Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 Vor 2018 Opið virka daga frá 10-18, laugardag 11-15. Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi ÚR BÆJARLÍFINU Jónas Erlendsson Fagridalur Eftir óvenju kaldan vetur á mælikvarða okkar Mýrdælinga, og þó að vorhlýnunin láti standa á sér, eru fyrstu vorboðarnir farnir að gera vart við sig. Tjaldurinn er mættur og á einhverjum bæjum í sveitinni eru farin að koma lömb.    Ferðamenn eru ekki lengur merki um að sumarið sé að koma, en sáralítill munur er orðinn á sumri og vetri. Í Mýrdalnum hefur verið stöðugur straumur ferða- manna í allan vetur og umferð.    Og enn virðist ekkert lát á auknu gistiplássi fyrir ferða- menn. Eitt nýtt hótel er að rísa í Vík, Hótel Kría, og á að vera tilbú- ið í byrjun júní.    En öllum þessum ferða- mönnum fylgja ýmsir vaxtar- verkir. Allir þessir gististaðir, hótel og matsölustaðir kalla á gífurlegan fjölda starfsfólks til þjónustustarfa. Því hefur húsnæðisskortur verið viðvarandi á svæðinu. Ekki bætir það ástandið að fjöldi íbúðarhúsa er leigður út til ferðamanna. All- margar íbúðir fyllast um leið og möguleiki er á að flytja inn.    Umferð í gegnum Mýrdalinn hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum. Þannig hefur umferðin í gegnum Víkurþorp farið upp í 4.000 bíla á sólarhring, en þjóðvegurinn klýfur þorpið og er því mikil slysa- hætta þegar skólabörn og íbúar þurfa að komast yfir veginn. Í vet- ur var stofnaður þrýstihópurinn Vinir vegfarandans sem hyggst vinna að samgöngumálum í sam- vinnu við sveitarstjórn. Árið 2012 var samþykkt í sveitarstjórn ný skipulagstillaga um veglínu og göng í gegnum Reynisfjall og er hópinn farið að lengja eftir ein- hverjum samgöngubótum.    Ný bruggverksmiðja er við það að taka til starfa í Vík, Smiðjan brugghús. Þar verður seldur hand- verksbjór og hamborgarar ásamt rekstri verksmiðjunnar.    Sauðfjárbændur í Vestur- Skaftafellssýslu láta ekki slæma afkomu í sauðfjárrækt hafa áhrif á sig og brugðu sér í skemmtiferð í vikunni. Fóru þeir og heimsóttu þrjú góð sauðfjárbú; Butru, Lækj- artún og Egilsstaðakot. Mjög gott er fyrir bændur að sjá og heyra hvernig aðrir búa og annast sitt sauðfé. Alltaf koma einhverjar nýj- ar hugmyndir um hvað hægt er að laga heima fyrir. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Framkvæmdir Verið er að púsla nýjasta hótelinu í Vík í Mýrdal saman þessa dagana. Enn rísa ný hótel í Vík Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Talsverð aukning hefur verið í inn- flutningi einstaklinga á ólöglegum fæðubótarefnum sem innihalda kannabídól, CBD, eitt af virku efn- unum í kannabis. Efnið er yfirleitt í olíuformi eða í hylkjum og er pant- að á netinu aðallega frá Bandaríkjunum og Bretlandi, en einnig frá öðrum Evrópulöndum. Hér á landi er CBD skilgreint sem innihaldsefni í lyfi, þar sem það er innihaldsefni í lyfi með markaðs- leyfi, það fellur undir lyfjalög og því er óheimilt að flytja efnið inn sem fæðubótarefni til einkanota. Zulema Sullca Porta, fagsviðs- stjóri hjá Matvælastofnun, segir að ekki séu handbærar tölur um fjölda þeirra tilvika, þar sem þessi efni hafa verið gerð upptæk af tollinum, en Matvælastofnun er jafnan til- kynnt um þegar það gerist. En ljóst sé að á síðasta ári og það sem af er þessu ári hafi verið mikil aukning í þessum innflutningi. „Það kemur töluvert inn á borð til okkar. Það er verið að stöðva þessar sendingar í tollinum og senda erindi vegna þeirra til okkar,“ segir Zulema. Hún segir að varasamt geti verið að taka inn CBD án leiðbeininga frá lækni. Erfitt geti verið að ákveða rétta skammtastærð og þá sé óvíst með styrkleika og hreinleika efnis- ins, þar sem það sé ekki framleitt undir eftirliti lyfjaframleiðslu. „Og það er þetta sem er munurinn á milli fæðubótarefna og lyfja,“ segir Zulema. „Ýmsar aukaverkanir geta einnig fylgt neyslu á CBD.“ Vita að þetta er óleyfilegt Spurð hvaða virkni þetta efni hafi segir hún að það sé ekki unnið úr þeim hluta kannabisplöntunnar sem sé vímugefandi, heldur sé CBD ró- andi og slakandi. Efnið er notað í lyf sem selt er hér á landi, sem er lyfið Sativex sem er notað hjá sjúkling- um með MS-sjúkdóminn til að draga úr vöðvaspennu. Zulema segir að nokkuð sé um að fólk sem reynir að flytja þessi efni inn og verði uppvíst að því hafi sam- band við stofnunina og leiti skýr- inga á því hvers vegna það sé óheimilt. „Við útskýrum þá þau matvælalög sem eru í gildi og hver munurinn er á milli fæðubótarefna og lyfja og vísum fólki yfirleitt á Lyfjastofnun ef það óskar þess að láta flokka vöruna. Annars held ég að flestir sem reyna þennan inn- flutning viti að þetta er ekki leyfi- legt,“ segir hún. Panta kannabis- bætiefni á netinu  Mikil aukning verið í ár og í fyrra STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Silungsveiðitímabilið hófst á páskadag og fór, að mati veiði- manna á sjóbirtingsslóð, af- skaplega vel af stað. Og er víða rætt um að sjóbirtingsstofninn virðist vera í áframhaldandi upp- sveiflu, nokkuð sem ekki er hægt að véfengja ef litið er til veiðinnar fyrstu vikuna, sem hefur þó að mestu verið býsna köld. Í Tungu- læk í Landbroti var veiðin vægast sagt frábær fyrstu dagana, eins og svo oft áður, og mikið af fiski greinilega á svæðinu. Á fimm vökt- um var landað 234 sjóbirtingum, á aðeins þrjár stangir, og þar á með- al voru sannkallaðir stórfiskar, 93 og 94 cm langir. Þá skall kuldinn á en veitt hefur verið einn dag síðan og fengu þeir veiðimenn nálægt 60 fiska svo nær 300 hafa veiðst þegar í Tungulæk en þar er öllum veidd- um fiski sleppt. Aðeins lengra uppi í landi, í Geir- landsá á Síðu, skemmtu veiðimenn úr Stangaveiðifélagi Keflavíkur sér einnig vel í viðureign við töku- glaðan birtinginn. Á fyrstu tveimur dögunum var áttatíu fiskum land- að, hrygningarfiski og geldfiski í bland, og var sá lengsti mældur 91 cm. Þá tók að snjóa og frysta og grunaði viðmælanda að veiði hefði verið erfiðari þegar leið á vikuna. Og í Tungufljóti í Skaft- ártungum færði fyrsta hollið 92 fiska til bókar – birtinga, bleikjur og staðbundna urriða – en þar er veitt og sleppt. Fyrstu dagarnir nú gáfu álíka mikla veiði og allur apríl í fyrra. Nær 400 í bókina Þá hefur verið hörkufín veiði í Vatnamótunum í Skaftá aust- anverðri. „Það er bara gleði hér,“ sagði Ragnar Johansen í Hörgs- landi þegar rætt var við hann í gærkvöldi. „Góð byrjun fyrsta dag- inn var bara eins og upphitun. Holl- ið sem byrjaði í dag fékk 71 eftir hádegi. Þetta var algjört ævintýri í dag. Ætli það séu ekki að verða komnir 400 í bókina,“ sagði hann. Dagarnir hafa vissulega verið kaldir eystra en bjartir og veiði- menn ekki farið af stað út að veiða álana í Vatnamótunum fyrr en liðið hefur að hádegi, en ísreki niður Skaftá hefur þá lokið eftir nóttina. „Við vorum sjálf með annað hollið og veiddum vel, ég fékk sjálfur 29 fiska frá klukkan hálftólf til hálf- þrjú. Það er alls staðar fullt af fiski. Menn hafa aðallega verið í moki við Fossálana og þar fyrir ofan, það hefur varla verið farið niður á bakka,“ sagði Ragnar og vísaði til veiðistaðar sem margir þekkja. Tveir 90 cm hafa veiðst í Vatna- mótunum og nokkrir yfir 80 cm. Norður í Kelduhverfi hófst veiðin í Litluá líka með látum en hún er bæði hlý og ætisrík og fiskurinn þar kemur því afar vel undan vetri. Fyrsta daginn veiddust 110 sil- ungar – staðbundinn urriði, birt- ingur og bleikja, 60 næstu daga, en veiðin hefur iðulega verið erfið vegna hríðar og frosið hefur í lykkjum. Þá fréttist af vænum fisk- um í Húseyjarkvísl og fínni bleikju- veiði á svæði eitt í Eyjafjarðará. „Þetta var algjört ævintýri í dag“  Sjóbirtingsveiði fer afar vel af stað Veiðigleði Torkjel Landas með 82,5 cm rígvænan urriða sem hann veiddi í Litluá í Kelduhverfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.