Morgunblaðið - 11.12.2017, Side 12
Flottur Þessi glæsilegi, hringhyrnti hrútur tekur sig ljómandi vel út svona nýklipptur og snyrtilegur.
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
Stórir og miklir hrútar hafalöngum fangað augu þeirrasem áhuga hafa á sauðfé ogsauðfjárkynbótum. Margir
þeirra eru þungir og stórir og það er
ekki alltaf auðvelt að draga þá í dilka,
teyma eða rýja. Horn þeirra eru oft
mikil og hringhyrndir hrútar bera oft
á tíðum glæsileg horn sem bera vott
um það vald sem þeir hafa í hjörðinni.
Geðslag þeirra er mjög misjafnt og
margir þeirra eru mikil gæludýr sem
vilja láta klappa sér á milli hornanna
eða á bak við eyrun í hvert sinn sem
komið er í húsin. Aðrir eru lítið fyrir
athygli og það ber að hafa augun hjá
sér þegar verið er í krónni til þess að
koma í veg fyrir að þeir renni sér aft-
an á þann sem er að bogra við garð-
ann. Þannig skepnur geta skaðað
fólk. Hins vegar eru hrútar mikil
prýði í náttúrunni á fögrum sumar-
dögum þegar þeir liggja í hóp saman
í haganum að jórtra og láta tíma líða
og ekkert virðist geta raskað ró
þeirra.
„Hrútarnir eru miklu þyngri en
ærnar og það er heldur verra að eiga
við þá í rúningnum. Rúningnum er
lokið þegar hrútarnir eru teknir, en
þeir eru geymdir þar til síðast því það
er gott að hafa hjálp við þá.“ Þetta
segir Jón Gunnarsson, bóndi í Árholti
á Tjörnesi, en hann var að rýja hrút-
ana um helgina ásamt systursyni sín-
Hrútar eru
fagur fénaður
Jón Gunnarsson, bóndi í Árholti á Tjörnesi, á marga hrúta og hefur stundað rækt-
unarstarf um langt árabil. Það var því mikill handagangur í öskjunni þegar
hann og systursonur hans, Gunnar Sigurður Jósteinsson, tóku til við að rýja stóru
hrútana eins og þeir eru stundum kallaðir í daglegu tali.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Von er á fyrsta jólasveininum til
byggða á morgun, þriðjudaginn 12.
desember, og síðan bræðrum hans
tólf einum af öðrum. Kvisast hefur út
þeir hyggist koma við í Þjóðminja-
safninu við Suðurgötu kl. 11 daglega
frá og með morgundeginum til 24.
desember, og heilsa upp á gesti. Að
venju verður Stekkjarstaur fyrstur á
ferðinni, síðan koma Giljagaur, Stúf-
ur, Þvörusleikir, Pottaskefill, Aska-
sleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur,
Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gátta-
þefur, Ketkrókur og Kertasníkir.
Sveinarnir klæðast fatnaði af gamla
taginu og útskýra kenjar sínar og
klæki fyrir börnunum. Sungin verða
jólalög, m.a. vísur Jóhannesar úr
Kötlum um þá bræður. Gestum gefst
kostur á að skoða sýninguna Sér-
kenni sveinanna þar sem munir úr
torfbænum eru tengdir heiti hvers
jólasveins. Á jólasíðu Þjóðminja-
safnsins er alls konar fróðleikur um
íslensku jólasveinana.
Vefsíðan www.thjodminjasafn.is/jol/jolasveinar
Morgunblaðið/Ómar
Áttundi jólasveinninn Þessi mynd náðist af Skyrgámi fyrir nokkrum árum í
Þjóðminjasafninu, en hann er áttundi jólasveinninn sem kemur til byggða.
Stekkjarstaur fyrstur á ferðinni
Skammdegistónleikar Tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands verða haldnir kl.
20 í kvöld, mánudaginn 11. desember í
Háteigskirkju. Nemendur leika á horn
og túbu auk þess sem þeir flytja tvö
kammerverk eftir Martinu annars veg-
ar og Dowland hins vegar.
Skammtímatónleikaröð tónlistar-
deildar LHÍ er yfirheiti nemenda-
tónleika í lok haustannar. Þessir ein-
leiks- og kammertónleikar nemenda
eru þeir síðustu á önninni. Allir vel-
komnir.
Skammdegistónleikar
Horn, túba og
kammerverk
Morgunblaðið/Kristinn
Háteigskirkja.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Sauðfjársæðingastöð Norðurlands hóf starfsemi sína á árinu 1964, en þá
um haustið var innréttaður braggi á Rangárvöllum fyrir ofan Akureyri fyr-
ir starfsemina. Einn aðalhvatamaður að stofnun sauðfjársæðingastöðv-
arinnar var Sigurjón Steinsson sem þá var bústjóri í Lundi. Fyrsta haustið
voru keyptir 5 hrútar sem allir voru ættaðir úr Þistilfirði. Í desember
þetta ár voru sæddar 7500 ær. Við val á hrútum inn á stöðina var reynt
að taka tillit til sem flestra þeirra þátta sem hafa áhrif á afurðasemi fjár-
ins svo sem kjötgæða, mjólkurlagni, frjósemi áa og ullargæða.
Fyrstu hrútarnir frá Þistilfirði
SAUÐFJÁRSÆÐINGASTÖÐ Á NORÐURLANDI
Núna þegar mesta skammdegið
grúfir yfir og hátíð ljóssins nálgast
óðum ætlar Skólahljómsveit Grafar-
vogs að koma gestum og gangandi í
Borgarbókasafninu í Spönginni í
jólaskapið. Milli kl. 16 og 17 í dag,
mánudaginn 11. desember, leikur
sveitin jólalög sem óma munu um
safnið um leið og kertaljósin spegl-
ast í glæsilegu málmblásturshljóð-
færunum.
Allir velkomnir.
Skólahljómsveit Grafarvogs
Jólin koma Skólahljómsveit Grafar-
vogs leikur nokkur jólalög.
Blásið til
jólahátíðar
Hvernig er best að forðast að missa
tökin í mat og drykk og fara flatt á
jólahaldinu eins og sumum hættir til
um hátíðarnar? Maríanna Csillag,
hjúkrunarfræðingur hjá Heilsuborg,
ætlar að miðla nokkrum góðum ráð-
um á opnum fyrirlestri kl. 17.45 - 19 í
dag, mánudaginn 11. desember, í
húsakynnum Heilsuborgar, Bílds-
höfða 9. Fyrirlesturinn er ókeypis og
öllum opinn, Heilsuborgurum sem og
öðrum sem vilja læra að njóta að-
ventunnar og jólanna á heilbrigðan
hátt.
Opinn fyrirlestur
Hóf Allt er best í hófi, líka á jólum.
Freistingar
á aðventunni