Morgunblaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 1. D E S E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 291. tölublað 105. árgangur
Stekkjastaur kemur í kvöld
13
jolamjolk.is
dagar
til jóla
BEST AÐ
TAKA HRÚTANA
Á SÁLFRÆÐINNI
SKERPT Á
ÖRYGGI
Í ESJU
ÞARF AÐ HAFA
ÁSTRÍÐU FYRIR
SÖGUNNI
VIÐVÖRUNARSKILTI 6 ÓLAFUR JÓHANN 26STÓRU HRÚTARNIR RÚNIR 12
Morgunblaðið/Hari
Grunnskólar Aðbúnaður er talinn ófull-
nægjandi í meirihluta skólanna.
Starfsumhverfi kennara er í
mörgum grunnskólum talið ófull-
nægjandi. Þetta er ein niðurstaða
samantektar samstarfsnefndar
sveitarfélaga og grunnskólakenn-
ara sem kannaði starfsumhverfi
kennara og vinnumat í skólum.
Skortur er á ýmsum aðbúnaði eins
og tölvum, skjávörpum og kennslu-
gögnum. Margir kennarar segja
ekki tekið tillit til þess tíma sem
þeir þurfi til að ljúka verkefnum.
Þá kemur fram hjá nefndinni að
vísbendingar séu um að hegðunar-
vandamál hafi aukist mjög og
styrkja þurfi viðbragðsáætlanir
vegna erfiðra nemenda. »16
Vísbendingar um
aukinn hegðunar-
vanda í skólum
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Við vorum svo glaðar með að vera á Íslandi,
tvær stelpur að ferðast saman. Þetta er svo ynd-
islegt land.“ Þetta segir Marika Mazakova, 31
árs slóvakísk kona, sem lenti í alvarlegu umferð-
arslysi ásamt Ivönku vinkonu sinni í grennd við
Vík í Mýrdal 16. nóvember síðastliðinn. Vinkon-
urnar lentu þá í hörðum árekstri við snjóruðn-
ingstæki, eftir að bílaleigubíll þeirra rann skyndi-
lega yfir á öfugan vegarhelming. Mikil mildi
þykir að þær hafi báðar komist lifandi frá slys-
inu.
Ivanka er farin aftur heim, en Marika liggur
enn á Landspítalanum í Fossvogi, þar sem Morg-
unblaðið fékk hana til að lýsa því sem gerðist.
„Við vorum bara að aka og allt í einu rann
bíllinn yfir á hinn vegarhelminginn, þar sem
þessi stóri snjómokstursbíll kom á móti okkur.
Á því augnabliki áttaði ég mig á því að árekstur
væri óumflýjanlegur. Ég leit á vinkonu mína og
svo varð allt svart,“ segir Marika.
Síðar rankaði hún við sér og varð afar fegin
er hún fann að hún hafði mátt í öllum útlimum.
„Ég var lögð á götuna og þar sem ég lá vildi
ég athuga hvort líkaminn væri í lagi. Ég
hreyfði hendur og fætur og var afar létt þegar
ég fann að útlimirnir virkuðu,“ segir Marika
ennfremur.
Hún er afar þakklát fyrir þá góðu umönnun
sem hún og vinkona hennar hafa fengið á Land-
spítalanum eftir slysið og hyggst snúa aftur til
Íslands síðar og skoða landið almennilega. »2
Ferðalagið breyttist í spítalavist
Lenti í árekstri við snjóruðningstæki „Leit á
vinkonu mína og svo varð allt svart,“ segir Marika
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Slys Marika telur sig heppna að hafa komist lífs
af eftir harðan árekstur við snjóðruðningstæki.
„Eins og allar konur þekkir maður þetta sjálfur
og þekkir þetta í kringum sig. En auðvitað er
magnað að sjá hvernig samstaða kvenna hefur
skilað afli út í samfélagið og gerbreytt um-
ræðunni á skömmum tíma,“ sagði Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra, en hún var ein
þeirra kvenna sem lásu frásögn á #metoo-
viðburðinum í Borgarleikhúsinu í gær.
Bætti hún við allir hefðu eigin hlutverki að
gegna í nærsamfélaginu þó að stjórnvöld hefðu
sínar skyldur. #metoo-viðburður var ekki aðeins
haldinn í Reykjavík, heldur einnig á Akureyri og
Seyðisfirði á sama tíma.
„Þetta var alveg mögnuð stund. Slatti af fólki
sem kom og grét og hló með okkur,“ segir María
Pálsdóttir leikkona sem fór fyrir viðburðinum í
Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar í gær.
„Við vorum fimmtán konur sem lásum upp
frásagnir kvenna, héðan og þaðan, úr íþrótta-,
fjölmiðla-, stjórnmála- og sviðslistaheiminum og
þó víðar væri leitað, það var kraftur og sam-
kennd í loftinu,“ segir María.
„Margir töluðu um hvað það er átakanlegt að
heyra þetta allt í einu, þá fer fólk að skoða sig og
sitt líf, þannig að þetta er erfiður en dásamlegur
spegill að horfa í,“ sagði Halldóra Malín Péturs-
dóttir leikkona sem sá um #metoo í Herðubreið á
Seyðisfirði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Mögnuð samstaða kvenna“
#metoo-viðburðir haldnir á Akureyri, Seyðisfirði og í Reykjavík í gær
Umræðan gerbreytt á skömmum tíma Fólk fer að skoða sjálft sig og sitt líf
Erfiður en dásamlegur spegill að horfa í Kraftur og samstaða í loftinu
Upplestur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, var meðal þeirra kvenna sem lásu upp frásagnir á sviði Borgarleikhússins í gær.
MStigu á svið og sögðu frá »4
Á annan tug
umsókna um
starfs- og rekstr-
arleyfi fyrir sjó-
kvíaeldi er í
vinnslu hjá Mat-
vælastofnun og
Umhverfis-
stofnun. Þrjú
leyfanna verða
væntanlega gefin
út á næstu vikum
og búist er við að 5-7 leyfi til við-
bótar verði gefin út á fyrri hluta
næsta árs. Leyfin sem lengst eru
komin í vinnslu eru stækkun hjá
Arctic Sea Farm í Dýrafirði og leyfi
sama fyrirtækis og Arnarlax í Pat-
reks- og Tálknafirði. »10
Gefa út nokkur fisk-
eldisleyfi á næstunni
Eldi Fá leyfi hafa
verið gefin út.