Morgunblaðið - 11.12.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
LITLIR PAKKAR
GLEÐJA MEST
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
Minna fjaðrafok varð en spáðvar vegna ákvörðunar
Trump um að standa loks við loforð
fjögurra forseta Bandaríkjanna um
stöðu Jerúsalem. En auðvitað tóku
ýmsir sterkt upp í
sig. Macron Frakk-
landsforseti hvatti
Netanyahu forsætis-
ráðherra til að sýna
hugrekki í sam-
skiptum sínum við
Palestínumenn og
byggja þannig upp
velvilja til friðar-
viðræðna, eins og
sagt var frá á mbl.is:
Þetta sagði Mac-ron eftir fund
sem hann átti með
forsætisráð-
herranum í París í dag.
Macron hóf yfirlýsingu sína á að
fordæma allar árásir á Ísrael síð-
ustu daga eftir að Donald Trump
Bandaríkjaforseti ákvað að við-
urkenna Jerúsalem sem höfuðborg
Ísraelsríkis.
Hann hvatti einnig Ísraela tilþess að stækka ekki frekar
landnemabyggðir sínar. Netanyahu
gagnrýndi Erdogan Tyrklands-
forseta er hann ræddi við blaða-
menn eftir fundinn með Macron í
dag. Erdogan kallaði Ísrael „ríki
sem drepur börn“ og í svari Net-
anyahu sakaði hann Tyrklands-
forseta um að gera sprengjuárásir
á þorp Kúrda og að styðja hryðju-
verkamenn:
Ég er ekki vanur að fá ráðlegg-ingar um siðferði frá leiðtoga
sem sprengir þorp Kúrda í sínu eig-
in heimalandi, sem setur blaða-
menn í fangelsi, sem hjálpar Íran að
komast hjá alþjóðlegum viðskipta-
bönnum, sem hjálpar hryðjuverka-
mönnum, meðal annars á Gaza, sem
drepa saklaust fólk,“ sagði Net-
anyahu. „Þetta er ekki maður sem
getur lesið yfir okkur.““
Emmanuel
Macron
Minni viðbrögð
en vænst var
STAKSTEINAR
Benjamin
Netanyahu
Veður víða um heim 10.12., kl. 18.00
Reykjavík -7 léttskýjað
Bolungarvík -5 heiðskírt
Akureyri -5 skýjað
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 3 skúrir
Ósló -5 skýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur 1 léttskýjað
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 7 rigning
Dublin 1 skýjað
Glasgow -5 þoka
London 1 rigning
París 9 rigning
Amsterdam 1 þoka
Hamborg 0 snjókoma
Berlín 0 alskýjað
Vín 2 heiðskírt
Moskva 0 súld
Algarve 18 skýjað
Madríd 10 súld
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 6 þoka
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -7 léttskýjað
Montreal -2 snjókoma
New York -1 þoka
Chicago -2 skýjað
Orlando 8 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:10 15:33
ÍSAFJÖRÐUR 11:54 14:59
SIGLUFJÖRÐUR 11:38 14:41
DJÚPIVOGUR 10:49 14:54
Rétt fyrir klukkan 13 í gær var lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu til-
kynnt um slagsmál á milli tveggja
karlmanna fyrir utan matvöru-
verslun í Kópavogi.
Lögreglan fór á vettvang og
ræddi við málsaðila en til ein-
hverra orðaskipta hafði komið á
milli þeirra inni í versluninni með
þeim afleiðingum að þeir fóru að
slást. Ekki fylgdi sögunni hvað olli
rifrildi mannanna.
Slógust fyrir utan
matvöruverslun
„Þetta var mjög vel heppnaður og
góður fundur. Það var gott að eiga
samtal við fulltrúa frá lögreglunni í
nærumhverfi,“ segir Árni Guðmunds-
son, formaður Félags sjálfstæðis-
manna í Grafarvogi, um fund sem fé-
lagið stóð fyrir á laugardag. Þar
mætti Kristján Ólafur Guðnason, að-
stoðaryfirlögregluþjónn og stöðvar-
stjóri á lögreglustöðinni að Vínlands-
leið í Grafarholti, og ræddi við
fundargesti um löggæslu í hverfinu.
Árni segir íbúa í Grafarvogi hafa
haft nokkrar áhyggjur af aukinni
tíðni innbrota undanfarið og þau mál
voru til umræðu á fundinum. „Það
hafa verið fréttir oft í viku af þjófnaði
úr bílum og jafnvel af því að farið sé
inn í geymslur og við höfum séð þetta
í fleiri hverfum, í Langholtshverfi og
víðar. Kristján fór yfir þetta og þau
hafa náð ákveðnum árangri í þessu.
Þau sjá lítilsháttar aukningu á síðustu
tveimur mánuðum, en segjast hafa
náð aðilum sem voru afbrotamenn í
þessum málum. Það gladdi menn.“
Oft er tilkynnt um innbrot á íbúa-
hópum á samfélagsmiðlum og slíkir
hópar voru ræddir á fundinum.
„Þegar farið er inn í bíla og annað
slíkt, þá veit hverfið það nokkrum
mínútum síðar. Þá kannski virðist
vera meiri vandi en það raunverulega
er, af því að hann kemst strax í um-
ræðuna, en það góða er að fólk er
kannski meira á verði,“ segir Árni.
Áhyggjur í Grafarvogi af innbrotum
Íbúahópar á netinu leiða til þess að fólk er frekar á verði gagnvart innbrotum
Morgunblaðið/Ómar
Grafarvogur Í ljósaskiptunum.
Ungi maðurinn sem lést eftir hníf-
stunguárás á Austurvelli hét Klev-
is Sula. Hann hafði ætlað að rétta
árásarmanninum hjálparhönd. Sá
hafi hins vegar ráðist að tilefnis-
lausu á Klevis og samlanda hans
sem nú hefur verið útskrifaður af
sjúkrahúsi. Frá þessu sagði móðir
Klevis, sem komin er hingað til
lands, í viðtali í kvöldfréttum
Stöðvar 2 í gærkvöldi. Klevis var
tvítugur að aldri, frá Albaníu.
Hann hafði dvalið hér í nokkra
daga er árásin var gerð, en áður
hafði hann dvalið í lengri tíma á
Íslandi.
Árásarmaðurinn, sem er Íslend-
ingur, er í gæsluvarðhaldi til 15.
desember nk. að sögn Gríms
Grímssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns og að enn sé verið að
rannsaka tildrög málsins.
ernayr@mbl.is
Stunginn við að
rétta hjálparhönd