Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 ára gömul 28. mars síðastliðinn. Minningarnar eru svo margar en orðin svo fá. Hún lifði heilu lífi allt frá bernsku og þar til hún varð gömul kona. Stundum er sagt að allir vilji lifa lengi en enginn vilji verða gamall. En Helga bar hvern aldur og hvert æviskeið með reisn. Hún lifði það að verða móðir, amma og langamma. Hversu fagurt er ekki slíkt líf? Hversu þakklátur getur maður ekki verið fyrir að manneskju, svo nærkominni manni, auðnist að lifa öll ævi- skeið sem í boði eru í þessu lífi? Þetta er huggunin. En söknuðurinn er svo hin hliðin. Helga átti myndarheimili með Jóni Einarssyni, honum Jonna okkar, sem lést 2002. Strákarnir þeirra fjórir, frændur mínir, eru nú orðnir fullorðnir menn og eiga sínar fjölskyldur. Þeir eru gæfusamir að hafa átt Helgu að móður. Það var mikill samgangur milli systranna fjögurra og barna þeirra á árunum áður. Mamma og Helga voru í miklu símasambandi alla tíð og stund- um hafa þær örugglega talað saman oftar en einu sinni eða tvisvar á dag. Þetta var á tímum heimasímans með krulluðu snúr- unum og þungu símtólunum. Helga var 31 árs þegar ég fæddist og hún var einfaldlega hluti af lífi mínu alla tíð. Sterk- asta tilfinningin sem ég tengi við Helgu, þegar ég nú kafa að rót- um minninganna, er tilhlökkun. Tilhlökkunin að hitta hana og Jonna í Borgarnesi. Ég var allt- af svo spennt að fara í heimsókn til þeirra, ég var alltaf svo spennt þegar þau voru á leiðinni til okkar til Reykjavíkur. Til- hlökkunin átti sínar skýringar, því Helga var svo jákvæð og traust og með góða nærveru. Alltaf mátti maður eiga von á skemmtilegum sögum frá því í gamla daga. Hún geislaði af áhuga, umhyggju og gleði. Bros- ið hennar og hlátur hennar er samofinn öllum minningunum mínum um hana. Helga var móðursystir sem sultaði og saftaði úr íslenskum krækiberjum og bláberjum. Hún saumaði föt og eldaði og bakaði og hvaðeina. Allt var svo heimilislegt og hlýlegt í kringum hana. Pabbi minn heitinn naut alls þess sem Helga bar á borð. Það voru kræsingar ríkulegar og hann sparaði ekki hrósið til mágkonu sinnar. Samverustundirnar voru eft- irminnilegar. Fyrst voru það El- liðaeyjaferðir, ferðir um Borgar- fjörð og ýmis tjaldferðalög. Þegar ég eignaðist Birtu Marlen dóttur mína fékk hún einnig að kynnast Helgu ömmusystur sinni, þó að við ættum heima er- lendis í mörg ár. Við mæðgurnar vorum svo heppnar að upplifa samverustundir með Helgu og Jonna úti í Elliðaey sumarið 2000. Þá vorum við bara fjögur saman í eyjunni í nokkra daga og nutum þess að ganga um eyj- una og spila Sjóræningja á kvöldin. Helga var þá sjötug og Jonni 74 ára og þau svo vel á sig komin um allar hæðir og hóla í Elliðaey. Slíkar minningar ylja um hjartarætur á kveðjustundu. Helga vann öll sín störf af al- úð, dugnaði og kærleika. Hún var móðir yndislegra frænda minna, Jónasar, Braga, Sigurð- ar Páls og Einars Helga og ég votta þeim og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Megi góður Guð gefa ykkur styrk og huggun. Blessuð sé minning Helgu móðursystur. Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir. Helga var ein af fallegu frænkunum mínum á Staðarfelli. Ég man hana fyrst sem unga móður, með lítinn dreng. Það var hann Jónas, nafni afa síns á Staðarfelli. Ég man hann á stétt- inni á Staðarfelli og mamma, Birta og Helga sitja á stólum undir suðurgaflinum. Amma Dagbjört stendur við hlið Birtu og pírir augun móti sólinni. En við Helga áttum sömu ömmur og afa í bæði móður og föðurætt. Ég horfi á Jónas og í minning- unni sé ég hann hallast og veit að hann er að detta. Horfi á hann detta til hliðar, hann er örugglega varla ársgamall. Man hann grætur og það er fjaðrafok í kringum hann svo ég fer að gráta líka og græt meira en hann, því mér finnst ég hafa átt að passa hann. Man að Helga mín tekur mig í fangið og segir að þetta sé allt í lagi, Jónas hafi ekkert meitt sig. En ég skamm- ast mín samt. Svo bættist Bragi við. Mér finnst þeir svo skemmtilegir, enda ekki mörg lítil börn í kringum mig. Þær systur eru það mest spennandi sem ég veit. Þær passa mig stundum, mamma skilur mig eft- ir á Staðarfelli meðan hún fer í búðina. Þær eru svo góðar við mig og leika við mig. Reyndar er Helga búin að eignast mann og býr í Borgarnesi með Jóni sínum og strákunum, sem fjölgar. Fyrst voru það þeir Jónas og Bragi og ég leik við þá en seinna hollið er Siggi Palli og Einar svo síðastur. Hann er reyndar jafn- gamall eldri syni mínum. Bernskuár Helgu átti hún flest í Elliðaey og þar bjuggu mamma og pabbi um tíma hjá þeim Dag- björtu og Jónasi. Alltaf þegar Helga kom í Hólminn fór mamma í heimsókn, hún elskaði þessar stelpur eins og sín börn. Mig minnir að hafa heyrt að Helga hafi oft passað Gulla bróður og verið heimagangur hjá mömmu. Hún Helga var fal- leg kona. Dökkt hárið og fallegt andlitið sækir hún í eyjaarfinn og er alla tíð glæsileg. Ef við skoppum svo fram um mörg ár er ég ung kona sem vill breyta heiminum, allavega smá broti í kringum mig. Þá kynnist ég þeim hjónum Helgu og Jóni upp á nýtt. Átti þau ávallt að, fékk að gista hjá þeim oft og ekki síst fékk ég gagnlegar umræður um málin í Borgarnesi og landsmál- in almennt. Fann þá vel hversu gáfuð og klók kona Helga var. Við áttum mörg góð samtöl í eld- húsinu hennar, þá var Einar minnsti guttinn og var á rólinu í kring. Man eftir Sigga Palla líka á þeim árum. Helga og Jón voru ákveðin í skoðunum og sögðu mér óspart til í málefnum héraðsins. Jón innsti koppur í búri hjá Kaup- félagi Borgfirðinga og fylgdist vel með. Þau kenndu mér margt, ekki síst að hlusta á fólk sem ég hitti. Annað hvort þeirra sagði við mig, man ekki hvort þeirra var: „Mundu að fólk sem þú hitt- ir og vilt að hlusti á þig, það vill segja þér sínar skoðanir og þú verður að hlusta meira en þú tal- ar.“ Helga missti Jón sinn fyrir nokkrum árum og það var henni þungbært. Ég hef ekki verið dugleg að hitta hana mörg síð- ustu ár og þykir það leitt. En væntumþykjan í hennar garð hefur ekkert minnkað. Ég sendi fólkinu hennar mínar innileg- ustu samúðarkveðjur og kveð mæta konu, eina af systrunum á Staðarfelli sem máluðu bernsku mína björtum litum. Dagbjört S. Höskuldsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Ástríði Helgu Jón- asdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR BERGUR ÁRNASON, fyrrverandi kaupmaður, hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Akureyri, lést miðvikudaginn 21. mars. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 9. apríl klukkan 13.30. Erna H. Gunnarsdóttir Gunnar M. Guðmundsson Jóhanna A. Gunnarsdóttir Vilbergur Kristinsson Guðmundur Ö. Gunnarsson Halldóra K. Gunnarsdóttir Árni G. Leósson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, afi, bróðir og mágur, ÞÓRARINN SIGURÐSSON, Ferjuvogi 17, Reykjavik, lést á Landspítalanum föstudaginn 30. mars. Bálför fer fram frá Hjallakirkju mánudaginn 9. apríl klukkan 13. Ingólfur Freyr Þórarinsson Hannes Berg Þórarinsson Þóra Berglind Hannesdóttir Jón Ólafur Sigurðsson Ragnheiður Þórðardóttir Guðný Sjöfn Sigurðardóttir og fjölskyldur Ástkær sambýlismaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SIGURBJÖRN H. ÓLAFSSON, fv. stýrimaður, Ásbraut 13, Kópavogi, lést í faðmi ástvina á Landakoti 4. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Sigurlaug Sigurðardóttir Ómar Sigurbjörnsson Kenný Aðalheiður Heiðar Sigurbjörnsson Rósa Björk Högnadóttir Oddur F. Sigurbjörnsson Unnur Runólfsdóttir Sigurður Þorsteinsson Sigurborg Sigurðardóttir Guðlaug Unnur Þorsteinsd. Ragnheiður Elfa Þorsteinsd. Pétur Már Ólafsson Ólafur Þór Þorsteinsson barnabörn, langafabörn og langalangafabarn Elsku hjartans pabbi minn, sonur, tengdapabbi, afi og fyrrverandi sambýlismaður, ÖRN GUÐMUNDSSON stýrimaður, er látinn. Útför hans fer fram í kyrrþey. Guðný Arnardóttir Ragnar Logi Magnason Helga Hermóðsdóttir Jóhanna Hrefna Hólmsteinsdóttir og afabörn Ástkær faðir okkar, afi og langafi, KRISTJÁN JÓNSSON matreiðslumeistari, sem lést þriðjudaginn 27. mars, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 9. apríl klukkan 13. Hildur Kristjánsdóttir Sigurjón Kristjánsson Kári Árnason Flóki Árnason Logi Sigurjónsson Ómar Sigurjónsson Andri Sigurjónsson tengdabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR ÞORBJÖRNSSON útgerðarmaður, lést fimmtudaginn 5. apríl. Auðbjörg Ingimundardóttir Anna Guðmundsdóttir Jörundur Gauksson Ingi Jóhann Guðmundsson Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, INGIBERGUR EIRÍKUR JÓNSSON húsasmiður, Reykjanesbæ, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu á Nesvöllum fimmtudaginn 5. apríl. Útför hans verður auglýst síðar. Elín Guðrún Ingólfsdóttir Halldóra J. Ingibergsdóttir Eiríkur Jónsson María Ingibergsdóttir Ragnar J. Gunnarsson Helga Ingibergsdóttir Árni Stefán Jónsson Birgir Ingibergsson Guðrún Edda Jóhannsdóttir Ingólfur Ingibergsson Margrét Eðvaldsdóttir Margrét Ingibergsdóttir Rúnar Sverrisson Rúnar Ingibergsson Sólveig Skjaldardóttir Hafsteinn Ingibergsson Guðlaug Einarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN TORFASON, fyrrverandi bæjarfógeti og dómstjóri, Blönduhlíð 17, Reykjavík, lést á Landakoti föstudaginn langa, 30. mars. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 11. apríl klukkan 15. Sigrún Sigvaldadóttir Ólöf Hrefna Kristjánsdóttir Damien Degeorges Guðríður Margrét Kristjánsdóttir Gylfi Örn Þormar Torfi Kristjánsson Rúna Malmquist Kristján Ólafur, Guðmundur Hrafn, Hans Kristján, Eðvald Jón, Ólöf Katrín, Tómas Hrafn og François Torfi. Ástkær faðir okkar, tengdarfaðir og afi, HRAFN MAGNÚSSON, vélstjóri lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnudaginn 1 apríl. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. apríl klukkan 15. Magnús Már Hrafnsson Ólöf Anna Hrafnsdóttir Hilmar Alexander Steinarsson Kolbeinn Máni Hrafnsson Steingerður Sunna Hrafnsdóttir Barnabörnin Emelía Svala og Erla Dís Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINGRÍMUR JÓNSSON, Helgafelli, Stokkseyri, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi sunnudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju þriðjudaginn 10. apríl klukkan 14. Oddný Steingrímsdóttir Hinrik Árnason Guðleif Steingrímsdóttir Jón Haraldsson Anna Steingrímsdóttir Nikulás Ívarsson Marteinn Arilíusson Sigríður Birgisdóttir Óskar Arilíusson Þórhildur Ingvadóttir Linda Arilíusdóttir Skarphéðinn Ómarsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR KRISTINSSON stýrimaður frá Dalvík, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, þriðjudaginn 3. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 13. apríl klukkan 13.30. Gígja Gunnarsdóttir Ólafur Halldórsson Úlfar Gunnarsson Vilborg Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.