Morgunblaðið - 11.12.2017, Page 32
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 345. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Gylfa hefði átt að vera vísað af velli
2. Reyndi að kyssa fréttakonu á munninn
3. Horft yfir Eyjafjörð
4. NASA gerði undanþágu vegna …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Borgardætur verða með jóla-
tónleika í Gamla bíói í kvöld og annað
kvöld kl. 20 að lokinni máltíð gesta
sem hefst kl. 18.30. Andrea Gylfa-
dóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berg-
lind Björk Jónasdóttir verða í jóla-
skapi að venju og syngja öll sín
ljúfustu lög á milli þess sem þær
bjóða upp á óvæntar uppákomur.
Jólatónleikar Borgar-
dætra í Gamla bíói
Jólatónleikar
Hildu Örvars, Há-
tíð, verða haldnir í
Akureyrarkirkju á
miðvikudag kl.
20. Tónleikarnir
heita eftir sam-
nefndum geisla-
diski sem kom út
fyrir síðustu jól
þar sem finna má bæði vel þekkt jóla-
lög og önnur minna þekkt frá Norður-
löndunum í útsetningu Atla Örvars-
sonar. Með Hildu koma fram Eyþór
Ingi Jónsson, Daníel Þorsteinsson og
Kristján Edelstein.
Jólatónleikar Hildu
Örvars á Akureyri
Jórunn Sigurðardóttir fær til sín
Svein Einarsson og Silju Aðal-
steinsdóttur á höfundakvöldi í
Gunnarshúsi í kvöld kl. 20 til að
ræða við þau um nýlegar minn-
ingabækur. Silja segir í
Allt kann sá er bíða
kann frá lífshlaupi
Sveins R. Eyjólfssonar
og Sveinn segir sögur
af sér og sam-
ferðafólki sínu í
bókinni Mitt litla
leiksvið. »29
Rætt um minninga-
bækur í Gunnarshúsi
Á þriðjudag Suðaustan 10-18 m/s og rigning eða slydda, en snjó-
koma til fjalla. Hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur nyrðra og eystra, úr-
komulítið og minnkandi frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri, léttskýjað og áfram kalt á landinu
fram eftir degi. Vaxandi suðaustanátt á Suður- og Vesturlandi
seinni partinn, þykknar upp og dregur úr frosti.
VEÐUR
Keflavík, Njarðvík, Skalla-
grímur og Snæfell leika til
úrslita í bikarkeppni kvenna
í körfuknattleik þetta árið,
Malt-bikarnum, en úrslitin
fara fram í Laugardalshöll
helgina 10.-14. janúar næst-
komandi. Óvæntustu úrslit-
in má segja að hafi verið að
neðstu lið deildarinnar,
Njarðvík og Snæfell, kom-
ust bæði áfram eftir
spennusigra. Snæfell lagði
topplið Vals. »8
Snæfell og Njarð-
vík í undanúrslit
Pep Guardiola og lærisveinar hans í
Manchester City hafa 11 stiga forystu
í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
eftir að hafa lagt liðsmenn Man-
chester United, 2:1, á
Old Trafford í gær.
Þetta var 14. sigur
liðsins í röð, sem
er met á einu
keppn-
istímabili í
deildinni.
Guar-
diola
virðist
einnig hafa
ótrúlegt að tak
á José Mour-
inho, knatt-
spyrnustjóra
Manchester
United.
»2
Guardiola og læri-
sveinar vinna og vinna
Landsliðsmarkvörðurinn Aron Rafn
Eðvarðsson minnti hressilega á sig í
gær þegar framganga hans reið
baggamuninn fyrir ÍBV í sigri á Hauk-
um, 26:21, í Olís-deild karla í hand-
knattleik. Aron Rafn varði á þriðja
tug skota í leiknum. Íslandsmeistarar
Vals lögðu Víkinga. Selfoss fór með
tvö stig úr Dalhúsum og Grótta og ÍR
skildu jöfn á Nesinu. »4-5
Aron Rafn skellti í lás í
Vestmannaeyjum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er alveg meiriháttar að sjá hvað
þessu hefur verið vel tekið,“ segir Ás-
dís Arna Gottskálksdóttir, sem stofn-
aði góðgerðarfélagið Bumbuloní fyrir
tveimur árum, með það að markmiði
að styrkja fjölskyldur langveikra
barna. Félag Ásdísar hefur aðallega
selt tækifæriskort, jólakort og merki-
miða með teikningum sem sonur
hennar, Björgvin Arnar, teiknaði.
Björgvin lést í ágúst 2013, þá aðeins 6
ára að aldri, úr sjaldgæfum sjúkdómi.
Í gær fengu átta fjölskyldur styrk
en þetta var þriðja styrkveitingin frá
því að félagið varð til. Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands, var við-
staddur afhendinguna í Lindakirkju í
Kópavogi.
TM Software gaf Ásdísi sölusíðuna
www.bumbuloni.is. Kortin eru einnig
til sölu í verslunum Lindex, hjá Lífi
og list í Smáralind, versluninni
Willamia á Garðatorgi og Casa. Þá
hafa ýmis fyrirtæki og einstaklingar
styrkt félagið og dágóð upphæð safn-
aðist í síðasta Reykjavíkurmaraþoni.
Spurð út í nafnið, Bumbuloní, segir
hún það vera tilbúning sem varð til í
samskiptum þeirra Björgvins litla.
„Þetta var heimatilbúið grín hjá
okkur, amma hans býr á Ítalíu og
þetta tengist því aðeins.“
„Hefur gengið rosalega vel“
Ásdís segir jólamánuðinn út-
gjaldafrekan hjá öllum fjölskyldum
en hún hafi í ljósi reynslu sinnar
ákveðið að létta undir með fjöl-
skyldum langveikra barna. Þær séu
undir gríðarlegu álagi og þurfi stöð-
ugt að heyja baráttu með börnum
sínum, oft upp á líf og dauða.
Fyrstu viðtökur voru mjög góðar
og náðist að styrkja þrjár fjölskyldur
fyrir jólin 2015, einnig þrjár fjöl-
skyldur fyrir ári en nú voru þær átta.
„Þetta hefur gengið svo rosalega
vel á þessu ári þannig að við getum
styrkt fleiri. Það er sérlega ánægju-
legt að geta sýnt þessum fjölskyldum
kærleika og góðvild rétt fyrir jóla-
hátíðina,“ segir hún.
Björgvin Arnar greindist með
hjartagalla sjö mánaða gamall og í
kjölfarið fylgdu fleiri kvillar. Vöxt-
urinn var ekki eðlilegur og sjónin fór
minnkandi. Hálfu ári áður en Björg-
vin lést var hann greindur með afar
sjaldgæfan bandvefssjúkdóm.
„Þetta voru endalaus áföll, alltaf
eitthvað nýtt að bætast við,“ segir
Ásdís, þegar hún rifjar upp veikindi
sonar síns. „Björgvin var afskaplega
vel gefinn. Hann hafði mikið dálæti á
lestum og var alltaf að teikna. Ég á
ennþá eftir fullt af teikningum sem
ég get sett á fleiri kort. Það er mér
afar mikilvægt að geta haldið minn-
ingu hans á lofti og nýtt teikning-
arnar hans til góðs,“ segir Ásdís.
„Reynslan hefur kennt mér hvað
börnin og fjölskyldan eru dýrmæt,“
segir Ásdís, sem starfar alla jafnan
hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Libra en
er núna í fæðingarorlofi. Hún er gift
Ægi Finnbogasyni og á eina fjögurra
ára stúlku og saman eiga þau þriggja
mánaða dreng, auk þess sem Ægir á
tvö börn.
Átta fjölskyldur fengu styrk
Missti 6 ára son
sinn en selur teikn-
ingar hans til styrkt-
ar veikum börnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Styrkir Átta fjölskyldur langveikra barna fengu styrki frá góðgerðarfélaginu Bumbuloní í gær. Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, var viðstaddur athöfnina, ásamt Ásdísi Örnu Gottskálksdóttur og fjölskyldu hennar.
Mæðgin Ásdís Arna Gottskálks-
dóttir með son sinn, Björgvin Arnar.
Teiknari Björgvin Arnar var duglegur að teikna, Íþróttaálfinn þar á meðal.