Morgunblaðið - 11.12.2017, Síða 23
prófi þaðan 1977, lauk BS-próf í
líffræði frá HÍ 1984, stundaði
nám í mannvistfræði (hum-
anekologi) við Háskólann í Gauta-
borg 1984-86 og lauk meist-
arapróf í umhverfisfræði frá
Johns Hopkins, háskóla í Balti-
more 1993.
Í lok áttunda og byrjun níunda
áratugarins stundaði Björn sjó-
mennsku og vann á Hafrann-
sóknastofnun um nokkurt skeið.
Björn hefur starfað við um-
hverfismál frá heimkomu frá
Baltimore. Hann var fyrstu árin
með eigin ráðgjafarþjónustu,
starfaði síðan hjá Verkfræðistof-
unni Línuhönnun 1997-99, starfaði
hjá Ríkisendurskoðun 1999 og
varð síðan framkvæmdastjóri
samtakanna Gróður fyrir fólk í
Landnámi Ingólfs (GFF) frá árs-
byrjun 2000.
Björn sat í stúdentaráði á há-
skólaárunum á lista Félags
vinstrimanna: „Ég stunda sund í
dag af talsverðum þrótti, er
áhugasamur um samfélagsmál og
pólitík, hef yndi af ferðalögum,
skák og bókalestri, matreiðslu og
bakstri en síðast en ekki síst af
starfi mínu, uppgræðslu örfoka
lands og öllu sem því fylgir.“
Fjölskylda
Kona Björns var Ólöf Guðrún
Hafsteinsdóttir, f. 25.8. 1957, mat-
vælafræðingur. Þau skildu.
Börn Björns og Ólafar eru 1)
Freyr Björnsson, f. 30.11. 1981,
lögfræðingur og bókari í Reykja-
vík en kona hans er Tinna Ey-
steinsdóttir, dr. í næringarfræði
og eru barnabörnin Þórkatla
Freysdóttir f. 2013, og Yrsa
Freysdóttir f. 2015; Elín Björns-
dóttir, f. 25.6. 1992, hjúkr-
unarfræðingur í Reykjavík, og 3)
Tumi Björnsson, f. 13.5. 1996,
starfsmaður í ferðaþjónustu
Hálfsystir Björns, sammæðra:
Sigþóra Lloyd, f. 10.2. 1941, d.
30.1. 2014, húsfreyja í Englandi.
Hálfbróðir Björns, samfeðra:
Þorgeir Ísfeld Jónsson, f. 14.6.
1943, d. 30.4. 2014, símvirki í
Reykjavík.
Foreldrar Björns voru hjónin
Matthildur Guðbrandsdóttir, f.
7.6. 1918 d. 30.4. 2003, hár-
greiðslukona á yngri árum, hús-
freyja og síðan póstfreyja á eldri
árum, Jón Ísfeld Guðmundsson, f.
14.9. 1909 d. 27.12 1992, sjómaður
á yngri árum og síðan slökkviliðs-
maður.
Björn Guðbrandur
Jónsson
Salvör Guðmundsdóttir
verkakona í Reykjavík
Jón Ísfeld Guðmundsson
slökkviliðsmaður í Rvík
Guðrún Árnadóttir
húsmóðir í Rvík
Árni Þorvarðarson
járnsmiður á Eyrarbakka
og víðar
Ingibjörg Guðmundsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka og víðar
Guðbrandur Steinþórsson
fv. skólameistari
Tækniskólans í Rvík
Lára Guð brands dóttir
húsfr. á Skagnesi í
Mýrdal
Steinunn Guðbrandsdóttir
húsfreyja í Rvík
Ingjaldur Bogason
tannlæknir, bús. í
Garðabæ
Guðbrandur Bogason
fv. formaður
Ökukennarafélags
Íslands
Sverrir
Sigþórsson
bakari í Rvík
Edda Sverris dóttir
fv. kaupmaður
og kvik mynda-
gerðarm.
Sigþór
Guðmundsson
sjómaður í
Reykjavík
Guðmundur Jónsson
verkstjóri í Rvík
Guðmundur Guðmundsson
slökkviliðsstjóri á Rvíkurflugvelli
Brynhildur
Björnsdóttir
fjölmiðla- og
sviðslistak. í
Rvík
Sigrún Valdi-
mars dóttir
bankastarfsm.
og leiðsögum.
í Rvík
Sigurveig
Guð brands-
dóttir húsfr.
í Hemru í
Skaftártungu
Þorsteinn Einarsson
bóndi í Mýrdal
Guðfinna Guðbrandsdóttir
vinnukona í Mýrdal
Guðbrandur Þorsteinsson
bóndi á Loftsölum og vitavörður á Dyrhólaey
Elín Björnsdóttir
húsfr. á Loftsölum í Mýrdal
Björn Björnsson
bóndi á Loftsölum
Elín Þórðardóttir
húsfreyja á Loftsölum
Úr frændgarði Björns Guðbrands Jónssonar
Matthildur Guðbrandsdóttir
póstfreyja í Rvík
Sigríður
Guð-
brands-
dóttir
verkakona
í Rvík
Sverrir Daníel
Halldórsson
fiskifræðingur hjá
Hafró
Járngerður
Grétars dóttir
lektor í Land-
búnaðar háskól-
anum á Hvann eyri
Björn Hafsteinn
Halldórsson
forstjóri Sorpu
Guðbrandur
Elling
Þorkelsson
læknir í Rvík
Snorri Guðbrandsson
doktor í
jarðefnafræði
Hrafnhildur
Stella Stephens
húsfr. í Miðey í
A-Landeyjum
Jón Teitsson
sjómaður í Tjarnarkoti í Vogum, síðar verkam. í Rvík
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Jólaföndur
ÞRÍVÍDDARPÚSL
FYRIR ALLA UM JÓLIN
VERÐ FRÁ 690 KR.
Opið
virka
daga
frá 9–
18
lau fr
á 10–
16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Engilbert Hannesson fæddist áBakka í Ölfusi 11. desember1917. Foreldrar hans voru
hjónin Hannes Guðmundsson, f.
1885, d. 1958, bóndi á Bakka, og
Valgerður Magnúsdóttir, f. 1887, d.
1954, húsfreyja.
Engilbert fór til náms í Héraðs-
skólanum á Laugarvatni og þaðan í
búfræðinám í Bændaskólanum á
Hvanneyri. Að loknu námi vann Eng-
ilbert ýmis störf, hjá Búnaðar-
sambandi Dala og Snæfellsness, hjá
Framræslu- og áveitufélagi Ölfus-
hrepps og hjá heildsölufyrirtæki í
Reykjavík. Vorið 1944 keypti Eng-
ilbert jörðina Bakka II í Ölfusi af föð-
ur sínum og stundaði þar búskap all-
an sinn starfsaldur.
Engilbert tók alla tíð virkan þátt í
félagsmálum í sinni sveit og sýslu.
Hann var einn af stofnendum Ung-
mennafélags Ölfusinga árið 1934 og
sat í stjórn þess um skeið. Þá gegndi
hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
sveit sína. Hann var kosinn í hrepps-
nefnd Ölfushrepps, sat í skólanefnd
Hveragerðis, var formaður gróður-
verndarnefndar Árnessýslu, Bún-
aðarfélags Ölfushrepps, Ræktunar-
sambandsins og umboðsmaður
Brunabótafélagsins í Ölfushreppi um
árabil.
Árið 1973 var Engilbert skipaður
hreppstjóri í Ölfushreppi og gegndi
því starfi til ársins 1988 þegar hann
lét af störfum vegna aldurs. Engil-
bert var einn þeirra Hjallasóknar-
bænda sem áttu stóran þátt í að Hita-
veita Þorlákshafnar varð að
veruleika.
Engilbert var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
félagsstörf 17. júní 1994.
Eiginkona Engilberts var Ragn-
heiður Jóhannsdóttir, f. 7.5. 1916 á
Breiðabólstað á Síðu, d. 17.3. 1998.
Hún var dóttir Jóhanns Sigurðs-
sonar, bónda á Núpum, og fyrri konu
hans, Ragnheiðar Helgadóttur, d.
1916. Dætur Engilberts og Ragn-
heiðar eru Jóhanna Ragnheiður, Val-
gerður Hanna og Guðmunda Svava.
Engilbert lést 20. júní 2006.
Merkir Íslendingar
Engilbert
Hannesson
90 ára
Stella Edwald
85 ára
Jón Þór Ólafsson
Ólöf Hulda Sigfúsdóttir
80 ára
Einar Runólfsson
Erlingur Jónasson
Ólafur Steingrímsson
75 ára
Atli Þorsteinn Stefánsson
Einar Friðrik Sigurðsson
Guðný Gunnarsdóttir
Vilhjálmur Skarphéðinsson
70 ára
Ana Antonia Lopez
Contreras
Auður Haralds
Kristín Sigurðardóttir
Lúðvík Baldur Ögmundsson
Marta Guðlaugsdóttir
60 ára
Anna Guðný Eiríksdóttir
Björn Guðbrandur Jónsson
Jóhanna S. Ingimarsdóttir
Magnea Einarsdóttir
Marner Andrew Jensen
Pétur Örn Hjaltason
Veronika Kr. Guðbjarts-
dóttir
50 ára
Bryndís Bragadóttir
Guðmundur G. Gunnarsson
Guðrún Hlín Brynjarsdóttir
Helgi Anton Eiríksson
Hjördís Björgvinsdóttir
Hrefna Ósk Benediktsdóttir
Ída Guðrún Þorgeirsdóttir
Lovísa Kristín Guðnadóttir
Magnea Þórey
Hjálmarsdóttir
Margrét Lilja Sigurðardóttir
Óli Rúnar Ólafsson
Ragnheiður Baldursdóttir
Sigríður Þráinsdóttir
Sonja Jóhannesdóttir
Theresa Linda Árnadóttir
40 ára
Arthita Uppapong
Atli Erlingsson
Emil Sigurbjörnsson
Eva Guðríður Hauksdóttir
Gyða Ólafía
Friðbjarnardóttir
Hjörvar Kristjánsson
Jóhanna Karlotta
Svavarsdóttir
Kristín Sigríður
Sigurðardóttir
Magnús Einarsson
Milan Matéj
Thelma Björk E.
Sigurðardóttir
30 ára
Birgir Ómar Jónsson
Birta Ýr Baldursdóttir
Freyja Th. Sigurðardóttir
Grétar Stefánsson
Guðjón Jónsson
Herbert Vilhjálmsson
Ingólfur Norbert Piffl
Kristín Helga Magnúsdóttir
Lara Melissa Hogg
Lísa Kristín Ólafsdóttir
Maríella Sigmundsdóttir
Nana K. G. Arnarsdóttir
Ólafur Gíslason
Ólafur Hilmar Foss
Piotr Borkowski
Sandra Karen Bjarnadóttir
Sigríður Edda
Ásgrímsdóttir
Tomasz Duk
Trausti Óskarsson
Til hamingju með daginn
40 ára Eva er frá Hvann-
eyri, býr á Akranesi og er
grunnskólakennari að
mennt.
Maki: Magnús Heiðarr
Björgvinsson, f. 1972, vél-
virki hjá Meitli á Grundar-
tanga.
Börn: Ingibjörg Svava, f.
2005, og Dagbjört Birna,
f. 2009.
Foreldrar: Haukur Júlíus-
son, f. 1950, ýtustjóri, og
Ingibjörg Jónasdóttir, f.
1952, prjónakona.
Eva Guðríður
Hauksdóttir
40 ára Jóhanna er frá
Hólmavík en býr í Reykja-
vík. Hún er viðskiptafræð-
ingur og starfar við innri
endurskoðun hjá Íslands-
banka.
Dóttir: Eva Valdís, f.
1996.
Foreldrar: Svavar Péturs-
son, f. 1952, d. 2007,
skipstjóri á Hólmavík, og
Aðalheiður Steinarsdóttir,
f. 1958, náttúrufræði-
kennari í Engjaskóla í
Reykjavík.
Jóhanna K.
Svavarsdóttir
30 ára Kristín er Keflvík-
ingur og er að klára BA-
nám í félagsráðgjöf við
Háskóla Íslands.
Sonur: Óðinn Hrafn, f.
2011.
Systkini: Guðleifur, f.
1977, Hákon, f. 1981, og
Bjarni, f. 1990.
Foreldrar: Magnús Jens-
son, f. 1956, vinnur í Frí-
höfninni, og Ásta Guð-
leifsdóttir, f. 1956, vinnur í
flugeldhúsi IGS. Þau eru
bús. í Keflavík.
Kristín Helga
Magnúsdóttir