Morgunblaðið - 11.12.2017, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
21. desember í 11 nætur
um jólin
FUERTEVENTURA
Síðustu
sætin!
Stökktu
Frá kr.
159.995
m/allt innifalið
Frá kr.
187.295
m/allt innifalið
Frá kr.
159.445
m/allt innifalið
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Erna Ýr Öldudóttir
Fjöldi fólks kom saman í Borgarleik-
húsinu í gær, sunnudag, til að hlýða á
frásagnir kvenna af kynbundnu of-
beldi. Viðburðurinn var haldinn í til-
efni alþjóðadags mannréttinda og
lokadags 16 daga átaks Sameinuðu
þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi.
Meðal þeirra sem lásu sögur kvenna
voru konur úr stéttum leikkvenna,
stjórnmálakvenna, íþróttakvenna og
kvenna í tónlist.
Upphaflega stóð til að halda við-
burðinn á Nýja sviði leikhússins, en
vegna eftirspurnar var hann færður
á Stóra svið Borgarleikhússins og
var salurinn þéttsetinn. Meðal áhorf-
enda voru Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, Dagur B. Eggertsson, borg-
arstjóri Reykjavíkur, og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra.
Spennan var magnþrungin þegar
áhorfendur gengu inn í salinn, en á
sviðinu sátu 24 konur í röð. Mikil eft-
irvætning var í loftinu þegar fyrstu
fjórar konurnar risu á fætur til að
flytja fyrstu frásagnirnar. Hver af
annarri stóðu þær svo á fætur og
lásu tugi sagna kvenna af hvers kyns
áreitni og ofbeldi. Lesturinn stóð yfir
í u.þ.b. klukkustund en óhætt er að
segja að spennuþrungið andrúms-
loftið hafi haldist allan tímann.
Dauðaþögn var meðal áhorfenda,
nema þegar þeir tóku andköf yfir
sumum sagnanna, hlógu yfir öðrum
og grétu jafnvel yfir enn öðrum.
Reyslusögurnar sem upp voru
lesnar voru bæði stuttar og langar,
en allar höfðu þær það sameiginlegt
að vera frásagnir af því misrétti sem
konur í öllum störfum þjóðfélagsins
þurfa að sitja undir vegna kyns síns.
Þarna voru dæmi um óviðeigandi at-
hugasemdir, hótanir og augljósa
kvenfyrirlitningu. Sögur af snert-
ingu gegn vilja kvennanna, byrlun
nauðgunarlyfja, eltingarleik upp á
hótelherbergi og nauðgunum.
Af þessum sögum sem koma úr
öllum stéttum þjóðfélagsins er ljóst
að enginn vinnustaður er undanskil-
inn kynferðislegri áreitni. Annað
sem þessar hugrökku konur, sem
kusu að deila sögum sínum, eiga
margar hverjar sameiginlegt er að
þær þorðu ekki að segja frá þeirri
áreitni og ofbeldi sem þær höfðu orð-
ið fyrir. Þær sem sögðu frá mættu
mótlæti og vantrausti, auk þess sem
hagsmunir þess sem á þeim braut
voru oftar en ekki hafðir í fyrirrúmi.
Í lok upplestrarins var öllum hug-
rökku konunum þakkað fyrir að
stíga fram. Áhorfendur stóðu upp að
sýningu lokinni og glumdi lófatakið í
margar mínútur. Mikil samstaða
myndaðist og mörg faðmlög sáust að
viðburði loknum, bæði á sviðinu og
fyrir utan salinn. Heyra mátti á
mörgum hve umræðan væri þörf og
einhverjir veltu því fyrir sér hvað
myndi gerast næst.
Stigu á svið og sögðu frá
Fjöldi fólks kom saman á þremur stöðum á landinu í gær til að hlýða á frá-
sagnir kvenna af kynbundnu ofbeldi Byltingin #metoo vindur upp á sig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
#metoo Gestir í Borgarleikhúsinu áttu oft erfitt með að hlusta á sögurnar sem lesnar voru upp á sviðinu í gær. Margar þeirra voru átakanlegar og kölluðu
fram tár á hvarmi. Meðal viðstaddra úti í sal voru ráðherrar og þingmenn, bæði núverandi og fyrrverandi, ásamt fólki frá ýmsum stigum þjóðlífsins.
#metoo
Ein frásögn var af 16 ára stúlku
sem lék í sinni fjórðu sýningu í
Borgarleikhúsinu. Hún var að
skipta um föt í hliðarherbergi og
stóð þar á brjóstahaldaranum þeg-
ar fertugur mótleikari kom inn og
horfði á hana. Hann gekk að henni
og setti andlitið þétt upp við hana,
fletti niður brjóstahaldaranum og
strauk gervörtuna á henni.
Umtöluð stúlka sagði í fyrsta
skipti frá atvikinu fyrir viku. Það
sem eftir stóð eftir atvikið var
hvort fullorðna fólkið væri sam-
mála um að hún væri hóra sem
mætti koma svona við.
Fletti niður
brjóstahaldaranum
#metoo reynslusögur
Þjálfari ungrar íþróttakonu nauðg-
aði henni. Í kjölfarið grenntist hún
mikið og átti í erfiðleikum með að
borða og sofa. Hún sagði tveimur
landsliðsþjálfurum frá því að sér
hefði verið nauðgað til að þeir
skildu hvað væri í gangi hjá henni.
Skömmu seinna kom aðstoðar-
landsliðsþjálfari til hennar og
sagði henni að líta á björtu hlið-
arnar. Það væri gott að henni hefði
verið nauðgað því nú væri hún svo
grönn.
Sagt að líta á
björtu hliðarnar
Lögreglukona til 40 ára sagði frá
því að það sem hún hefði látið yfir
sig ganga í störfum sínum væri
varla rithæft. Áreitni hefði verið
daglegt brauð og að hún hefði þurft
að undirbúa sig andlega fyrir
hverja vakt. Verst þótti henni að
vera skráð ein í lögreglubíl með
einhverjum sem reyndi að kyssa
hana þrátt fyrir mótmæli. Að lok-
um hætti hún að treysta sér í útköll.
Áreitnin þótti ekkert stórmál, hún
mætti búast við slíku þar sem hún
hefði kosið að vinna innan um alla
þessa karlmenn.
Áreitt í lögreglu-
bílnum á vakt
„Þetta var alveg mögnuð stund.
Slatti af fólki sem kom og grét
og hló með okkur,“ segir María
Pálsdóttir leikkona sem fór fyrir
#metoo-viðburðinum í sam-
komuhúsi Leikfélags Akureyrar í
gær.
„Við vorum fimmtán konur
sem lásum upp frásagnir
kvenna, héðan og þaðan, úr
íþrótta-, fjölmiðla-, stjórnmála-
og sviðslistaheiminum og þó víð-
ar væri leitað, það var kraftur og
samkennd í loftinu,“ segir María.
Soffía Gísladóttir, forstöðu-
maður Vinnumálastofnunar á
Norðurlandi eystra, var ein
þeirra kvenna sem steig á svið:
„Þetta átak gefur okkur aukinn
kraft til að standa með sjálfum
okkur. Það er ekki leyfilegt leng-
ur að koma svona fram við kon-
ur, eins og verið hefur.“
Meirihluti gesta var konur en
nokkrir karlar mættu líka og það
var mikill kraftur og samkennd í
loftinu, að sögn Maríu, og ætlaði
fagnaðarlátunum aldrei að linna.
„Var alveg mögnuð stund“
15 KONUR LÁSU UPP Í SAMKOMUHÚSINU Á AKUREYRI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Fjölbreyttur hópur kvenna las frásagnir í Samkomuhúsinu í gær.
Upplestrinum lauk með frásögn
konu sem samstarfsmaður áreitti
nú um helgina á viðburði fyrir-
tækisins. Hún lýsti því hvernig
hún hefði æpt á manninn, hrint
honum frá sér af öllu afli. Hún
hefði látið samstarfsfélaga sína
vita, auk yfirmanna, þar sem hún
fékk frábæran stuðning. Hún
hefði hugsað til okkar allra þegar
atvikið átti sér stað, við það hefði
hún fengið kjark því hún vissi að
hún hefði heilan her á bak við
sig. Hún fór heim, bar höfuðið
hátt og hló að tímasetningu
mannsins.
Hló að tímasetningu
mannsins
Á Seyðisfirði fór Halldóra Malín
Pétursdóttir leikkona fyrir viðburð-
inum, sem var haldinn í Herðu-
breið, félagsheimili Seyðfirðinga, í
gær.
„Þetta var einlæg, sönn og falleg
stund. Ellefu konur úr litla sam-
félaginu okkar lásu upp og mæt-
ingin var alveg prýðileg, þrátt fyrir
vonskuveður hérna fyrir austan,“
segir Halldóra Malín og kveður
áhorfendur hafa hlustað vel og ver-
ið þakklátir og meyrir.
„Margir töluðu um hvað það er
átakanlegt að heyra þetta allt í
einu, þá fer fólk að skoða sig og
sitt líf, þannig að þetta er erfiður
en dásamlegur spegill að horfa í.“
Erfiður spegill að horfa í
Ljósmynd/Sigfríð Hallgrímsdóttir
Seyðisfjörður Ellefu konur lásu upp frásagnir sínar í Herðubreið.
Ellefu konur
lásu upp frásagnir
sínar á Seyðisfirði