Morgunblaðið - 11.12.2017, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Pétur Gunnarsson og Polina Oddr
báru sigur úr býtum í heimsmeist-
aramótinu í suðuramerískum döns-
um 21 árs og yngri sem haldið var í
París um helgina. Vörðu þau þar
með titilinn frá í fyrra en um 100
danspör hófu keppnina.
„Þetta var mjög langur dagur en
gekk rosavel, við unnum alla dans-
ana og þetta var mjög spennandi
keppni. Úkraína varð í öðru sæti og
Rússland í því þriðja. Það er svo
erfitt að útskýra tilfinninguna, ég
er búinn að æfa dans síðan ég var
þriggja ára og er búinn að fórna
miklu. Maður uppsker eins og mað-
ur sáir í þessu eins og öðru,“ segir
Pétur, glaður í bragði.
Pétur og Polina unnu einnig
heimsmeistaramótið í þessum
flokki í fyrra og eru einu Íslending-
arnir sem hafa náð þeim árangri
tvö ár í röð. Þau kepptu aftur í gær
í flokki fullorðinna en niðurstöður
lágu ekki fyrir áður en Morgun-
blaðið fór í prentun. ernayr@mbl.is
Vörðu heimsmeist-
aratitil sinn í dansi
Sigurvegarar Dansparið Polina
Oddr og Pétur Gunnarsson.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for-
maður Öryrkjabandalags Íslands
(ÖBÍ), átti nýverið fund með Ás-
mundi Einari Daðasyni félagsmála-
ráðherra, ásamt fleiri fulltrúum
ÖBÍ. Var farið ítarlega yfir tillögur
um úrbætur í málefnum öryrkja og
fatlaðs fólks. Frá þessu segir í frétt
á vef ÖBÍ.
Þar segir jafnframt að ráðamenn
hafi lýst yfir að auknum fjár-
framlögum verði varið til heilbrigð-
ismála, menntamála og samgöngu-
mála, en að ekki hafi komið fram
yfirlýsingar um aukin framlög til
almannatrygginga og annarra
málaflokka sem heyra undir félags-
og jafnréttisráðherra. Því hafi ráð-
herra verið afhent minnisblað þar
sem tillögur ÖBÍ voru settar fram í
fimmtán liðum.
„Það er afar brýnt að bæta kjör
og auka lífsgæði okkar fólks.
Skerðingar, króna á móti krónu,
verður að afnema strax og það er
margt fleira sem við leggjum
áherslu á að verði að veruleika í
fjárlagavinnu Alþingis. Við viljum
sjá tekju- og eignamörk hækkuð og
lífeyri almannatrygginga hækka
verulega svo fólk geti framfleytt
sér í íslensku samfélagi. Það verður
að lögfesta NPA, notendastýrða
persónulega aðstoð, fyrir áramót.
Þetta eru réttlætismál sem þola
ekki bið,“ sagði Þuríður Harpa.
Afnáms
skerðinga
krafist
Ljósmynd/ÖBÍ
Öryrkjar Fulltrúar ÖBÍ eftir fund
með Ásmundi Einari Daðasyni.
ÖBÍ fundaði með
félagsmálaráðherra
Eignarhaldsfélag Special tours hef-
ur keypt Whales of Iceland sem
rekur hvalasýningu á Grandanum,
og verða fyrirtækin hér eftir rekin
sem systurfélög. Félögin munu
sameina krafta sína og veita við-
skiptavinum sínum betri þjónustu
og aukna upplifun í tengslum við
hvalaskoðun og aðra afþreyingu,
að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu um viðskiptin. Special
tours býður hvalaskoðunar- og
náttúruskoðunarferðir og gerir út
frá Gömlu höfninni í Reykjavík.
Whales of Iceland er stærsta
hvalasýning Evrópu og þar býðst
gestum að fræðast um hvali innan
um líkön af hvölum í fullri stærð.
Sýningin var opnuð árið 2015 og
hefur notið mikilla vinsælda.
Special tours kaupa
hvalasýninguna
Síðdegis í dag fer að draga úr frosti á
landinu og næstu daga verður rign-
ing eða slydda.
Kuldakaflanum sem staðið hefur
með hléum undanfarnar vikur er lok-
ið í bili. Nóvember var kaldur og
einnig byrjunin af desember.
Breytingunni veldur lægð sem
nálgast okkur frá Nýfundnalandi.
Samkvæmt upplýsingum Veðurstof-
unnar má búast við úrkomu seint í
kvöld, fyrst snjókomu og síðan
slyddu og rigningu í nótt. Vindur
verður allhvass eða hvass. Veður
verður síðan breytilegt í vikunni.
Það snýst í norðanátt aftur þegar líð-
ur á vikuna og hitinn fer aftur í frost-
mark um næstu helgi, ef marka má
langtímaspá.
Óveðurslægðirnar sem herja á
Evrópu næstu daga eru fjarri
ströndum Íslands. Veðrið sem var í
Þýskalandi í gær er aðeins for-
smekkurinn því djúp lægð gengur
inn á meginland Evrópu með tilheyr-
andi óveðri.
Kuldakaflanum á
landinu að ljúka