Morgunblaðið - 23.01.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
munnsogstafla við særindum í hálsi
HUNANGS
OG SÍTRÓNU-
BRAGÐ
APPELSÍNU-
BRAGÐ
SYKURLAUST
Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og
Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri,
munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen.
Strefenernotaðsemskammtímameðferð
til að draga tímabundið úr særindum í
hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en
12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu
rólega og láta leysast upp í munni á
3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur
á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið
lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega
upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir
notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings
sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu
og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is.
Krónan og Hamborgarafabrikkan
afhentu Hjartavernd sl. föstudag 1,3
milljónir króna í tilefni af Lands-
söfnun Hjartaverndar, Heilbrigt
hjarta á nýrri öld.
„Við vorum með söfnun fyrir
Hjartavernd árið 2010 eftir að við
keyptum styttu af Rúnari Júlíussyni
tónlistarmanni, sem var þá nýlega
fallinn frá en við gerðum borgarann
Herra Rokk af því tilefni,“ segir Jó-
hannes Ásbjörnsson, einn eigenda
Hamborgarafabrikkunnar. Söfnunin
frá 2010 var nú endurvakin með liðs-
styrk Krónunnar, sem lét 100 kr. af
hverri seldri Fabrikkuvöru í versl-
unum sínum renna til söfnunarinnar
en Hamborgarafabrikkan lét 400 kr.
af hverjum seldum Herra Rokk
hamborgara renna til söfnunar-
innar. „Markmiðið var að gera betur
en árið 2010 og afar gleðilegt að það
hafi tekist,“ sagði Ólafur Júlíusson,
vöruflokkastjóri hjá Krónunni.
„Það er ómetanlegt fyrir Hjarta-
vernd að eiga trygga stuðningsaðila
við leit að einkennalausum æða-
sjúkdómum,“ sagði Vilmundur
Guðnason, forstöðulæknir Hjarta-
verndar . ernayr@mbl.is
Ljósmynd/Hamborgarafabrikkan.
Styrkur F.v. Ólafur Júlíusson, Krónunni, Karl Andersen og Vilmundur
Guðnason, Hjartavernd, og Jóhannes Ásbjörnsson, Hamborgarafabrikkunni.
Afhentu hjartastyrk
Hamborgarafabrikkan og Krónan
söfnuðu 1,3 milljónum handa Hjartavernd
„Byltingin hefur valdið ótrúlegri
hugarfarsbreytingu á skömmum
tíma,“ sagði Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra á sameiginlegum
morgunverðarfundi stjórnmála-
flokkanna í gærmorgun. Yfirskrift
fundarins var #metoo: Hvað svo?
Katrín sagði að reynslusögur
kvenna, sem streymt hafa fram síð-
ustu mánuði, sýndu fram á kerfis-
lægt misrétti valds á milli kynja.
Eftir að byltingin hófst sé fólk búið
að endurhugsa allt. „Karlar hafa
velt fyrir sér „var þetta í lagi hjá
mér?“ og konur hafa hugsað um
hluti sem þær höfðu fært í
gleymsku, sem ekki voru í lagi,“
sagði Katrín.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar er ný aðgerðaáætlun um úr-
bætur í meðferð kynferðisbrota og
hún verður fjármögnuð að fullu.
Ríkisstjórnin mun, í samstarfi við
sveitarfélögin, gera áætlun um að
útrýma kynbundnu ofbeldi.
Forsætisráðherra sagði ánægju-
legt að sjá stjórnmálaflokkana
koma saman og það sé mikilvægast
að allir geri þetta saman. „Það er
best að ræða málin í sem breið-
ustum hópi. Við skulum nýta að við
erum ólíkir flokkar og hreyfingar,“
sagði Katrín.
Heiða Björg Hilmisdóttir stofn-
aði hópinn í Skugga valdsins þar
sem stjórnmálakonur hafa deilt
reynslusögum af kynferðislegu of-
beldi og áreitni. „Það er dásamlegt
hvað við erum öll saman í að breyta
þessu sem metoo-byltingin hefur
afhjúpað,“ sagði Heiða í morgun.
Hún benti á að um 20 svipaðir
hópar hefðu verið stofnaðir og und-
irtónninn væri alltaf sá sami. Þar
væri sagt frá nauðgunum, þukli,
káfi eða óviðeigandi athugasemd-
um.
Auðvelt að fyllast ógeði
Meðal þeirra sem töluðu á fund-
inum var Gestur Pálmason mark-
þjálfi. Hann fjallaði um sjónarhorn
karla sem vilja axla ábyrgð og
sagði að í öllum sögunum sem kon-
ur hafa sagt að undanförnu væri
sami rauði þráðurinn.
„Það er auðvelt að fyllast ógeði
yfir því sem dunið hefur yfir kon-
ur,“ sagði Gestur.
Hann og séra Vigfús Bjarni Al-
bertsson stofnuðu Facebook-hópinn
#égertil þar sem karlar eru hvattir
til að hlusta á konur í tengslum við
metoo. Gestur sagði að karlar
þyrftu að hugsa hvar þeirra ábyrgð
lægi til breytinga. „Við erum ekki
að leita að stereótýpískum körlum,
við ætlum bara að hætta að vera
„dicks“,“ sagði Gestur.
johann@mbl.is
Ótrúleg hugarfarsbreyting
Morgunblaðð/Árni Sæberg
Stjórnmálafólk Stjórnmálaflokkarnir ræddu í gær um #metoo-byltinguna.
Stjórnmálaflokkarnir héldu sameiginlegan fund um #metoo-byltinguna Þorgerður Lauf-
ey Diðriksdóttir
hefur verið kosin
formaður Félags
grunnskólakenn-
ara (FG). Fimm
voru í framboði
til formanns FG
og hlaut Þor-
gerður Laufey
45,5% atkvæða.
Á kjörskrá voru
4.833 og greiddu 2.441 atkvæði eða
50,5%, í rafrænni atkvæðagreiðslu.
Þorgerður Laufey tekur við emb-
ætti formanns FG af Ólafi Loftssyni
á aðalfundi Félags grunnskóla-
kennara sem fram fer í Borgarnesi
dagana 17. og 18. maí.
Þorgerður Laufey er
nýr formaður Félags
grunnskólakennara
Þorgerður Laufey
Diðriksdóttir
ICQC 2018-20