Morgunblaðið - 11.12.2017, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2017
Láttu birtuna ekki trufla þig
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hafðu það hugfast að aðeins ef þú
beinir reiði þinni í réttan farveg mun hún
verða þér til góðs. Þú ert kraftmikill, djarfur
og talar hreint út og fátt stendur fyrir þér
þegar sá gállinn er á þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú sérð félaga þinn í skýru og fersku
ljósi sem er bæði jákvætt og neikvætt. Mundu
að það kemur upp neikvæðni í öllum fjöl-
skyldum og að það skiptir höfuðmáli hvernig
unnið er úr henni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Öfugt við það sem fólk álítur, er tím-
inn vinur sem vinnur að háleitustu mark-
miðum manns. Það er aldrei að vita, hvenær
lukkan ber að dyrum eða hjá hverjum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú skalt búa þig undir eitthvað óvænt
í dag og það kemur úr þeirri áttinni sem þú
átt síst von á. Boðum í partí og alls kyns gleð-
skap rignir bókstaflega yfir þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það skiptir öllu máli að vera sannur
gagnvart sjálfum sér og öðrum. Ef þú lendir í
deilum munu þær sennilega taka óvenjumikið
á þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Dagurinn verður frábær fyrir einkalífið
en kannski ekki jafn stórkostlegur fyrir pen-
ingamálin – til styttri tíma litið. Það getur
reynst mikil kúnst að segja nei.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það reynir á samskipti þín við yfirboðara,
foreldra eða yfirmenn í dag. Vertu fyrst og
fremst sannur í samskiptum þínum við aðra
og gættu þess að lofa ekki upp í ermina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sumir hafa verið það þröngsýnir
um langt skeið að stórvirkar vinnuvélar þyrfti
til þess að opna huga þeirra. Sjáðu til þess að
ekkert og enginn trufli þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er rétti tíminn til að víkka
sjóndeildarhringinn og læra eitthvað nýtt og
spennandi. Gerðu áætlun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Varastu stóryrtar yfirlýsingar og
skuldbindingar sem kunna að koma þér í koll.
Þú ættir að ganga úr skugga um heilindi fólks
áður en þú trúir því fyrir leyndarmálum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Bjartsýni er smitandi, svo þú verð-
ur ekki að predika yfir neinum að líta á björtu
hliðarnar. Taktu enga ákvörðun fyrr en þú hef-
ur skoðað allar hliðar málsins.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú finnur til samkenndar með öðrum
og vilt leggja af mörkum á einhvern hátt. Eng-
in dyggð nær hámarki án iðni og ræktarsemi.
Helgi R. Einarsson lét þessastöku fylgja lausn sinni á
laugardagsgátunni: „Eðlilegt
ástand (aftur)“:
Fiskeldinu vex fiskur um hrygg,
ferðamennskan í blóma,
útgerðin sumum arðbær og trygg
og ýmsir með sleggjudóma.
Og síðan limran „Jólamartröð“:
Á Kringludyrnar hann knúði
með krakkana sína og brúði.
Stömpum þar steyptu
og starfsfólkið gleyptu
Grýla og Leppalúði.
Á Leir yrkir Davíð Hjálmar Har-
aldsson um bjarndýr:
Kvað bjarndýr: „Ég bjó mér til híði
úr birki og muru og víði
og indæla frúna
þar annast og húna
en frídaga fer ég á skíði.“
Á Boðnarmiði yrkir Sigurjóna
Björgvinsdóttir um veðrið:·
Frostið er fjögur stig,
fegurðin stórkostlig,
það er glimmer á götum
og gangstéttum, flötum,
nú skíðamenn skunda í svig.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir seg-
ir frá reynslu sinni:
Oft að þegja er allra best,
einkanlega á fundum
Þá mun viskan veitast mest
og vera gaman stundum
Gagnast mundi og létta lund
að leyfa undir ræðum
að menn blundi eina stund
og efla fundi að gæðum.
Magnús Ingimundarson& segir
að alltaf sé gaman að lesa um hesta
og ættartölu þeirra:
Hestamenn þeir helga sér
hest á allskyns mótum.
Góðhrossið það undan er
Uppspuna frá Rótum.
Nú fer fengitíminn í hönd. Dag-
bjartur Dagbjartsson yrkir:
Nú skal sauð til njósna leiða
og neyta sæðistólanna.
Athuga hvort ærnar beiða
í aðdraganda jólanna.
Magnús Geir Guðmundsson gerði
þessa athugasemd:
Dagbjartur er gumi greindur,
Gjarnan yrkir stökubút.
Þjarkur er og þraut- já –reyndur,
Þekkir mun á sauð og hrút!
„Svona er þetta bara,“ segir Ár-
mann Þorgrímsson:
Ellin hefur ýmsu breytt,
enn þó sef um nætur,
enginn gefur öðrum neitt,
allir þrefa um bætur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af fiskeldi, björnum og ættartölum
Grettir
GLÚBB
„VIÐ SÖMDUM OKKAR EIGIN
HJÚSKAPARHEIT. ÞÚ VILT KANNSKI
HALDA FYRIR EYRUN“
„HANN ER HÉR. LÆSIÐ BYGGINGUNNI“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
... að horfa á uppáhalds-
myndina hans
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ EINA GÓÐA VIÐ
MÁNUDAGSMORGNA ER
KAFFIÐ
MEÐAL RISTAÐ
MEÐ OSTA KEIM
OG SÁPUKENNDU
EFTIRBRAGÐI
HEI! ÉG ER
AÐ REYNA AÐ
BAÐA MIG
HÉRNA
MANSTU ÞEGAR ÞÚ
LOFAÐIR MÉR AÐ
ÉG YRÐI LÁNSÖM
EF ÉG GIFTIST
ÞÉR?
ÉG ER MEÐ MOLDARGÓLF!
SÉRÐU EKKI FJÖGURRA LAUFA
SMÁRANA SEM VAXA ÞAR?
Gamla fólkið í Reykjavík er tilbúiðað koma til starfa á leikskólum
og frístundaheimilum borgarinnar,
samkvæmt erindi sem félag þess
sendi frá sér fyrir nokkrum dögum.
Tillagan hefur fengið misjafnar
undirtektir og í versta falli þykir hún
ögrun við faglegt starf á leikskól-
unum. Þar sé unnið eftir viður-
kenndum fræðum um lærdóm í
gegnum leikinn og að kennslan eigi
því að vera í höndum fagmenntaðs
fólks. Þetta sé ekki verkefni fyrir
eldri borgara sem vilji drepa tímann
– og efalaust á það viðhorf einhvern
rétt á sér. En munum samt líka að
ljúfustu æskuminningarnar tengjast
oft ömmu og afa, fólki sem gat svar-
að stórum spurningum lítilla mann-
vera í háskalegum heimi. Tengdi
saman núið og fortíðina og var til
staðar þegar aðstoðar þurfti. Kom
með jákvæða hvatningu svo til dæm-
is lestrarnám varð leikur einn. Já og
munum líka krakkabækurnar þar
sem ömmur og afar eru mikilvægar
söguspersónur og eru bjargið sem
börnin byggja á.
x x x
Í sjónvarpsfréttum RÚV á laugar-
dagskvöldið sagði frá því að íslenskir
handboltastrákar væru að gera góða
hluti. Væru strax um tvítugt í færum
til þess að hasla sér völl sem at-
vinnumenn í greininni í erlendum
liðum. Þetta mætti þakka meðal
annars því að vel væri staðið að
þjálfun í yngri flokkum í handbolt-
anum hér heima. Þá hefði allt starf
sem miðar að stórum afrekum verið
eflt. Allt er þetta nú gott og blessað,
en munum nú samt að íþróttir eiga
alltaf fyrst og síðasta að vera
skemmtun. Sætir stórsigrar eða
leikur með stórliðum eru algjört
aukaatriði. Væntingahlaðnar frá-
sagnir af íslenskum íþróttagörpum
sem hugsanlega gætu gert það gott í
útlöndum eru sérstakar og í þeim
kemur fram það hugarfar sem ríkti
hér fyrir áratug þegar íslenskir við-
skiptagarpar voru í útrás. Það mikil-
vægasta við íþróttastarf og gull-
verðlaun allra tíma er að krakkar
geti tekið þátt og blandað sér í hóp
með gleði og þannig fengið sjálfs-
traust til þátttöku á þeim leikvelli
sem lífsbaráttan sjálf er.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum,
þegar hann er mér til hægri handar
hnýt ég ekki
(Sálm. 16:8)