Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Side 25
Morgunblaðið/Eggert
Stofan er notaleg og fallega inn-
réttuð. Sófinn er frá Rolf Benz
úr Módern og ljósið heitir
Enigma og er frá Louis Poulsen.
Gunnhildur starfar hjá RVX sem sér-hæfir sig í tæknibrellum og sýndar-veruleikaupplifun og vinnur að eigin
sjónvarpsþáttaröð í frítíma sínum ásamt vin-
konu sinni Ebbu Sig. Nýverið sýndu þær ein-
leikinn Guðmóðirin á Kaffi Laugalæk.
„Kærasti minn er mikið fyrir hönnun en ég
er meira lúðinn sem hendir einni og einni
Star Wars-mynd upp á vegg eða vinkandi
kisustyttu, sem endar alltaf inni í herbergi
hjá mér af óskiljanlegum ástæðum,“ útskýrir
Gunnhildur sem segir parið þó sammála um
að vilja hafa heimilið stílhreint og
notalegt. „Ég legg upp úr því að
heimilið sé fallegt, kósí og per-
sónulegt. Ég vil að heimilið teng-
ist minningum og finnst því gam-
an að kaupa hluti þegar ég
ferðast sem minna mig á eitt-
hvað.“
Parið segist versla mikið í húsgagnaversl-
uninni Módern. Auk þess eru þau miklir
ferðalangar og finnst mjög gaman að kaupa
hluti frá löndum sem þau heimsækja. „Svo að
sjálfsögðu verslum við á hinum og þessum
stöðum. Fer eftir hvað okkur finnst flott
hverju sinni.“
Gunnhildur segir þau sækja innblástur á
heimilið frá tengdamóður hennar sem er inn-
anhússtílisti . „Hún hefur hún átt sinn þátt í
að smita okkur.“
Aðspurð hver sé griðastaður parsins á
heimilinu svarar hún: „Ætli fyrir kallinn sé
það ekki eldhúsið því að þar getur hann verið
viss um að ég komi ekki og trufli hann. Nema
þegar ég er orðin mjög svöng. Annars líður
mér alltaf vel þegar ég sit í húsfreyjustólnum,
fæ mér bjór og skrifa,“ útskýrir hún. „Mér
finnst „gym“ eða líkamsræktarherbergið líka
svolítið þægilegt. Þar get ég
horft á þætti eða hlustað á
kennsluvídeó á meðan ég geri
æfingar. Er mikið að vinna
með það undanfarið að gera
tvennt í einu.“
Hvað varðar óskalistann inn
á heimilið segist Gunnhildur búin að vera á
leiðinni að kaupa mynd eftir Ylfu Grönvold í
snyrtiherbergið sitt í tvö ár. „Hún gerir bara
svo margar fallegar myndir að ég fæ alltaf
valkvíða. Ætlaði að panta um daginn en þá
sagði hún mér að hún ætlaði að gera fleiri
myndir á næstunni. Valkvíðinn fær því að
magnast meira upp.“
Gunnhildur segir sér
líða best í húsfreyju-
stólnum frá Eames.
’ Ég legg upp úrþví að heimiliðsé fallegt, kósí ogpersónulegt.
21.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
ÚTSALA – ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
www.husgagnahollin.is
VE
FVERSLUN
A
LLTAF OP
INAFSLÁTTUR
30%
62.993 kr.
89.990 kr.
MONTREUX
Borðstofuborð.
Spónlögð hnota.
Stærð:
180 x 90 x H: 75 cm
Stækkanlegt í
219,5 cm með
innbyggðum
stækkunum.
NEPTUN
Borðstofustóll.
Svartur og
krómfætur.
4.796 kr. 11.990 kr.
AFSLÁTTUR
60%SÍÐUSTU
EINTÖKIN