Morgunblaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Jól 2017
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-16
Ég er ekkert að hætta í vinnunni,“ segir Lúðvík Baldur Ög-mundsson rafmagnstæknifræðingur aðspurður, en hann á70 ára afmæli í dag. Hann starfar hjá verkfræðistofunni
EFLU og sér um háspennumannvirki hjá fyrirtækinu. „Ég ætlaði að
hætta fyrir tveimur árum, var þá hjá Landsneti, sagði upp og ætl-
aði að taka til í bílskúrnum, en þeir hjá EFLU fréttu af því og ég
var dreginn hingað. Það er því ennþá drasl í skúrnum.“
Hornstrandir eiga hug hans allan, en móðir Lúðvíks er fædd og
uppalin í Hælavík. „Ég kom þangað fyrst fyrir 25 árum og hef síð-
an ekki haldið vatni yfir staðnum. Við afkomendurnir erum þar
með tvö hús sem við höldum við og sýnum mikla nærgætni og ég
fer þangað tvisvar, þrisvar á ári í göngur og með fólk. Ég held úti
Facebook-síðu um svæðið og safna sögum um það.“ Lúðvík hefur
einnig mikinn áhuga á tónlist og leiklist. Hann söng í Álafoss-
kórnum og Karlakórnum Stefni og tók mikinn þátt í Leikfélagi
Mosfellsbæjar. „Svo hef ég verið að troða upp með félögum mínum
í ýmsum uppákomum.“
Lúðvík ætlar út að borða með konu sinni og börnum í kvöld. „Ég
hef aldrei verið mikið fyrir að halda upp á afmælið, enda stutt í
jólin, en krakkarnir hafa oft skipulagt eitthvað, sérstaklega á stór-
afmælum.“
Eiginkona Lúðvíks er Guðrún Sigurðardóttir, útflutningsfulltrúi
hjá Íslenskum sjávarafurðum. Börn þeirra eru Bjarney Sigrún,
Sigurður Karl og Sævar Baldur, og barnabörnin eru fimm.
Ljósmynd/Guðlaugur Einarsson
Í Hlöðuvík Lúðvík að basla við ljósavél, en í baksýn má sjá Álfsfell (sem
skilur að Hlöðuvík og Kjaransvík (og Kjaransvíkina þar fyrir aftan)).
Hornstrandir eiga
hug hans allan
Lúðvík B. Ögmundsson er sjötugur í dag
B
jörn Guðbrandur
Jónsson fæddist í
Reykjavík og ólst upp
í Hlíðunum. Hann var
jafnframt í sveit á
sumrin í Mýrdalnum, á Vestra-
Skagnesi frá 1964-70, og á Loft-
sölum sumrin 1972 og 1973.
Björn átti auk þess nokkur góð
ár í fótbolta í yngri flokkunum
hjá Val en varð að gefa boltann
upp á bátinn um miðjan þrítugs-
aldur vegna meiðsla.
Björn var í Hlíðaskóla 1964-72,
í Gaggó Aust 1972-73, stundaði
nám við MH og lauk stúdents-
Björn Guðbrandur Jónsson framkvæmdastjóri – 60 ára
Í sólskini á Dyrhólaey F.v. Björn, Freyr, Tinna, Elín, Yrsa í fangi föður síns og Þórkatla í fangi föðursystur. Horft
er meðfram suðurströndinni. T.h. á myndinni má sjá Loftsali þaðan sem móðurætt afmælisbarnsins er upp runnin.
Í uppgræðslu – gegn
gróðureyðingu lands
Strákarnir Björn Guðbrandur Jónsson með sonum sínum á góðum degi.
Þessir hressu og flottu krakkar, Jón Jökull Úlfarsson, Stefán Arnar Úlfarsson,
Heimir Freyr Heimisson, Ágúst Leví Karlsson, Böðvar Stefánsson, Ólafur Kári
Bjarnason, Fannar Dagur Fjalarsson og Elísabet María Heimisdóttir, héldu tom-
bólu fyrir utan Suðurver í Hlíðunum og söfnuðu þar 17.606 kr. sem þau gáfu
Rauða krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón