Morgunblaðið - 11.12.2017, Page 21
Við systkinin og fjölskyldur
okkar vottum Jóni frænda og fjöl-
skyldu hans, svo og systrum
Gunnu, einlæga samúð. Eftir-
minnileg og góð kona er látin.
Blessuð sé minning hennar.
Erna Helga (Lillý).
Ég held að ekki sé til sá Suð-
urnesjamaður sem ekki þekkti
Gunnu skó í Keflavík. Ég gleymi
því aldrei þegar ég hitti Gunnu
fyrst. Það var í félagsheimili
Heiðabúa, skátafélagsins í Kefla-
vík. Ég held að ég hafi verið 10 eða
11 ára gutti. Ef hefði verið til
greining á börnum í þá daga, hefði
ég verið greindur með ADHD á
háu stigi. Ég var með athyglis-
brest, ofvirkur, órólegur, ég
stríddi við námsörðugleika, var
athyglissjúkur og svona mætti
lengi telja. Sem sagt kolvitlaus og
óviðráðanlegur krakki. En það
var þarna í félagsheimilinu sem
Gunna tók eftir mér og látunum í
mér. Hún hafði með sér gítar og
við áttum að syngja „Kveikjum
eld“. Hún sá að ég dómineraði yfir
salnum með látum og kallaði á
mig til að aðstoða sig í söngnum.
Ég átti að halda á söngbókinni
fyrir hana svo að hún sæi textann.
Auðvitað kunni hún textann utan
að eins og allir skátar. En ég fann
mig í ábyrgðarhlutverki og vand-
aði mig við að halda á bókinni. Eft-
ir að hafa sungið „Kveikjum eld“
þrisvar sinnum spurði Gunna mig
hvort við ættum að syngja þetta
lag í allt kvöld því ég fletti aldrei
síðunum í bókinni. Það var mikið
hlegið. Þarna tókst með okkur
mikill vinskapur sem slitnaði aldr-
ei. Hún vissi að hún væri með
ómótaðan leir í höndunum og mót-
aði hann mjög vandlega.
Gunna lagði grunninn að mínu
lífi. Hún hvatti mig áfram í öllu,
sama hvað það var og hrósaði mér
alltaf. Ég var tíður gestur á heim-
ili þeirra Jóns og Gunnu til að
ræða afrek mín og hreykja mér af
og alltaf var tekið undir með mér
af allri fjölskyldunni. Það var ekki
nóg að Jón og Gunna ættu fjögur
börn á þessum tíma heldur var
Gunna svona mamma númer tvö
hjá flestum krökkum bæjarins og
veitti þeim öllum athygli og hvatti
þau áfram. Mér hefur oft orðið
hugsað til þess þegar ég var í
heimsókn í litla eldhúskróknum á
Skólaveginum hvað Jón og Gunna
væru góðir foreldrar. Allir krakk-
arnir bjuggu heima á þessum tíma
og oft komu þeir Stebbi og Sibbi
sem voru eldri en ég inn í umræð-
urnar. Þeir voru með mestu töff-
urum bæjarins þá og Stebbi með
langt sítt hár niður á bak sem ekki
allir drengir fengu að hafa á þess-
um tíma vegna foreldranna. Aldr-
ei nokkurn tímann var mér sýnd-
ur töffaraskapur eða hallað á mig
á nokkurn hátt þó að ég væri um-
talaður í bænum sem einn af
vandræðagemlingum bæjarins.
Gunna var töffari sem hafði
sama yfirbragð og Vigdís forseti.
Það báru allir virðingu fyrir
Gunnu skó þó að hún væri alltaf
létt, brosmild og kát. Hún var
gleðigjafi mikill, hjálpsöm og vildi
allt fyrir alla gera, hvort sem það
var á skóverkstæðinu þeirra
hjóna, úti á götu eða í skátastarf-
inu. Gunna kunni tökin á mér og
mótaði mig vel og verð ég henni
ævinlega þakklátur. Allar götur
síðan ég kynntist Gunnu skó hef
ég borið mikla virðingu fyrir
henni. Litla fjölskyldan á Skóla-
vegi 22 Jón og Gunna, Sibbi,
Stebbi, Jóhanna og Bjössi litli
hafa alltaf átt eitt stórt pláss í
hjarta mínu því þar var ég alltaf
velkominn í heimsókn hvenær
sem var. Mér þykir leitt að geta
ekki fylgt elskulegri vinkonu
minni síðasta spölinn þar sem ég
bý í Noregi og á ekki heiman-
gengt.
Kæra fjölskylda, ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð og megi
guð styrkja ykkur í þeirri miklu
sorg sem nú er hjá ykkur því fallin
er frá frábær kona sem var stór
kvistur í lífi Suðurnesjabúa.
Kristinn T. Haraldsson
(Kiddi rót).
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 opin vinnustofa kl. 9 og jólabingó með vinsælu vin-
ningunum okkar kl. 13.30. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Bingó
kl. 13.15. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl.
16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Föstudagur: Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 9. Vöflukaffi
kl. 14.30. Línudans fyrir byrjendur og lengra komna kl. 15.15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10:30.
Leikfimi kl. 12:50-13:30. Jólabingó kl. 13:30, 250 krónur spjaldið, allir
velkomnir. Opið kaffihús 14:30-15:15.
Furugerði 1 Morgunverður frá 8:10-9:10 í borðsal, fjöliðjan í kjallara
opin frá kl. 10. heitt kaffi á könnunni. Útskurður fyrir hádegi.
Stólaleikfimi með Olgu kl. 11. í innri borðsal. Hádegisverður kl. 11:30-
12.30 í borðsal. Ganga kl. 13. ef veður leyfir. Föstudagsfjör kl. 14.
Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30 í borðsal.
Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá
09:30-16. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi
kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20 Hleinum kl. 12.30, og frá Garðatorgi
7. kl. 12:40 og til baka að loknu félagsvist ef óskað er. Smiðjan í Kirkju-
hvoli er opin kl. 13 – 16. Allir velkomnir.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl.08:30-16. Glervinnustofa
m/leiðb. kl 9.-12. Prjónakaffi kl. 10.-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10.-
10:20. Gönguhópur um hverfið kl.10:30-. Bókband m/leiðb. kl. 13:00-
16. Kóræfing kl.13.-15.
Gjábakki kl. 9. Handavinna, kl. 9.10 Boccia, kl. 9.30 Postulínsmálun,
kl. 13. Tréskurður, kl. 13.30 Gjábakkagleði - Söngur með harmoniku.
Grensáskirkja Jólastund eldri borgara verður miðvikudaginn 13.
des. kl. 12-14. Helgistund, jólamatur og upplestur. Verð kr. 2.000.- Vin-
samlega tilkynnið þátttöku á netfangið grensaskirkja@kirkjan.is og í
síma 528-4410 í síðasta lagi á hádegi þriðjudaginn 12. desember. Allir
velkomnir.
Gullsmari Föstudagur Handavinna kl 9. Leikfimi /Ganga kl 10. Flu-
gunhýtingar kl. 13. Gleðigjafarnir kl 14. Gullsmári 20 ára afmæli kl 14.
til 16. Allir hjartanlega velkomnir .
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi
og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi
kl. 9.45, boccia kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Bridge kl. 13, Jólabingó
kl. 13.15, kaffisala í hléi, allir hjartanlega velkomnir.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, Thai Chi kl.9, boccia kl.10.15, myndlistanámskeið hjá Margréti
Zophoníasdóttir kl.12.30, Jólastemming kl.14 upplestrarhópur Soffíu
les aðventuljóð, jólaglögg og piparkökur, rautt þema mætum í ein-
hverju rauðu, nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Rúta leggur af stað 10.30 frá hótel Örk í Borgir eftir
jólahlaðborð Korpúlfa í Hveragerði. Bridge kl. 12:30 í Borgum, han-
nyrðahópur kl. 12.30 í Borgum. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum
og sundleikfimi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug. Gleðilega aðventu í
Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30,trésmiðja kl.9-12,listasmiðja
m.leiðbeinanda kl.9-12,morgunleikfimi kl.9.45,upplestur
kl.11,Föstudagsskemmtun kl.14,ganga m.starfsmanni kl.14.Uppl í
s.4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr 10 er
boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin,
hádegisverður kl. 11.30-12.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið.
Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga salnum
Skólabraut kl. 11. Syngjum saman á Skólabraut kl. 13. Spilað í
króknum kl. 13.30. og bridge í Eiðismýri kl. 13.30. Á mánudag verður
boðið upp á sápugerð í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl. 20.-23.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi- allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Askalind 4, Kóp.
Sími 564 1864
www.vetrarsol.is
B&S mótor með rafstar, 249cc
Dreing 1 – 10 metrar
69cm vinnslubreidd
Með ljósum og á grófum dekkjum
Frábær í mikinn og erðan snjó
Snow Blizzard snjóblásari
Bílar
Toyota Corolla útsala!
Nýr 2017 Active Diesel.
Álfelgur. Bakkmyndavél.
Leiðsögubúnaður ofl lúxus.
Verð aðeins 2.990.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki
13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Vantar þig aukapening?
Að verða goðsögn
í lifanda lífi hlotnast
ekki öllum, en þó
má finna samhljóm
milli þeirra sem
þess heiðurs njóta, því þetta fólk
er sjálfu sér samkvæmt, fylgir
sannfæringu sinni, nærir um-
hverfi sitt með sérkennum sínum
og skemmtilegheitum og er al-
gjörlega óhrætt við það vera það
sjálft. Þessa eiginleika hafði Ein-
ar Höskuldsson ríkum mæli.
Hans sérgrein var náttúran, dýr-
in, sagan og menningin sem hann
tengdi saman á sinn sérstaka
hátt.
Einar fæddist á Vatnshorni í
Skorradal, fallegum, veðursæl-
um stað innst í dalnum þar sem
afkoman var sótt í nýtingu lands-
ins og vatnsins auk þess sem
Höskuldur var söðlasmiður.
Menntun sína fékk Einar að
mestu leyti í foreldrahúsum en
auk þess var hann í farskóla
nokkrar vikur á ári. Hann drakk í
sig fróðleikinn sem í kringum
hann var og sérstaklega það sem
sneri að skepnunum. Einar fór
snemma að stunda almenn
verkamannastörf en tamningar
og almenn bústörf heilluðu mest,
enda maðurinn einstaklega lag-
inn við skepnur. Í Húnaþingi
kynntist hann eftirlifandi eigin-
konu sinni, Bryndísi Júlíusdóttur
frá Mosfelli, og eignuðust þau
tvær dætur. Hjónaband þeirra
var farsælt og voru þau fyrir-
mynd margra hestamanna sem
fylgdust með fjölskyldunni úr
fjarlægð. Samhent hjón með
myndarbú, öll gráu hrossin og
dæturnar eins og skógardísir í
fallegu ævintýri. Dugnaður,
vandvirkni og snyrtimennska
fylgdu Einari alla tíð og bú þeirra
Bryndísar á Mosfelli einkenndist
Einar Höskuldsson
✝ Einar Hösk-uldsson fæddist
28. nóvember 1939.
Hann lést 24. nóv-
ember 2017.
Útför hans fór
fram í kyrrþey.
af snyrtimennsku
og natni.
Einar var prúð-
menni í framkomu,
kurteis, laus við allt
mont og fátt fannst
honum tilkomu-
minna en „þeir sem
eru með allan heim-
inn í kokinu,“ eins
og hann orðaði það.
Kynni okkar Ein-
ars hófust eftir að
ég skrifaði tímaritsgrein í Hesta-
blaðið um Sigurð Jónsson frá
Brún, en hann var farkennari
Einars í Skorradalnum, fjöl-
skylduvinur foreldra hans og
þangað sótti Einar blóðið í
hrossaræktina. Hann hringdi í
mig eftir að hafa lesið greinina,
þakkaði mér fyrir og upp frá því
urðum við vinir. Gjafmildin sem
Einar hefur sýnt mér verður
seint þökkuð og ekki er síður að
þakka fyrir símtölin og ferðirnar
um sveitirnar, bæði norðanlands
og sunnan, þar sem hann vissi af
hrossum af Stafnsættum, sem
hann vildi sýna mér og fræða um.
Það voru sannarlega forréttindi
að njóta vináttu Einars Hösk-
uldssonar.
Vetur er genginn í garð, heils-
an farin að bila og löngu dags-
verki að ljúka. Þetta haustið und-
irbjó Einar sig undir veturinn
með öðrum hætti en áður. Hross-
unum kom hann fyrir hjá fólki
sem hann treysti og kindunum og
hundinum fargaði hann. Þetta
reyndi á, en hann vissi sinn vitj-
unartíma og skepnunum varð að
koma fyrir á þeim stað sem hann
valdi þeim. Hann hefur nú ekki
lengur áhyggjur af forystufénu,
hvort það skilar sér af fjalli fyrir
vetur, eða öðrum skepnum sem
eru vön umönnun hans heima við.
Einar undirbjó brottför sína með
því innsæi sem hann bjó yfir í svo
ríkum mæli og yfirgefur þessa
jarðvist sáttur við guð og menn.
Minning um góðan dreng lifir.
Fjölskyldunni allri sendi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Óskar Bergsson.
✝ Artha Rut Ey-mundsdóttir
fæddist 2. janúar
1941. Hún lést á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund við Hring-
braut 25. nóvember
2017.
Artha fæddist í
Færeyjum en flutti
14 ára gömul til Ís-
lands með for-
eldrum sínum, Eymundi Hentze,
f. 11. apríl 1913, d. 7. október
1970, og Rakel Hentze, f. 24. febr-
úar 1918, d. 20. nóvember 1995.
Artha átti tvær systur, Amy
Eymundsdóttur, sem er dáin, og
Írenu í Geil.
Artha giftist
Ólafi Ingvarssyni
járnsmið 1963 og
áttu þau saman
þrjú börn, Rakel
Eddu Ólafsdóttur,
gift Karli Arnari
Arnarsyni, Björgu
Ólafsdóttur og Ólaf
Ólafson. Barna-
börnin eru sjö.
Artha starfaði
lengst af sem verka- og sauma-
kona.
Útför Örthu fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 11. desember
2017, og hefst athöfnin klukkan
13.
Mín kæra mágkona. Nú ert þú
búin að fá hvíld frá amstri lífsins.
Það er erfitt fyrir aðstandendur
að horfa upp á ástvini lenda í Elli
kerlingu og að vissu leyti léttir að
þú sért komin til Sumarlandsins
til dvalar. Það eru nú sennilega
ekki jól þar en hver veit. Kannski
er jólatré úr rauðum rósum og
hvít krónublöð sem skraut. Æ, ég
segi nú bara svona. Eitthvert bull
almennt. Það má svo alveg
ímynda sér að þið systur séu
sestar með sígarettuna í hendi og
kaffibolla segjandi fréttir af
börnum og barnabörnum. Það
tístir í ykkur hláturinn og ég vil
halda að Auja sys sé með ykkur í
kompaníinu. En þegar þið Óli bró
fluttuð þá varstu sko alveg ákveð-
in að halda áfram að reykja og
dömurnar á Grund voru svo góð-
ar að fylgja þér í reykingapásu.
Þú undir þér nú ekki vel þegar þú
fluttir. Varst svolítið áttavillt,
vissir ekki hvar þú ættir heima.
Þá var að hringja í hana Rakel
sem kom og sótti þig alveg í hvín-
andi hvelli og þar fékkstu kaffi og
spjall. Sonurinn kom líka til
hjálpar en Björg býr í kóngsins
Kaupmannahöfn og á ekki svo
gott með að bregða sér af bæ. Ég
verð að láta þetta nægja. Er eitt-
hvað svo andlaus og óneitanlega
hugsar maður um sitt skapadæg-
ur. Er lífsbókin að klárast? En
svoleiðis má ekki hugsa heldur
hugsa sér að þið séuð að syngja
jólasálminn fallega „Heims um
ból, helg eru jól“. Góðar stundir
og takk fyrir samveruna. Bið að
heilsa í Sumarlandið.
Þrúður (Þrúða).
Artha Rut
Eymundsdóttir