Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.1. 2018 VETTVANGUR Báðir foreldrar mínir náðu 97ára aldri. Ég man að þegarpabbi var kominn á 97. ald- ursárið fannst mér allir undir ní- ræðu nánast vera börn. Og nú finnst mér sjötugt fólk vera ung- lingar og spyr hverjum hafi dottið í hug að senda þetta fólk á eft- irlaun. Sjálfur er ég í þessum hópi og líka ritstjóri þessa blaðs sem hélt upp á sjötugsafmæli sitt í vikunni. Við höfum verið samferða í box- hringnum í hálfa öld. Alltaf í gagnstæðum hornum en í seinni tíð getað talast við, allt í hófi þó. En jafnvel það hefði einhvern tím- ann þótt vera talsverð framför. Svona fer aldurinn með okkur. Maður sér í mönnum það sem maður ekki áður sá. En það sem ég vildi sagt hafa er þó tengdara afstæðiskenning- unni en aldri í árum talið. Ég er nefnilega kominn á þá skoðun og það meira að segja fyrir alllöngu að þetta tal um aldraða sé út í hött. Aldraðir eiga nefnilega fátt sameiginlegt. Sumir eru heilsu- hraustir, aðrir ekki. Sumir eru ríkir, aðrir ekki. Sumir eru vinnu- færir, aðrir ekki. Sumir eru fullir lífsorku, aðrir ekki. Eigum við þá ekki frekar að tala um heilsu- hrausta og heilsulausa, ríka og snauða? Framhjá því verður þó ekki horft að með aldrinum banka ýmsir kvillar upp á með ágengari hætti en fyrr á lífsleiðinni. Það er staðreynd. Það er líka staðreynd að til- tölulega heilsuhraust aldrað fólk sem vill lifa sjálfstæðu lífi í heima- húsum fær ekki þá þjónustu sem stjórnmálamenn hafa heitið því – stjórnmálamenn úr öllum flokkum. Á síðastliðnu ári kom ég að máli við yfirvöldin í Reykjavík og spurði hvort unnt væri að fá að- stoð við böðun í heimahúsi fyrir hálftíræðan einstakling oftar en einu sinni í viku. Það var eins og að eiga samtal við múrvegg. Ég hugsaði að þetta yrði ekki það síð- asta sem heyrðist frá mér um þetta efni. Síðan var efnt til fundar um málefnið í Iðnó. Enn hefur ekkert hreyfst. Og enginn stjórnmála- maður sýnir þessu minnsta áhuga. Það er bara borgarlínan sem kemst að hjá stjórnarandstöðunni og harmur Eyþórs Arnalds yfir því að sveitarfélögin á höfuðborg- arsvæðinu – öll sem eitt – líka blái Garðabær og bláa Seltjarnarnes, blái Hafnarfjörður, blái Mosfells- bær og blái Kópavogur, ekkert síður en fölbleika Reykjavík – vildu fyrir nokkrum árum setja milljarð í að efla almennings- samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Það þótti mér viturleg ráðstöfun! En aftur að heimaþjónustunni. Eftir Iðnófundinn skrifaði ég borgaryfirvöldum. Fékk að lokum svar frá stjórnsýslunni en bíð enn svars frá pólitíkinni. Stjórnsýslan svaraði nokkuð út og suður en svaraði þó. Pólitíkin þegir enn. Svona er líf- ið afstætt. Gamlir flokks- hestar fara að rýna í einstök málefni og gefa þá minna fyrir flokka ef brennandi áhugamál þeirra eru virt að vettugi sem hvað mig varð- ar eru málefni aldraðs fólks í heimahúsum; fólks sem þarf á að- stoð að halda. En hvað varðar öldruðu ung- lingana sem verða sjötugir á árinu þá er ég að sjálfsögðu ekki svo blindur að ég afneiti aldrinum. Síðast þegar bekkurinn minn kom saman spurði ég konu mína hvað allt þetta gamla fólk væri að gera hérna. Og hún sagði: það sama og þú ert að gera, smelltu þér á snyrtinguna og líttu í spegil. Ég gerði það og mikið rétt, ég smell- passaði í hópinn. Svo dönsuðum við allt kvöldið og bekkjarbræðurnir spiluðu í gömlu töffarahljómsveitinni, svo- lítið hrukkóttari en síðast en aldr- ei meiri töffarar. Og allir í fínu stuði. Alveg eins og í gamla daga. Þegar við vorum öll tvítug. Svona er aldurinn afstæður. Aldur ’En hvað varðar öldr-uðu unglingana semverða sjötugir á árinu þáer ég að sjálfsögðu ekki svo blindur að ég afneiti aldr- inum. Síðast þegar bekk- urinn minn kom saman spurði ég konu mína hvað allt þetta gamla fólk væri að gera hérna. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Morgunblaðið/Ómar Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Almött veggjamálning Dýpri litir - dásamleg áferð Pressed Petal Heart Wood ColourFutures2018 Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is KLAPPSTÓLL Koma í 3. litum 4.900 kr. BEKKUR 120x35, H: 46cm 39.500 kr. TILBOÐS DAGAR húsgögn og smávara 30-50% afsláttur af vörum sem eru að hætta í sölu Viðar Guðjohn- sen, sem sækist eftir að leiða lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, hefur ekki verið sérstak- lega mikið að reyna að fela forn- eskjuleg viðhorf sín til kvenna og margir urðu til að deila fréttum af ummælum hans um leikskóla sem hann sagði geymslur fyrir konur með metnaðargræðgi. Elín Arnar, blaðamaður og ritstjóri í Brighton, hafði þetta um sýn Viðars að segja: „Samkvæmt þessu þá eru barneignir einungis ábyrgð kvenna, ekki karla. Sem sagt eingetin. Kosningabaráttan á greinilega eftir að vera algjör fyrir- sagnaveisla fyrir fjölmiðla með þenn- an mann í fararbroddi fyrir einn stærsta stjórnmálaflokk landsins.“ Einar Bárðarson er naskur á björtu hliðarnar: „Fátt er svo með öllu illt: Viðar Guðjohnsen er að gera hluti fyrir okkur núna sem venjulega þarf að borga einhverjum stórfé fyrir að gera. Það er að segja vera með „stand-up“ sem fær mann til að veltast um af hlátri. Um leið er hann frábær áminning um að málfrelsi og lýðræði eru vand- meðfarin réttindi og sem betur fer búum við í samfélagi þar sem hægt er að bjóða sig fram með nánast hvað sem er og lýðræðislegur rétt- ur okkar að hafna honum og/eða öðrum frambjóðendum og flokk- um sem okkur mislíkar.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.