Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Qupperneq 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Qupperneq 43
21.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 Þetta voru nokkuð góð bókajól hjá mér svo ég er búin að lesa óvenju mikið af öðru en vinnutengdu efni undanfarnar vikur. Fyrst get ég nefnt bókina Ekki gleyma mér eftir Kristínu Jóhannsdóttur sem er áhugaverð minn- ingabók/ástarsaga frá námsdvöl hennar í Austur-Þýskalandi skömmu fyrir fall múrsins. Svo sann- arlega holl og góð lesning um and- stæðurnar austur og vestur á tím- um járntjalds og kalds stríðs. Önnur sem ég fékk í jólagjöf er Framúrskarandi dætur eftir banda- ríku blaðakonuna Katherine Zoepf. Hún fjallar um ungar konur sem eru að um- breyta Mið-Aust- urlöndum. Þessi bók tekur líka á andstæðum og leiðir okkur inn í heim sem einkennist af aðskilnaði kynjanna og undirskipun kvenna. Ýmislegt er þó að þokast í rétta átt. Ég mæli eindregið með henni. Annars bíður mín lestur á bókinni Akur- eyri fyrir Krist eftir föðurbróður minn Guðjón Jónasson, sem hann gaf út sjálfur. Þetta eru minningasögur frá árum föðurfjölskyldu minnar á Sauðár- króki og Akureyri milli 1940 og 1960 u.þ.b. Ég á ekki von á öðru en þetta verði áhugaverð lesning. Katrín Björg Ríkarðsdóttir Katrín Björg Ríkarðsdóttir er fram- kvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Hjónin Soffía Tolstaja og Lev Tolstoj. BÓKSALA 10.-16. JANÚAR Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 ÞorstiJo Nesbø 2 Bætt melting betra lífMichael Mosley 3 Sigraðu sjálfan þigIngvar Jónsson 4 NáttbirtaAnn Cleeves 5 Vertu ósýnilegurKristín Helga Gunnarsdóttir 6 Dóra BruderPatrick Modiano 7 GatiðYrsa Sigurðardóttir 8 Ný tölfræði fyrir framhaldsskóla Björn Einar Árnason 9 SvanurinnGuðbergur Bergsson 10 ÞyrlurániðJonas Bonnier 1 Dagbók Kidda klaufa 9Jeff Kinney 2 Kiddi klaufi þín eigin dagbókJeff Kinney 3 Handbók fyrir ofurhetjur fyrsta bók Elias/Agnes Vahlund 4 Mig langar svo í krakkakjöt Sylviane Donnio og Dorot- hée de Monfreid 5 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson 6 Kvöldsögur fyrir upp- reisnargjarnar stelpur Elena Favilli/Francesca Cavallo 7 Elstur í bekknumBergrún Íris Sævarsdóttir 8 Skrifum stafinaJessica Greenwell 9 Framúrskarandi konur sem breyttu heiminum Kate Pankhurst 10 Af hverju ég?Hjalti Halldórsson Allar bækur Barnabækur ÉG ER AÐ LESA úr prentaðri rússnesku með orða- bók. „Ég fékk Stalínsbók Radz- inskijs að gjöf frá syni mínum 2004. Byrjaði svo að þýða hana mér til dundurs sumarið 2013,“ segir hann. Árið 1997 kom út bókin Ísabis- marck Bjarnaræta, sem Haukur þýddi úr tékknesku. Það er bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi sem getur bókina út. Jósef Stalín, leiðtoginn alræmdi. Getur verið að honum hafi verið byrlað eitur? AP www.gilbert.is FRISLAND 1941 TÍMALAUS GÆÐI VIÐ KYNNUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.