Morgunblaðið - 01.11.2017, Side 78
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Michael Kiwanuka er þrítugur tón-
listarmaður sem vakti fyrst almenna
athygli í heimalandi sínu Bretlandi
þegar hann var valinn áhugaverð-
asti tónlistarmaður ársins 2012 í
netkosningu breska ríkisútvarpsins,
BBC’s Sound of 2012. Könnun þessi
er haldin árlega og ríkir jafnan mik-
il eftirvænting um niðurstöðuna,
hvaða hljómsveit eða tónlistarmaður
þyki sá mest spennandi hverju
sinni. Kiwanuka hafði þá gefið út
þrjár stuttskífur og leikið með
Adele í tónleikaferð hennar, Adele
Live, ári fyrr. Þar áður hafði hann
leikið á gítar með hinum og þessum
hljómsveitum, áður en hann hóf
sólóferil.
Það var sannkölluð draumabyrjun
hjá Kiwanuka að fá að leika með
Adele og verða fyrir valinu í keppni
BBC og var hann vel að heiðrinum
kominn, heillandi og tilfinningaríkur
tónlistarmaður sem gestir Iceland
Airwaves fá að kynnast í Gamla bíói
á laugardaginn, 4. nóvember, en
Kiwanuka hefur leik á miðnætti.
Hátíðin hefst í dag.
Skemmtilegur tími með Adele
Foreldrar Kiwanuka eru frá
Úganda en fluttu til Bretlands á ní-
unda áratugnum og þar fæddist pilt-
ur og ólst upp í Muswell Hill, út-
hverfi í norðurhluta London sem er
m.a. þekkt sem heimaslóðir hljóm-
sveitarinnar Kinks. Kiwanuka segist
ekki hafa hlotið tónlistaruppeldi þó
vissulega hafi verið leikin tónlist á
heimili hans í æsku og þá m.a. popp-
tónlist frá Úganda. Hann er spurður
að því hvenær hann hafi áttað sig á
því að hann vildi verða tónlistar-
maður og segist hann hafa verið 11
eða 12 ára þegar það rann upp fyrir
honum. Hann hafi haft mikinn
áhuga á tónlist og langað að vera í
hljómsveit. Áður en hann byrjaði í
tónlistarnámi við Westminster-
háskóla fór hann að leika á gítar
með ýmsum hljómsveitum og söngv-
urum, m.a. djass- og sálarsöngvur-
um og hélt því áfram meðfram námi,
auk þess að kenna á gítar. Hann
segist hafa lært mikið af því.
– Árið 2011 hefur verið þér mik-
ilvægt því þú samdir þá við Comm-
union Records sem gaf út nokkrar
stuttskífur með þér og fórst líka í
tónleikaferð með hinni gríðarvin-
sælu Adele sem var þá nýbúin að
gefa út metsöluplötuna 21. Hvernig
var að spila með henni fyrir framan
mörg þúsund manns? Það hlýtur að
hafa verið dálítið skrítið fyrir þig?
„Jú, það var það. Fyrstu tónleik-
arnir voru í Noregi og það var
margt sem ég kunni ekki almenni-
lega, hljóðprufur og fleira. Þannig
að ég spilaði bara fyrst í 10 eða 15
mínútur,“ svarar Kiwanuka kíminn.
– Varstu taugaóstyrkur?
„Já, ég var taugaóstyrkur en
þetta var skemmtilegt,“ svarar Kiw-
anuka og hlær við. Hann hafi lært
heilmikið á því að ferðast og leika
með Adele.
Stór stund
Talið berst að netkosningu BBC
og segir Kiwanuka að hún hafi verið
heilmikil kynning fyrir hann og veg-
semd. Að venju hafi verið tekið við-
tal við hann á einni af útvarps-
stöðvum BBC og hann flutt lög í
beinni útsendingu. „Þetta var stór
stund fyrir mig, að fá að flytja og
tala um tónlistina mína við svo
marga hlustendur.“
– Var þetta „stóra tækifærið“ á
ferlinum?
„Já, ég held það. Ég gat komið
tónlistinni minni á framfæri og fór í
framhaldi í fyrstu tónleikaferðina
með hljómsveitinni minni. Ég fór að
leika á stærri tónleikastöðum en áð-
ur og fyrir fullu húsi. Mér hefði lík-
lega ekki tekist það án BBC,“ segir
Kiwanuka.
Fyrsta breiðskífa hans, Home
Again, kom út árið 2012 á vegum
Polydor Records og hlaut hún mikið
lof gagnrýnenda. Á henni flytur
Kiwanuka tilfinningaþrungna tónlist
í anda sálartónlistar áttunda áratug-
arins og velgengni plötunnar minnir
á velgengni annars sálartónlistar-
manns, Amy Winehouse, sem Kiw-
anuka segir hafa haft mikil áhrif á
sig. Winehouse hafi fylgt eigin sann-
færingu.
Missti sjálfstraustið
Næsta breiðskífa, Love & Hate,
kom út í fyrra og segist Kiwanuka
hafa upplifað mikið óöryggi milli
platna og skort á sjálfstrausti.
„Ég var ekki viss um hvaða stíl ég
gæti þróað og fór að efast um að
fólki myndi líka tónlistin mín. Við-
brögðin voru ekki nógu jákvæð frá
útgáfufyrirtækinu við því sem ég
var að gera á æfingum og því missti
ég heilmikið sjálfstraust og tapaði
gleðinni við að búa til tónlist. Ég
velti því fyrir mér að hætta en fann
svo aftur gleðina,“ útskýrir hann.
Fann aftur
sköpunargleðina
Breski tónlistarmaðurinn Michael Kiwanuka kemur fram
ásamt hljómsveit á Iceland Airwaves Tilfinningaríkur
söngvari og lagasmiður sem sækir í brunn sálartónlistar
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Það er okkur sem þjóð tilmikils sóma hvað síðastaaftaka á Íslandi situr íokkur. Hversu mikið
verra fólk værum við ef örlög
þeirra Agnesar Magnúsdóttur og
Friðriks Sigurðssonar skiptu okk-
ur engu? Eða ef við teldum að þau
hefðu augljóslega fengið það sem
þau áttu skilið. Enginn vafi virðist
leika á sekt þeirra. Aðild Sigríðar
Guðmundsdóttur er líka næsta
óumdeild. Svo má lengi deila um
nákvæmlega hver verðskuldaði
hvað. Nema við erum auðvitað
löngu orðin sammála um að enginn
verðskuldi dauðarefsingu. Og
málsbætur eiga þau vitaskuld. Um
það hefur tæpast ríkt nein þöggun.
Myrkur og mótsagnakenndur per-
sónuleiki Natans Ketilssonar hefur
alla tíð verið viðfangsefni sagnarit-
ara, sem eðlilega laðast að svona
mönnum eins og flugur að ljósi, eða
taðhrúgum. Aldarfarið sem Illuga-
staðamorðin eru einhverskonar
endapunktur á er kjarninn í viðtek-
inni söguskoðun nútímans.
Hvað ætlar hinn metnaðarfulli
og ígrundandi leikhópur Aldrei ós-
telandi að leggja til þessara mála,
hvaða blæbrigði ætlar Marta Nor-
dal og hennar fólk að draga fram?
Einfaldleiki, tærleiki og yfirveg-
un einkennir nálgunina eins og svo
oft áður hjá þessum listfenga leik-
hópi. Þar hjálpast allt í umgjörð-
inni að. Stílhrein leikmynd Axels
Hallkels Jóhannssonar sem er í
senn nútímaleg og tímalaus, hljóð-
mynd Kippa Kaninus, lýsing Jóns
Þorgeirs Kristjánssonar og sér-
deilis gullfallegir búningar Helgu
I. Stefánsdóttur og milt litróf
þeirra draga athygli okkar að
kjarna málsins.
En er kjarni málsins kjarni
málsins? Eða réttara sagt: Hvað er
hægt að hreinsa burt mikið af
„óþarfa“ áður en sagan hættir að
virka, áður en athafnir og tilfinn-
ingar persónanna verða of abstrakt
til að skiljast og hreyfa við okkur?
Marta, Salka Guðmundsdóttir og
leikhópurinn dansa á þessari línu í
Natan.
Verkið er skipulega byggt upp í
kringum fjórar „tilgátur“ um or-
sakir og drifkrafta atburðanna: Of-
beldi, ágirnd, ástríðu og misnotk-
un, sem síðan eru fleygaðar með
texta úr dómsorði og öðrum gögn-
um um skipulag aftökunnar, sem
fluttir eru í hljóðnema en áhersla á
listræna umgengni við hið talaða
orð er eitt af aðalsmerkjum hóps-
ins.
Auðvitað eru tilgáturnar allar
„réttar“, samskipti fólksins á Ill-
ugastöðum bera öll þessi einkenni.
Enda er sterkur samhljómur milli
Natan Satan
Borgarleikhúsið
Natan bbbnn
Eftir Sölku Guðmundsdóttur og leik-
hópinn Aldrei óstelandi. Leikstjórn:
Marta Nordal. Leikmynd: Axel Hallkell
Jóhannesson. Búningar: Helga I. Stef-
ánsdóttir. Tónlist og hljóðmynd: Kippi
Kaninus (Guðmundur Vignir Karlsson).
Aðstoð við hreyfingar: Valgerður Rún-
arsdóttir. Lýsing: Jón Þorgeir Krist-
jánsson. Myndbandshönnun: Kjartan
Darri Kristjánsson. Leikarar: Stefán
Hallur Stefánsson, Edda Björg Eyjólfs-
dóttir, Birna Rún Eiríksdóttir og Kjartan
Darri Kristjánsson. Rödd á myndbandi:
Hjörtur Jóhann Jónsson. Leikhópurinn
Aldrei óstelandi frumsýndi á Litla sviði
Borgarleikhússins 26. október 2017.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Iceland Airwaves 2017
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves
hefst í dag með miklum fjölda tón-
leika á fjölmörgum tónleikastöðum í
miðborg Reykjavíkur en á morgun
hefst hún á Akureyri og er það í
fyrsta sinn sem hluti hennar fer þar
fram. Dagskrána alla má finna á vef
hátíðarinnar á slóðinni icelandair-
waves.is en hér verða nefndir
nokkrir áhugaverðir tónleikar sem
fara fram á ólíkum tónleikastöðum í
kvöld.
Í Listasafni Reykjavíkur í Hafnar-
húsi verður hip-hop fyrirferðar-
mikið á fyrsta degi og meðal þeirra
sem koma fram eru Alvia Islandia
kl. 19.40, Cyber kl. 20.20 og hinir
mjög svo vinsælu JóiPé og Króli kl.
23.30. Í Gamla bíói verður annars
konar tónlist á ferð, hljómsveitin
Valdimar kl. 21.40, Högni kl. 23.20
og Moses Hightower kl. 00.20 og á
Hard Rock Café treður Kælan Mikla
upp kl. 23.20 og Oyama í kjölfar
hennar kl. 00.20. Hressingarskálinn
stendur undir nafni því þar mun
rapparinn Elli Grill hressa mann-
skapinn kl. 23.20 og á Gauknum mun
kollegi hans Cell7 troða upp kl.
00.10. Í Iðnó kemur Dísa fram kl.
21.20 og Halldór Eldjárn
hefur leik kl. 22.20 á
Húrra. Af þeim sem
fram koma á
Hverfisbarnum má
svo nefna tríóið
Gróu sem leik-
ur kl. 20 og
Unu Stef sem
tekur við kl.
20.50. Þess má
geta að enn eru
til miðar á hátíð-
ina, þó fáir séu.
Hátíð í borg og bæ
Morgunblaðið/Eggert
Bomba
JóiPé og
Króli.
Alvia
Islandia.
Tilboðsverð kr. 138.216,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta á meðan birgðir endast
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is