Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 1
Endurlifði áfallið
Þetta ertrúboð
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson
átti erfitt með að horfa upp á það
þegar systir hans, Sunna Elvira
Þorkelsdóttir, lamaðist í janúar
og fékk ekki viðeigandi meðferð
á Spáni. Sjálfur lamaðist hann í
slysi 21 árs gamall. Rúnar hefur
barist ötullega fyrir réttindum
fatlaðs fólks og ferðast nú víða
um heim þar sem hann kynnir
sér meðal annars aðgengismál 14
8.APRÍL 2018SUNNUDAGUR
Fyrsta minning er fráfrostavetrinum mikla
Hamingja fylgirútivist og tilmikils er aðvinna að fá semflesta til að sjáútivistarljósiðsegir Bryn-hildur Ólafs-dóttir semstýrir þáttun-um Úti 2
Barnarher-bergin megaekki verðaútundan 20
Lárus Sigfússon man tímanatvenna enda 103 ára 18
Krúttlegt
fyrir
krílin
L A U G A R D A G U R 7. A P R Í L 2 0 1 8
Stofnað 1913 81. tölublað 106. árgangur
LAKKRÍSLITA-
DÝRÐ OG
FURÐUVERUR
MJÖG
LÍFRÆN
TÓNLIST
LEIKA MEÐ BJÖRK 44VERK GABRÍELU 47
„Ég held að það
séu liðin 15 ár síð-
an fyrst var byrj-
að að ræða um
hvort og hvar
ætti að reisa nýj-
ar spítalabygg-
ingar. Landspít-
alinn var í
alvarlegum hús-
næðisvanda þá,
og ástandið er
orðið alveg óviðunandi í dag svo að
málið þolir enga bið,“ segir Alma D.
Möller, nýr landlæknir, í viðtali við
Morgunblaðið, en hún telur brýnt að
ljúka framkvæmdum við nýjan
Landspítala sem fyrst.
Alma segir hægt að finna ótal rök
bæði með og á móti staðsetningu
nýrra spítalabygginga. „Í full-
komnum heimi myndum við byggja
nýjan spítala frá grunni á vel völdum
stað, en það er ekki í boði lengur,“
segir Alma m.a. í viðtalinu. »16
Alma D. Möller
Nýr Land-
spítali þolir
enga bið
„Saga stærstu sjónvarpsfram-
leiðslu Íslandssögunnar gæti hafa
horfið í brunanum,“ segir Magnús
Scheving, höfundur Latabæjar, en
upprunalegar upptökur Latabæjar
og annað efni tengt þáttunum var
geymt í eldtraustum skápum í
geymsluhúsnæðinu sem brann á
fimmtudaginn.
Fjölmargir geymsluleigjendur
leituðu til tryggingafélaga sinna í
gær, daginn eftir stórbrunann í
Miðhrauni, vegna tjónsins sem
þeir urðu fyrir. Þeir sem eru með
innbú tryggt fá aðeins allt að 15
prósent af andvirðinu bætt, en
Guðni Haraldsson hæstarétt-
arlögmaður segir ekki útilokað að
Geymslur, sem rekstraraðili
geymsluhúsnæðisins, séu bóta-
skyldar í tjóninu sem þjón-
ustuþegar urðu fyrir í brunanum.
Mannvirkjastofnun hvetur eig-
endur og forráðamenn iðnfyr-
irtækja til yfirferðar eldvarna í at-
vinnuhúsnæði. »4
Saga Lata-
bæjar í
brunanum
Margir leituðu til
tryggingafélaganna
Morgunblaðið/RAX
Brunarústir Mikið verk þarf að
vinna við hreinsun á svæðinu.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson er
virkur í ýmsum samtökum fatlaðs
fólks og ferðast líka mikið. Hann lík-
ir því við endurfæðingu að lenda í
slysi og segir það taka mörg ár að ná
jafnvægi á ný en það breytti miklu
fyrir hann að fá notendastýrða per-
sónulega aðstoð. Hann heldur úti fa-
cebooksíðunni Ævintýri Rúnars þar
sem hann segir frá ferðalögum sínum
víða um heim. Þar eru aðgengismál
ofarlega á baugi en hann vill líka sýna
að fatlað fólk geri allskonar hluti.
Rúnar lamaðist í slysi þegar hann
var 21 árs en hann er nú 36 ára. Í við-
tali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
kemur fram að hann endurlifði eigið
áfall eftir að systir hans, Sunna Elvira
Þorkelsdóttir, lamaðist eftir fall úti á
Spáni í janúar. Sem réttindabaráttu-
manni blöskraði honum hvernig far-
ið var með systur hans en hún fékk
óviðunandi læknisaðstoð í fyrstu.
„Það sem ég sá strax var að þetta
voru óviðunandi aðstæður. Ég þekki
svo vel hvað þarf til og það var þetta
sem tók mest á mig og mér fannst
erfiðast. Ætli það hafi ekki verið
svona fjórir dagar sem ég var bara
grátandi úti um allan bæ.“
Fatlað fólk ekki í sviðsljósinu
Endurfæðing að lenda í slysi Endurlifði áfallið eftir að systir hans lamaðist
Rúnar Björn Herr-
era Þorkelsson
Sunna Elvira
Þorkelsdóttir
Blái dagurinn var haldinn hátíðlegur í fimmta
sinn í gær og var fólk hvatt til að klæðast bláu í
tilefni dagsins. Blár apríl – Styrktarfélag barna
með einhverfu stóð fyrir tónleikum í Gamla bíói
sem lið í árlegu vitundar- og styrktarátaki fyrir
einhverf börn. Rennur afraksturinn til fræðslu
um einhverfu. Kynnir var Ævar vísindamaður
sem sást taka sjálfu með forsetahjónunum
Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid.
Blár apríl – Styrktarfélag barna með einhverfu hélt tónleika til styrktar og vitundar um málefnið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bláklæddir mættu í gleðina í Gamla bíói í gærkvöldi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Spár um fjölgun starfa á Keflavíkur-
flugvelli á næstu árum kunna að fela
í sér vanmat. Þannig gætu orðið til
rúmlega 5 þúsund ný störf til 2021.
Þetta má ráða af svörum Isavia og
ráðgjafa fyrirtækisins.
Samkvæmt áætlun sem unnin var
fyrir Isavia munu verða til samtals
3.900 störf á árunum 2018-2021.
Huginn Freyr Þorsteinsson, sér-
fræðingur hjá Aton, vann þessa spá
ásamt öðrum. Hann segir horfur á að
spáin sé vanmat. Ef áform til dæmis
WOW air um fjölgun starfa í 2.000 á
næsta ári rætast kunni um 4.700 ný
störf að skapast á vellinum þessi ár.
Hleypur á þúsundum
Við þetta bætast hundruð starfa
sem skapast vegna næstu áfanga í
stækkun flugvallarins. Samkvæmt
þessu gætu orðið til ríflega 5.000 ný
störf á vellinum þessi ár. Fjöldi
óbeinna starfa er þá ekki meðtalinn.
Má þar nefna bílstjóra og starfs-
menn á bílaleigum í næsta nágrenni.
Þá er hér ekki reiknað með hótelum.
Áætlað er að 1.526 manns muni
starfa að meðaltali hjá Isavia í ár. Til
samanburðar störfuðu þar rúmlega
700 manns fyrsta starfsárið 2010.
Með því hefur launakostnaður Isavia
aukist úr 6,2 milljörðum í 16,7 millj-
arða í fyrra og eykst enn frekar í ár.
Framundan eru tvískiptar fram-
kvæmdir á vellinum 2018-2021 sem
taldar eru kosta 9 og 24 milljarða.
Enn fleiri störf á vellinum
Vísbendingar um að fjölgun starfa á Keflavíkurflugvelli næstu ár sé vanmetin
Sérfræðingur telur mögulegt að 4.700 ný störf verði til á árunum 2018 til 2021
33 milljarðar í stækkun
» Fyrirhugað er að stækka
flugvöllinn í nokkrum lotum.
» Sú næsta hefst í ár og
stendur til 2021 og er talin
kosta 33 milljarða króna.
» Með uppbyggingunni verður
veitingarými á flugvellinum
meðal annars tvöfaldað.
MÞúsundir nýrra starfa … »10