Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Qupperneq 11
Kvennanefnd í þinginu Konur eru í fyrsta sinn í forystu í atvinnuvega- nefnd Alþingis. Formaður nefndarinnar og fyrsti og annar formaður eru allt konur. „Atvinnuvega- nefnd er nefnd sem bæði karlar og konur eiga að stýra á víxl en þetta hefur verið í gegnum tíðina hefðbundin karlanefnd, en þetta er allt að breytast. Ég held að það séu svolítil tímamót núna.“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, í samtali við RÚV. Vatnið soðið Víða í Reykjavík þurfti að sjóða neysluvatn í kjölfar þess að jarðvegsgerlar fundust í vatni. Í kjölfarið hafa vaknað spurningar um hvernig gengið er um vatnsból. „Ég myndi vilja loka vegunum um Heiðmörk fyrir vélknúinni umferð. Það verður ekki gert með einu pennastriki.“ Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Veitna, á Morgunvaktinni á Rás 1. Kraup og sleikti tærnar „Ég settist til vinnu inni á skrifstofu minni og skömmu síðar kom kollegi minn inn til mín og settist í annan viðtalsstólinn minn. Hann dásamaði skóna mína og spurði svo hvort ég vildi ekki fótanudd. Ég neitaði því. Áður en ég vissi af steig hann upp úr stólnum, kraup fyrir framan mig, tók upp annan fótinn á mér og sleikti á mér tærnar.“ Nafnlaus #metoo-frásögn konu úr prestastétt. Vegaborgari eða vegan? Kona ein gerði þau mistök að ætla hamborgara frá Olís það að vera vegan. Ástæða þessarar álykt- unar var sú að borgarinn bar heitið Vegaborgari. Þótt reyndar hafi grænmetisbuff komið í stað hefðbundins nautaborgara þá vísaði heitið í vegi landsins en ekki vegan-hreyf- inguna. Vetrarfærð Útlit er fyrir að áfram þurfi að moka snjó og skafa af bílum víða um land. Vetrarlægðir eru enn í kortunum. Morgunblaðið/Hari VIKAN SEM LEIÐ 21.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is Dekraðu við línurnar Að vera í brjóstahaldara í réttri stærð skiptir miklu máli, gefðu þér tíma, við erum á Laugavegi 178 Haldari 8.950 kr. Buxur 3.650 kr. Misty Þó að fótbolti hafi skyndilega orðið þjóðaríþróttokkar Íslendinga, þá er alltaf eitthvað við hand-bolta sem nær tökum á okkur. Mér dettur eig- inlega ekkert í hug sem hefur náð eins oft að sameina okkur jafnduglega og íslenska handboltalandsliðið. Á stuttum ferli mínum sem íþróttafréttamaður upp- lifði ég margar skemmtilegustu stundir mínar með handboltamönnum og sennilega líka þær erfiðustu. Liðinu hefur nefnilega alltaf tekist að hreyfa við okk- ur. Það verður að vísu að segjast eins og er að síðustu ár hafa verið býsna mögur þótt maður geti rifjað upp margar gleðistundir í gegnum tíðina. Handboltalandsliðið hefur einstakt lag á að koma okkur á óvart. Þegar við héldum keppnina sjálf 1995 og bjartsýnin var í hámarki, þá gátum við ekki neitt. Þegar við slysuðumst á síðustu stundu inná Ólympíu- leikana í Barcelona lékum við til verðlauna. Á þriðjudaginn vorum við fjórum mörkum yfir á móti Serbum og allt í syngjandi lukku. Tveimur tímum seinna eru strákarnir okkar bara að pakka niður, á leiðinni heim. Handboltalandsliðið er eins og unglingur á gelgju- skeiðinu. Maður veit aldrei upp á hverju það tekur. Við trylltumst þegar við unnum B-keppnina. Trúið mér, það er ekki nokkur leið að útskýra það fyrirbæri fyrir neinum. En það var samt meiriháttar. Ég hef fylgst með handbolta frá því ég man eftir mér. Þetta er nokkurn veginn það sem ég hef lært: ● Reglurnar eru algjörlega óskiljanlegar. Stundum er dæmt víti, stundum aukakast og stundum sókn- arbrot. Allt fyrir það sama. Fer bara eftir því hvernig liggur á dómaranum. ● Línumaðurinn mætir alltaf fyrstur í hlaðborðið. ● Síðasti leikurinn er alltaf úrslitaleikur út af ein- hverjum undarlegum reglum sem enginn hafði heyrt talað um áður, en gefa Íslendingum tækifæri á að komast áfram. Þannig er nánast öruggt að við gætum komist áfram ef Spánverjar tapa næsta leik með einu marki, Pólverjar gera bara jafntefli og Þjóðverjar stilla eingöngu upp leikmönnum frá Austur-Þýska- landi. ● Guðjón Valur eldist ekki. ● Þulurinn á RÚV er alltaf nokkrum sekúndum á undan leiknum í fyrsta leik á hverju móti. ● Íslendingar gætu stillt upp heilu handboltaliði með landsliðsþjálfurum alls staðar að úr heiminum. ● Sókn getur tæknilega verið endalaus. Ef dóm- arinn er að fíla hana. ● Maður heldur alltaf að Ólafur Stefánsson sé að segja eitthvað gáfulegt. En regla númer eitt: Svíar eru alltaf vondi kallinn. Handbolti hefur kennt mér að hata þá. Þeir hafa ein- stakt lag á að stinga okkur í bakið. Frá Kurt Wad- mark sem fékk Víkinga dæmda úr leik eftir sigur á Ystad fyrir að hafa aðeins farið að hitta mennina. Til Staffans Olssons sem við hötuðum af öllum lífs- og sál- arkröftum (og komumst svo óvart að því að er bara fínn gaur). Og ég er ekki að gleyma öllum þessum óþolandi sænsku markmönnum. Jafnvel þegar við loksins vinnum þá er það ekki nóg. Neinei. Þá kemur bara íslenskur þjálfari, sem enginn hefur heyrt um, og stingur undan okkur með því að vinna Króata! Við erum upp til hópa sófahandboltasérfræðingar sem gera fáránlegar kröfur til smáþjóðar. Þegar fyr- irliðinn, sem hefur meira handboltavit í stóru tánni en allir sem horfa til samans, er ekki nógu dapur eftir tapleik, þá brjálumst við. Sitjum bara og tuðum um að þetta og hitt hafi nú verið „vondi kaflinn“ sem alltaf kemur. Við megum ekki gleyma því að góðu kaflarnir hjá okkur eru einmitt vondu kaflarnir hjá hinu liðinu. Handbolti er ekki stór íþrótt á heimsmælikvarða. Það er samt mjög merkilegt hve miklum árangri við höfum náð. Nú eru kynslóðaskipti í liðinu og meiri- hluti nýju leikmannanna var ekki til þegar Kristján, Alfreð, Einar, Jakob, Óttar og allir hinir lögðu grunn- inn að íslenska handboltaveldinu. Við eigum að vera stolt af því unga liði sem lék fyrir okkar hönd á EM. Alveg sama hversu pirruð við vorum á þriðjudags- kvöld. Það góða við handbolta er að stórmótin koma á hverju ári og það er alltaf von til að okkur gangi betur næst. Hvernig ég lærði að hata Svía Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’Handboltalandsliðið er eins og unglingur á gelgjuskeiðinu.Maður veit aldrei uppá hverju það tekur. UMMÆLI VIKUNNAR ’Litlar stúlkur verða ekki litlaralla tíð. Þær verða að sterkumkonum sem snúa aftur og eyði-leggja veröld þína. Kyle Stephens, barnfóstra hjá fjölskyldu Larrys Nassars, við réttarhöld yfir honum. Skróp í kladdann hjá sáttasemjara Fulltrúar flugfélagsins Primera Air mættu ekki á fund ríkis- sáttasemjara vegna kjaradeilu við Flugfreyjufélag Íslands og ASÍ, enda telja þeir kjör sinna flugliða ekki falla undir íslensk lög.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.