Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 30
Lengi hefur verið talið að rottur og flærnar sem þær bera með sér hafi valdið útbreiðslu svarta dauða um Evrópu. Nú hefur ný rannsókn fræðimanna í Osló og Ferrara leitt í ljós að útbreiðslu sjúkdómsins megi fyrst og fremst rekja til ferða mannfólksins og mannalúsar. Á árunum 1347 til 1351 felldi svarti dauði um það bil þriðjung íbúa Evrópu, eða nærri 25 milljón manns, og eru til nákvæm gögn um útbreiðslu þessarar skelfilegu farsóttar í nokkrum borgum. Að sögn BBC notuðu rannsakend- urnir þessi gögn og báru saman við tölvulíkan sem hermdi eftir því að sjúkdómurinn bærist með rott- um, í lofti, eða með lúsum og flóm sem halda til á mannslíkamanum og í fötum fólks. Reyndist líkanið sem hermdi eftir smiti með mannalús passa mun betur við gögnin í sjö af níu borgum sem skoðaðar voru. Sýkillinn sem olli svarta dauða er enn á sveimi og á afmörkuðum svæðum í Norður- og Suður- Ameríku, Afríku og Asíu má finna nagdýr sem bera sýkilinn. Á ár- unum 2010 til 2015 greindust 3.248 manns með pláguna og þar af létust 584. Nýja rannsóknin þykir sanna að gott hreinlæti geti hjálpað til að hefta útbreiðslu smits í framtíð- inni og að fólk sem hefur sýkst eigi að halda sig heima til að forðast að smita aðra. ai@mbl.is HAFÐAR FYRIR RANGRI SÖK Svarti dauði barst með mönnum en ekki rottum Indversk börn atast í rottu. Þó það sé vissara að varast villtar rottur vegna smithættu þá var hröð útbreiðsla svarta dauða ekki þeim að kenna. AFP HEILSA Vísindamenn við Johns Hopkins-háskóla hafa þróað leið til að skima fyrirkrabbameini með blóðprufu. Í nýlegri tilraun gat þessi nýja aðferð greintvissar tegundir krabbameins í 70% tilvika. Með skimun blóðs mætti greina krabbamein mun fyrr og þar með auka líkurnar á lækningu. Greina krabbamein með blóðprufu 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.1. 2018 Það er gaman að nota sam-félagsmiðlana til að deila þvísem á daga manns drífur og fylgjast með atburðum í lífi vina og ættingja. En það getur verið fín lína á milli þess að deila og að grobba. Stundum getur samfélagsmiðla- notkunin verið allt annað en heilbrigð og ýtt bæði undir sýndarmennsku og minnimáttar- kennd. Ingibjörg Eva Þórisdóttir er dokktorsnemi í sál- fræði og segir ágætt að fólk spyrji sjálft sig hvers vegna það deilir myndum og mynd- böndum á netinu. „Hvatinn getur verið af mjög ólíkum toga og á með- an mörgum gengur ekki annað til en að deila með vinum og vandamönn- um hvað þeir eru að gera, þá er það raunin að fyrir suma virðist sjálfs- álitið bundið við þær myndir sem þeir sýna öðrum og þá endurgjöf sem samfélagsmiðlarnir veita.“ Unga fólkinu virðist sérstaklega hætt við að grobba sig á samfélags- miðlunum og sýna heiminum mjög fegraða mynd af eigin lífi. Virðist jafnvel sem samfélagsmiðlarnir sem unga fólkið notar mest, s.s. Snap- chat og Instagram, gangi út á fátt annað en að sýna öðrum nýjustu tískuflíkina í fataskápnum eða deila með öðrum hvað lífið er endalaus flaumur af glæsilegum veislum, dýr- indis mat, lúxushótelum og kraft- miklum bílum. Ingibjörg segir þetta ríma við rannsóknir á viðhorfum fólks sem fæddist á 10. áratugnum og síðar, sem sýna að þessi aldurs- hópur er líklegri en eldri kynslóðir til að leggja áherslu á útlit, eignir og frægð frekar en innri markmið eins og að vera góð manneskja eða sátt- ur við sjálfan sig. Að mynda eða njóta Ingibjörg tekur fram að það sé alls ekki slæmt að lífa viðburðaríku lífi og eiga fína hluti en þörfin fyrir að sýna öðrum hvað lífið er gott geti hugsanlega orðið svo sterk að fólk hættir að njóta augnabliksins. „Ef barnið á heimilinu gerir eitthvað sniðugt, og fyrstu viðbrögðin eru að skjótast eftir símanum til að taka það upp, þá gæti það þýtt að fólk er í reynd að missa af að upplifa augnablikið í núinu. Raunin er að það er alveg hægt að gera skemmti- lega hluti án þess að mynda þá og deila með öðrum og það eykur ekki endilega á upplifunina að sýna öðr- um hana.“ Notendur samfélagsmiðla ættu líka að gæta að því að þörfin fyrir að sýna ævintýri og upplifanir fari ekki að valda kvíða. Ingibjörg segir það vissulega geta valdið stundar- vellíðan að monta sig ögn eða hreykja sér af mikilvægum tíma- mótum í eigin lífi og lífi ástvina, en sú staða getur komið upp að fólk finni fyrir þrýstingi að bæta stöðugt inn nýju og áhugaverðu efni um sjálft sig – að alltaf verði að vera einhver ný flík til að sýna eða fal- legur staður til að gista á og mynda í bak og fyrir. Ómögulegur samanburður Hin hliðin á peningnum er síðan að það getur gert fólk óhamingjusamt að sjá stanslausar fréttir á sam- mynd segir ósköp lítið. „Við sjáum alls ekki alla víddina heldur aðeins vandlega valið brot úr lífi þessa fólks. Okkur hættir líka til að ýkja í huganum það sem við sjáum og ímynda okkur að fólkið sem birtir af sér stílfærðar myndir úr skíða- ferðalögum eða frá hvítum bað- ströndum hljóti að vera sífellt í ferðalagi og afskaplega vel statt fjárhagslega – sem er ekki endilega raunin.“ Að koma auga á þá hegðun sem lýst hefur verið hér að framan er hægara sagt en gert og auðvelt að falla í þá freistni að monta sig helst til mikið á samfélagsmiðlunum eða láta lífsstíl annarra vaxa sér í aug- um. Ingibjörg segir ágætt að fólk spyrji sig einfaldlega þeirrar spurn- ingar hvort samfélagsmiðlanotkunin valdi því vanlíðan. „Við þurfum að líta inn á við, reyna að hugsa svolítið rökrétt og átta okkur á hvort þeir miðlar sem við veljum að nota af fúsum og frjálsum vilja séu að hafa áhrif á vellíðan okkar og hvort það væri kannski hægt að verja tíma okkar á uppbyggilegri hátt.“ AFP Er grobbið á netinu að skaða okkur? Fólk ætti að hugsa sinn gang ef því er mjög í mun að draga upp glansmynd af lífi sínu á samfélagsmiðlum. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Grobb er ekki nýtt fyrirbæri en virðist hafa náð nýjum hæðum með samfélagsmiðl- unum. Ingibjörg bendir t.d. á að sjálfsmyndirnar sem fólk birtir á netinu, þar sem hugað er vandlega að útlitinu og hverju minnsta smáatriði, séu ekki svo ólíkar portrett- málverkum fyrri tíma þar sem málarinn fékk skýr fyrirmæli um að gera fyrirsætuna mynd- arlega, unglega og valds- mannslega. Ingibjörg er ekki viss hvort það er óheiðarlegt að fegra netmyndirnar líkt og margir gera enda er viss hefð fyrir því að fólk sýni sig og sína í fegr- andi ljósi á myndum: „Gott dæmi um þetta er þegar dæmigerð barnafjölskylda fer í jólamyndatöku. Þó svo að út- koman sé ein afskaplega falleg fjölskyldumynd þá er það oft raunin að það gekk mikið á í stúdíóinu og þurfti að beita ýmist mútum eða sannfær- ingum til að fá þá mynd sem stefnt var að.“ Misheiðarlegar myndir Ingibjörg Eva Þórisdóttir Glaðbeittir dansarar taka sjálfs- mynd. Það er ógalið að skoða hvers vegna við deilum mynd- um af eigin lífi á netinu. félagsmiðlum um hvað aðrir lifa góðu lífi. Ingibjörg segir samfélags- miðlana oft beina okkur í átt að fé- lagslegum samanburði upp á við, sem geti aukið á minnimáttarkennd og vansæld. „Hversu oft förum við á samfélagsmiðlana til að skoða líf fólks sem virðist hafa það verra en við sjálf og hugsum með okkur að við höfum það alveg ágætt?“ segir hún. Þeim sem finnst agalegt hvað líf þeirra er hversdagslegt í saman- burði við líf fólksins á myndunum á Facebook, Instagram og Snapchat ráðleggur Ingibjörg að muna að ein

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.