Morgunblaðið - 23.01.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2018
Sigrún EvaÁrmannsdóttir,forstöðumaður vef-
lausnasviðs hjá upp-
lýsingafyrirtækinu
Advania, á 50 ára afmæli í
dag. Hún er einnig
stundakennari við Há-
skólann í Reykjavík og
kennir áfangann Grein-
ing og hönnun hugbún-
aðar. Sigrún Eva er með
meistaragráðu í tölv-
unarfræði og MBA og
undir hennar sviði hjá
Advania heyra rúmlega
50 manns en alls starfa
600 manns hjá fyrirtæk-
inu.
Sigrún Eva var áber-
andi í tónlistarlífinu í lok
níunda áratugarins og
fram eftir þeim tíunda.
Hún var m.a. valin besti
flytjandinn þegar hún var
tvítug í söngvakeppninni
Landslagið og söng lagið Nei eða já með Siggu Beinteins sem náði 7.
sæti í Eurovision árið 1992 í Svíþjóð. Hún vann einnig forkeppni
söngvakeppninnar 1994 með laginu Nætur og söng um allt land með
hljómsveitunum Upplyftingu og Þúsund andlitum.
„Ég er alveg hætt að syngja, það er svo margt annað skemmtilegt í
lífinu sem ég verð að prófa og ég er bara búin með söngpakkann.“ Hún
tekur þó lagið á árshátíðum í vinnunni með Advania-bandinu.
Áhugamál Sigrúnar Evu eru ferðalög og vera í góðra vina hópi. „Við
í vinahópunum mínum erum dugleg að halda matarboð heima hjá hvert
öðru og njóta lífsins,“ segir Sigrún Eva. Hún fer oft til Flórída á sumrin
og er á leiðinni til Ríga, Kaupmannahafnar og Brussel á næstu mán-
uðum, allt skemmtiferðir. „Ég fer til Ríga með skólasystrum mínum úr
Menntaskólanum á Akureyri í fimmtíu ára afmælisferð. Við ákváðum
að fara í ferð saman í staðinn fyrir að gefa hver annarri afmælisgjöf.“
Eiginmaður Sigrúnar Evu er Andri Dan Róbertsson, sölumaður og
einn af eigendum heildverslunarinnar Klif, sem selur aðallega vörur í
járniðnaðargeiranum. Dóttir þeirra er Þórgunnur Dan sem varð tvítug
fyrir nokkrum dögum. „Við héldum saman upp á afmælið um helgina
og buðum heim okkar nánustu. Í dag fer ég bara í vinnuna og ætli ég
mæti ekki með köku fyrir vinnufélagana, þeir eiga það svo sannarlega
skilið.“
Fjölskyldan Í afmælinu um síðustu helgi.
Söngkonan sem fór
í tölvunarfræði
Sigrún Eva Ármannsdóttir er fimmtug í dag
Þ
órður S. Gunnarsson
fæddist í Reykjavík 23.1.
1948 og ólst þar upp í
Norðurmýrinni, í Laug-
arásnum og loks við
Bergstaðastrætið. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1969, embættisprófi
í lögfræði frá HÍ 1975, stundaði fram-
haldsnám á sviði löggjafar um órétt-
mæta viðskiptahætti og samkeppnis-
hömlur við Óslóarháskóla 1981,
öðlaðist hdl.-réttindi 1977, hrl.-
réttindi 1982 og leyfi til verðbréfa-
miðlunar 1993. Hann hefur sótt fjölda
námskeiða í lögfræði, hér á landi og
erlendis.
Þórður var fulltrúi á lögmanns-
stofu Eyjólfs Konráðs Jónssonar hrl.,
Hjartar Torfasonar hrl. og Sigurðar
Hafstein hrl. 1975-80 og meðeigandi
þar 1980-82, rak eigin stofu í Reykja-
vík 1982-95 og 2000-2011, um tíma í
samstarfi við Othar Örn Petersen
hrl., var meðeigandi í lögmannsstof-
unni Lögmenn Höfðabakka sf. frá
1995-2000, ásamt Vilhjálmi Árnasyni
hrl., Ólafi Axelssyni hrl., Hreini
Loftssyni hrl., Jóhannesi Rúnari Jó-
hannssyni hrl. og um tíma Brynjólfi
Kjartanssyni hrl., og var á sama tíma
framkvæmdastjóri Árnason & Co.
ehf. einkaleyfa- og vörumerkjastofu.
Hann hefur verið héraðsdómari við
Héraðsdóm Reykjavíkur frá 2011.
Þórður var stundakennari við við-
skiptadeild HÍ 1977-81, prófdómari í
almennri lögfræði og réttarsögu við
lagadeild HÍ 1984-2002, stunda-
kennari í viðskiptalögfræði við
viðskiptadeild HR frá 1999, lektor
þar frá 1999 og dósent 2000-2002,
vann að undirbúningi að stofnun laga-
deildar við HR, var forseti lagadeild-
ar HR 2002-2011, sat í framkvæmda-
stjórn skólans á sama tíma, kenndi
við lagadeildina jafnframt forseta-
starfinu 2002-2004 og 2007 og er að-
junkt við lagadeild HR frá 2011.
Má ekki segja, Þórður, að öðrum
ólöstuðum, að þú hafir öðrum fremur
byggt upp lagadeild HR?
„Jú, ég átti raunar hugmyndina að
lagadeild skólans, var falið að koma
henni á laggirnar, skipuleggja námið,
ráða kennara og setja deildinni mark-
mið. Þetta var mjög krefjandi starf
en afar skemmtilegt. Þetta kostaði
snörp átök við ýmsa við lögfræðideild
HÍ, en flest þeirra hafa sagt mér síð-
ar meir að deildin í HR hafi bætt
gömlu lagadeildina við HÍ. Við lögð-
um áherslu á að starfstengja námið
án þess að gefa afslátt á bóklegu
námi. Þetta tókst vel og var að ég
held báðum skólum til hagsbóta.“
Þórður var formaður stjórnar Olís
Þórður S. Gunnarsson héraðsdómari – 70 ára
Fjölskyldan Þórður og Helga, eiginkona hans, ásamt dóttur þeirra, Þórunni Helgu og unnusta hennar, Björgvin
Grétarssyni. Í bakgrunni er magnað málverk eftir albróður Þórðar, Gunnar Örn Gunnarsson listmálara.
Byggði upp lagadeild
Háskólans í Reykjavík
Afmælisbarnið Útskrift frá Háskól-
anum í Reykjavík í janúar 2010.
Reykjavík Björgvin
Baldur Traustason
fæddist 24. júlí 2017
kl. 17.02. Hann vó
3.694 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans
eru Kristín Telma Her-
mannsdóttir og Jón
Trausti Gunnarsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Skoðið nýju vefverslun okkar casa.is
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640
COMPONIBILI
hirslur 3ja hæða
Verð frá 17 900,-
BOUR
borðla
Verð frá 34.9
BATTERY
borðlampi
Verð 22.900,-
GIE
mpi
00,-
TAKE borðlampi
erð 10.900,-
.
V
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is