Morgunblaðið - 07.04.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.04.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að þúsundir starfa muni skapast á Keflavíkurflugvelli á árunum 2018 til 2021. Þykir þróunin undanfarið benda til að rúmlega fimm þúsund störf geti skapast. Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmda- stjóri tækni- og eignasviðs Kefla- víkurflugvallar, segir að gera megi ráð fyrir nokkur hundruð starfsmönnum á vegum verktaka og hönnuða á þessum árum. Við þetta má bæta áætlun fyrirtækisins Aton, sem unnin var fyrir Isavia, um samtals 3.900 ný störf 2018-2021. Eru þá ótalin ýmis óbein störf, t.d. hjá bílstjórum. Skiptist í tvo hluta Guðmundur segir fyrirhugaðar framkvæmdir 2018-2021 tvískiptar. „Annars vegar verður farið í stækkun á núverandi landgangi, landamæraeftirliti og verslunar- svæði til að bæta afkastagetu og upplifun farþega. Áætlað er að þessi hluti muni kosta 24 milljarða. Hins vegar verður byggð ný farangurs- og skimunaraðstaða til að standast breytingar í flugverndarkröfum Evrópusambandsins. Áætlað er að sá hluti kosti um 9 milljarða.“ Guðmundur segir aðspurður gert ráð fyrir að veitingarými muni u.þ.b. tvöfaldast með fyrirliggjandi fram- kvæmdum. Verslunarrýmin muni aukast minna. „Hönnun á svæðinu er ekki hafin. Því gætu orðið breytingar þegar endanleg hönnun liggur fyrir og eftirspurn hefur verið metin.“ Fyrsta starfsár Isavia, 2010, voru að meðaltali 707 störf hjá félaginu. Á þessu ári er áætlað að þau verði 1.526. Til samanburðar voru alls 981 stöðugildi hjá Icelandair árið 2010 en 2.143 í fyrra. Upplýsingar fyrir þetta ár voru ekki tiltækar hjá Icelandair. Þá kom fram í Morgunblaðinu á miðvikudaginn var að WOW air áætlar að vera með mest 2.000 starfsmenn 2019. Til samanburðar störfuðu 130 manns þar 2012. Fulltrúar Icelandair hafa boðað frekari fjölgun farþega og starfs- manna. Að því gefnu, og með hlið- sjón af stöðugum vexti Isavia, er ekki ólíklegt að 6.000-6.500 manns muni starfa hjá Icelandair, WOW air og Isavia á næsta ári. Það er marg- földun á nokkrum árum. Sé horft til Keflavíkurflugvallar fjölgar starfsmönnum þar ár frá ári. Huginn Freyr Þorsteinsson, sér- fræðingur hjá Aton, vann spá fyrir Isavia um fjölgun starfa á vellinum. Spáin var fyrir tímabilið 2013-2040 og birtist í skýrslunni Stóriðja í stöð- ugum vexti. Huginn Freyr segir að- spurður að spáin nái til allra nýrra starfa, t.d. við þjónustu og innritun. Verslunarfólkið meðtalið „Þarna eru líka taldir með flug- menn, flugþjónar, starfsmenn Isavia, starfsmenn hjá tollinum og í veitingaþjónustu og verslun,“ segir Huginn Freyr um þennan hóp. Samkvæmt spánni verða til alls rúmlega 17.400 ný störf á árunum 2013-2040. Þar af myndu verða til um 5.500 störf á árunum 2018-2025, eða að meðaltali um 690 störf á ári. Til samanburðar myndu verða til tæplega 500 störf á ári 2026-2040. Huginn Freyr segir aðspurður að reiknað sé með kúfi í starfasköpun árin 2013-2025. Síðan muni vöxtur- inn verða í meira samræmi við al- þjóðlega þróun í ferðaþjónustu. Sem áður segir spáði Aton 3.900 nýjum störfum árin 2018-2021. Hug- inn Freyr segir þetta miðspá. Með hliðsjón af þróuninni undanfarið sé háspáin að verða raunhæf. Hún er 20% hærri. Samkvæmt henni verða til um 4.700 störf 2018-2021. Störf iðnaðarmanna bætast þar við. Fram kom í máli Ingimundar Sigurpálssonar, formanns stjórnar Isavia, í febrúar að stjórnin hefði samþykkt að leggja þróunaráætlun fyrir Keflavíkurflugvöll, svonefnt Masterplan, til grundvallar allri upp- byggingu á vellinum. Sagði Ingimundur gert ráð fyrir að í ár yrði boðin út bygging fyrir nýja farangursflokkunar- og skim- unarstöð austan við norðurbyggingu flugstöðvarinnar. Áætlað væri að hún yrði tilbúin 2020. Þá væri áform- að að bjóða út á þessu ári fram- kvæmdir við áframhaldandi breikk- un tengibyggingar og nýtt landa- mæraeftirlit norðan við núverandi flugstöðvarbyggingu. Verklok væru áætluð í árslok 2021. Uppbygging og ný störf á Keflavíkurflugvelli Spá um ný störf á Keflavíkur- flugvelli 2018 til 2040 2018-2025 meðaltal: 686 störf/ári 2026-2040 meðaltal: 496 störf/ári 2018-2040 alls 12.930 ný störf 5.487 7.443 Heimild: Aton 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 707 729 790 848 914 1.017 1.215 1.350 1.526 Meðalfjöldi starfa hjá Isavia 2010 til 2018 16 14 12 10 8 6 4 2 0 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 Heildar launa- og starfsmannakostnaður Isavia Heimild: Isavia Heimild: Isavia 2010 til 2017, milljarðar króna Aukning 2010-2018: 116% Meðalfjölgun starfa á ári: 102 Breikkun tengibyggingar og nýtt landamæraeftirlit Áformað er að bjóða fram- kvæmdina út í ár og að hún verði tilbúin í árslok 2021 Áætlaður kostnaður: 24 milljarðar kr. Alls nemur kostnaður við þessa tvo framkvæmdaþætti 33 milljörðum króna á næstu þremur árum 6,2 6,8 7,8 8,3 9,4 11 13,9 16,7 milljarðar kr. Stöðugildi, heildarlaun og launatengd gjöld með starfsmannakostnaði fyrir alla samstæðuna, Isavia, Fríhöfn og Tern Ný farangursflokkunar- og skimunarstöð Áætlað er að byggingin (kjallari undir bílastæði) fari í útboð á árinu og verði tilbúin 2020 Áætlaður kostnaður: 9 milljarðar kr. Heimild: Ársskýrslur Isavia. *Áætlun. * Þúsundir nýrra starfa í fluginu  Útlit fyrir að 5 þúsund ný störf verði til á Keflavíkurflugvelli til ársins 2021  Isavia bætir við fólki  Áformað að framkvæmdir muni kosta 33 milljarða á næstu árum  Þær munu skapa hundruð starfa Guðmundur Daði Rúnarsson Skaðabótakrafa Drífu ehf. á hendur Isavia er nú vel á annan milljarð króna. Drífa rekur meðal annars Icewear-verslanirnar. Þetta kemur fram í nýjum árs- reikingi Isavia. Þar segir að Drífa hafi árið 2015 höfðað dómsmál á hendur Isavia þar sem krafist var skaðabóta „vegna meints tjóns í tengslum við fram- kvæmd forvals vegna leigu versl- unarrýmis á fríhafnarsvæði Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar“. Taldi annað tilboð betra „Dómnefnd forvalsins taldi tilboð annars bjóðanda hagstæðara en til- boð Drífu ehf. Stefnufjárhæð í málinu er nú um 1,5 milljarðar króna. Isavia ohf. telur að í öllu hafi rétt verið stað- ið að forvalinu og að málatilbúnaður Drífu ehf. sé tilhæfulaus,“ segir í árs- skýrslunni. Ekki náðist í Ágúst Þór Eiríksson, framkvæmdastjóra Drífu, vegna málsins. Fram kom á mbl.is í apríl 2015 að Drífa fór fram á 903 milljónir í bætur vegna tekjumissis. Var fjárhæðin sögð miðast við að gengið hefði verið til samninga við fyrirtækið um tilboð. Þetta væri áætlaður hagnaður fyrir- tækisins af sölu á fatnaði og minja- gripum frá júní 2015 til maí 2019. Tjáir sig ekki um skattamál Þá var haft eftir Birni Óla Hauks- syni, forstjóra Isavia, í Morgun- blaðinu í gær, að félagið telur sig eiga 3,6 milljarða kröfu á Ríkisskattstjóra. Sagt var að félagið hefði enda ekki fengið útskatt endurgreiddan frá árinu 2016. Átt þar að standa inn- skatt og leiðréttist það hér með. Skúli Eggert Þórðarson ríkis- skattstjóri sagðist aðspurður ekki tjá sig um mál einstakra aðila. Milljarðakröfur hafa gengið á víxl  Drífa krefst 1,5 milljarða frá Isavia  Isavia krefst 3,6 milljarða frá RSK Ágúst Þór Eiríksson Skúli Eggert Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.