Morgunblaðið - 01.11.2017, Qupperneq 70
70 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
✝ Ágúst Jóhanns-son fæddist í
Reykjavík 20. ágúst
1945. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 19. októ-
ber 2017.
Foreldrar hans
voru hjónin Jóhann
Björnsson sjómað-
ur, fæddur í Reykja-
vík 24. júlí 1901, dá-
inn 22. ágúst 1994,
og Ágústa Erlends-
dóttir húsfreyja, fædd í Reykja-
vík 30. júní 1911, dáin 10. desem-
ber 1995.
Systkini Ágústar eru Kolbrún
Árnadóttir, f. 1936, maki John W.
Mayovsky, f. 1932, búsett í
Seattle í Bandaríkjunum, Björn
Jóhannsson, f. 1943, maki Sigrún
Tryggvadóttir, f. 1945, búsett í
september 1985, dóttir þeirra er
Guðríður María, f. 17. október
2015, 3) Anna, grunnskólakenn-
ari, f. 18. mars 1987, maki Andrés
Magnússon rafeindavirki, f. 22.
nóvember 1987, dóttir þeirra er
Hrafnkatla, f. 7. júní 2015.
Ágúst gekk í Miðbæjarskólann
og Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
og lauk sveinsprófi í húsgagna-
smíði frá Iðnskólanum í Reykja-
vík árið 1967. Vann hann við fag
sitt hjá Kristjáni Siggeirssyni,
Sveinbirni Sigurðssyni, Axis og
síðast hjá Smíðastofunni Beyki.
Ágúst gekk til liðs við Hjálpar-
sveit skáta Reykjavík upp úr 1970
sat þar í stjórn um tíma og hafði
umsjón með bílaflota sveitarinnar
til margra ára. Sumarið 1977 fór
hann ásamt nokkrum félögum
sínum úr hjálpasveitinni í fjalla-
ferð til Evrópu og klifu þeir Mont
Blanc og Matterhorn.
Útför Ágústs fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 1. nóvem-
ber, klukkan 15.
Garðabæ, og tvíbura-
bróðir Ágústar Jó-
hann Jóhannsson,
maki Elísabet Jóns-
dóttir, f. 1945, búsett
á Akranesi.
Ágúst giftist 9.
janúar 1982 Maríu
Haraldsdóttur sér-
kennara, f. í Reykja-
vík 8. apríl 1957. For-
eldrar hennar eru
Harald Guðmunds-
son rafvirkjameist-
ari, f. 11. desember 1921, d. 27.
ágúst 2002, og Björg Einarsdóttir
rithöfundur, f. 25. ágúst 1925.
Dætur Ágústar og Maríu eru 1)
Ólafía, starfsmaður í Hæfingar-
stöðinni Bjarkarási, f. 14. maí
1982, 2) María, kvikmyndafræð-
ingur, f. 14. maí 1982, maki Guð-
jón Hauksson kerfisstjóri, f. 15.
Sólin brennir nóttina,
og nóttin slökkvir dag;
þú ert athvarf mitt fyrir
og eftir sólarlag.
Þú ert yndi mitt áður
og eftir að dagur rís,
svölun í sumarsins eldi
og sólbráð á vetrarins ís.
Svali á sumardögum
og sólskin um vetrarnótt,
þögn í seiðandi solli
og söngur, ef allt er hljótt.
Söngur í þöglum skógum
og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og grasið
og guð á himnum að vin.
Þú gafst mér skýin og fjöllin
og guð til að styrkja mig.
Eg fann ei hvað lífið var fagurt,
fyrr en eg elskaði þig.
Eg fæddist til ljóssins og lífsins,
er lærði eg að unna þér,
og ást mín fær ekki fölnað
fyrr en með sjálfum mér.
Ást mín fær aldrei fölnað,
því eilíft líf mér hún gaf.
Aldirnar hrynja sem öldur
um endalaust tímans haf.
Aldir og andartök hrynja
með undursamlegum nið;
það er ekkert í heiminum öllum
nema eilífðin, guð – og við.
(Sigurður Nordal)
María.
Þetta segir hún Ólafía um
pabba sinn:
Les bækur.
Les blöðin.
Hlustar á tónlist.
Hlustar á fréttirnar.
Kemur þegar ég bið hann
og tekur Hrapp með sér.
Fer með bænirnar með mér.
Les sögur fyrir mig.
Situr og talar í sófanum.
Hjálpar til.
Kemur þegar ég bið hann.
Svo var pabbi veikur.
Hann talar ekki.
Honum batnar alls ekki.
Nú er hann farinn til
Guðs á himninum.
Nú geymi ég hann í
hjartanu mínu..
Þín
Ólafía.
Elsku pabbi.
Nú stöndum við í þessum
óraunverulegu sporum að
kveðja þig allt of snemma. Fyr-
ir okkur varst þú alltaf hraust-
ur og sterkur maður. Andlitið
þar sem árin töldu ekki. Mað-
urinn sem hugsaði vel um sig á
bæði líkama og sál. En þó erum
við hér og ekkert annað kemst
að en þakklæti og falleg minn-
ing þín.
Minningarnar um þig lifa
áfram með okkur. Þakklæti
fyrir það sem þú gafst okkur,
lífið sjálft. Veganestið sem þú
færðir okkur var að vera hrein
og bein með ríka réttlætis-
kennd, heilindi, þolinmæði og
þrautseigja. Þú varst sannur
einstaklingur sem hægt er að
taka sér til fyrirmyndar. Það
var alltaf hægt að leita til þín
með hvað sem var, setjast niður
og spjalla, leita lausna eða fá
upplýsingar. Við tókum upp þá
ástríðu frá þér að ferðast um
landið og unna náttúrunni og
þá var gott að eiga þig að með
alla þá vitneskju sem þú bjóst
yfir.
Það er sárt að vita til þess að
litlu stelpurnar okkar fá ekki
að hitta afa sinni oftar. Afa sem
var svo góður við þær og dug-
legur að leika. Bjó til sleða fyr-
ir þær svo þær gætu rennt sér
saman, nokkurra mánaða, úti í
snjónum.
En afi lifir áfram með okkur.
Í sögum, minningum og sam-
veru.
Það verður gott að minnast
þín í framtíðinni, ávallt með
hlýjum hug.
Takk, pabbi, fyrir okkur.
Takk margfalt fyrir allt það
sem þú færðir okkur, það er
svo ómetanlegt.
Þínar
Anna og María.
Látinn er hér í borg eftir
hörð veikindi Ágúst Jóhanns-
son húsgagnasmiður, tengda-
sonur minn. Vil ég minnast
hans nokkrum orðum með þökk
fyrir áratuga samvistir innan
fjölskyldu.
Þar sem Ágúst fór var heil-
steyptur maður sem sinnti
hverju því viðfangsefni er hann
tók að sér af kostgæfni og oft-
lega fóru sérsmíðuð verkefni í
iðninni um hendur hans.
Hann var sonur hjónanna Jó-
hanns K. Björnssonar (1901-
1994) sjómanns og Ágústu Er-
lendsdóttur (1911-1995). Systk-
inin voru fjögur. Elst var
Kolbrún, þá Björn og yngstir
tvíburarnir Jóhann og Ágúst
(fæddir 1945). Foreldrarnir,
líkt og samherjar þeirra, arf-
takar hinnar svokölluðu alda-
mótakynslóðar, áttu hlut að
borgarsamfélaginu með búsetu
sinni, starfi og afkomendum.
Við tengdir urðu tilefni til
áhugaverðra samtala við Jó-
hann föður Ágústs. Meðal ann-
ars um reynslu hans af vinnu-
markaðinum, til lands og sjávar
á langri ævi, og breytingar á
ýmsu því viðvíkjandi. Sumt til
bóta en annað ekki.
Leiðir okkar Ágústu lágu í
upphafi saman í félagsstörfum.
Hún var einhuga í þeim mál-
efnum sem hún beitti sér fyrir,
hvort sem var vegna Kvenna-
heimilis á Hallveigarstöðum við
Túngötu eða í baráttu íslenskra
kvenna á Kvennafrídaginn 24.
október 1975.
Það var sérstök og ánægju-
leg reynsla að eiga þess kost að
ræða við þessi heiðurshjón um
sameiginlega afkomendur okk-
ar; dætur Ágústs sonar þeirra
og Maríu dóttur minnar, tví-
burana Ólafíu og Maríu fæddar
1982 og Önnu fædda 1987.
Undanfarin þrjú ár hef ég
deilt húsnæði með dóttur minni
og tengdasyni að Smárarima í
Reykjavík.
En síðastliðinn vetur, 2016-
17, hefur staðið svo á að ég var
heima í afturbata eftir sjúkra-
húslegu.
Á sama tíma voru aðstæður
Ágústs öndverðar að því leyti
að sjúkdómur sá er nú hefur
lagt hann að velli var smátt og
smátt að segja til sín.
Áttum við iðulega góðar
stundir saman yfir hressingu á
miðjum degi og oftar en ekki
uppbyggileg samtöl. Í því efni
var ég þiggjandi en hann veit-
andi.
Ágúst var virkur félagi í
Hjálparsveit skáta, þar sem
markmiðið var björgun manns-
lífa, leit að týndum eða villtum
ferðalöngum og að vera í við-
bragðsstöðu ef á þyrfti að
halda.
Þessu hjálparstarfi fylgdu
oft mikil ferðalög og þeir sem
því sinntu urðu kunnir landinu í
byggð sem óbyggð.
Einnig hafði hann ferðast
allnokkuð erlendis, meðal ann-
ars í Vesturheimi á vit systur
sinnar er þar bjó, og þá notað
tækifærið og ferðast um; svo og
um Evrópu. Reyndist hann mér
fróðleiksbrunnur um lönd og
þjóðir.
Oft gafst einnig tími til að
lesa aðskiljanleg rit og deila
áhugamálum á efni þeirra.
En hvar sem borið verður
niður í lífshlaupi Ágústs Jó-
hannssonar hygg ég að fegursti
kafli þess varði dótturina Ólaf-
íu, er frá náttúrunnar hendi
þurfti daglega aðstoð. Alúð föð-
ur hennar og aðstoð við hana
verður þeim er kynntust eft-
irminnileg.
Með Ágústi Jóhannssyni er
góður maður genginn.
Björg Einarsdóttir.
Hæglátur, ljúfur, traustur og
alltaf stutt í brosið. Þetta er sú
lýsing sem kemur í hugann
þegar hugsað er til Ágústs Jó-
hannssonar, sem lést 19. októ-
ber síðastliðinn.
Tengsl okkar Ágústs hófust í
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
fyrir nokkrum áratugum. Hann
var þá reyndur og vanur ferða-
lögum jafnt fótgangandi og á
bílum.
Fljótlega var hann kominn á
kaf í viðhald og akstur á bílum
Hjálparsveitarinnar.
Sá þáttur hjálparstarfsins
sem er oftast sýnilegur í sam-
félaginu er þegar hjálparsveit-
arfólk er kallað út í misjöfnu
veðri til leitar eða aðstoðar
vegna fólks í nauðum.
Þá skiptir máli að þeir sem
taka þátt í aðgerðum búi yfir
þrautseigju, úthaldi og útsjón-
arsemi. Þessum kostum bjó
Ágúst yfir í ríkum mæli.
Ágúst tengdist okkur fjöl-
skylduböndum þegar hann gift-
ist systur minni, Maríu. Það
reyndist farsæll ráðahagur og
hafa þau hjón alla tíð verið ein-
staklega samhent við að hlúa að
fjölskyldu sinni.
Auk hjálparsveitarstarfanna
sem fyrr er getið, stundaði
Ágúst útivist og fjallamennsku
hérlendis og erlendis. Hann
kleif meðal annars hæsta fjall
Evrópu, Mont Blanc, á áttunda
áratug síðustu aldar. Þegar
hann var orðinn fjölskyldumað-
ur og dæturnar komnar á legg
fóru þau hjón ásamt þeim
dætrum sem áttu heimangengt,
í hálendisferðir þegar tækifæri
gafst.
Fórum við saman í lengri og
skemmri gönguferðir um há-
lendi og eyðibyggðir landsins.
Þar sem endranær voru María
og Ágúst traustir og góðir
ferðafélagar.
Að leiðarlokum þökkum við
ljúfa samfylgd.
Einar Hrafnkell og Guðrún.
Ágúst Jóhannsson
✝ Jón Olgeirsson(John Fog
Nielsen) fæddist í
Danmörku 31.
ágúst 1933. Hann
lést 20. október
2017.
Jón var einka-
barn Holgers og
Önnu Fog Nielsen,
þau eru bæði látin.
Hinn 1. sept-
ember 1956 giftist
Jón Margréti Magnúsdóttur frá
Norðfirði, f. 12. október 1932,
d. 28. febrúar 2009.
Synir Jóns og Margrétar
eru: 1) Sigurjón Jónsson, f. 29.
ágúst 1960, kvæntur Kolbrúnu
Sjöfn Indriðadóttur, dætur
þeirra eru Helena, f. 1981, og
Anna Margrét, f. 1997.
2) Holgeir, f. 25. september
1963, kvæntur Guðbjörgu
Ragnarsdóttur, börn þeirra eru
Ragnar Jóhann, f. 1986, og
Berglind Anna, f.
1986, og eru
barnabörnin fjög-
ur.
3) Magnús, f. 25.
apríl 1969, kvænt-
ur Guðlaugu Fjólu
Arnardóttur, dóttir
þeirra eru Margrét
Guðný, f. 2008, fyr-
ir átti Magnús son-
inn Ólaf Tryggva,
f. 1996.
Jón kom ungur með föður
sínum til Íslands vegna vinnu
föður síns, varð Jón eftir á Ís-
landi eftir að faðir hans fór
aftur til Danmerkur. Jón vann
við ýmis störf um ævina, t.d.
sem vélstjóri á sjó, leigubíl-
stjóri og síðast til áttræðisald-
urs vann hann sem handlang-
ari í byggingarvinnu.
Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 1.
nóvember 2017, klukkan 13.
Elsku afi John, nú er mikil
sorg í hjörtum okkar og er sökn-
uðurinn mikill.
Þótt við séum þakklát fyrir að
baráttu þinni er lokið er erfitt að
hugsa sér það að við munum ekki
fá fleiri gleðistundir saman. Þú
varst svo hlýr og góður við okkur
og alltaf stutt í grínið.
Við áttum til dæmis margar
góðar fjölskylduspilastundir
saman sem enduðu í hláturskasti.
Þú svindlaðir í Uno Extreme, við
vissum það öll! Það var líka svo
skemmtilegt að hlusta á sögurnar
þína frá því að þú varst ungur
drengur í Danmörku, sem og þær
sem voru frá því að þú varst sjó-
maður og sigldir á vit ævin-
týranna.
Þú áttir svo margar góðar sög-
ur og skrautlega ævi að það var
aldrei leiðinlegt í kringum þig. Þú
varst alltaf til staðar fyrir okkur
og fylgdist með okkar ævintýr-
um.
Ef gleymdist að senda á þig á
snapchat fengum við hringingu
frá pabba um að þú hefðir kvart-
að hástöfum yfir að hafa ekki
fengið snappið.
Að senda snapp í dag er skrítið
því nú eru ekki fleiri sem eru
send á afa John.
Nú hefur það því miður gerst
að vond frétt til manns berst.
Kær vinur er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá.
Rita vil ég niður hvað hann var mér kær,
afi minn góði sem guð nú fær.
Hann gerði svo mikið, hann gerði svo
margt
og því miður get ég ekki nefnt það allt.
Að tala við hann var svo gaman
á þeim stundum sem við eyddum
saman.
Hann var svo góður, hann var svo klár.
Æ, hvað þessi söknuður er svo sár.
En eitt er þó víst
og það á við mig ekki síst,
að ég sakna hans svo mikið, ég sakna
hans svo sárt.
Hann var mér góður afi, það er klárt.
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann.
Í himnaríki fer hann nú,
þar verður hann glaður, það er mín trú.
Því þar getur hann vakið yfir okkur dag
og nótt
svo við getum sofið vært og rótt.
Hann mun ávallt okkur vernda
vináttu og hlýju mun hann okkur senda.
Elsku afi, guð mun þig geyma,
yfir okkur muntu sveima.
En eitt vil ég þó að þú vitir nú,
minn allra besti afi, það varst þú.
(Katrín Ruth)
Takk kærlega fyrir að vera
einn besti afi sem hægt var að
eiga.
Helena og Anna Margrét
Sigurjónsdætur.
Jón Olgeirsson
Morgunblaðið birtir
minningargreinar endur-
gjaldslaust alla útgáfu-
daga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins.
Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er
hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er
eftir birtingu á útfarardegi
verður greinin að hafa borist
eigi síðar en á hádegi tveim-
ur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda
þótt grein berist áður en
skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar
sem birtast í Morgunblaðinu
séu ekki lengri en 3.000 slög.
Ekki er unnt að senda lengri
grein. Lengri greinar eru
eingöngu birtar á vefnum.
Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU,
5-15 línur. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minning-
argreinum fylgir formáli sem
nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og
loks hvaðan og klukkan hvað
útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini,
maka og börn. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minning-
argreinahöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Myndir | Hafi mynd birst í
tilkynningu er hún sjálfkrafa
notuð með minningargrein
nema beðið sé um annað. Ef
nota á nýja mynd skal senda
hana með æviágripi í inn-
sendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt
að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og
láta umsjónarmenn minning-
argreina vita.
Minningargreinar
Ástkær eiginkona mín og systir,
SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Smyrlaheiði 29, Hveragerði,
lést á heimili sínu mánudaginn 23. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurgeir Snorri Gunnarsson
Guðmundur J. Stefánsson
Björn Stefánsson
Stefán Lárus Stefánsson
Steingrímur Páll Stefánsson
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir
og mágur,
EINAR JÖRUNDSSON
dýralæknir,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn
27. október.
Útför fer fram í Guðríðarkirkju mánudaginn 6. nóvember klukkan
13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið endurhæfingu
og stuðning fyrir krabbameinsgreinda.
Guðríður Haraldsdóttir
Andri Eydal
Þóra Einarsdóttir
Auður Einarsdóttir
systkini og makar