Morgunblaðið - 02.12.2017, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2017
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kristófer Oliversson, framkvæmda-
stjóri og eigandi Center-hótelkeðj-
unnar, segir það mikið áhyggjuefni
að í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis-
stjórnar sé boðað að taka upp hlut-
fallslegt gistináttagjald.
Keðjan á sex
hótel í miðborg
Reykjavíkur og
undirbýr bygg-
ingu tveggja
nýrra.
Máli sínu til
stuðnings bendir
Kristófer á að
virðisaukaskattur
myndi þá leggjast
ofan á gistinátta-
gjaldið. Virðis-
aukaskattur sé enda lagður á heild-
arverð í lokin. Því muni boðuð veltu-
tenging gistináttagjalds auka útgjöld
hótela vegna virðisaukaskatts. Með
þetta í huga sé það skammgóður
vermir að ríkisstjórnin hyggist falla
frá fyrirhugaðri hækkun virðisauka-
skatts á gistingu. Til upprifjunar ætl-
aði fráfarandi stjórn að hækka virð-
isaukaskatt á gistingu úr 11% í 22%
árið 2019. Gistináttagjald var hins
vegar þrefaldað í haust úr 100 kr. í
300 kr. á hverja gistieiningu.
Þekkir ekki önnur dæmi
„Ég hef í fljótu bragði ekki fundið
dæmi um það í öðrum löndum að
gistináttaskattur sé veltutengdur,“
segir Kristófer.
Fram kemur í stjórnarsáttmálan-
um að ný ríkisstjórn hyggst skoða
komu- eða brottfarargjald í ferða-
þjónustu. „Gistináttagjald færist yfir
til sveitarfélaga á kjörtímabilinu í
tengslum við viðræður ríkis og sveit-
arfélaga um endurskoðun tekju-
stofna. Gjaldinu verður breytt þannig
að það verði hlutfallslegt,“ segir í
sáttmálanum um þetta efni.
Kristófer rifjar upp áform Stein-
gríms J. Sigfússonar, nýs forseta Al-
þingis og fjármálaráðherra í tíð
vinstristjórnarinnar 2009 til 2013, um
að leggja á samhliða farþegagjald og
gistináttagjald, en frumvarp þess
efnis var lagt fram árið 2011.
Drógu í land með gjöldin
„Síðan þróuðust málin þannig að
hætt var við að leggja á komugjöld.
Svo hættu menn við að leggja gisti-
náttagjaldið á um helming þeirra að-
ila sem áttu að greiða gjaldið, á borð
við fjallaskála og orlofsheimili. Við
teljum okkur hafa gamalt loforð frá
stjórnvöldum um að ef lögð verða á
komugjöld verði gistináttagjaldið
fellt niður. Að mínu mati er rétt að
rifja upp þetta loforð ef samstaða er
um að leggja á komugjöld. Ég tel
mjög óeðlilegt að taka út einn kima í
ferðaþjónustunni, sem eru löglega
rekin hótel, og leggja sértækan skatt
á þau, eins og gistináttagjaldið. Slík-
ur skattur er hvergi innheimtur ann-
ars staðar á Norðurlöndunum,“ segir
Kristófer.
Hann segir áhyggjuefni að gjaldið
verði hlutfallslegt. Það margfaldi
áhrifin. Þá rifjar hann upp ummæli
Birgittu Jónsdóttur, sem þá sat á
þingi fyrir Pírata, um 5% gistinátta-
gjald á kynningu fyrir svonefnda
Lækjarbrekkustjórn í aðdraganda
þingkosninga haustið 2016. Af þeirri
stjórnarmyndun varð ekki.
Framlegðin minni en fullyrt er
Þá rifjar Kristófer upp nýlega
skýrslu KPMG um afkomu hótela.
Þar komi fram að framlegð hótela í
Reykjavík sé mun minni en ýmsir
hafi haldið fram. Þá sé afkoma hótela
úti á landi ekki góð. „Eins og KPMG
sýndi fram á hefði það verið rothögg
fyrir hótelrekstur á landsbyggðinni
að hækka virðisaukaskattinn eins og
boðað var. Frá sjónarhóli hótelrek-
enda er enginn munur á hlutfallsleg-
um gistináttaskatti og hlutfallslegum
virðisaukaskatti. Hvor tveggja er
veltuskattur.“
Ekki náðist í Ólaf Torfason, stjórn-
arformann Íslandshótela, eða Davíð
Torfa Ólafsson, framkvæmdastjóra
Íslandshótela, vegna málsins.
Fram kom í áðurnefndri úttekt
KPMG að hún byggðist á upplýsing-
um frá fyrirtækjum sem voru með
4.655 hótelherbergi, eða um helming
skráðra herbergja á landinu. Allar
stærstu hótelkeðjurnar hafi verið
með, auk fjölda smærri aðila.
Hærra gistináttagjald
eykur virðisaukaskatt
Aðaleigandi Center-hótela rifjar upp loforð vinstristjórnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við Hlemm Á Center-hótel Miðgarði eru samtals 170 herbergi.
Kristófer
Oliversson Í Morgunblaðinu í gær sagði að
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra væri fjórði yngsti forsætisráð-
herrann frá lýðveldisstofnun.
Það er ekki rétt, Katrín, sem er 41
árs, er sá þriðji yngsti.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
Atvinna Kringlunni 4c – Sími 568 4900
ÚRVAL AF GLÆSILEGUM
HÁTÍÐAR-
FATNAÐI
Á ALLAR DÖMUR
Kimono
16.990,-
St. S-XL
Opið 11-16 í dag
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Kr. 7.900
Str. S-XXL
Litir: Rautt, svart,
blátt og vínrautt
Hneppt peysa
með vösum
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Árni Stefán Leifsson
þvagfæraskurðlæknir
sinnir stofurekstri í Læknahúsinu,
Domus Medica, 6. hæð.
Tímapantanir
í s. 563 1060 eða á
www.þvagfæraskurðlæknir.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Á ríkissráðsfundi
nýrrar ríkis-
stjórnar á Bessa-
stöðum á fimmtu-
dag var stað-
festur nýr
forsetaúrskurður
um skiptingu
stjórnmálaefna á
milli ráðuneyta.
Helstu breyt-
ingar fela í sér að
málefni hagskýrslugerðar og upp-
lýsingar um landshagi, þar með talin
málefni Hagstofu Íslands, færast til
forsætisráðuneytis frá fjármála- og
efnahagsráðuneytinu. Einnig mun
forsætisráðherra taka aftur við for-
mennsku í vísinda- og tækniráði. Þá
munu málefni upplýsingasamfélags-
ins, þar á meðal verkefnið Ísland.is,
færast til fjármála- og efnahags-
ráðuneytisins frá samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneyti.
Einnig samþykkti ríkisstjórn
Katrínar Jakobsdóttur á fundi sín-
um í gær að skipa Sigurð Inga Jó-
hannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, í embætti
samstarfsráðherra Norðurlanda.
Ber hann ábyrgð á norrænu rík-
isstjórnarsamstarfi innan norrænu
ráðherranefndarinnar fyrir hönd
forsætisráðherra. Saman fara sam-
starfsráðherrar hverrar þjóðar með
stjórn norræna ríkisstjórnarsam-
starfsins og taka stefnumótandi
ákvarðanir. Norræna ráðherra-
nefndin var stofnuð árið 1971. Sig-
urður Ingi tekur við embættinu af
Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Breytt verkaskipting
í ríkisstjórn Katrínar
Sigurður Ingi
Jóhannsson