Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ljósmyndir
Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
Vel viðrar til útivistar um land allt um helgina.
Yfir daginn verður bjart og stillt, en gera má ráð
fyrir miklu frosti að næturlagi.
Gott veður gærdagsins nýttu margir til ýmissa
vorverka, þar á meðal starfsmenn Reykjavík-
urborgar. Þeir sem urðu á vegi ljósmyndara
Morgunblaðsins voru að klippa og snyrta trjá-
gróður í miðborginni. Einn þeirra hafði fullt
fang trjágreina en átti síður en svo fullt í fangi
með verkið. Ekki er að sjá að landinn hafi
gleymt réttu handtökunum við vorverkin þótt
nýbúið sé að dusta rykið af garðverkfærunum.
Með vorinu koma vorverkin
Morgunblaðið/Eggert
Vel viðrar til útivistar eða vorverka um helgina
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Mörg tækifæri felast í því að koma
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
Ríkislögreglustjóra og Tollstjóra
undir eitt þak, að mati Sigríðar Á.
Andersen dómsmálaráðherra, en
hún og Bjarni Benediktsson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, kynntu
á ríkisstjórnarfundi í gær hugmynd-
ir um byggingu sameiginlegs hús-
næðis embættanna þriggja. Hug-
myndin hefur verið til skoðunar
innan dómsmálaráðuneytisins í
u.þ.b. ár í samráði við embættin þrjú
en verkefnið er nú komið á það stig
að skipuð verður verkefnastjórn
dómsmálaráðuneytis og fjármála- og
efnahagsráðuneytis til að kanna nán-
ar kosti hug-
myndarinnar og
galla.
„Þetta eru allt
embætti sem eru
í miklu samstarfi
og sjá menn ýmsa
jákvæða mögu-
leika felast í því
að koma þeim öll-
um undir eitt
þak.“
Nálægð við Sundabraut
Sigríður segir ráðuneytið hafa
augastað á leigulóð ríkisins við
Klepp í Sundagörðum, en hún segir
lóðina bjóða upp á mikla möguleika,
ekki síst með tilliti til þess að þar er
Sundabraut ráðgerð.
Segir hún að um meiriháttar fram-
kvæmd sé að ræða, sem megi fram-
kvæma í áföngum, en brýnast sé að
finna Ríkislögreglustjóra nýtt hús-
næði þar sem embættið er í leigu-
húsnæði við Skúlagötu og rennur
leigusamningurinn út árið 2020.
„Þetta er búið að vera til skoðunar
mikið síðastliðið ár, og því ætti að
fást niðurstaða í þetta á næstu mán-
uðum,“ segir Sigríður, en meðal ann-
ars þarf að meta hver áhrifin verða
af því að losa lögreglustöðina við
Hlemm og Tollhúsið við Tryggva-
götu. Eins þarf að meta samlegðar-
áhrifin.
„Þetta er mjög sérhæft húsnæði
enda um umfangsmikla starfsemi að
ræða,“ segir Sigríður en gera þarf
m.a. ráð fyrir æfingaaðstöðu fyrir
Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu
og sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Þá segir hún tækifæri felast í því
að færa starfsemi embættanna í ný-
byggingu þar sem ríkari kröfur séu
gerðar í dag til gagnatenginga og ör-
yggis en þegar núverandi húsnæði
embættanna var byggt.
Eitt húsnæði toll- og löggæslu
Ráðherrar kynntu ríkisstjórn tillögu um sameiginlegt húsnæði lögregluembætta og Tollstjóra
Ráðuneytið hefur augastað á lóð í Sundagörðum Framhald verkefnisins ræðst innan fárra mánaða
Sigríður Á.
Andersen
Morgunblaðið/Golli
Hlemmur Hugmyndir eru um að byggðar verði sameiginlegar höfuðstöðvar
fyrir embættin þrjú. Myndu þær m.a. koma í stað lögreglustöðvar á Hlemmi.
Fimmtán þingmenn hafa lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um óréttmæti málshöfðunar Alþingis gegn
ráðherrum og afsökunarbeiðni. Í tillögunni segir: „Alþingi
ályktar að rangt hafi verið að leggja fram tillögu til þings-
ályktunar um málshöfðun gegn ráðherrum hinn 28. sept-
ember 2010, sbr. þingsályktun nr. 30/138. Viðkomandi ráð-
herrar verðskuldi afsökunarbeiðni vegna þessa.“
Í upphaflegri þingsályktunartillögu sagði að höfða bæri
mál gegn Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
Björgvin G. Sigurðssyni og Árna Mathiesen. Aðeins var
samþykkt að höfða mál gegn Geir, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, vegna embættisfærslu árið 2008.
Flutningsmenn tillögunnar eru úr Miðflokki, Sjálfstæð-
isflokki og Flokki fólksins. Fyrsti flutningsmaður er Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, en aðrir flutningsmenn eru
Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þór-
arinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigurður Páll Jónsson,
Þorsteinn Sæmundsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
Brynjar Níelsson, Óli Björn Kárason, Haraldur Bene-
diktsson, Páll Magnússon, Vilhjálmur Árnason, Karl Gauti
Hjaltason og Ólafur Ísleifsson.
Ber að leiða til lykta í kosningum
Í greinargerð með tillögunni segir að niðurstaða lands-
dóms sýni að ekki hafi verið tilefni til ákæru og ráðherr-
arnir fyrrverandi verðskuldi afsökunarbeiðni frá hlutað-
eigandi aðilum.
Þar segir einnig: „Lýðræðislegu stjórnarfari landsins
stendur ógn af því ef reynt er að fá starfandi eða fyrrver-
andi stjórnmálamenn dæmda til fangelsisvistar vegna póli-
tískra aðgerða eða aðgerðaleysis án þess að um hafi verið
að ræða ásetning um brot. Ýmsar stjórnmálalegar stefnur
og ákvarðanir, eða aðgerðaleysi, geta verið skaðlegar
hagsmunum ríkisins án þess að ætlunin hafi verið að valda
tjóni. Slíkt álitamál ber að leiða til lykta í kosningum en
ekki fyrir dómstólum.“ aij@mbl.is
Afsökunarbeiðni vegna
óréttmætis málshöfðunar
Alþingi álykti að rangt hafi verið að leggja til málshöfðun
Þyrla Landhelg-
isgæslunnar var
kölluð út um
hálfsexleytið í
gærkvöldi vegna
bílslyss sem varð
í Bitrufirði á
Ströndum.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni var einn flutt-
ur á Landspítala með þyrlunni til
aðhlynningar og lenti þyrlan hjá
spítalanum um hálfáttaleytið. Nán-
ari upplýsingar um slysið lágu ekki
fyrir þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Einn á sjúkrahús
eftir bílslys í Bitru-
firði á Ströndum
Rafræn kosning um nýjan formann
Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ)
stendur nú yfir á meðal 3.500 fé-
lagsmanna á heimasíðu félagsins,
slfi.is. Trúnaðarmenn aðstoða við
kosninguna og hægt er að koma á
skrifstofu SLFÍ og fá aðstoð.
Frambjóðendur eru þrír, þær
Guðrún Lárusdóttir, Sandra Bryn-
dísardóttir Franks og Sigurlaug
Björk J. Fjeldsted. Kosningin mun
standa til kl. 13 þann 10. apríl nk.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélags Íslands frá
árinu 1988, mun láta af störfum á
aðalfundi SLFÍ í maí nk.
Sjúkraliðar kjósa
sér nýjan formann