Morgunblaðið - 11.12.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Esjan er sennilega fjölfarnasta
útivistarsvæði landsins en að
sama skapi um margt viðsjárvert.
Þar hafa orðið mörg slys og
óhöpp á undanförnum árum og
okkur þótti því rétt að skerpa á
ýmsum hættum sem þar leynast.
Göngufólk vanmetur oft Esjuna
og okkur þótti því rétt að skerpa á
öryggisatriðum,“ segir Páll Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Ferðafélags Íslands.
Fyrir nokkrum dögum voru
afhjúpuð fræðslu- og viðvörun-
arskilti á þremur stöðum við Esj-
una. Þau eru við Esjuberg á Kjal-
arnesi, þar sem gengið er á
Kerhólakamb, og við Skarðsá efst
í Mosfellsdalnum þaðan sem leiðin
liggur upp á Móskarðshnjúka.
Þriðja skiltið er við Mógilsá fyrir
botni Kollafjarðar en þar er fjöl-
farnasta leiðin upp á fjallið, þ.e. á
Þverfellshorn, þó að margir taki
„skemmri skírn“ og fari upp að
Steini, sem er þekkt kennimark á
þessum slóðum.
Útkall annan hvern mánuð
Árni Tryggvason hannaði
skiltin en frumkvæði og fram-
kvæmd þess máls var Slysavarna-
félagsins Landsbjargar og Ferða-
félags Íslands. „Í tímans rás hafa
orðið mörg alvarleg slys í Esj-
unni, þar af tvö banaslys á síðast-
liðnum fimm árum. Árið 1979 fór-
ust þar tveir ungir menn í
snjóflóði og þá eru ótaldir tugir
annarra útkalla í fjallinu sem
björgunarsveitarmenn hafa þurft
að sinna, óhöpp eða slys þó að
ekki hafi orðið mannskaði.
Björgunarsveitarmönnum telst
svo til að þeir hafi farið í útkall í
Esjuna að meðaltali annan hvern
mánuð, síðastliðin fjögur ár,“ seg-
ir Páll Guðmundsson og heldur
áfram:
„Því er sameiginlegt verkefni
alls ábyrgs fólks að bregðast við
sem ekki verður gert með öðru en
fræðslu og leiðbeiningum, því
svæðinu verður ekki lokað. Þegar
gott er veður og fólk vel búið er
Esjuferð ekkert mál og hættulítil,
en á veturna þegar er kalt, snjór,
hvasst og svo framvegis, er allt
annað uppi á teningnum. Esjan er
900 metra há; mikill fjallabálkur
sem dregur öll veðrabrigði að sér.
Margir átta sig ekki heldur á
þeirri staðreynd að strax í 500
metra hæð er allt annað veðra-
kerfi en á jafnsléttu – og þá dugar
ekkert að vera með góðan búnað
eða vera í þjálfun. Á þessum slóð-
um er ómögulegt að hafa nátt-
úruöflin undir, séu þau í ham.“
Hált var í neðstu brekkum
Esjunnar við Mógilsá og aðeins
broddafært þegar Morgunblaðið
var á staðnum á laugardags-
morgun. Ofar í fjallinu var færið
mun betra, sagði Páll Ásgeir Ás-
geirsson sem fór fyrir hópi fólks
úr Ferðafélagi Íslands sem þá var
á þessum slóðum.
Klukkustund að Steini
„Á góðum degi fer fólk svo
hundruðum skiptir á Esjuna og
hver tekur fjallið með sínu lagi.
Margir hlauparar fara þarna um
og ég veit líka um fólk sem jafnvel
byrjar daginn á fjallgöngu áður
en vinnudagur hefst. Annars er
fólk á ferðinni á öllum tímum og
núna í skammdegismyrkrinu sér
maður oft í fjallinu tírur höfuð-
ljósa sem göngumenn bera og eru
mikið þarfaþing. En þótt bún-
aðurinn sé góður skiptir samt
mestu að fólk þekkir aðstæður og
kunni að meta þær; svo sem hættu
á snjóflóðum, fari ekki í einstigi
klettanna undir Þverfellshorni að
vetrarlagi, hætti sér ekki út á
glæra svellbunka og svo fram-
vegis,“ segir Páll Ásgeir sem á að
baki hundruð Esjuferða. Hóp-
urinn sem hann fór fyrir um
helgina fór upp að Steini, sem svo
er nefndur, en hann er í 650 metra
hæð í fjallinu en þangað er 3,5
kílómetra ganga frá bílastæð-
unum við Mógilsá.
„Oft er sagt að sá göngumað-
ur sem kemst upp að Steini á
klukkustund eða þaðan af
skemmri tíma sé í góðum málum
og fær í flest. Þeim sem ætla sér á
Hvannadalshnjúk og eru lengur
upp að Steini en klukkutíma er
gjarnan sagt að reyna við auð-
veldara takmark. Margir Esju-
farar eru þó ekkert að velta slíku
fyrir sér – heldur eru fyrst og
fremst í fjallgöngum sér til heilsu-
bótar og ánægju og að því leyti er
alveg frábært fyrir fólk á höfuð-
borgarsvæðinu að hafa þetta fjall
í bakgarðinum.“
Merkingar og leiðbeiningar við borgarfjallið sem margir ganga á
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Esjumenn Páll Eysteinn Guðmundsson, til vinstri, og Páll Ásgeir Ásgeirsson með skiltið góða í baksýn.
Skerpt á öryggi í Esju
Páll Eysteinn Guðmundsson
er fæddur árið 1968. Með
rekstrarmenntun frá Bifröst og
íþróttakennari frá Laugarvatni.
Framkvæmdastjóri Ferðafélags
Íslands frá 2004.
Páll Ásgeir Ásgeirsson er
fæddur árið 1956. Blaðamaður
og höfundur fjölda bóka um
land, leiðir og fjallamennsku.
Starfar í dag við ferðaþjónustu
og fleira.
Hverjir eru þeir?
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna
á Alþingi hittast væntanlega á fundi í
dag til að taka afstöðu til boðs ríkis-
stjórnarflokkanna um að stýra þrem-
ur fastanefndum Alþingis og þremur
alþjóðanefndum og tilnefna fólk í
ákveðin embætti varaformanna.
Frekar er búist við að þeir taki boð-
inu. Verði það niðurstaðan þurfa þeir í
kjölfarið að skipta embættunum á
milli flokkanna fimm.
Stjórnarandstöðuflokkunum
stendur til boða að tilnefna formenn
þriggja fastanefnda, þ.e. stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar, velferðar-
nefndar og umhverfis- og samgöngu-
nefndar, og í tiltekin varaformanns-
embætti. Einnig þriggja alþjóða-
nefnda, þ.e. Vestnorræna ráðsins og í
þingmannanefndir ÖSE og EFTA.
Kosið verður í nefndir á þingsetning-
ardegi næstkomandi fimmtudag.
Stjórnarandstaðan hefur verið með
væntingar um meiri aðild að stjórnun
í þinginu og vísar til yfirlýsinga nú-
verandi forsætisráðherra á meðan
unnið var að myndun stjórnarinnar.
„Við héldum að það myndi birtast í
því að við fengjum meirihluta í ein-
hverjum fastanefndum og stjórnun
nefnda yrði skipt jafnt á milli stjórnar
og stjórnarandstöðu. Líka að við
fengjum að velja eina nefnd. Eitthvað
meira en þingskapalögin segja til um.
Það er ekki þannig og ríkisstjórnar-
flokkarnir eru með meirihluta í þeim
öllum. Það er ekkert nýtt í þessu,“
segir Oddný G. Harðardóttir, formað-
ur þingflokks Samfylkingarinnar.
Gunnar Bragi Sveinsson, formaður
þingflokks Miðflokksins, segist frek-
ar hlynntur því að stjórnarandstaðan
taki boði um formennsku nefnda, að
því gefnu að samkomulag náist.
„Það eru vonbrigði að stjórnin var
ekki tilbúin til viðræðna um neitt,
annað en þetta. Okkur finnst það ekki
sýna þá samvinnu í þinginu sem boð-
uð hefur verið,“ segir hann.
Stjórnarandstaðan svarar í dag
Óánægja með tilboð ríkisstjórnarflokkanna Skipta embættum sín í milli
Oddný G.
Harðardóttir
Gunnar Bragi
Sveinsson
Axel Gíslason, fyrrver-
andi, forstjóri Vátrygg-
ingafélags Íslands –
VÍS, lést síðastliðinn
laugardag á hjúkrunar-
heimilinu Ísafold.
Hann var 72 ára að
aldri.
Axel var fæddur í
Washington í Banda-
ríkjunum 1. júlí 1945.
Foreldrar hans voru
Sólveig Axelsdóttir
húsmóðir og Gísli Kon-
ráðsson, síðar fram-
kvæmdastjóri Útgerð-
arfélags Akureyringa.
Hann ólst upp á Akureyri og lauk
stúdentsprófi frá MA, tók fyrri-
hlutapróf í verkfræði við Háskóla
Íslands og meistaraprófi í bygg-
ingaverkfræði frá verkfræði-
háskólanum í Kaupmannahöfn árið
1971. Fyrsta árið eftir útskrift var
hann ráðgefandi verkfræðingur í
Kaupmannahöfn. Hann réði sig síð-
an til starfa hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga og dótturfyrir-
tækjum, var aðstoðarfram-
kvæmdastjóri iðnaðardeildar á
Akureyri og hjá Iceland Products
Inc. í Harrisburg. Hann var fram-
kvæmdastjóri skipu-
lags- og fræðsludeild-
ar SÍS og síðar
skipadeildar í rúm átta
ár. Aðstoðarforstjóri
SÍS um tíma eða þar
til hann var ráðinn for-
stjóri Samvinnutrygg-
inga 1. janúar 1989 og
síðar forstjóri Vá-
tryggingafélags Ís-
lands hf. – VÍS sem
varð til með samein-
ingu Samvinnutrygg-
inga og Brunabóta-
félags Íslands. Seinna
bættist Líftrygginga-
félag Íslands við. Því starfi gegndi
hann til ársins 2002 og var eftir það
framkvæmdastjóri Eignarhalds-
félagsins Samvinnutrygginga og
stjórnarformaður VÍS.
Axel var virkur félagi í Rótarý-
klúbbnum Görðum og gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum hérlendis og
erlendis.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Hallfríður Konráðsdóttir. Axel læt-
ur eftir sig þrjú börn, Björn, Sól og
Dóru Björgu, og sex barnabörn.
Útför Axels fer fram frá Vídalíns-
kirkju 18. desember nk. kl. 15.
Andlát
Axel Gíslason forstjóri
Heimflugi þriggja flugvéla Ice-
landair frá flugvöllum í Evrópu
seinkaði í gær vegna ísingar. Á
flugvellinum í Frankfurt voru mikl-
ar tafir og sat flugvél Icelandair
föst í fjóra tíma.
„Það voru seinkanir í London,
Zürich og Frankfurt vegna vetrar-
hörku en allar þrjár vélarnar eru á
leiðinni til landsins,“ sagði Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, síðdegis í gær við
mbl.is. Hann sagði að á þessum árs-
tíma gæti veður alltaf sett strik í
reikninginn.
Töfin í flugvellinum í Frankfurt,
sem er stærsti flugvöllur Þýska-
lands, nam fjórum klukkustundum
en fréttaveita AFP greindi frá því
síðdegis í gær að þar hefði yfir 300
flugferðum verið frestað eða aflýst
af þessum sökum.
Töfðust í Frankfurt vegna ísingar
Lögreglan á Suðurnesjum rann-
sakar nú fíkniefnamál þar sem í
hlut á erlendur, líkamlega fatlaður
karlmaður á fimmtugsaldri. Hann
reyndist hafa innvortis eitt mesta
magn fíkniefna sem lögregla segist
hafa séð, eða rúmlega eitt kíló af
kókaíni í 106 pakkningum. Mað-
urinn sætir nú gæsluvarðhaldi.
Tollgæslan stöðvaði manninn í
Leifsstöð við komuna til landsins
22. nóvember sl. Hann var þá að
koma frá Frankfurt. Lögregla var
kvödd til þar sem grunur lék á að
maðurinn væri með fíkniefni inn-
vortis. Hann var færður til röntgen-
myndatöku og kom þá ljós að hann
var með mikið magn af aðskota-
hlutum innvortis, sem reyndust
vera kókaínpakkningar.
Gripinn í Leifsstöð
með kíló af kókaíni