Morgunblaðið - 01.11.2017, Síða 66

Morgunblaðið - 01.11.2017, Síða 66
66 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 ✝ Þorbjörn Guð-mundsson blaðamaður fædd- ist að Vallarnesi í Vallahreppi, Suð- ur-Múlasýslu, 30. desember 1922. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans 23. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Aðalbjörg Stefánsdóttir, húsmóðir, f. 1886, d. 1981, og Guðmundur Þor- björnsson, múrarameistari, f. 1878, d. 1955. Systkini Þor- bjarnar eru Magnús (1912- 1990), Guðríður Stella (1913- 2001), Ingibjörg (1916-1968), Þorvarður (1917-2009) og Ragn- ar (1920-1999). Eftirlifandi eiginkona Þor- bjarnar er Sigurrós Sigurðar- dóttir, félagsráðgjafi, f. 1926. Börn Þorbjarnar og Sigurrósar eru: 1) Kristjana Rós, bókari, f. 1953, og er hennar maður Örn Jóhannsson, vélvirki, f. 1951. Börn þeirra eru: a) Bryndís Rós, ferðaráðgjafi, f. 1977, gift Þorbjörn flutti ungur að ár- um með fjölskyldu sinni á Vest- dalseyri við Seyðisfjörð, og áttu þaðan góðar æskuminningar. Þorbjörn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri ár- ið 1942. Hann innritaðist í kjöl- farið í laganám en hóf störf á Morgunblaðinu sem blaðamaður sama ár. Þorbjörn gegndi blaða- mennsku á Morgunblaðinu í yfir 50 ár, á viðburðaríkum tímum í sögu þjóðarinnar. Þorbjörn var fulltrúi ritstjóra blaðsins þegar hann lét af störfum árið 1992. Þorbjörn gerði krossgátur og jólamyndagátur fyrir Morgun- blaðið áratugum saman. Þorbjörn var í stjórn Blaða- mannafélags Íslands um skeið, og formaður í eitt ár. Hann sat í stjórn Lífeyrissjóðs blaðamanna um áratuga skeið, og var í siða- nefnd Blaðamannafélagsins. Þorbjörn var handhafi blaða- mannaskírteinis númer eitt þeg- ar hann lést. Hann var sæmdur gullmerki Blaðamannafélagsins árið 1982. Þorbjörn var í stjórn ÍR og varaformaður um tíma. Hann sat í stjórn Austfirðinga- félagsins í Reykjavík, þar af for- maður í 4 ár, og var lengi virkur í Oddfellow-reglunni. Útför Þorbjarnar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 1. nóvember 2017, klukkan 13. Andra Má Her- mannssyni, sagn- fræðingi, f. 1976. Þau eiga synina Róbert Örn, f. 2005, Viktor Örn, f. 2010 og Tómas Örn, f. 2012. b) Björn Þór, hag- fræðingur, f. 1983, sambýliskona hans er Margrét Halla Bjarnadóttir, verk- fræðingur, f. 1983. Dætur þeirra eru Brynja Sigrún, f. 2009 og Elma Björk, f. 2013. 2) Guðmundur Þorbjörnsson, verkfræðingur, f. 1957, og er kona hans Jóhanna Björk Briem, meðferðaraðili, f. 1958. Börn þeirra eru: a) Kristín Hrund, lögfræðingur, f. 1985, sambýlismaður hennar er Elías Blöndal Guðjónsson, lögfræð- ingur, f. 1983. Þau eiga dóttur- ina Katrínu, f. 2016. b) Birgir Fannar, verkfræðingur, f. 1990, sambýliskona hans er Gyða Marín Bjarnadóttir, fulltrúi, f. 1991. c) Tómas Arnar, nemi í efnafræði við HÍ, f. 1996. Það er sárt að kveðja hann afa í dag. Mikið sem ég sakna hans. Við höfum alla tíð verið miklir mátar og hef ég getað leitað til hans með margt. En þó að söknuðurinn sé sár á ég líka margar og góðar minningar um hann afa sem hjálpa mér að takast á við sorgina. Ég naut þess að vera fyrsta barnabarn afa og ömmu og hef brallað margt með þeim í gegnum tíðina. Ótal ferðalög koma upp í hug- ann. Eftirminnilegar eru bústaða- ferðirnar í Brekkuskóg þar sem við spiluðum krokket um móann þar í kring og svo var spiluð Gúrka þegar ekki viðraði til útiveru. Þá eru ekki síður minnisstæðar utanlandsferðirnar sem við fórum í saman. Þessar ferðir eiga það sameiginlegt að hafa verið afar ánægjulegar en ekki síður fróð- legar og lærdómsríkar. Afi var fróður um flesta staði sem við heimsóttum saman en hann ferðaðist einnig töluvert í starfi sínu sem blaðamaður og oft til framandi staða. Þá voru þau amma jafnframt dugleg að ferðast um heiminn, sannkallaðir heims- borgarar, og voru dugleg að kynna sér ólíka menningarheima. Og alltaf var komið heim með ein- hvern spennandi minjagrip frá þessum framandi slóðum. Afi starfaði á Mogganum í yfir 50 ár. Ég minnist þess hve spenn- andi mér fannst að fá að heim- sækja hann í vinnuna í Moggahöll- ina við Ingólfstorg. Á unglingsaldri kom ég oftar en ekki við á skrifstofunni hjá afa þegar ég átti leið um miðbæinn og fékk þá gjarnan smá aur hjá honum til að kaupa hressingu eða annað lít- ilræði í bæjarferðinni. Þá var líka alltaf gott að koma heim til ömmu og afa á Bergstaðastrætinu, á Bestó, eins og það var yfirleitt kallað í fjölskyldunni. Það nafn átti svo sannarlega vel við því á fáum stöðum fannst mér betra að vera. Afi og amma hafa alla tíð verið áhugasöm um íþróttir og útiveru. Segja má að í golfinu hafi þau náð að sameina þetta tvennt en golfið varð þeim strax afar hugleikið þegar þau kynntust því. Við systk- inin nutum góðs af þessu og vor- um svo lánsöm að fá að kynnast golfinu í gegnum þau. Ófáa golfhringina höfum við leikið saman í gegnum tíðina og ekki er hægt að hugsa sér betri meðspilara. Afi og amma hafa líka alltaf náð vel til yngri kynslóðarinnar og þar eru synir mínir engin undantekn- ing. Og þó að þeir hafi ekki fengið mörg ár með langafa sínum er ég afar þakklát fyrir að þeir hafi fengið að kynnast honum. Oft áttu þeir gott spjall saman og var þá gjarnan stutt í grínið og hláturinn, og þó að aldursbilið væri jafnvel 90 ár mátti vart á milli sjá hver skemmti sér best. Það er dýrmætt að eiga svo margar góðar minningar um afa og þær munu ylja okkur um ókomna tíð. Hvíl í friði elsku afi minn. Bryndís Rós. Í dag kveðjum við afa á Bestó. Afi var rólegur maður, góðhjart- aður og traustur. Hann sagði margar skemmtilegar sögur af viðburðaríkri ævi sinni t.d. af æskuárunum á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, ævintýrum í blaða- mennsku fyrri tíma og upplifun hans af stofnun lýðveldisins á Þingvöllum. Hann naut góðrar heilsu lengst af og gátu hann og amma því notið þess að ferðast um víðan völl saman og stundað golf af krafti fram á níræðisaldurinn. Það var ekki fyrr en fyrir nokkrum árum að afi sagði fyrst við okkur að sér þætti hann vera að eldast. Líkaminn var þá farinn að þreytast en hugurinn var alltaf skýr og dugnaðurinn mikill. Minningarnar eru margar en afmælisdagarnir hans afa standa upp úr. Afi bauð stórfjölskyldunni út að borða á afmælisdeginum sínum ár hvert. Það var mikið ævintýri fyr- ir lítil börn að vera boðið með á svo fína veitingastaði og eigum við fjöldann allan af góðum minning- um af þessum kvöldum. Síðar hef- ur þetta orðið hefð sem okkur þykir ákaflega vænt um. Önnur hefð sem stendur upp úr er púkkið á öðrum degi jóla. Afi kenndi allri fjölskyldunni að púkka og stjórn- aði spilinu ár hvert. Þar fengu allir, stórir sem smá- ir, að taka þátt. Auk þess að stýra leiknum var afi í hlutverki banka- stjóra leiksins og var afburða ör- látur á lánin fyrir hina ólukkulegu. Við erum einstaklega þakklát fyrir allar þær stundir sem við fengum að verja með þér og fyrir þær góðu minningar sem eftir sitja. Við kveðjum þig með sökn- uði, elsku afi. Megi Guð geyma þig. Þín, Kristín Hrund, Birgir Fannar og Tómas Arnar. Það er alltaf sárt þegar kemur að kveðjustund. Eins og er um hann mág minn og góðan vin. Okkar kynni hófust fyrir um það bil 66 árum en þá var hann að gera hosur sínar grænar fyrir systur minni Sigurrós, hann kom í heim- sókn á Freyjó og við litlu systurn- ar voru mjög forvitnar að sjá leyndamálið og njósnuðum um hann, en ekki urðum við fyrir von- brigðum þegar við hittum hann í fyrsta sinni, hann tók á móti okkur eins og honum var einum lagið, með brosið hlýja og stríðnin skein frá honum. Á þeirri stundu urðum við strax bestu vinir. Rósa og Þor- björn giftu sig á þessum tíma og bjuggum við öll i húsi foreldra okkar við Freyjugötu, þau á neðstu hæð en ég á efstu. Það var mikill samgangur á milli hæða, sérstaklega eftir að börnin fædd- ust, þá var gott að hafa ömmu og afa í miðjunni. Ég á margar góðar minningar frá þessum tíma. Sú sem er efst í huga mínum er frá því í nóvember 1958, ég þá 24 ára á leið til NY með ungan son okkar hjóna, hafði þá lítið kynnst flugi, þar að auki mjög flughrædd og kveið mikið fyrir, en lán mitt var að Þorbjörn var á leið á fund til NY og var með sömu vél, ekki veit ég hvernig ég hefði getað þetta ef ekki hefði ver- ið fyrir hjálp hans. Hugsaði hann um strákinn til jafns við mig, eins hughreysti hann mig sem ekki var vanþörf á. Þannig er honum best lýst fyrir sínum nánustu. Þau hjón ferðuðust mikið bæði innan- og utanlands og við Elli og fjölskylda vorum svo heppin að fá að vera með þeim í nokkrum t.d. tjald- og veiðiferðum með krökk- unum hér innanlands og ógleym- anlegum ferðum utanlands. Þá er mér efst í huga Egyptalands-ferð- in sem var í alla staði stórkostleg, ekki voru skíðaferðir til Austur- ríkis síðri og ekki má gleyma Taí- landsferðinni. Hann Þorbjörn var einstakur heilsteyptur og góður maður, hann fór ekki mikinn, en hvar sem maður bar niður var hann hafsjór af þekkingu kom alltaf með góð svör, heilræði, hvatningu og góð ráð. Ég hef í gegnum tíðina leitað ráða hjá honum og ekki stóð á þeim. Fyrir ca fjórum árum slasaðist Þorbjörn, brotnaði bæði á læri og hægri handlegg, það var byrjun að veikindum sem síðan leiddu til þess að hann er ekki hér lengur, en hugrekkið og seiglan sem hann sýndi allan tímann er ótrúleg, sem dæmi: eftir 14 daga legu á spítala var hann sendur heim, hann hafði fengið litla hjálp við að læra að nota hækjur – aðeins einn eftir- miðdag. Þá áttu þau heima á Bergstaðastræti á fjórðu hæð, engin lyfta en 44 tröppur upp. Hann var sendur í sjúkrabíl þang- að en hann tók alveg fyrir að vera borinn upp, heldur vóg sig einhver veginn upp þessar 44 tröppur og þetta gerði hann minnst einu sinni á dag þar til þau fluttu fyrir rúmu einu ári í Kópavogstún. Þar áttu þau góðar stundir í fallegri íbúð sinni. Kæri Þorbjörn minn, þakka þér fyrir fallega brosið, gleðina í augunum og sterka handtakið sem ég fékk þegar ég kom til þín á spítalann þremur dögum áður en þú kvaddir. Ég kveð þig með söknuði og stolti af að eiga þig að mági og vini. Elsku Rósa mín og fjölskylda, við sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Megi góður Guð vernda ykkur og styrkja. Guðný Sigurðardóttir og fjölskylda. „Það mætti ætla að hugtakið heiðursmaður hefði verið fundið upp til að lýsa Þorbirni móður- bróður okkar, en það er að vísu eldra. Það er sjaldgæft að ekki sjáist misfella á skínandi brynju heiðursmannsins, en okkur systr- um tókst aldrei að koma auga á neitt slíkt. Þorbjörn var hæglátur í fasi og barði ekki bumbur til að koma skoðunum sínum á fram- færi, en þær voru ævinlega vel grundaðar, hófsamar og þjónuðu réttlætinu. Sumir, sem þekktu Þorbjörn lítið gátu talið að svo hógværan mann mætti auðveld- lega gera viðskila við skoðanir sín- ar, en sú var aldeilis ekki raunin. Þótt Þorbjörn tæki nýjum rökum, stóð hann jafnan fast á skoðunum sínum, studdi þær og varði með háttvísi heiðursmannsins. Við systur vitum af eigin reynslu að á sínum langa og farsæla ferli á Morgunblaðinu hafa fáir starfs- menn notið meiri vinsælda og virðingar en Þorbjörn. Það var ómetanlegt fyrir okkur systur að njóta nærveru Þor- bjarnar á æskuárunum, en hann bjó um skeið í húsi föðurforeldra okkar og móður á Grundarstíg 3. Ragnar móðurbróðir okkar var einnig heimagangur á þessum ár- um og þeir Þorbjörn gerðu jólin ógleymanleg, léku á als oddi og skemmtu systkinabörnum sínum með leikjum og glensi. Ég, Sólrún, var svo lánsöm að eiga dagstund á fallegu heimili Rósu og Þorbjarnar í Kópavogin- um fyrir nokkrum vikum, en þangað var ég komin í leit að fróð- leik um foreldra hans, Aðalbjörgu og Guðmund, til að flytja á fjöl- skyldumóti, sem stóð fyrir dyrum. Þá rifjaði Þorbjörn upp sögu frá æskuárum sínum þegar hann var handlangari hjá föður sínum við byggingu herragarðs Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri. Húsið teiknaði þýskur arkitekt og þeir sem hafa komið að Skriðu- klaustri hafa séð hinn sérstæða frágang þess að utan. Hleðslan vafðist mikið fyrir smiðunum og hefði orðið mjög kostnaðarsöm. Þeir leituðu til afa og hann leysti málið. Hluti af lausninni var að setja steina utan á húsið og Þor- björn valdi steinana sem var að finna í á skammt frá þar sem þeir hafa líklega slípast um aldir. Við systurnar og fjölskyldur okkar sendum Rósu, Kristjönu og Guðmundi og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Bless- uð sé minning yndislegs frænda. Snæfríður og Sólrún Jensdætur. Kær kveðja til góðs vinar. Við urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast Þorbirni fyrir rúmum 60 árum þegar hann kynntist systur okkar, henni Rósu. Samband þeirra var ein- stakt og nutum við alla tíð góðs af vináttu þeirra og hlýju. Þorbjörn var einstakt ljúfmenni og gleði- gjafi. Þær voru margar stundirn- ar sem við nutum saman á heimili þeirra hjóna á Freyjugötu, Berg- staðastræti og Kópavogstúni. Þorbjörn var mjög réttsýnn mað- ur sem gaman var að ræða við um allt milli himins og jarðar. Hann var traustur, góður vinur, mjög barngóður og tók upp á ýmsu til að gleðja börnin en fyrst og fremst minnumst við góðs vinar og félaga síðastliðin 66 ár. Kæra Rósa, Kristjana, Guð- mundur (Gummi) og fjölskyldur. Allt virðist nú svart og enga ljós- glætu að sjá í myrkrinu. En eftir lifa ljúfar minningar um góðan dreng. Skáldið Tómas Guðmunds- son segir: Nú veit ég, að sumarið sefur í sál hvers einasta manns. Eitt einasta augnablik getur brætt ísinn frá brjósti hans, svo fjötrar af huganum hrökkva sem hismi sé feykt á bál, unz sérhver sorg öðlast vængi og sérhver gleði fær mál. Guð blessi ykkur öll. Pálína Matthildur, Guðmundur og Bergdís, og Páll og Ída. Hann birtist fyrir hugskots- sjónum léttur á fæti, grannur, kvikur og brosmildur. Þorbjörn Guðmundsson var í hálfa öld blaðamaður á Morgunblaðinu. Þegar hann hóf störf á blaðinu ár- ið 1942 geisaði heimsstyrjöldin síðari. Þá var blaðið aðeins átta síður og blaðamennirnir þrír auk tveggja ritstjóra. Hann var þá ný- orðinn stúdent og sagði í viðtali, sem Sveinn Guðjónsson, gamall samstarfsmaður hans, tók og birt- ist í bókinni Íslenskir blaðamenn, að hann hefði engar sérstakar hugmyndir gert sér í þá átt og allra síst að blaðamennska yrði ævistarfið. „En eigum við ekki bara að segja að ég hafi fengið bakteríuna,“ sagði hann í viðtal- inu. „Að minnsta kosti stóð ég ekki upp fyrr en eftir hálfa öld.“ Þegar Þorbjörn hóf störf á Morgunblaðinu gat vinnudagur- inn orðið langur og vinnutíminn óreglulegur. Sveigjanleikinn var líka meiri þá en nú. Pressan gat verið mikil að skila fréttum, en einnig þurfti að setja blaðið upp, prófarkalesa og ganga frá því. Í stríðinu þurfti oft að segja frá átakanlegum viðburðum. Þegar atburðir gerðust seint gat prentun beðið. Hann hafði aðeins verið blaðamaður í eitt og hálft ár þegar Hótel Ísland brann. Rétt var búið að ljúka við blaðið þegar heyrðist í slökkviliðinu. Út um gluggann á ritstjórninni sáust eldtungurnar. „Haninn var löngu búinn að gala, þegar við héldum heim þann morguninn,“ sagði Þorbjörn í við- talinu. Oft stóð líka styrr um blaðið og í stjórnmálum var reynt að hafa áhrif á fréttaflutning þess. Á Morgunblaðinu eru fréttaskrif hins vegar eitt og stjórnmálaskrif annað og það var alveg skýrt hjá Þorbirni. Hann lýsir því að vissu- lega hafi komið fyrir að menn vildu ræða pólitík og þrýst á um að „frétt“ væri skrifuð að þeirra for- skrift, en hann kæmi ekki nálægt slíku: „Pólitískar fréttir skrifaði ég aldrei.“ Miklar tæknilegar breytingar urðu í blaðaútgáfu og fjölmiðlun á starfsævi Þorbjörns. Það sem nú er sáraeinfalt gat verið flókið og tímafrekt, ef ekki ógerlegt þegar Þorbjörn Guðmundsson Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Blaðamenn Myndin er tekin á ritstjórn Morgunblaðsins 1958. Haraldur Hamar, Matthías Johannessen, Sigurður A. Magnússon og Þorbjörn Guðmundsson fara hér yfir fréttir dagsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólamyndagátan Þorbjörn samdi hinar vinsælu gátur í ára- tugi. Gáta ársins er hér 2012 að verða til, höfundur níræður.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.