Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.1. 2018
VETTVANGUR
Báðir foreldrar mínir náðu 97ára aldri. Ég man að þegarpabbi var kominn á 97. ald-
ursárið fannst mér allir undir ní-
ræðu nánast vera börn. Og nú
finnst mér sjötugt fólk vera ung-
lingar og spyr hverjum hafi dottið
í hug að senda þetta fólk á eft-
irlaun.
Sjálfur er ég í þessum hópi og
líka ritstjóri þessa blaðs sem hélt
upp á sjötugsafmæli sitt í vikunni.
Við höfum verið samferða í box-
hringnum í hálfa öld. Alltaf í
gagnstæðum hornum en í seinni
tíð getað talast við, allt í hófi þó.
En jafnvel það hefði einhvern tím-
ann þótt vera talsverð framför.
Svona fer aldurinn með okkur.
Maður sér í mönnum það sem
maður ekki áður sá.
En það sem ég vildi sagt hafa
er þó tengdara afstæðiskenning-
unni en aldri í árum talið. Ég er
nefnilega kominn á þá skoðun og
það meira að segja fyrir alllöngu
að þetta tal um aldraða sé út í
hött. Aldraðir eiga nefnilega fátt
sameiginlegt. Sumir eru heilsu-
hraustir, aðrir ekki. Sumir eru
ríkir, aðrir ekki. Sumir eru vinnu-
færir, aðrir
ekki. Sumir eru
fullir lífsorku,
aðrir ekki.
Eigum við þá
ekki frekar að
tala um heilsu-
hrausta og
heilsulausa, ríka
og snauða?
Framhjá því
verður þó ekki
horft að með
aldrinum banka
ýmsir kvillar
upp á með ágengari hætti en fyrr
á lífsleiðinni. Það er staðreynd.
Það er líka staðreynd að til-
tölulega heilsuhraust aldrað fólk
sem vill lifa sjálfstæðu lífi í heima-
húsum fær ekki þá þjónustu sem
stjórnmálamenn hafa heitið því –
stjórnmálamenn úr öllum flokkum.
Á síðastliðnu ári kom ég að máli
við yfirvöldin í Reykjavík og
spurði hvort unnt væri að fá að-
stoð við böðun í heimahúsi fyrir
hálftíræðan einstakling oftar en
einu sinni í viku. Það var eins og
að eiga samtal við múrvegg. Ég
hugsaði að þetta yrði ekki það síð-
asta sem heyrðist frá mér um
þetta efni.
Síðan var efnt til fundar um
málefnið í Iðnó. Enn hefur ekkert
hreyfst. Og enginn stjórnmála-
maður sýnir þessu minnsta áhuga.
Það er bara borgarlínan sem
kemst að hjá stjórnarandstöðunni
og harmur Eyþórs Arnalds yfir
því að sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu – öll sem eitt – líka blái
Garðabær og bláa Seltjarnarnes,
blái Hafnarfjörður, blái Mosfells-
bær og blái Kópavogur, ekkert
síður en fölbleika Reykjavík –
vildu fyrir nokkrum árum setja
milljarð í að efla almennings-
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Það þótti mér viturleg ráðstöfun!
En aftur að heimaþjónustunni.
Eftir Iðnófundinn skrifaði ég
borgaryfirvöldum. Fékk að lokum
svar frá stjórnsýslunni en bíð enn
svars frá pólitíkinni. Stjórnsýslan
svaraði nokkuð út og suður en
svaraði þó. Pólitíkin þegir enn.
Svona er líf-
ið afstætt.
Gamlir flokks-
hestar fara að
rýna í einstök
málefni og
gefa þá minna
fyrir flokka ef
brennandi
áhugamál
þeirra eru virt
að vettugi sem
hvað mig varð-
ar eru málefni
aldraðs fólks í
heimahúsum; fólks sem þarf á að-
stoð að halda.
En hvað varðar öldruðu ung-
lingana sem verða sjötugir á árinu
þá er ég að sjálfsögðu ekki svo
blindur að ég afneiti aldrinum.
Síðast þegar bekkurinn minn kom
saman spurði ég konu mína hvað
allt þetta gamla fólk væri að gera
hérna. Og hún sagði: það sama og
þú ert að gera, smelltu þér á
snyrtinguna og líttu í spegil. Ég
gerði það og mikið rétt, ég smell-
passaði í hópinn.
Svo dönsuðum við allt kvöldið
og bekkjarbræðurnir spiluðu í
gömlu töffarahljómsveitinni, svo-
lítið hrukkóttari en síðast en aldr-
ei meiri töffarar. Og allir í fínu
stuði. Alveg eins og í gamla daga.
Þegar við vorum öll tvítug.
Svona er aldurinn afstæður.
Aldur
’En hvað varðar öldr-uðu unglingana semverða sjötugir á árinu þáer ég að sjálfsögðu ekki svo
blindur að ég afneiti aldr-
inum. Síðast þegar bekk-
urinn minn kom saman
spurði ég konu mína hvað
allt þetta gamla fólk væri
að gera hérna.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Morgunblaðið/Ómar
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Almött veggjamálning
Dýpri litir - dásamleg áferð
Pressed Petal
Heart Wood
ColourFutures2018
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
KLAPPSTÓLL
Koma í 3. litum
4.900 kr.
BEKKUR
120x35, H: 46cm
39.500 kr.
TILBOÐS DAGAR
húsgögn og smávara
30-50%
afsláttur
af vörum sem eru
að hætta í sölu
Viðar Guðjohn-
sen, sem sækist
eftir að leiða lista
Sjálfstæðisflokks í
Reykjavík, hefur
ekki verið sérstak-
lega mikið að reyna að fela forn-
eskjuleg viðhorf sín til kvenna og
margir urðu til að deila fréttum af
ummælum hans um leikskóla sem
hann sagði geymslur fyrir konur
með metnaðargræðgi. Elín Arnar,
blaðamaður og ritstjóri í Brighton,
hafði þetta um sýn Viðars að segja:
„Samkvæmt þessu
þá eru barneignir
einungis ábyrgð
kvenna, ekki karla.
Sem sagt eingetin.
Kosningabaráttan á
greinilega eftir að vera algjör fyrir-
sagnaveisla fyrir fjölmiðla með þenn-
an mann í fararbroddi fyrir einn
stærsta stjórnmálaflokk landsins.“
Einar Bárðarson er naskur á
björtu hliðarnar: „Fátt er svo með
öllu illt: Viðar
Guðjohnsen er að
gera hluti fyrir
okkur núna sem
venjulega þarf að
borga einhverjum
stórfé fyrir að gera. Það er að segja
vera með „stand-up“ sem fær
mann til að veltast um af hlátri. Um
leið er hann frábær áminning um
að málfrelsi og lýðræði eru vand-
meðfarin réttindi og sem betur fer
búum við í samfélagi þar sem hægt
er að bjóða sig fram með nánast
hvað sem er og lýðræðislegur rétt-
ur okkar að hafna honum og/eða
öðrum frambjóðendum og flokk-
um sem okkur mislíkar.“
AF NETINU