Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 43
DÆGRADVÖL 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 Láttu þér ekki vera kalt Sími 555 3100 www.donna.is hitarar og ofanar Olíufylltir ofnar 7 og 9 þilja 1500W og 2000W Keramik hitarar með hringdreifingu á hita Hitablásarar í úrvali Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur fulla ástæðu til að vera ánægð/ur því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. Hlýddu innsæinu, þannig verður þú hamingjusöm/samur. Sýndu fyrirhyggju í fjár- málum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert óþarflega hnýsin/n um hagi ann- arra og ættir að hætta því hið fyrsta. Veltu vandamálunum upp í byrjun dags, og í dags- lok hefurðu leyst þau. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að hafa það á hreinu að enginn misskilji skilaboð þín því þá gætu af- leiðingarnar orðið skelfilegar. Láttu ekki draga úr þér kjarkinn þótt það blási á toppnum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Allir sem hafa látið draumana rætast, hafa komist yfir hindranir. Segðu því aðeins skoðun þína að þér finnist efnið þess virði að sinna því. Allt er með kyrrum kjörum heima fyrir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það virðist eiga vel við þig að hafa mörg járn í eldinum. Reyndu að halda þig fjarri þeim sem deila, þú getur ekki bjargað öllu og öllum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú reynir að gera öðrum til geðs geturðu misst sjónar á því hver þú ert og hvert þú stefnir. Þú ert ekki á flæðiskeri stödd/staddur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er ástæðulaust að fyllast sekt- arkennd út af því sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Fjölskyldan kemur þér á óvart. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Notaðu daginn til þess að gera vini greiða. Hinir hæfileikaríku, áköfu og skrýtnu í vinahópnum þínum hafa góð áhrif á þig núna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Sameiginleg verkefni treysta böndin við aðra. Dragðu lærdóm af reynslunni og festu þér hann í minni. Beindu allri orku þinni að blessuðum börnunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þið hjónin eruð með of mörg járn í eldinum og þurfið að koma lagi á hlutina og raða þeim eftir mikilvægi þeirra. Fortíðin er liðin, ekki velta þér upp úr henni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur fyllstu ástæðu til þess að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig en mundu að dramb er falli næst. Treystu dómgreind þinni og óttastu ekki að grípa tækifærin þegar þau bjóðast. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þegar einhver segir þér að þú getir reitt þig á viðkomandi, þá skaltu deila í með tveimur. Leyfðu bjartsýninni að hafa áhrif á hugsanir þínar. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Efst á tré það tróna sá. Telst það fjalli byrjun á. Með því bagga binda má. Brúnka sveiflar til og frá. Harpa á Hjarðarfelli leysir gát- una þannig: Efst á öllum trjánum tagl má sjá. Tagl við margra hárra fjalla rætur. Með reiptagli binda bagga má. Brúnka taglið gjarnan sveiflast lætur. Þessi er lausn Helga Seljan: Taglið efst á trénu sé, tagl er líka fjallsins rót. Reiptagl áður fundið fé, færir taglið hrossum bót. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Á furutoppi tagl. Við tagl á fjalli hagl. Baggatagl. Brúnkustagl: brúnleitt tagl, þæg, átvagl. Þannig leysir Helgi R. Einarsson gátuna: Ýmislegt ég vita vil og vera í góðu standi. Ef að er gáð hér tínast til töglin mismunandi. Sigmar Hannes Ingason á þessa lausn: Tagl er rani fjalli frá, flugur hross með tagli slá hrosshárstögl með högldum á hey í böggum festa ná. og svona í leiðinni: Taglhnýtinga ætla ég hér allt of marga ærunni þeir fúsir farga fái þeir eigin skinni að bjarga. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Efst á trénu taglið lít. Tagl er fjalli byrjun á. Með tagli bagga binda hlýt. Brúnka tagli sveifla má. Þá er limra: Svo töfrandi töff var Benni með taglstúf og band um enni, að jálkar með stert ei gátúað sér gert að glápáá það stertimenni Og síðan er ný gáta eftir Guð- mund: Geisli inn um gluggann smó, glaðvakandi er ég nú, gátu samdi þessa, þó þyki varla boðleg sú: Fuglinn þessi frægur er. Fordyri svo nefna má. Vera mun í mér og þér. Margur henni stendur á. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sá hefur ráð sem tagli heldur Í klípu HANN KOM TIL ÞESS AÐ VEITA INNSÝN, ÍHUGUL RÁÐ OG HÁRBEITTA GREININGU – UM EINUM OG HÁLFUM TÍMA OF SNEMMA. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVAÐ NÚ? ÞAÐ ER EKKERT EFTIR TIL AÐ FINNA UPP.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að komast að því að þið eigið svo margt sameiginlegt. ÉG Á MÉR VONIR OG ÞRÁR OG ÉG HEF BOLMAGN TIL ÞESS AÐ EYÐI- LEGGJA ÞÆR ALLAR ÞÚ ERT MEÐ ÞENNAN SVIP KOMA SVO. HVAÐ MEIRA ERTU MEÐ? HVAÐ ER KÓLFUR LÖGFRÆÐINGUR AÐ GERA HÉRNA? HANN ER AÐ BEITA SÁLFRÆÐIHERNAÐI Á ÓVININN! EKKI GERA SÖMU MISTÖK OG AÐRIR KÓNGAR HAFA GERT! LEYFÐU MÉR AÐ RITA ERFÐASKRÁNA ÞÍNA FYRIR ORRUSTUNA! LIST LEIKHÚS TÓNLIST FERÐALÖG Víkverji verður leiður þegar hannles fréttir af kjarabaráttu ljós- mæðra. Það er óskiljanlegt að þær lækki í launum frá því að vera hjúkr- unarfræðingar eftir að hafa menntað sig meira. Samt er viðkvæðið að ljós- mæður megi ekki fá meiri hækkun en aðrar stéttir en öllum sem Víkverji þekkir finnst þetta fásinna. Þetta verður hreinlega að leiðrétta. x x x Margar ljósmæður hafa sagt uppstörfum að undanförnu og er það mikið áhyggjuefni. Fréttir af þessu og miklu álagi á ljósmæður hljóta að valda tilvonandi mæðrum og feðrum miklum áhyggjum. x x x Það fallega í þessu öllu saman eruallar dásamlegu fæðingarsög- urnar sem hafa komið fram í facebo- okhópnum „Mæður & feður standa með Ljósmæðrum!“. Meðlimir í hópnum eru ríflega 17.000 þegar þetta er skrifað. Ljósmæður standa nefnilega með mæðrum og feðrum á ögurstundu í lífi þeirra og getur góð ljósmóðir sannarlega gert krafta- verk. Öryggistilfinning er mikilvæg í fæðingarferlinu öllu og þess vegna þarf að leysa þessa kjaradeilu sem fyrst. x x x Ein krafa Ljósmæðrafélagins er umað heilbrigðisyfirvöld og yfirvöld menntamála grípi til markvissra að- gerða til að fjölga ljósmæðrum svo takist að fylla skörð þeirra sem munu láta af störfum á næstu árum. Um þriðjungur ljósmæðra fer á eftirlaun á næstu tíu árum. Þetta er vissulega áhyggjuefni en Svandís Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra sagði í við- tali við mbl.is í vikunni að þetta yrði skoðað í stærra samhengi en ráðu- neytið vinnur nú að mannaflaspá fyr- ir heilbrigðiskerfið í heild. Það er því mjög mikilvægt að nýútskrifaðar ljósmæður fari að vinna við fag sitt. x x x Ein þekktasta ljósmóðir í heimi er Ina May Gaskin og er vel hægt að mæla með lestri bóka hennar, ekki síst Spiritual Midwifery og Ina May’s Guide to Childbirth. vikverji@mbl.is Víkverji Ég hef elskað yður eins og faðirinn hef- ur elskað mig. Verið stöðug í elsku minni (Jóh. 15.9)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.