Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 Nýkynnt fjármálaáætlun berþess merki að hér á landi ríkir góðæri, en ekki eru allir sammála um hvernig fjárhagslegt svigrúm ríkisins skuli nýtt. Halldór Benja- mín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, fagnar til að mynda boðaðri lækkun trygginga- gjaldsins, en bendir á að hún gangi ekki nógu langt. Hún sé bara brot af því sem eðlilegt geti talist.    Og lækkunin ervissulega lítið brot, aðeins 0,25% af 6,85%, og kemur að auki seint.    Önnur lækkun sem er afar hófleger lækkun neðra þreps tekju- skattsins um 1%. Ekkert er minnst á efra þrepið, tímasetningu eða aðra útfærslu.    Ásdís Kristjánsdóttir, for-stöðumaður efnahagssviðs SA, setur fram svipaða gagnrýni. Hún nefnir að fyrirhugaðar skattalækk- anir séu jákvæðar, en að þær séu óverulegar miðað við skattahækk- anirnar eftir fall bankanna.    Ásdís bendir á að „flestar skatta-hækkanir eftirhrunsáranna standa enn nánast óhreyfðar en við teljum ekki góða stefnu að festa Ís- land í sessi sem háskattaríki.“    Þessar athugasemdir er fullástæða til að hlusta á. Skattar hækkuðu gríðarlega á árunum 2009 til 2013 og ofan af því hefur enn ekki verið undið.    Ef menn finna ekki svigrúm tilþess nú, þá er það aðeins vegna þess að viljann vantar. Halldór Benjamín Þorbergsson Vilji er allt sem þarf STAKSTEINAR Ásdís Kristjánsdóttir Veður víða um heim 6.4., kl. 18.00 Reykjavík 5 léttskýjað Bolungarvík 2 snjókoma Akureyri 1 léttskýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 3 alskýjað Ósló 9 heiðskírt Kaupmannahöfn 8 heiðskírt Stokkhólmur 4 skýjað Helsinki 0 heiðskírt Lúxemborg 14 heiðskírt Brussel 16 heiðskírt Dublin 12 skýjað Glasgow 9 skúrir London 15 heiðskírt París 18 heiðskírt Amsterdam 14 heiðskírt Hamborg 12 heiðskírt Berlín 12 heiðskírt Vín 12 heiðskírt Moskva 10 heiðskírt Algarve 14 skýjað Madríd 14 skúrir Barcelona 16 heiðskírt Mallorca 17 léttskýjað Róm 19 heiðskírt Aþena 18 skýjað Winnipeg -12 skýjað Montreal 1 skýjað New York 6 skýjað Chicago 2 alskýjað Orlando 26 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:24 20:37 ÍSAFJÖRÐUR 6:23 20:48 SIGLUFJÖRÐUR 6:05 20:31 DJÚPIVOGUR 5:52 20:08 „Helsta ástæðan er að við teljum að þessi uppröðun gagnist flestum við- skiptavinum betur, þar sem vínum með sambærileg einkenni er raðað saman. Þessi nálgun á uppröðun léttvína hefur verið lengi til dæmis í Svíþjóð og Finnlandi,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor- stjóri ÁTVR. Vínbúðin í Skútuvogi er lokuð nú í aprílmánuði vegna breytinga. Búðin verður stækkuð til muna og verður bjórkælirinn til að mynda stækkaður um helming. Athygli vekur að ný uppröðun verður tekin upp á léttvínum. Í stað þess að rauðvínum og hvítvínum sé raðað eftir löndum, eins og unnendur slíkra veiga eiga að venjast, spænsk vín saman, ítölsk vín í röð og svo framvegis, verður þeim raðað eftir bragðeiginleikum. Þetta á að gera viðskiptavinum auðveldara að finna rétta vínið hverju sinni og auðvelda þar með leitina. Vínunum er skipað í flokka eftir bragði og sætleika og með hverjum flokki eru lýsandi matartákn sem gefa til kynna með hvaða mat vínið hentar. Sigrún Ósk segir í samtali við Morgunblaðið að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að breyta fleiri Vínbúðum með þessum hætti. „Við gerðum tilraun með þessa upp- röðun í Garðabæ og hefur hún mælst vel fyrir en vissulega er þetta til að byrja með nokkur breyt- ing fyrir viðskiptavini.“ hdm@mbl.is Raða rauð- víninu eftir nýju kerfi Morgunblaðið/Heiddi Breyttir tímar Nú verður spænsk- um vínum ekki lengur raðað saman. Ávarp Sigsteinn Páll Grétarsson, formaður stjórnar Íslandsstofu Ávarp ráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Litið yfir árið Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu Landaheiti sem vörumerki Bergþóra Halldórsdóttir, lögfræðingur SA Viðhorf og vitund á mörkuðum Daði Guðjónsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu What is the Value of Your National Image? Dr. Robert Govers, sérfræðingur og ráðgjafi um orðspor og ímynd Fundarstjóri Inga Birna Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Kosmos & Kaos Veitingar að loknum fundi Fundurinn er öllum opinn Skráning á arsfundur.islandsstofa.is og í síma 511 4000 Nánari upplýsingar á islandsstofa.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.