Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 19
21.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 bekknum með snjallsíma, og að þau vildu ekki að barnið þeirra væri útundan. Þarna þurfa for- eldrar að standa saman, að minnsta kosti fram að 13 ára aldri. Og svo má ekki gleyma því að til dæmis á Snapchat getur einhver nálgast barnið þitt undir fölskum forsendum, stofnað til sam- skipta og horfið svo aftur. Þarna hefur foreldrið enga leið til að fara í símann og sjá hvað hefur átt sér stað.“ Þórdís Elva: „Stundum er talað um að klámsíur dugi en slíkt veitir bara takmarkað ör- yggi. Ég rakst á rosalega flott ummæli netinu sem voru á þessa leið: You can’t childproof the World so you have to worldproof your child. Sem þýðir auðvitað að sían á internetið verður að vera innbyggð í barnið. Ef við kennum þeim gagnrýna hugsun hjálpar það þeim að sía í burtu efni sem er ekki ætlað börnum. Annars er pínu erfitt að setja sig í spor þess- arar kynslóðar sem elst upp í dag. Ef maður átti sjálfur erfiðan dag í skólanum, var kannski að ganga í gegnum erfitt félagslegt tímabil, þá gat maður komið heim úr skólanum og þá var þeim hluta dagsins svolítið lokið. Maður átti annað líf heima og þá gat maður verið sá sem maður vildi og þurfti ekki að halda uppi grímunni. Í dag er pressa hjá mörgum ungmennum að vera með líf sitt í beinni. Þau koma heim úr skólanum og það hættir ekkert þar. Ef þú ert ekki dugleg á snapchat eða instagram, alltaf að færa fréttir af því sem þú ert að gera þá ertu bara ekki „inn“ og þá er líka pressa á því að það sem þú tekur þér fyrir hendur heima sé hipp og kúl og áhuga- málið sé ekki nördalegt. Þetta er veruleiki ungs fólks í dag en þess vegna er enn mikilvægara að við dæmum ekki. Mér finnst þolendaskömmin og skilningsleysið meðal þessarar kynslóða sem ólst ekki upp við þessa tæknilegu möguleiki vera of mikil, til dæm- is ef nektarmyndir fara á flakk, að drusluskamma ekki og halda því fram að þetta sé allt krökkunum að kenna sem taka svona myndir af sér.“ Brynhildur: „En það má nefna hliðstæður sem þessi kynslóð getur kannski skilið. Eins og ástarbréf. Hvernig hefði manni liðið ef þau hefðu verið fjölrituð og hengd upp á alla veggi í skólanum. Krakkar tjá sig á kynferðislegan hátt sín á milli og senda oftast myndir í góðri trú. Það eru þeir sem dreifa þeim sem eru sökudólg- arnir.“ Þórdís: „Ég er mjög fegin að mín ástarljóð, sem voru eins og sykurhúðuð ponyhesta mar- tröð, fóru ekki í dreifingu.“ Reynslusögur í 10 ára bekk Þegar þið farið af stað með fræðslumyndirnar ykkar, fannst ykkur vanta fjölbreytta fræðslu inn í skólakerfið? Þórdís Elva: „Manstu eftir dönsku kyn- fræðslumyndinni, teiknimyndinni? Hún var not- uð í 30 ár.“ Brynhildur: „Ég var með mjög góða fræð- endur miðað við tíðarandann þá en engu að síð- ur var þetta aðallega umræða um eistnalyppur og eggjastokka, sem þarf líka að vera en ekki það eina. Félags- og tilfinningalega hlutann vantaði, sem er aðalmálið. Sá sem er skotinn í einhverjum er ekki að hugsa um eistnalyppur.“ Allt sem kemur fyrir í Myndinni af mér eru raunverulegar sögur, hvernig fenguð þið þær? Þórdís Elva: „Þegar ég fór í fyrirlestraferð um landið talaði ég við 3.000 foreldra á lands- vísu og það ól af sér að ég var beðin um að koma og tala við krakkana og endaði á að tala við 16.000 börn. Flestir krakkarnir voru á aldrinum 12-15 ára og 75% þeirra þekktu einhvern sem hafði fengið senda eða sent nektarmynd af ein- hverjum öðrum. 10-15% þekktu jafnaldra sem hafði lent í því að nektarmynd af þeim var dreift. Það mátti alltaf heyra saumnál detta í fyrirlestrum mínum því það hafði enginn rætt þetta við þau áður. Það var mikil ásókn í að ræða við mig eftir fyrirlesturinn og þá komu sögur í stórum stíl. Skólarnir fóru að fikra sig neðar og biðja mig að tala við við 10 ára nem- endur og yngst var 8 ára. Ég hugsaði alltaf með mér: Nei, nú eru þau of ung, fjandinn hafi það, það getur ekki verið að í 10 ára bekk sé einhver reynslusaga. En það var alltaf þannig. Mér varð ljóst að fræðslan mátti ekki standa og falla með mér og gerði mér far um að mennta alla skólahjúkrunarfræðingana. Myndinni af mér er svo ætlað að koma því á kortið að netið er orðið vettvangur fyrir kyn- ferðisleg samskipti, og mörg ungmenni í dag taka sín fyrstu skref þar.“ Þegar þið fóruð að vinna myndina, er margt sem þið hefðuð ekki getað ímyndað ykkur? Þórdís Elva: „Mjög margt. Eftir einn fyr- irlestur minn á höfuðborgarsvæðinu komu til mín tvær 14 ára stelpur sem báðu um að tala við mig eftir á. Þær sögðu mér frá illræmdi vefsíðu sem við stælum í Myndinni af mér, við breyttum titlinum af virðingu við brotaþolana en hann er samt mjög keimlíkur og þeir sem þekkja til geta séð í gegnum þessa afbökun. Þar eru nekt- armyndir aðgengilegar af íslenskum börnum niður í 12 ára. Lögreglan segist vera máttvana gagnvart þessari síðu því hún er vistuð í Suður- Ameríku og þeir sem halda henni úti eru með órekjanlega vafra. Þessar fjórtán ára stúlkur sögðu mér að það væri búið að óska eftir nekt- armyndum af þeim á þessari ógeðissíðu og þær voru miður sín. Þarna eru sem sagt myndir birt- ar af íslenskum börnum, sem eru teknar af sam- skiptamiðlunum til dæmis þar sem viðkomandi er jafnvel bara fullklæddur og spurt hvort ein- hver eigi nektarmyndir af viðkomandi, börnin eru nafngreind og jafnvel heimilisföng með en þeir sem nota síðuna eru allir nafnlausir. Stelpurnar verða þannig safngripir, eins og pókemonspjöld. Stelpurnar sögðu mér að 11 manns til viðbótar hefðu lýst áhuga á að fá nekt- armyndir af þeim en þær hafa aldrei tekið nekt- armyndir af sér og sent. Til að hafa öryggið á oddinum voru þær löngu hættar að fara í leik- fimi og sund því þar gæti einhver verið með myndavél. Þær voru samt áhyggjufullar því það er svo auðvelt að fara í fótósjopp og setja höf- uðið á þeim á líkama einhverra annarra, tæknin er svo fullkomin, að það myndi ekki sjást að þetta væri fölsuð mynd.“ Eru fleiri verkefni í bígerð sem þið tvær ætlið að ráðast saman í í augsýn? Þórdís Elva: „Maður er alltaf við sama hey- garðshornið og heldur þessari baráttu áfram. Ég bý núna úti í Svíþjóð þar sem maðurinn minn fór þar í nám og á þessu ári mun bókin mín, Handan fyrirgefningar, koma út í fjórum löndum til viðbótar. En viljinn er sannarlega fyrir hendi, þótt það sé ekkert akkúrat á teikni- borðinu núna.“ Brynhildur: „Myndin af mér er komin í heild sinni og fjórum þáttum á vef Vodafone og við vonumst eftir að fá að fylgja henni eftir inn í skólakerfið. Við erum óskaplega þakklátar þol- endum sem gáfu okkur sögur sínar og öllum sem komu að gerð myndarinnar. Svo langar mig líka að benda á myndinaafmer.is þar sem er að finna alls konar fróðleik og umræðupunkta og líka hinar myndirnar okkar, Fáðu já og Stattu með þér. og nei, við erum hvergi nærri hættar!“ „Við eignuðust vináttu sem varð það djúp og margslungin að við höfum aldrei átt erfitt með að vera ósammála og takast á um ólík sjónarmið, greiða úr því og í stað- inn höfum við fengið ný sjónarhorn í far- teskið sem við hefðum annars ekki haft.“ Morgunblaðið/Hari ’Þarna eru sem sagt myndirbirtar af íslenskum börnum,sem eru teknar af samskipta-miðlunum til dæmis þar sem við- komandi er jafnvel bara full- klæddur og spurt hvort einhver eigi nektarmyndir af viðkom- andi, börnin eru nafngreind og jafnvel heimilisföng

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.