Morgunblaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • solskalar.is
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í yfir 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Yfir 90 litir í boði!
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umhverfisstofnun hefur gefið út tvö
starfsleyfi fyrir fiskeldi það sem af
er ári, bæði vegna landeldis, og þrjú
leyfi vegna eldis í sjókvíum eru tilbú-
in og bíða afgreiðslu samhliða
rekstrarleyfi sem Matvælastofnun
gefur út. Samkvæmt upplýsingum
stofnunarinnar er líklegt að leyfin
verði gefin út á þessu ári eða að
minnsta kosti fljótlega eftir áramót.
Að auki má búast við að 5-7 leyfi
verði gefin út á fyrrihluta næsta árs.
Leyfin sem Umhverfisstofnun
hefur afgreitt en bíða afgreiðslu
Matvælastofnunar eru stækkun Arc-
tic Sea Farm í Dýrafirði og leyfi sem
Arctic Sea Farm og Arnarlax vinna
saman að í Patreks- og Tálknafirði.
12 sjókvíaleyfi í vinnslu
Í reglugerð um fiskeldi er kveðið á
um að Mast taki við umsóknum og
hún og Umhverfisstofnun afhendi
starfs- og rekstrarleyfi samtímis.
Það þýðir að ákveðin samvinna þarf
að vera milli þessara tveggja stofn-
ana um vinnslu leyfanna.
Um 80 starfsleyfi fyrir fiskeldi eru
í gildi hjá Umhverfisstofnun. Það
eru stöðvar af ýmsum gerðum og
stærðum, á sjó og landi.
Oft hefur komið fram að mikil
áform eru um uppbyggingu sjókvía-
eldis hjá fyrirtækjum á Vestfjörðum
og Austfjörðum. Fjöldi umsókna er í
vinnslu í kerfinu, allt frá Skipulags-
stofnun til Matvæla- og Umhverf-
isstofnunar. Þannig er Umhverfis-
stofnun nú að vinna í 18 umsóknum.
Eru það nýjar eldisstöðvar og
stækkun og endurnýjun á eldri leyf-
um, bæði á sjó og landi. Hjá Mat-
vælastofnun eru 12 umsóknir um
sjókvíaeldi í vinnslu.
Þungt og flókið ferli
Miklar tafir hafa oft á tíðum orðið
á útgáfu leyfa. Fram kom í viðtali við
Sigurð Pétursson, framkvæmda-
stjóra Arctic Fish, að sex ár eru liðin
frá því að fyrirtækið fór að vinna að
stækkun sjókvíaeldisins í Dýrafirði.
Fram kemur í reglugerð um fisk-
eldi að umsóknir um starfsleyfi og
rekstrarleyfi skuli afgreiða innan
sex mánaða frá því þær berast. Ljóst
er að stofnanirnar hafa ekki getað
staðið við þessi tímamörk. Raunar
þurfa áformin að fara fyrst í gegnum
mat á umhverfisáhrifum eða í það
minnsta mat á því hvort þær teljist
matsskyldar. Ekki eru kvaðir á
Skipulagsstofnun að afgreiða um-
sóknirnar á tilteknum tíma. Síðan
eru ákvarðanir stofnunarinnar
gjarnan kærðar og þá tekur af-
greiðslan eðlilega lengri tíma en ella.
Matvælastofnun gefur þær skýr-
ingar almennt á drætti á afgreiðslu
umsókna að leyfisveitingaferlið sé
þungt og flókið og málsmeðferð þar
af leiðandi seinleg. Umhverfis-
stofnun getur þess í svari við fyr-
irspurn Morgunblaðsins að í vor, í
kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála í máli
Háafells í Ísafjarðardjúpi, hafi verið
ákveðið að auglýsa aftur nokkur
leyfi sem höfðu farið í opinbert aug-
lýsingaferli. Þar af leiðandi hafi út-
gáfa þeirra leyfa sem nú liggja fyrir
dregist um þann tíma. Ennfremur er
bent á að Hafrannsóknastofnun hef-
ur verið að gefa út burðarþol fyrir
fleiri firði og nýlega nýtt áhættumat
vegna eldis á frjóum laxi. Því þurfi
að taka afstöðu til fleiri gagna við út-
gáfu starfsleyfa nú en á síðustu
misserum.
Vanda þarf til verka
Agnar Bragi Bragason, lögfræð-
ingur á sviði samþættingar hjá Um-
hverfisstofnun, lætur þess getið að
stofnunin sé að vinna að útgáfu
starfsleyfa fyrir fiskeldi en vanda
þurfi til verka og taka mið af nýjum
kröfum og gögnum sem hafi áhrif á
starfsleyfisgerðina í umhverfi sem
tekur breytingum. Þá minnist hann
á skýrslu starfshóps á vegum at-
vinnu- og nýsköpunarráðuneytis þar
sem gerðar eru tillögur um breyt-
ingar á regluumhverfi leyfa fyrir
fiskeldi.
Tillögur um breytingar sem fram
koma í umræddri stefnumótunar-
skýrslu hafa ekki verið lagðar fyrir
Alþingi og reglugerð hefur heldur
ekki verið breytt í kjölfar hennar.
Kristján Þ. Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands fisk-
eldisstöðva, vonast til þess að í kjöl-
far stefnumótunarskýrslunnar, þar
sem helstu hagsmunaaðilar náðu
samkomulagi um ákveðin atriði,
komist leyfismálin á betra ról. Hann
segir að landssambandið hafi fundað
með embættismönnum í helstu
stofnunum til að vinna að því að mál-
in þokist betur áfram.
Þrjú laxeldisleyfi á næstunni
Stofnanir hafa ekki staðið við tímamörk sem ákveðin eru í reglugerðum Flókið og seinlegt að
vinna leyfin og breytingar í umhverfinu Tillögur úr stefnumótunarskýrslu ekki komnar fram
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sjókvíar Framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva vonast til að
útgáfa starfs- og rekstrarleyfa gangi betur á næstunni en verið hefur.
Jón Hjaltason, hæsta-
réttarlögmaður í Vest-
mannaeyjum, lést í Sól-
túni í Reykjavík 8.
desember síðastliðinn,
93 ára að aldri.
Jón fæddist 27. maí
1924 að Hólum í
Hornafirði, sonur
hjónanna Hjalta Jóns-
sonar og Önnu Þór-
unnar Vilborgar Þor-
leifsdóttur.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1943 og varð cand. juris. frá
Háskóla Íslands árið 1949. Að laga-
námi loknu fluttist Jón til Vest-
mannaeyja, þar sem hann gerðist
fulltrúi bæjarfógeta og síðar lög-
fræðingur Vestmannaeyjakaup-
staðar frá árinu 1950.
Hann öðlaðist málflutningsrétt-
indi fyrir héraðsdómi
árið 1953 og varð
hæstaréttarlögmaður
árið 1963. Árið 1961
opnaði hann sína eigin
málflutningsstofu í
Vestmannaeyjum, þar
sem hann starfaði all-
an sinn feril.
Árið 2006 flutti hann
sitt síðasta mál fyrir
Hæstarétti Íslands, þá
82 ára gamall og varð
með því einn elsti lög-
maðurinn sem flutt hefur mál fyrir
Hæstarétti.
Jón kvæntist Steinunni Sigurðar-
dóttur frá Efri-Langey á Breiðafirði
árið 1954, en hún starfaði sem kenn-
ari í Vestmannaeyjum. Þau eign-
uðust þrjú börn saman, en áður en
þau tóku saman áttu þau sinn dreng-
inn hvort.
Andlát
Jón Hjaltason
Bjarki Ómarsson keppti á laugar-
dagskvöld í sínum fyrsta atvinnu-
mannabardaga í fjaðurvigt á MMA
bardagamótinu Fight Star. Mótið
var haldið í þrettánda sinn í London
um helgina og hafði Bjarki sigur
gegn Mehmosh Raza frá Pakistan.
„Dómnefndin var klofin en mér
líður samt eins og ég hafi unnið allar
loturnar. Raza var mjög erfiður and-
stæðingur, en þetta var sjötti at-
vinnumannabardaginn hans. Ég er
vanur að keppa áhugamanna-
bardaga þar sem loturnar eru aðeins
þrjár mínútur en í atvinnumanna-
bardaga eru þær fimm, sem þarfn-
ast meira úthalds,“ segir Bjarki.
Hann segir stuðning áhorfenda hafa
skipt sig miklu og er afar þakklátur
þeim, ásamt þjálfurum, styrktarað-
ilum, vinum og fjölskyldu. Bjarki er
22 ára og hefur æft í sjö ár. Hann æf-
ir í Mjölni og Gunnar Nelson þjálfar
hann. ernayr@mbl.is
Bjarki sigraði í fyrsta
atvinnumannabardaga
Ljósmynd/Snorri Björnsson
Bardagi Bjarki Ómarsson, til hægri, keppir hér við Mehmosh Raza.
Slökkviliðið á Ísafirði var kallað út
síðdegis í gær vegna reyks sem
lagði frá húsi á Hlíðarvegi. Í ljós
kom að pottur hafði gleymst á elda-
vél.
Íbúðin var mannlaus er að var
komið en hundur var þar inni. Sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkvilið-
inu virðist sem honum hafi ekki
orðið alvarlega meint af.
Enginn eldur var í íbúðinni en
mikill reykur.
Björguðu hundi úr
reykfylltri íbúð
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Ísafjörður Slökkviliðsmenn að störfum
við Hlíðarveg í gær. Íbúðin var mannlaus.