Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 52

Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 52
Morgunblaðið/Ófeigur Myndlist Sölvi Dúnn hefur haft mikinn áhuga á húðflúrum frá blautu barnsbeini og hefur alltaf teiknað mikið. sárt. Aftur á móti held ég að ég fari líka verr með sjálfan mig en kúnnana mína því ég veit hvað ég þoli, en ég veit ekki hvað ég er að láta kúnnana ganga í gegnum,“ bætir hann við. Sér heiminn í svart-hvítu Sölvi er lítt hrifinn af því að ræða tískustrauma í húðflúrum, enda ný- byrjaður í bransanum. Hann nefnir þó nokkra stíla, með svolitlum sem- ingi. „Í dag eru margir að fá sér svart- hvítar, raunsæjar portrettmyndir og myndir af dýrum. Rúmfræðilegar myndir, mandölur og flúr í svoköll- uðum „dotwork“-stíl hafa einnig ver- ið mjög vinsæl undanfarið. Venjulega eru nokkrir mismunandi stílar inni, ef svo má segja, og svo auðvitað klassíkin eins og „old school“-flúrin sem fólk mun alltaf fá sér.“ Sölvi, sem sjálfur eltist lítið við tískustraumana, viðurkennir að hann sæki innblástur í klassíkina enda eru hauskúpur, hákarlar og snákar vin- sæl þemu hjá honum. „Ætli fólk myndi ekki kalla þetta „illustrative blackwork“ á ensku. Ég nota eiginlega enga liti, og enga grá- tóna, heldur bara svartan. Sem er svolítið eins og ég sé heiminn, það er í svart-hvítu. Annaðhvort elska ég hluti eða gjörsamlega þoli þá ekki,“ segir Sölvi léttur í bragði. „Teikningarnar eru klárlega mjög hráar. Ég sæki til að mynda inn- blástur í teiknimyndasögur sem ég hef lesið alla tíð, til dæmis Robert Crumb, Charles Burns og Mad Magazine. Ég sæki einnig mikinn Ellen Ragnarsdóttir ellen@mbl.is „Ég hef alltaf teiknað mikið af mynd- um sem henta vel í flúr. Ég fékk áhuga á húðflúrum þegar ég var krakki og fannst þetta mjög merki- legt fyrirbæri, en ég laumaðist oft inn á húðflúrstofur til að skoða möpp- urnar sem þar voru. Það var þó ekki fyrr en síðasta haust, þegar ég kynntist vinkonu minni Auði Ýri, sem þá var að stíga fyrstu skref sín sem húðflúrari, sem ég fór að pæla í þessu sem möguleika fyrir sjálfan mig. Þetta er ágætis leið til þess að geta starfað við myndlist,“ segir Sölvi Dúnn, sem sjálfur skartar níu húð- flúrum. „Ég var kominn með þrjú áður en ég byrjaði og síðan hafa sex bæst við. Ég gerði þrjú af þeim sjálfur, en það er hefð að fyrsta flúrið sem maður setur á mannslíkama fari á mann sjálfan. Áður en maður fær að flúra aðra verður maður að sýna að maður kunni þetta. Fyrsta flúrið sem ég gerði er á lærinu á mér, rétt fyrir of- an hné. Þetta er einfaldur texti og til- vitnun í uppistandarann Bill Hicks, þar sem stendur „just a ride“. Hicks er líklega ófyndnasti, en jafnframt fyndnasti, uppistandari allra tíma. Hann var alltaf mjög reiður og alvar- legur, sem er samt mjög fyndið,“ seg- ir Sölvi og hvetur blaðamann ein- dregið til að kynna sér kappann, áður en hann heldur máli sínu áfram. „Það er auðvitað mjög ónáttúru- legt að meiða sjálfan sig viljandi, og þurfa að halda áfram þó að það sé innblástur í efnið sem ég nota, sem sagt kolsvart blek. Ég hugsa mikið um hvernig ég get náð gráum tónum úr kolsvörtum lit, sem gerir það að verkum að myndirnar mínar líta út eins og þær gera.“ Eins og áður sagði er Sölvi enn til- tölulega nýr í faginu en hann hefur verið að flúra í fimm mánuði. Sölvi viðurkennir fúslega að hann verði enn afar stressaður áður en hann mundar nálina, enda sé pressan mik- il. „Þetta er náttúrlega alveg að ganga frá mér,“ segir Sölvi og flissar. „Nei, ég er farinn að vera að- eins rólegri núna en ég var þegar ég var nýbyrjaður. Ég er þó alltaf stressaður áður en ég hefst handa, daginn áður og jafnvel nokkrum dög- um fyrir. En svo gerist eitthvað þeg- ar maður byrjar að flúra, maður er svo fókuseraður. Ég er því aldrei stressaður á meðan ég er að vinna. Svo líður manni fáránlega vel þegar verkinu er lokið, að því gefnu að maður hafi ekki klúðrað neinu,“ segir Sölvi og kímir. „Þetta er klárlega skárra núna en þegar ég byrjaði. Ég held að ég muni þó alltaf finna fyrir einhverju stressi, enda vara flúrin að eilífu. Ég tel þó að það sé ákveðinn kostur að vera svolít- ið stressaður, og vil meina að það sé merki um metnað.“ Þegar Sölvi er spurður hvort hann hafi einhvern tímann klúðrað flúri eða gert mistök sem erfiðlega hafi gengið að leiðrétta segir hann að flúrin gangi auðvitað misvel. „Ég hef þó aldrei skilað neinu af mér sem ég hef verið ósáttur við. Ég hef aldrei skemmt neitt og alltaf get- að reddað mér. Sérstaklega þegar ég flúra mínar eigin teikningar, sem ég þekki mjög vel, en þá hef ég alltaf einhverjar útgönguleiðir ef ég kem mér í klandur. Það er erfiðara með raunsæið, ef þú ert að gera portrett af einhverjum má ekki mikið út af bregða,“ segir Sölvi, sem á erfitt með að gera upp á milli flúranna sem hann hefur gert. „Þau eru öll fremur eftirminnileg. Sum hafa gengið sérlega hratt og vel, önnur eru kannski myndir sem ég hef verið sérstaklega ánægður að fá að flúra. Ég fékk til dæmis að flúra Wu-Tang Clan lógó, sem ég breytti í einhvers konar hauskúpufyrirbæri, á strák um daginn. Það var mjög gaman,“ segir Sölvi. „Er ekki komið nóg?“ Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvað Sölvi myndi taka sér fyrir hendur ef hann fengi að leika lausum hala og gæti flúrað hvern sem er. Það stendur ekki á svörum, en Sölvi seg- ist myndu flúra máf á pabba sinn. „Ég hef enga sérstaka ástæðu fyr- ir því, hann er ekkert sérstaklega hrifinn af húðflúrum yfir höfuð og ég held að það væri gaman að opna augu hans fyrir þessu. Það er þó ekki séns að ég fái að gera það, en það er allt í lagi,“ segir Sölvi. „Honum finnst þetta alveg flott, en hann segir samt alltaf: „stopp, stopp, stopp, er ekki komið nóg?“ eftir hvert einasta flúr sem ég fæ mér,“ bætir hann við og skellir upp úr. Sölvi þver- tekur þó fyrir að hann sjái eftir flúr- unum, þrátt fyrir efasemdir föður síns. „Ég held að það sé ekki mikið um að fólk sjái eftir flúrunum sínum. Þetta verður hluti af manni og maður hættir að pæla í þessu. Í það minnsta er það þannig fyrir mitt leyti.“ Alltaf stressaður áður en hann hefst handa Myndlistarmaðurinn Sölvi Dúnn Snæbjörnsson hefur lengi haft mikinn áhuga á húðflúrum, en eft- ir að hafa útskrifast bæði með BA- og MA-gráðu frá Konunglegu listaakademíunni í Kaupmanna- höfn ákvað hann að venda kvæði sínu í kross og er nú í læri hjá húðflúrstofunni Bleksmiðjunni. Eftirminnilegt Wu-Tang-Clan lógó sem Sölvi útfærði.Flúr Teikningar Sölva eru auðþekkjanlegar. 52 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 duxiana.com Hryggjarstykkið í góðum nætursvefni D U X ®, D U X IA N A ® a n d P a sc a l® a re re g is te re d tr a d e m a rk s o w n e d b y D U X D e si g n A B 2 0 12 . Stuðningur við hrygginn er grundvallaratriði fyrir góðum nætursvefni. DUX rúmið með sýnu einstaka fjaðrakerfi styður hann svo sannarlega. DUXIANA Reykjavik, Ármuli 10, 568 9950

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.