið úr
kaktus. Það eykur rakainntöku og
heldur einnig rakanum í húðinni
lengur. Þá er það mjög auðugt af
andoxunarefnum sem vinna með
vörnum húðarinnar.
Best er að bera kremið á sig
kvölds og morgna. Það má nota
kremið á augnsvæðið yfir farða til
að gefa augnsvæðinu meiri fersk-
leika og raka.
Getty Images/iStockphoto
Frísklegt Augnkremið frá
Esteé Lauder veitir augn-
svæðinu mikinn raka.
Frísklegra augnsvæði