Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.1. 2018
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu
ÓHAPP Í nóvember 2016 fréttist að Sheeran
hefði þurft að láta sauma nokkur spor í hægri kinn
eftir óhapp í samkvæmi hjá Beatrice prinsessu af
York í Royal Lodge, opinberu heimili Andrew
prins, í Windsor í Berkshire. Sagan segir að tón-
listarmaðurinn James Blunt hafi verið þar líka og
að hann hafi gantast með að hann væri til í að láta
slá sig til riddara. Beatrice á þá að hafa sagt að
hún gæti komið því við og náði hún í sverð sem
notað er í slíkum siðum. Blunt fór niður á hné og
Beatrice hélt sverðinu fyrir ofan hann og sagði:
„Rís upp Sir James.“ Hún hafi þá sveiflað sverðinu
yfir öxl óafvitandi að Sheeran stæði fyrir aftan
hana og þannig skorið hann óvart í kinn. Seinna
sagði Blunt að sagan væri uppspuni og að Sheeran
hefði skorið sig óvart á fylleríi.
Fyrri sagan er auðvitað betri en ekki er víst
hvort hún er sönn eður ei, en hitt er víst að í októ-
ber 2017 braut Sheeran úlnlið og rifbein í hjóla-
slysi en gat þó hjólað á pöbbinn stuttu síðar.
Ed Sheeran og James Blunt hafa verið í partíi hjá Beatrice
prinsessu á heimili föður hennar, Andrew prins.
Uppspuni eða
sannleikur?
EDWARD CHRISTOPHER SHEERAN fæddist 17. febrúar árið 1991 í Hali-
fax, Englandi. Hann hóf ungur að læra á gítar. Sagan segir að hann hafi ellefu
ára gamall hitt Damien Rice baksviðs á tónleikum og hafi Rice hvatt hinn unga
Sheeran til að semja lög. Strax næsta dag byrjaði hann að semja. Stuttu síðar
fór hann að gefa út geisladiska og selja. Sextán ára hélt unglingurinn til Lond-
on með gítar í hendi og bakpoka staðráðinn í að hefja sinn tónlistarferil.
Í London hafði hann nóg fyrir stafni og fór að taka upp lög og spila víða um
borg. Hann gaf út stuttskífur (EP-plötur) árin 2006 og 2007
og var í kjölfarið ráðinn til að hita upp fyrir stór nöfn í
tónlistarheiminum. Árið 2009 gaf hann aftur út stuttskífu,
You need me, og kom fram yfir 300 sinnum.
Árið 2010 steig hann næsta skref á ferlinum og gaf út
myndband sem vakti áhuga rapparans Example sem bað
hann um að túra með sér. Það leiddi til þess að aðdáendahóp-
ur hans stækkaði og hann samdi fleiri lög sem enduðu á þrem-
ur nýjum stuttskífum árið 2010.
Sheeran fór til Bandaríkjanna það ár og þar bað Jamie Foxx
hann um að koma fram í útvarpsþætti sínum. Stuttu síðar, eða
í janúar 2011, gaf hann út enn eina stuttskífuna, þá síðustu sem
sjálfstæður listamaður. Þrátt fyrir að sú plata hafi ekki verið
auglýst, náði hún öðru sætinu á iTunes listanum og í kjölfarið
skrifaði hann undir samning hjá Atlantic Records.
Sheeran gaf síðan út plötuna + á árinu 2011 og ferillinn fór á
flug. Platan sló í gegn og seldist í yfir milljón eintökum í Bret-
landi á fyrstu sex mánuðunum. Sheeran hóf að vinna með öðr-
um listamönnum, eins og One Direction og Taylor Swift, en
henni fylgdi hann á tónleikaferð árið 2013.
Næsta plata hans, x, fór í fyrsta sæti í bæði Bretlandi og
Bandaríkjunum en á henni má finna lögin „Don’t“, „Photo-
graph“ og „Thinking out loud“, sem vann Grammy verðlaun
árið 2016. Sheeran hafði áður verið útnefndur besti nýliðinn á
Grammy verðlaunahátíðinni árið 2014. Þriðja platan ÷ sló
einnig í gegn en á henni má finna lögin „Shape of you“ og
„Castle on the hill“.
Í desember 2017 hlaut Sheeran svonefnda MBE-orðu við at-
höfn í Buckinghamhöll fyrir framlag sitt til tónlistar og góð-
gerðarstarfsemi sína.
Í dag er hann ein skærasta stjarna poppheimsins.
ÁSTARMÁLIN Sheeran hefur viljað halda einkalífinu fyrir sig.
Hann var í sambandi með skosku söngkonunni Ninu Nesbitt árið
2012 en þau hættu saman. Í janúar 2014 hóf hann samband
með Athinu Andrelos, sem vinnur fyrir breska sjónvarps-
kokkinn Jamie Oliver. Þau hættu saman ári síðar. Síðan
2015 hefur hann verið með æskuvinkonu sinni og fyrr-
verandi skólafélaga, Cherry Seaborn. Þau kynntust í
gagnfræðaskóla í Suffolk, Englandi. Hún stundaði
nám við Duke University og einnig við Durham há-
skóla í Englandi þar sem hún var í sigurliði í hokkí.
Þau búa saman og hefur Sheeran haft á orði að
hann sé tilbúinn til þess að eignast börn, en þau
eiga nokkra ketti. Sagt er að lagið Perfect sé samið
um kærustuna.
Ed Sheeran og
Cherry Seaborn hafa
þekkst síðan í æsku.
Fullkomin kærasta
FJÖLSKYLDA Foreldrar Sheeran heita John og
Imogen. Faðir hans er sýningarstjóri í myndlist og
fyrirlesari og móðir hans er skartgripahönnuður.
Hann á einn eldri bróður, Matthew, sem er tón-
skáld.
Foreldrar hans fóru oft í vinnuferðir til London og
tóku strákana með og í þeim ferðum var oft farið á
tónleika. Þau voru mjög strangir foreldrar og sagt
er að þau hafi ekki leyft sjónvarp eða tölvuleiki.
Frekar hvöttu þau syni sína til að lesa bækur og
hlusta á klassíska tónlist.
Ed á góða for-
eldra, þau John og
Imogen. Hann fékk
strangt uppeldi.
Strangir foreldrar
Byrjaði ellefu
ára að semja
Sheeran hefur verið
afkastamikill og samið
fjöldann allan af lögum.
’Sagan segir að hann hafiellefu ára gamall hitt Da-mien Rice baksviðs á tónleikumog hafi Rice hvatt hinn unga
Sheeran til að semja lög. Næsta
dag byrjaði hann að semja.
Sheeran fékk orðu í Buckingham-
höll fyrir framlag sitt til tónlistar.
AFP