Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Síða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.1. 2018 LESBÓK KVIKMYNDIR Frumsýnd er um helgina í Smárabíói og Háskólabíói myndin Three Billboards Outside Ebb- ing, Missouri, sem er kolsvart gamandrama frá Ósk- arsverðlaunahafanum Martin McDonagh. Í myndinni segir frá Mildred Hayes, sem leikin er af Frances McDormand, fráskilinni móður sem misst hefur dótt- ur sína sjö mánuðum áður, en hún var myrt á hrotta- legan hátt. Enn hefur lögreglu ekki tekist að leysa sakamálið. Myndin er tilnefnd til sex Golden Globe verðlauna; fyrir bestu mynd, bestu leikkonu í aðalhlutverki, besta leikara í aukahlutverki, bestu leikstjórn, besta handrit og bestu frumsömdu tónlistina. Woody Har- relson er í hlutverki lögreglustjórans. Kolsvart gamandrama Frances McDormand er tilnefnd til Golden Globe verðlauna fyrir leik sinn. UPPISTAND Laugardaginn 20. janúar klukkan 20 er tilvalið að skella sér í Há- skólabíó og hlæja svolítið. Þar mun leikarinn, rithöfundurinn, framleiðandinn og fjöl- skyldufaðirinn Jim Gaffigan vera með uppi- stand, en hann er þekktur fyrir brandara um föðurhlutverkið, leti, kræsingar og fleira. Sýningin nefnist Noble Ape en hann hefur hlotið mikið lof fyrir sýningar á borð við Mr. Universe og Jim Gaffigan: Obsessed, en báð- ar hlutu tilnefningar til Grammy verðlauna. Sjálfsævisaga hans heitir Dad Is Fat og fyrir þremur árum gaf hann út bókina Food: A Love Story. Jim Gaffigan með uppistand á Íslandi Grínistinn Jim Gaffigan treður upp laugardags- kvöld í Háskólabíói klukkan 20. Þátturinn Burðardýr sýnir íslenskan veruleika eiturlyfjasmygls. Burðardýr STÖÐ 2 Á sunnudag klukkan 20.55 hefst fyrsti þáttur af sex um ein- staklinga úr íslenskum veruleika sem flækst hafa inn í skuggavef al- þjóðlegs eiturlyfjasmygls. Þátta- röðin nefnist Burðardýr og í hverj- um þætti fáum við sögu eins einstaklings og kynnumst mann- eskjunni á bak við fyrirsagnirnar. Áhugavert verður að fylgjast með þáttunum, en burðardýr eru oft undir hælnum á skipuleggjendum eiturlyfjasmygls. RÚV Á sunnudag klukkan 20.35 hefst þriggja þátta röð á RÚV sem nefnist Thorne læknir. Þeir eru skrifaðir af sama höfundi og Down- ton Abbey og fjalla um Thorne lækni og frænku hans Mary, sem elst upp hjá honum eftir andlát föð- ur hennar. Mary eyðir miklum tíma í uppvextinum með hinni efnuðu Gresham-fjölskyldu sem býr í ná- grenninu. Ýmislegt fer að gerast þegar hún og Gresham-sonurinn Frank, fella hugi saman. Aðalhlutverk: Tom Hollander, Stefanie Martini og Harry Rich- ardson. Thorne læknir Nýr þáttur á RÚV. BÍÓRÁSIN Ósk- arsverðlauna- myndin Spot- light frá 2015 er sýnd klukkan 18.30 á sunnu- dag á Bíórásinni. Þar er rakin hin sanna saga af því þegar Spot- light-teymi dagblaðsins The Boston Globe afhjúpaði barnaníð og hylm- ingu á glæpum innan kaþólsku kirkjunnar, sem átti eftir að hafa mikil áhrif á kirkjuna. Blaðið fékk á sínum tíma Pulitzer-verðlaun fyrir störf unnin í almannaþágu. Stanley Tucci leikur í Spotlight. Spotlight Margir þættir á Netflixhafa gengið árum samanog notið mikilla vin- sælda og enn aðrir eru nýir af nál- inni. Af mörgu er að taka en hér eru taldir upp nokkrir af þeim bestu. Vonandi er eitthvað fyrir alla. Fyrir þá sem ekki hafa séð Orange is the New Black eru nú á Netflix 65 þættir í fimm seríum og óhætt er að mæla með þeim. Þar fylgjumst við með kvenföng- um og fáum innsýn í þann harða heim. Þættirnir eru bæði vel leiknir og vel skrifaðir og húm- orinn er ekki langt undan þótt oft sé mikið drama. Önnur sería sem virðist falla vel í kramið er Unbreakable Kimmy Schmidt en þrjár seríur telja 39 þætti. Þetta eru gamanþættir í anda 30 Rock og fjalla um konu sem flytur til New York eftir að hafa verið bjargað úr klóm dóms- dagssértrúarsöfnuðs. Í þriðja lagi má nefna BoJack Horseman. Þetta eru fjórar þáttaraðir sem telja 48 þætti. Sagt er að þessi þáttur sé sá van- metnasti á Netflix. Þessi teikni- mynd er um hest sem heitir Bojak sem eitt sinn var frægur en frægðarsólin hefur slökknað. Eftir að hafa legið í sófanum í áratug ákveður hann að reyna að end- urvekja fyrri frægð með frekar dræmum árangri. Sagt er að þrátt fyrir að Bojack sé hestur, sé hann mannlegasta persónan í sjónvarpi í dag. Nauðsynlegt er að horfa á tvo til þrjá þætti til þess að verða heltekinn. Fyrir þá sem eru ekki með á nótunum og hafa ekki enn séð Stranger Things (tvær þáttarað- ir) er helginni bjargað. Í fyrstu seríunni er fjallað um drenginn Will sem er tekinn af skrímsla- veru og festist í einhvers konar drungalegum hliðarheimi. Hefst þá mikil leit en móðir hans, leikin af Winonu Ryder, er þar fremst í flokki. Án þess að rekja söguþráðinn allan þá er hægt að mæla með þessum þátt- um fyrir alla sem hafa ríkt ímynd- unarafl því þessi þáttur er ekki fyrir þá allra jarðbundnustu. Master of None heitir þáttur í tveimur seríum. Hér er grínþáttur á ferð, um sambönd og stefnu- mótamenningu ungs fólks. Þætt- irnir fjalla um gott fólk, þykja frumlegir og lúmskt fyndnir. Dear White People er nýleg sería sem þykir einnig vanmetin. Fjalla þeir um kynþáttamál í háskóla og eru bæði fyndnir og áhugaverðir. Ein sería er búin af Mind- hunter en hún fjallar um hvernig FBI hóf að kortleggja hegð- unarmynstur raðmorðingja á átt- unda áratug síðustu aldar. Þætt- irnir eru hægir en góðir. Godless, framleitt af Steven Soderbergh er „femínískur vestri en að sama skapi þáttur um feður og syni“ segir í lýsingunni. Þátturinn gerist árið 1880 í litlum námubæ þar sem nánast allir karl- menn hafa látið lífið í námuslysi. Segja sumir að þessi þáttur sé sá besti sem kom á Netflix árið 2017. Marvel’s Daredevil eru 26 þættir í tveimur seríum. Þessir dimmu og drungalegu þættir þykja vel skrifaðir og kvikmynda- takan frábær. Sagt er frá hetjum hasarblaðanna sem lifna við á skjánum og fjalla þættirnir að vonum um baráttu góðu kallana og þeirra vondu. Bretar eiga eina frábæra seríu á Netflix sem nefnist Peaky Blind- ers en sýndir hafa verið 24 þættir í fjórum seríum. Þykja þeir líkjast Boardwalk Empire, og gerast á tíma áfengisbannsins á fyrri hluta síðustu aldar. Þar segir af bresk- um bófum, IRA, bruggi og fjár- hættuspilum. Serían er sögð ávanabindandi, ofbeldisfull og gríðarlega spennandi. Thinkstockphoto Hvað er gott á Netflix? Stundum finnst ekkert til að horfa á í sjónvarpinu, þrátt fyrir ofgnótt efnis. Kannski er það hluti af vandamálinu; valið er erfitt þegar of mikið er í boði. Þá er gott að hafa afmarkaðan lista af góðu efni sem finnst á Netflix. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Þrátt fyrir mikið efni virðist oft erfitt að finna eitthvað til að horfa á í sjónvarpinu. Á vefnum uproxx.com er einnig mælt með þessum: Ozark Luke Cage The Crown G.L.O.W. 13 Reasons Why Bloodline Sense8 Travelers One Day at a Time American Vandal Alias Grace Atypical F is for Family Lady Dynamite Narcos The Killing The Punisher The Defenders Friends from College The OA Flaked Disjointed Fleiri góðir þættir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.