Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.03.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 25. MARS 2018
GM 9900 Verð frá 435.000,-
GM 3400 Verð frá 649.000,-
GM 2152 Verð frá 539.000,-
PLANK GM 3200 Verð frá 575.000,-
GM 7700 Verð frá 629.000,-
BORÐSTOFUBORÐ
GM 3300 Verð frá 665.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Tímaritið Vanity Fair lætur ávallt taka myndir af helstu stjörnum Óskarsverðlauna-
hátíðarinnar og í ár var það sem fyrr Mark Seliger sem tók myndirnar. Athygli vekur
að á myndinni af Óskarsverðlaunahafanum Allison Janney, sem var verðlaunuð sem
besta leikkkonan í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í I, Tonya, má finna íslenska verð-
launahönnun, stólinn Sóley.
Valdimar Harðarson arkitekt hannaði þennan fellistól, sem m.a. var valinn húsgagn
ársins árið 1984. Framleiðslu á stólnum var hætt tímabundið árið 2003 en nú hefur
framleiðsla hafist á ný á vegum framleiðandans Kusch+Co í Þýskalandi sem vakti að
vonum athygli á Instagram á @kuschandco á þeim góða félagsskap sem stóllinn var í.
Allison Janney
með Óskarinn
í hendi og Sóley
í bakgrunni.
Mynd/Skjáskot af Instagram @vanityfair
Sóley er fellistóll.
Mynd/Kusch+Co
Íslenskur verðlaunastóll var með verðlauna-
leikkonu á mynd eftir Óskarsverðlaunahátíðina.
Sóley á Óskarnum
Í lok marsmánaðar fyrir ná-
kvæmlega 30 árum greindi Morg-
unblaðið frá því að Danir ætluðu
að gera kvikmynd um leiðtoga-
fundinn í Höfða. Danski kvik-
myndaleikstjórinn Søren Kragh-
Jacobsen fékk styrk frá Dönsku
kvikmyndastofnuninni til 10 daga
handritsvinnu á Íslandi og átti
myndin að heita Húsvörðurinn
og heimsástandið.
Kragh-Jacobsen er Íslend-
ingum að góðu kunnur, hann leik-
stýrði til dæmis sjónvarpsþátt-
unum Borgen og Erninum og
kvikmyndunum Sjáðu sæta nafl-
ann minn og Gúmmí-Tarsan.
Myndin um leiðtogafundinn
átti að fjalla um húsvörð í Höfða
sem var við vinnu í kjallara húss-
ins þegar Ronald Reagan og
Mikhaíl Sergejevítsj Gorbatsjov
hittust á hæðinni fyrir ofan hann.
Í gegnum pípulagnir heyrði hann
allt sem þeim fór á milli.
Til stóð að íslenskir leikarar
tækju þátt í myndinni en ekki
varð af gerð hennar. Leikstjórinn
sagði að þegar hann ætlaði sér að
gera hana hafi aðstæður í heim-
inum verið breyttar, ekkert aust-
ur og vestur lengur.
GAMLA FRÉTTIN
Húsvörður
í Höfða
Útisenurnar í fyrirhugaðri kvikmynd Søren Kragh-Jacobsen átti að taka upp
hérlendis, fyrir utan Höfða, en innisenurnar í Danmörku.
Morgunblaðið/RAX
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
leikkona
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir
Ofursnappari