Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.01.2018, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2018
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
30-70%
afsláttur af yfir 3.000
vöruliðum
- gildir á meðan birgðir endast -
TSALA
30-50%
AF ÖLLUM
MOTTUM
CAROLINA-stóll. Ýmsir litir. Tauáklæði. Svartir fætur.
12.900 kr. Nú 6.900 kr.
PERNILLE-kertastjaki fyrir 4 kerti. 7.995 kr. Nú 3.995 kr.
COPPER-hnífapör. Hnífur, skeið
eða gaffall. 395 kr. Nú 195 kr.
Teskeið. 295 kr. Nú 145 kr.
HARVEY-glös. 24cl. 4 í pk.
1.495 kr. Nú 595 kr.
45%
50%
60%60%
Sjónvarps- og útvarpsmaðurinn,
David „Kid“ Jensen, sem gerði
garðinn meðal annars frægan sem
aðalkynnir Top of the Pops á BBC,
tjáði sig í fyrsta skipti um baráttu
sína við Parkinson-sjúkdóminn í
viðtali við ITV News í vikunni. Um
leið þakkaði hann eiginkonu sinni,
hinni íslensku Guðrúnu Jensen, fyr-
ir að hafa bjargað sér með ríkuleg-
um stuðningi sínum en sjónvarps-
maðurinn hefur barist við
sjúkdóminn í 5 ár. Breskir fjölmiðl-
arnir hafa fjallað mikið um viðtalið
en Kid Jensen sagðist vera afar
þakklátur fyrir stuðninginn sem
hann hefði fengið frá Guðrúnu,
„sem ég hef verið giftur í 43 ynd-
isleg ár“. Saman eiga þau Guðrún
þrjú börn, en yngsti sonur þeirra,
Viktor, hefur gert það gott í kapp-
akstri. Þau hjónin hafa búið ytra en
sjónvarpsmaðurinn, sem er 67 ára
gamall, fékk viðurnefnið Kid þar
sem hann byrjaði afar ungur í fjöl-
miðlum, 18 ára, og var á þeim tíma
yngsti útvarpsmaður Evrópu.
Jensen er enn að og starfar m.a.
fyrir svæðisútvarp BBC en árið
2010 var hann formlega vígður inn í
„Hall of Fame“ breska útvarpsins.
Þakkaði eiginkonunni
David „Kid“ Jensen og
eiginkona hans, hin ís-
lenska Guðrún Jensen,
hafa verið gift í 43 ár en
breski fjölmiðlamað-
urinn greindi frá því í
vikunni í fjölmiðlum
ytra að hann væri með
Parkinson-sjúkdóminn.
Guðrún og David kynntust í Luxem-
burg þar sem Guðrún starfaði sem
flugfreyja og David sem plötusnúður.
David „Kid“ Jensen er einn elskaðasti útvarpsmaður Breta en á árum áður
gerði hann garðinn frægan í sjónvarpsþættinum Top of the Pops. Þegar diskó-
æðið stóð sem hæst á Íslandi kom hann og þeytti skífum í Hollywood.
Í janúarmánuði fyrir 30 árum
sagði Morgunblaðið frá kostu-
legu atviki. Tveir lögreglumenn
sem gæta áttu gesta á ráðstefnu
um nýtingu sjávarspendýra og
fylgjast með mannaferðum við
herbergi ráðstefnugesta á Hótel
Sögu voru ekki árvökulli en svo
að magnara var stolið úr næsta
herbergi á meðan þeir horfðu á
sjónvarpið. Lögreglumennirnir
áttu að vera frammi á gangi, en
höfðu herbergi til að skipta um
föt í. Í þessu herbergi var einnig
sjónvarpstæki með fullt af sjón-
varpsstöðvum í gegnum gervi-
hnött. Lögreglumennirnir
gleymdu sér yfir sjónvarpsglápi
en skyndilega hvarf myndin af
skjánum. Þeir létu vita af bilun
og báðu um að nýtt sjónvarps-
tæki yrði sent upp á herbergi.
Sama hvað þeir reyndu, engin
mynd náðist á skjáinn og þegar
ákveðið var að reyna að stilla
magnarann í næsta herbergi
kom í ljós að hann var horfinn; á
nákvæmlega þeim stað þar sem
lögreglumennirnir áttu að
standa vaktina. Einhver bíræfinn
hafði þá skrúfað hann úr skáp
sem þar stóð og gengið með
hann út undir hendinni, meðan
lögreglan hamaðist við að reyna
að stilla sjónvarpið.
GAMLA FRÉTTIN
Gleymdu
sér yfir glápi
Skiljanlega voru margir óhressir með sjónvarpsglápið á Hótel Sögu, en á
þeim tíma var vissulega ekki algengt að komast í margar stöðvar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Bjarni Haukur Þórsson
leikstjóri og leikari
Marteinn Lúther
siðbótarmaður
Kolbeinn Óttarsson Proppé
þingmaður