Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 FAI varahlutir Ódýrari kostur í varahlutum! stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár. Framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum ● Samkaup og Basko, sem m.a. á 10-11 verslanirnar, Iceland, Inspired by Iceland og Háskólabúðina, hafa komist að sam- komulagi um að Samkaup kaupi valdar verslanir af síðarnefnda fyrirtækinu. Þetta kom fram í tilkynningu sem send var á fjölmiðla síðdegis í gær en þar kom jafn- framt fram að ekki yrði að sinni greint frá því hvaða verslanir er um að ræða. Kaup- in væru auk þess háð fyrirvörum, m.a. vegna áreiðanleikakönnunar og sam- þykkis Samkeppniseftirlitsins. Í maí í fyrra var tilkynnt að viðræður væru hafnar um kaup Skeljungs á öllu hlutafé Basko og var kaupverðið áætlað 2,2 milljarðar króna. Viðskiptin gengu hins vegar til baka þar sem tilteknar for- sendur fyrir kaupunum stóðust ekki. Í lok febrúar greindi Markaðurinn frá því að stjórnir Skeljungs og Basko hefðu það til skoðunar að endurvekja viðræðurnar sem runnið höfðu út í sandinn eins og áður sagði. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið ráðgjafi Samkaupa í viðræðum um kaupin á verslununum. Samkaup reka í dag fjölda verslana undir merkjum Sam- kaupa, Nettó, Kjörbúðarinnar og Kram- búðarinnar. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 1.000 talsins í rúmlega 500 stöðu- gildum. Samkaup hyggjast kaupa tilteknar verslanir Basko STUTT aður vegna hinnar breyttu stefnu verði á bilinu 700 til 800 milljónir. „Það kann að hljóma há fjárhæð en við teljum að þessi fjárfesting muni skila sér á fáum árum, kannski áratug. Þá eru ótalin þau jákvæðu umhverfisáhrif sem þetta leiðir af sér.“ Ferjan mun taka rafmagn í Eyj- um og í Landeyjahöfn en Friðfinnur segir ekki stefnt að því að koma sér- stakri hleðslustöð upp í Þorláks- höfn. „Rafmagnið sem við notumst við er allt endurnýjanleg orka og fram- leidd með eins umhverfisvænum hætti og kostur er. Það er ljóst af því sem HS Veitur hafa upplýst okkur um að rafmagnið í Eyjum ætti að duga en það er flutt með sæ- streng frá landi. Það kunna þó að verða einhverjar takmarkanir á því þegar allar verksmiðjur verða á full- um afköstum í bænum. Við munum þurfa að sjá hvernig úr því spilast þegar að því kemur.“ Nokkrar tafir vegna breytinga Nokkrar tafir munu verða á af- hendingu skipsins vegna þeirra breytinga sem gerðar verða á því. Segir Friðfinnur að líklegast verði skipið afhent í september og verði þá komið hingað til lands í október eða nóvember. Hins vegar muni taka lengri tíma að koma hleðslu- búnaðinum fyrir og líklegast verði hann tilbúinn til notkunar vorið 2019. „Það er fyrirtækið ABB sem sér um rafbúnaðinn í skipið en það hef- ur samið við Corvus Energy um raf- hlöðubúnaðinn. Þá er það búnaður frá Stemmann-Technik sem notast verður við þegar skipið verður hlað- ið frá bryggju,“ segir Friðfinnur. Mun spara hundruð milljóna í olíukostnað milli lands og Eyja Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppbygging Á komandi mánuðum verður hafist handa við að koma hleðslubúnaði fyrir á höfninni í Eyjum og Landeyjum. Ný ferja » Smíði við nýjan Herjólf hófst um mitt síðasta ár. » Í sumar verða 26 ár liðin frá því að núverandi Herjólfur var tekinn í gagnið. » Nýja skipið verður um 70 metrar á lengd, 15 metra breitt og mun taka allt að 540 far- þega og 73 fólksbíla.  Nýr Herjólfur mun geta gengið að mestu fyrir rafmagni  Reynir á innviði í Eyjum Hleðslutæknin Heimild: Faiveley, Stemmann-Technik BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í byrjun þessa árs fól samgöngu- ráðuneytið Vegagerðinni að kalla eftir breytingum á skipinu sem nú er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni CRIST C.A. í Póllandi og sinna mun ferjusiglingum milli lands og Eyja á komandi árum. Breytingarnar sem um er að ræða lúta að því að hægt verði að knýja skipið áfram með raf- magni sem hlaðið verður á raf- geyma þess úr landi. Friðfinnur Skaftason, verkfræð- ingur í samgönguráðuneytinu, á sæti í byggingarnefnd nýrrar Vest- mannaeyjaferju. Hann segir tölu- verða stefnubreytingu felast í þess- ari ákvörðun. „Við hönnun ferjunnar var gert ráð fyrir því að vélar yrðu um borð sem myndu hlaða þar til gerða raf- geyma til að knýja skrúfur skipsins. Þannig var ætlunin að hefðbundnar vélar myndu framleiða rafmagn þegar lítið álag væri á skipið en raf- magnið yrði svo nýtt til að jafna álagið á skipið þegar reyndi á það. Sú tækni hefði sparað allt að 25% ol- íunotkun miðað við sambærileg skip sem ekki eru búin þessum búnaði. Sá búnaður sem nú hefur verið ákveðið að setja í skipið gengur hins vegar mun lengra,“ segir Friðfinn- ur. Hleðslan fer fram af kajanum Nýja tæknin byggist á því að mun stærri rafhlöðum er komið fyrir í skipinu sem hægt verður að hlaða með þar til gerðum búnaði sem komið verður upp á lendingarstað skipsins í höfninni í Vestmannaeyj- um og Landeyjum. „Stefna ríkisstjórnarinnar í lofts- lagsmálum og markmið þau sem sett hafa verið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda valda því að þessi ákvörðun er tekin. Þessi breyting á skipinu gerir það að verkum að við venjulegar aðstæður á ferjan að geta siglt á rafmagninu milli Landeyjahafnar og Vest- mannaeyja. Í verulega vondu veðri eða ef fara þarf í Þorlákshöfn mun einnig þurfa að notast við olíu.“ Í tilkynningu frá samgönguráðu- neytinu kemur fram að það muni beita sér fyrir sérstakri fjárveitingu vegna verkefnisins en Friðfinnur segir að allt í allt sé talið að kostn- Frá árinu 2015 hefur norska ferjuflutningafyrirtækið Norled AS haft í förum ferju sem gengur einvörðungu fyrir rafmagni. Ferjan var byggð í samstarfi fyrirtæk- isins við Fjellstrand skipasmíðastöðina og Siemens AS. Nefnist hún MF Ampere og siglir milli Oppedal og La- vik. Það er um 5,6 kílómetra leið og fer ferjan 34 ferðir á degi hverjum. Er það mat fyrirtækjanna sem komið hafa að hinu byltingarkennda verkefni að nýting rafmagns við sigl- ingarnar spari fyrirtækinu um 1 milljón lítra af dísil- olíu á ári. Það dragi úr losun koltvísýrings sem nemi 2.680 tonnum á ársgrundvelli og 37 tonnum af köfn- unarefni (NOx). Skipið er knúið áfram af tveimur vélum sem hvor um sig gefur um 450 kílóvött. Fer hún hina tæplega 6 km löngu leið á um 20 mínútum. Rafhlöðurnar eru frá Cor- vus Energy og skila þær um 1.000 kílóvattstundum. MF Ampere er engin smásmíði eða um 80 metrar á lengd og tekur allt að 120 bíla og 360 farþega. Ferjan er hins vegar mun léttari en flestar ferjur af þessari stærðargráðu og munar þar um helmingi. Það kemur til af því að hún er nær alfarið smíðuð úr áli en ekki stáli eins og oftast er þegar um ferjur og skip er að ræða. Það gerir það m.a. að verkum að ekki þarf að mála ytra byrði skipsins sérstaklega til að verja það fyrir ryði og segja forsvarsmenn Norled AS að við- haldið á því sé mun léttara en öðrum skipum í þjónustu þess. Siglt á rafmagni í Noregi  Ferjar 120 bíla og allt að 360 farþega í senn Rafmagn MF Ampere er sannarlega rennileg tvíbytna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.