Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.1. 2018 West Bromwich Albion var í fylkingarbrjósti enskra félaga sem gáfu þeldökkum leik- mönnum tækifæri á áttunda áratugnum og mikla athygli vakti að veturinn 1978-79 voru þrír af burðarásunum í lið- inu litaðir; Cyrille Regis, Laurie Cunn- ingham og Brendon Batson. Gengu þeir undir nafninu „Gráðurnar þrjár“. Sumarið 1979 var Cunningham keyptur til Real Madríd. Knatt- spyrnustjóri WBA á þessum árum var Ron Atkinson, kallaður Stóri. Svarti aumingi. Drullaðu þér aft-ur upp í tréð, helvítis tusku-dúkkan þín!“ Árið er 1978 og við erum stödd á heimavelli enska knattspyrnufélags- ins West Bromwich Albion. Það er hornspyrna og George Berry, þel- dökkur leikmaður gestanna, Wolver- hampton Wanderers, spyr bulluna í stúkunni beint út hvorum aurslettan sé ætluð, honum sjálfum eða leik- manninum sem hann er að valda, Cy- rille Regis, helsta markaskorara heimaliðsins, sem einnig er þeldökk- ur. Fátt er um svör. Þegar Berry rifj- aði þessa sögu upp löngu seinna þótti honum viðbrögð Regis standa upp úr. Hann hristi bara höfuðið og hélt áfram. Dólgurinn virtist ekki trufla hann eitt augnablik. Cyrille Regis var kominn til að leika knattspyrnu og láta verkin tala – en ekki illmælgina. Berry dáðist að þessari yfirvegun; hefði líklega þegið ofurlítið af henni sjálfur en seinna var hann handtekinn fyrir að ráðast á áhorfanda í stúkunni eftir að hafa setið undir svívirðingum hans í leikslok. Að hætti Eric Can- tona, bara miklu fyrr. Ólíkt Cantona sætti Berry ekki leikbanni; það hent- aði knattspyrnusambandinu mun bet- ur að sópa málinu undir teppið enda hefði þurft að spyrja óþægilegra spurninga við rannsókn þess. Varð- stjórinn á lögreglustöðinni hellti sér hins vegar yfir Berry. Andrúmsloftið var nær óbærilegt fyrir fyrstu kynslóð svartra leik- manna sem haslaði sér völl í ensku knattspyrnunni á ofanverðum átt- unda áratugnum. Hatrið var svaka- legt og stór hópur áhorfenda staðráð- inn í að hrekja þá burt með öllum tiltækum ráðum. Knattspyrna væri íþrótt hvíta mannsins. Náðu í perur og banana! Fræg er sagan af því þegar Brian Clo- ugh, knattspyrnustjóri Nottingham Forest, sendi hinn nítján ára gamla Viv Anderson að hita upp í leik í efstu deild. Skömmu síðar sneri Anderson aftur og tyllti sér við hlið stjórans á bekknum. „Hva, sagði ég þér ekki að hita upp?“ spurði Clough gáttaður. „Jú,“ svaraði Anderson aumur, „en þeir eru að henda banönum, eplum og perum í mig!“ Clough starði agndofa á piltinn og rak hann svo með harðri hendi aftur að hita upp. „Og náðu fyrir mig í tvær perur og banana í leiðinni!“ Skilaboðin voru skýr: Ætlir þú að verða knattspyrnumaður getur þú ekki látið svona lagað trufla þig! Anderson lærði sína lexíu og lét áhorfendur ekki slá sig út af laginu aftur. Hans beið glæstur ferill því Viv Anderson varð fyrsti svarti leikmað- urinn til að skríðast búningi enska landsliðsins, haustið 1978, auk þess að verða bæði enskur meistari og Evrópumeistari með Forest. WBA-leikmennirnir Laurie Cunn- ingham og téður Cyrille Regis komu næstir en þeir eru nú báðir látnir. Sá fyrrnefndi fórst í bílslysi á Spáni ár- ið 1989, aðeins 33 ára að aldri, og Regis sálaðist um liðna helgi, rétt að verða sextugur. Banamein hans var hjarta- slag. Eitt er að útiloka, annað að heyra, og Regis, Berry og margir fleiri hafa staðfest að enda þótt þeir létu ekki á því bera heyrðu þeir vitaskuld hvað um þá var sagt meðan á leikjunum stóð – hvert einasta orð. „Auðvitað reitti þetta mann til reiði,“ sagði Regis, „en mað- ur lærði að snúa reiðinni upp í hvatn- ingu. Við svöruðum áhorfendum með hæfileikum okkar. Þannig komum við höggi á þá.“ Anderson, Cunningham og Regis létu níðið, eins óverðskuldað og það var, yfir sig ganga og létu æsku- drauminn rætast. Regis var löngu seinna spurður að því hvort ekki hefðu verið margir svartir leikmenn á þessum tíma, mögulega ennþá betri en þeir sem hér hafa verið nefndir, sem ekki þoldu álagið og urðu frá að hverfa. „Það er 100% öruggt,“ svaraði hann um hæl. Lengi eimdi eftir af þessu viðhorfi áhorfenda til svartra leikmanna, jafnvel eftir að margir þeirra höfðu slegið í gegn – og gerir sjálfsagt enn. Þannig var Simon Darby, fyrrver- andi varaformaður breska þjóð- arflokksins, einu sinni spurður að því hver væri uppáhaldsleikmaðurinn hans. „Cyrille Regis,“ svaraði hann, hátt og snjallt, enda stuðningsmaður WBA. „En þótt hann sé hetjan mín er ekki þar með sagt að ég myndi vilja að barnabörnin mín yrðu svört!“ Hjá sumum eru ennþá miðaldir. Drullaðu þér aftur upp í tréð! Cyrille Regis, sem lést á dögunum, og fyrstu svörtu leikmennirnir sem kvað að í ensku knatt- spyrnunni máttu þola ótrúlegt mótlæti vegna húðlitar síns á áttunda áratugnum. Viðkvæmir eru varaðir við orðbragðinu í þessari grein. Viv Anderson Þrír í sama liðinu Cyrille Regis í leik með West Bromwich Albion. Hann var stæðilegur miðherji og frambærilegur markaskorari. ’ Sérhver svartur leikmaður sem horfði á Cantona gera þetta [ráðast á áhorfanda í stúkunni] hlýtur að hafa spurt sig hvers vegna hann gerði aldrei slíkt hið sama sjálfur. Ian Wright, sparkskýrandi og fyrrverandi landsliðsmaður Englands. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.