Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Page 29
Morgunblaðið/Hari
Falleg leið til að bera fram
saltkjöt og baunir.
Morgunblaðið/Hari
Skoski mat-
reiðslumaðurinn
Samuel Watson
er hluti af teyminu
á Mat og drykk.
21.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Steikt hvítkál með
kartöflu- og rófumús
hvítkálshaus
½ kg kartöflur
½ kg rófur
100 ml rjómi
100 g smör
50 ml mjólk
20 g geitaostur
sýrður perlulaukur
ristaðar valhnetur
salt og hvítur pipar
KARTÖFLU- OG RÓFUMÚS
Kartöflur og rófur afhýddar og soðnar. Blandið
rjóma og smjöri saman í pott og fáið upp suðu.
Mjólk og ca. 50 g af káli blandað saman í mat-
vinnsluvél. Kartöflunum og rófunum maukað
saman með báðum blöndum þar til orðið að
mjúkri mús. Saltið og kryddið með hvítum
pipar eftir smekk.
SÝRÐUR PERLULAUKUR
1 poki perlulaukur
100 ml vatn
100 g sykur
100 ml edik
Sjóðið perlulauk í hýðinu og pillið síðan
hýðið af. Blandið vatni, sykri og ediki í
pott og fáið upp suðu. Hellið lauknum
saman við og látið liggja í 30 mínútur.
Hvítkál skorið í 8 sneiðar.
Steikt á pönnu með góðri klípu af
smjöri og salti í 3½ mínútu á hvorri hlið.
Piprið eftir smekk með hvítum pipar.
Hvítkálið borið fram með kartöflu-
og rófumúsinni ásamt pikkluðum perlu-
lauk. Geitaosti og ristuðum valhnetum
stráð yfir.
SALATIÐ
sýrðar rauðrófur
íslenskur geitaostur
perlulaukur
léttristaðar valhnetur
BLANDIÐ SAMAN:
720 g hunang
600 g hvítvínsedik
100 g sinnepsfræ
300 g vatn
Soðið í átta mínútur. Kælt niður.
1 kg af rauðrófum, soðnar eða bak-
aðar þar til mjúkar, rauðrófur skornar í
teninga.
Rauðrófurnar ásamt ca. 300 g perlu-
lauk (eða eftir smekk) sett saman í
krukku ásamt blöndunni. Pikklað í ca.
eina viku.
Rauðrófurnar og perlulaukur sett í
skál, geitaosti og létt ristuðu hnetunum
sáldrað yfir.
Rauðrófusalat með geitaosti