Morgunblaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
holar@holabok.is — www.holabok.is
SÍLDARVINNSLAN Í 60 ÁR
Í þessu mikla riti er farið yfir 60 ára sögu
Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað í máli og
myndum og lýsir það
vel þeim sviptingum
sem einkennt hafa
íslenskan sjávarútveg
frá miðri síðustu öld.
Bókin er fáanleg í Tónspili, Bókaverslun
Forlagsins og Eymundsson-verslununum
í Eyjum, Austurstræti, Smáralind,
Borgarkringlunni, Hafnarfirði og á
Akureyri.
Auk þess er að sjálfsögðu hægt
að panta hana hjá útgefanda.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Marika Mazakova, 31 árs slóvakísk
kona, dvelur enn á Landspítalanum í
Fossvogi eftir að hafa lent í hörðum
árekstri í grennd við Vík í Mýrdal 16.
nóvember. Vinkona hennar Ivanka
var við stýrið og Marika sat í farþega-
sætinu er bíll þeirra rann yfir á öfug-
an vegarhelming og beint framan á
snjóruðningstæki.
Læknar hafa sagt henni að það
sé hálfgert kraftaverk að þær vinkon-
ur hafi lifað slysið af. Marika slasaðist
illa á hægri fæti og mjaðmagrindar-
brotnaði, en Ivanka hlaut þungt höf-
uðhögg, braut bein í andliti og hand-
leggsbrotnaði.
Vinkonurnar höfðu verið á land-
inu í rúman sólarhring þegar slysið
varð, en Marika, sem býr og starfar í
Prag í Tékklandi, segir að sig hafi
lengi langað að heimsækja Ísland
vegna aðdáunar sinnar á Björk.
Dró fæturna upp í sætið
Fyrsta daginn nýttu vinkon-
urnar í að skoða Reykjavík, en síðan
fóru þær á bílaleigubíl út úr borginni.
„Við keyrðum með suðurströndinni,
fórum og kíktum á Skógafoss og síð-
an átti slysið sér stað þegar við vor-
um að keyra í áttina að Vík.“
Rödd hennar brestur er hún rifj-
ar atburðarásina upp. „Það var snjó-
koma, smá snjór á veginum og
skyndilega byrjaði bíllinn að rása til,“
segir Marika, sem missti meðvitund
við höggið og rankaði ekki við sér
fyrr en viðbragðsaðilar voru komnir á
vettvang.
Hún segist vera þess fullviss að
englar hafi vakað yfir sér og því hafi
ekki farið verr.
Ökumaður snjóruðningstæk-
isins sagði Mariku að hann hefði séð
hana draga fæturna örsnöggt upp af
gólfinu í aðdraganda árekstursins.
„Hann segist hafa séð mig búa mig
undir áreksturinn með því að toga
fæturna skyndilega upp í sætið og
búa eiginlega til „kúlu“ úr mér.
Læknirinn minn sagði mér að það
væri líklega ástæðan fyrir því að ég
er enn á lífi, að fæturnir hefðu ekki
verið fastir á gólfinu.“
Heppin að þetta gerðist hér
Hún segir það mikið áfall að
lenda skyndilega í alvarlegu slysi sem
þessu, en að fyrst hún „þurfti“ að
lenda í svona slysi á annað borð, sé
hún fegin að það gerðist á Íslandi.
„Ég vil þakka öllum læknunum
og hjúkrunarfræðingunum sem hafa
annast mig. Spítalinn er mjög góður.
Það er ekki sjálfgefið,“ segir Marika.
Annars vill hún ekki barma sér
um of yfir því að hafa lent í slysinu.
Hún segist alltaf hafa verið sterk og
jákvæð manneskja og að það viðhorf
muni koma til með að hjálpa henni í
langri og strangri endurhæfingunni
sem er framundan. „Ég vil ekki
spyrja mig of mikið af hverju þetta
kom fyrir mig. Þetta bara gerðist og
ég á eftir að ná mér. Ég mun geta
gengið og haldið áfram að lifa mínu
lífi. Það er frábært,“ segir Marika,
sem heldur heim til Prag á miðviku-
dag.
Þakkar englum og ósjálf-
ráðum viðbrögðum lífið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kúla Marika lýsir því hvernig hún lyfti fótunum upp í farþegasætið og
hnipraði sig saman í einskonar kúlu er snjóruðningstækið nálgaðist.
Jafnar sig eftir
árekstur við snjó-
ruðningstæki
Morgunblaðið//Jónas Erlendsson
Slysstaður Snjóplógurinn gekk inn
í bifreið vinkvennanna.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Eldfjallafræðingur segir engin
merki um eldgos í Skjaldbreið þótt
þar gangi nú jarðskjálftahrina yfir.
Meira þurfi til að koma til að menn
fari að búa sig undir slíkt.
Jarðskjálftahrina sem hófst í
fjallinu Skjaldbreið við Langjökul í
fyrradag var í rénun í gær. Tæp-
lega 100 skjálftar komu fram á
mælum Veðurstofu Íslands frá
laugardagskvöldi og fram á sunnu-
dagsmorgun. Fjórir jarðskjálftar
meira en 3 stig hafa komið í þessari
hrinu, sá stærsti 3,8 stig í gær-
morgun um níuleytið.
Stærstu skjálftarnir fundust í
uppsveitum Árnessýslu og sá öfl-
ugasti fannst einnig á Kjalarnesi
og í Borgarfirði.
Eldvirkt svæði
Skjaldbreiður er 1.060 metra há
dyngja. Myndaðist fjallið fyrir um
9.000 árum í löngu gosi, því sama
og myndaði umgjörð Þingvalla-
vatns.
Ármann Höskuldsson eldfjalla-
fræðingur segir ómögulegt að
segja til um eldgos á þessu svæði,
út frá þessum jarðskjálftum. Þeir
tengist væntanlega flekaskilunum
sem liggja um Þingvallasigdalinn
og upp í Langjökul. Því sé ekki
ástæða til að hafa áhyggjur af eld-
gosi. Ef kvika væri á ferðinni
myndu koma fram meiri hreyfing-
ar á jarðskorpunni.
Skjaldbreiður er á vesturgos-
beltinu sem liggur frá Henglinum
norður í gegnum Þingvelli og upp
í Langjökul. Þar er mun minni
gliðnun en á austurgosbeltinu. Á
Langjökulssvæðinu hafa að jafn-
aði orðið eldgos á um 1.000 ára
fresti síðustu 5.500 árin, það síð-
asta varð reyndar fyrir um 3.600
árum.
Morgunblaðið/RAX
Skjaldbreiður Fjallið er önnur stærsta dyngja landsins. Í því er mikill gígur, um 300 metrar að þvermáli og um það bil 50 metra djúpur.
Engin merki sjást um eldgos
Jarðskjálftahrina í Skjaldbreið í rénun Fjórir skjálftar yfir 3 stig Skjálftar fundust í Árnessýslu og
Borgarfirði Dyngjan varð til í eldgosi fyrir 9.000 árum, því sama og myndaði umgjörð Þingvallavatns
Órói í Skjaldbreið
LA
N
G
JÖ
K
U
LL
Skjaldbreiður
Reykjavík
Selfoss
Þingvellir
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Tæplega 100 skjálftar
hafa mælst í Skjaldbreið
um helgina, sá stærsti
3,8 stig í gær kl. 08:48
Kjarasamningar Flugvirkjafélags Ís-
lands við WOWair runnu út í október.
Óskar Einarsson formaður segir að
viðræður standi yfir og ekkert bendi
til annars en að þær leiði til samninga.
Hjá Icelandair starfa 280-290 fé-
lagsmenn Flugvirkjafélagsins en rétt
um 60 hjá WOW air. Félagið hefur
boðað verkfall hjá Icelandair að
morgni 17. þessa mánaðar. Hugsan-
legt verkfall raskar fjótt flugáætlun
Icelandair en á ekki að hafa áhrif á
flug WOW air eða erlendra félaga
sem hingað fljúga. Óskar segir að
samningaviðræður við þessi félög séu
á mismunandi stað í ferlinu, WOW air
sé á eftir Icelandair.
Samninganefndir flugvirkja og
Samtaka atvinnulífsins vegna Ice-
landair ræddu saman í fyrradag án
þess að það leiddi til samkomulags.
Áformað er að þær komi aftur saman
í dag. Spurður hvort mikið beri á milli
segir Óskar að flugvirkjar séu að
sækja ákveðna leiðréttingu á launum
sínum í þessum samningum.
helgi@mbl.is
Verkfall hefur ekki
áhrif hjá WOW air
Fundað í kjaradeilu flugvirkja í dag
Flug Verkfallið nær ekki til WOW.