Morgunblaðið - 11.12.2017, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Nýlöguð
humarsúpa
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Stór jólahumar
Stór skelfléttur humar
Klaustur-
bleikja
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Undanfarin ár hefur mikið verið
skrifað um að framtíð tæknilausna
fyrirtækja og stofnana sé í skýinu.
Æ meira af hugbúnaði, gögnum og
reiknigetu færist yfir í skýið og
margir líta svo á að skýjalausnir séu
hagkvæmasti og
öruggasti kostur-
inn.
Gunnar Guð-
jónsson segir
veruleikann þó
ekki svona ein-
faldan, og að oft
geti verið ráðleg-
ast að fara bland-
aða leið. Gunnar
er framkvæmda-
stjóri Endor sem
er ráðgjafarfyrirtæki á upplýsinga-
tæknimarkaði. Endor er ungt fyrir-
tæki en var fyrir skemmstu valið há-
stökkvari ársins af Hewlett Packard
Enterprise.
Gunnar segir í grófum dráttum
hægt að velja milli þriggja leiða:
„Það má keyra ákveðnar þjónustur
og kerfi á gamla mátann, og reka
eigin innviði. Svo má nýta skýjaþjón-
ustu á borð við Amazon, Azure-
tölvuský Microsoft eða Office 365-
vöndulinn. Loks er hægt að velja
svokallaðar einkaskýjalausnir þar
sem gögn og/eða forrit eru geymd
utanhúss en á tilteknum vélbúnaði á
tilteknum stað.“
Ólíkar þarfir og kröfur
Að sögn Gunnars getur verið upp-
lagt að nýta t.d. tölvuský Amazon
eða Microsoft sem tímabundna lausn
þegar fyrirtæki þurfa aðgang að
meiri reiknigetu í skemmri tíma, og
losna þannig við að fjárfesta í dýrum
búnaði. „Og einkaskýjalausnir geta
líka hentað mjög vel fyrir hluti eins
og geymslu og meðhöndlun gagna,
afritun þeirra og langtímavarðveislu
svo dæmi séu nefnd. Hins vegar er
sumt sem á ekki heima í skýinu og
veltur bæði á rekstrinum sem um
ræðir, og þeim reglum sem gilda í
hverju landi fyrir sig, hvað á ekki að
setja í skýið heldur halda innan-
húss.“
Gunnar nefnir sem dæmi að fjár-
hags- og heilsufarsupplýsingar þurfi
yfirleitt, lögum samkvæmt, að hýsa á
öruggum tölvuþjónum hjá viðkom-
andi stofnun eða fyrirtæki. „Þetta
eru upplýsingar sem ætti ekki að
setja í ský einhvers staðar úti í heimi.
Í sumum tilvikum getur jafnvel leik-
ið vafi á því hverjum gögnin tilheyra
eftir að þau eru komin í tölvuskýin.“
Mat lagt á öryggið
Í umræðunni um kosti tölvuskýs-
ins hefur verið nefnt að með því að
nota skýið skapist meira öryggi;
tölvuskýin séu vöktuð af fagfólki all-
an sólarhringin, öll gögn afrituð sam-
viskusamlega og varin með mörgum
lögum af hugbúnaði. „Það einfaldar
hlutina vitaskuld að ætla að treysta
einhverjum öðrum 100% til að gera
hlutina rétt,“ segir Gunnar en bendir
á að vinnsla og hýsing gagna á tölvu-
þjónum innanhúss þurfi alls ekki að
vera minna örugg. „Það þarf að
leggja mat á öryggi þess tækjabún-
aðar sem á að nota, hvaða kröfur
kerfissalurinn uppfyllir, hvaða þekk-
ing er til staðar hjá þeim starfs-
mönnum sem reka kerfið og hvaða
þjónustuaðila má leita til eftir hjálp.“
Skýið ekki alltaf
besti kosturinn
Blönduð hýsing innanhúss og í skýi getur verið farsælust
Reuters
Stæður Að sögn Gunnars þarf að meta það í hverju tilviki fyrir sig hvaða
leið er best að fara. Tölvuskýið nýtist til margs en er ekki töfralausn.
Gunnar
Guðjónsson
Tæknifyrirtækið Apple á í við-
ræðum um kaup á hugbúnaðar-
fyrirtækinu Shazam Entertain-
ment, framleiðanda Shazam-
snjallforritsins.
Shazam er 18 ára gamalt breskt
fyrirtæki og hefur reksturinn
fengið samtals 143 milljónir dala
frá fjárfestum í gegnum tíðina, að
sögn Reuters. Tæknifréttasíðan
TechCrunch hefur eftir heimild-
armönnum að Apple kunni að
borga allt að 400 milljónir dala
fyrir reksturinn en áður hafði Sha-
zam verði metið á um það bil millj-
arð dala.
Shazam er einkum þekkt fyrir
að geta „hlustað“ á lög og sagt
notendum hvaða lag er um að
ræða. Forritið getur líka þekkt
sjónvarpsþætti af hljóðinu einu
saman.
Tækni Shazam er þegar nýtt af
Siri, gervigreindarþjóni Apple, og
geta iPhone notendur beðið Siri –
með hjálp Shazam – að hlusta á og
tilgreina tónlist sem heyrist t.d. í
útvarpi eða sjónvarpi.
Kaupin gætu styrkt stöðu Apple
á tónlistarmarkaði með því að
gera notendum Apple-tækja auð-
veldara að finna lög og bæta þeim
við spilunarlista sína í Apple
Music. Um mitt ár voru áskrif-
endur Apple Music-streymiþjónust-
unnar 27 milljónir talsins, en á
sama tíma voru notendur Spotify,
helsta keppinautar Apple á
tónlistarstreymimarkaði, um 60
milljónir talsins. ai@mbl.is
Apple vill kaupa Shazam
AFP
Fengur Sagt er að Apple vilji greiða
400 milljónir dala fyrir Shazam.
Bandaríski gosdrykkjarisinn Pepsi-
Co hefur ákveðið að skrá sig í kaup-
höll Nasdaq og binda þar með enda
á nærri aldarlangt samband við
NYSE-kauphöllina. Saga PepsiCo
hjá NYSE hófst 18. desember 1919
en þá hét félagið Loft Inc. Að sögn
Reuters er stefnt að því að viðskipti
með hlutabréf Pepsi á Nasdaq-
markaðinum hefjist 20. desember
næstkomandi.
Yfirmaður fjárfestatengsla hjá
Pepsi segir breytinguna gerða til
að auka skilvirkni og til að nýta þau
tól og þá þjónustu sem Nasdaq býð-
ur upp á. Nasdaq er þekkt fyrir að
hafa laðað til sín fjölda tæknifyrir-
tækja og verður Pepsi þar m.a. í fé-
lagsskap Apple og Alphabet. Þar
má einnig finna fjölda matvæla- og
veitingafyrirtækja, s.s. Kraft
Heinz, Starbucks og Mondelez.
Markaðsvirði PepsiCo er í dag
um 165 milljarðar dala og er fyrir-
tækið því, að sögn CNBC, það
stærsta í sögunni til að færa sig á
milli kauphalla. ai@mbl.is
Pepsi færir sig til Nasdaq
AFP
Veldi Pepsi var upphaflega skráð
hjá NYSE í desember 1919.
Samhliða ævintýralegri styrkingu
rafmyntarinnar bitcoin hafa tengd-
ir eignaflokkar líka hækkað tölu-
vert. Meðal fyrirtækja sem hafa
notið góðs af bitcoin-æðinu eru
tölvukubbaframleiðendur á borð
við Nvidia, AMD og Intel, en vél-
búnaður þeirra er notaður til að
framleiða rafmyntir. Framleiðend-
ur bitcoin-mynta hafa sér í lagi
reitt sig á reiknigetu skjákorta frá
Nvidia en hlutabréf fyrirtækisins,
sem er með starfsemi sína í Kali-
forníu, hafa hækkað um rösklega
79% það sem af er þessu ári, að
því er FT greinir frá.
Annað fyrirtæki sem hefur notið
góðs af hækkun bitcoin er Grays-
cale Bitcoin Investment Trust
(GBIT), sem er fjárfestingarsjóður
sem á rösklegea 171.000 bitcoin-
myntir. GBIT er skráð á OTCQX-
markaðinn í New York og var sett
á laggirnar með það fyrir augum
að gefa fjárfestum þægilegri leið
til að gera bitcoin hluta af eigna-
söfnum sínum án þess að þurfa að
hafa fyrir því að kaupa, geyma og
selja myntina. Bitcoin-safn GBTC
var 2,6 milljarða dala virði um
helgina en markaðsvirði fyrirtæk-
isins 3,1 milljarður á sama tíma og
hefur hækkað um nærri 1.250% á
árinu. ai@mbl.is
Hækkun bitcoin
smitar út frá sér
Nvidia hefur hækkað um 79% á árinu
AFP
Áhrif Meðbyr bitcoin hefur m.a. komið sér vel fyrir tölvukubbageirann.