Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 41
21.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Fyrsta örsýning af þremur verður
opnuð í Artgallery Gátt á laugardag
kl. 15. Þar sýna Hrönn Björns-
dóttir, Annamaría Lind Geirs-
dóttir, Jóhanna Þórhallsdóttir
og Kristbergur Pétursson.
Nýárstónleikar samtak-
anna S.L.Á.T.U.R. fara
fram í Mengi á laug-
ardag kl. 21. Með-
limir samtakanna
hafa unnið ný verk
sem verða bara flutt
af einum manni,
Áka Ásgeirssyni,
á forvitnileg og oft
skrítin hljóðfæri.
Gestalistamaður Gilfélagsins í jan-
úar, Jhuwan Yeh, verður með
opna vinnustofu að Kaupvangs-
stræti 23 á laugardag 14 - 17. Yeh
vinnur þar að sýningunni Between
Simplicity and Reduction.
Ljósmyndahátíð Íslands stendur nú
yfir og um að gera að bregða sér á
nokkrar sýningar, t.d. þær sem eru
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og
Gerðarsafni eða í RAMskram á
sýninguna Strandhögg.
Sýningarstjóri sýningarinnar Líð-
andin – la durée, Aldís Arnardóttir,
veitir leiðsögn um hana á sunnudag
kl. 14 á Kjarvalsstöðum. Á sýning-
unni eru verk eftir Jóhannes
Kjarval og mörg hver sjaldséð.
Þannig er mál með vexti að éghef verið að skrifa ýmislegthjá mér, bæði hugleiðingar
um lífið og tónlistina og tilveruna,
samskipti fólks og alls konar svoleiðis
hluti. Ég hef gert þetta í áratugi og
haft gaman af og svo hef ég líka kom-
ið þessu að einstaka sinnum í grein-
um, því sem ég kalla mín hjartans
mál. Svo hugsaði ég með mér, fyrir
nokkrum mánuðum, að það gæti ver-
ið gaman að prófa að flétta þetta
saman við tónlist. Að hafa svona hug-
vekjur og brjóta þær upp með tón-
list,“ segir Gunnar Kvaran sellóleik-
ari sem mun á sunnudag kl. 16 fjalla
um andleg mál og leika verk eftir
Bach, Pablo Casals og Schubert
ásamt Hauki Guðlaugssyni org-
anleikara í Dómkirkjunni í Reykja-
vík. Aðgangur er ókeypis.
Gunnar segist aldrei hafa gert
þetta áður þó hann hafi auðvitað oft
haldið tónleika og talað um tónskáld
og tónverk sem komið hafi við sögu á
þeim. „En ég hef aldrei talað áður op-
inberlega um það sem ég kalla andleg
mál,“ segir hann.
En hvað ætlar Gunnar að tala um?
Getur hann nefnt dæmi? „Ein hug-
leiðingin fjallar um það sem við horf-
umst í augu við nú í sambandi við
þessa gífurlegu tækni, hinn tækni-
vædda heim og þá er ég sérstaklega
að hugsa um það sem viðkemur sam-
skiptum fólks. Í stuttu og einfölduðu
máli finnst mér mennskan vera í
hættu af því mér finnst að fólk ein-
angrist hvert frá öðru og ef það hefur
samband sín á milli þá hittist það
ekki, talar ekki saman, horfist ekki í
augu heldur fjarlægist hvert annað.“
Gunnar segir þetta hafa verið sér
áhyggjuefni í mörg ár. „Ég er nú orð-
inn gamall karl og hef kennt í 54 ár
þannig að ég hef umgengist ungt fólk
mikið og haft mikla ánægju af því,
fengið stórkostlega reynslu en ég hef
tekið eftir þessu. Eins og tæknin er
okkur blessun á mörgum sviðum er
þessi þáttur hennar, sem viðkemur
manneskjunni beint og samskiptum
hennar, mér áhyggjuefni.“
Máttur manneskjunnar
Gunnar segir þessar hugleiðingar
verða einna mest áberandi í hugvekju
hans í kirkjunni og vangaveltur um
hvað sé hægt að gera til að sporna
gegn þessari þróun. Hann sé trúaður
maður og muni koma inn á mátt bæn-
arinnar og mátt manneskjunnar al-
mennt til að hafa góð áhrif á sitt um-
hverfi. „Það eru svo margir sem lifa í
þeirri blekkingu að þeir geti ekkert
lagt af mörkum til heimsins í þessum
efnum, að þeir séu valdalaus peð.
Þetta er misskilningur því manns-
hugurinn er mjög sterkur, það er
mjög sterkur vilji til í honum og bæði
til góðra og slæmra verka,“ segir
Gunnar. „Hvert og eitt okkar getur
haft áhrif til góðs og þá er bænin eitt
tæki en þeir sem trúa ekki á hana og
eru ekki sérlega trúaðir trúa kannski
samt á eitthvað jákvætt og fallegt.
Ég held að langflestar manneskjur
trúi á réttlæti og sannleika, fegurð og
frið,“ segir Gunnar og bætir við að
mikil ábyrgð felist í því að vera
manneskja.
En hvað með tónlistina? „Ég spila
Bach, Casals og Schubert,“ segir
Gunnar og að verkin tengist hug-
vekju hans ekki að öðru leyti en því
að vera verk sem flestir þekki,
dásamleg að innihaldi og hafi aldrei
horfið í skuggann því þau hafi sér-
stakan boðskap að bera, boðskap feg-
urðar. „Þau eru á mjög háu, andlegu
plani, litlar perlur. Bach var nú kall-
aður fimmti guðspjallamaðurinn og
það segja nú margir um hans tónlist
að hann sameini himin og jörð. Ég er
algjörlega sammála því og hann verð-
ur fyrirferðarmikill því við spilum
þrjú verk eftir hann,“ segir Gunnar
að lokum. helgisnaer@mbl.is
Gunnar Kvaran og Haukur Guðlaugsson kampakátir í Dómkirkjunni.
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Hjartans mál
Gunnar Kvaran fjallar um andleg málefni og
leikur sígild tónverk í Dómkirkjunni á sunnudag.
MÆLT MEÐ
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
– fá þig til að slaka á, sofa bet
og vakna endurnærð/ur
ur
Í gegnum aldirnar hefur sítrónumelis (Lemon balm)
jurtin, Melissa officinalis, verið vinsæl meðal
grasalækna.
Þetta vísindalega samsetta náttúrulyf er hannað
til að stuðla að góðum nætursvefni og vakna
endurnærð(ur) án þess að innihalda efni
sem hafa sljóvgandi áhrif.
Sítrónumelis (Lemon balm) taflan inniheldur
náttúrulegu amínósýruna L-theanine, sem hjálpar
til við slökun auk alhliða B vítamín, sem stuðlar að
eðlilegri taugastarfsemi.
Auk þess inniheldur taflan mikið magnmagnesíum,
sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur
þar með úr óþægindum í fótum og handleggjum
Melissa Dream-töflurnar
„Hvílist betur með Melissa Dream“
Lísa Geirsdóttir”
.
Valið besta
bætiefni við streituhjá National Nutrition
í Kanada
Litur augnabliksins
Gyðjugrænn
NÝR LITUR
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is