Morgunblaðið - 07.04.2018, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018
www.fi.is
Myndakvöld
Ferðafélags Íslands
Myndagetraun sem öllum sem mæta gefst kostur á að taka þátt í.
Leifur Þorsteinsson stýrir.
Örnefni á Torfajökulssvæðinu og að Fjallabaki:
Ólafur Örn Haraldsson höfundur árbókar FÍ um Friðland að Fjallabaki.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Sími 568 2533 | www.fi.is
Þriðjudaginn 10. apríl kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6
Ég fer á fjöll
Þátttaka er ókeypis – allir velkomnir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér finnst þetta mjög spennandi
og það mun vonandi kveikja meira
líf hér og skapa öðruvísi umferð en
verið hefur,“ segir Erla Þórdís
Traustadóttir, markaðsfulltrúi hjá
Skálholtsstað.
Brátt verður hægt að kaupa sér-
stakan Skálholtsbjór á staðnum.
Hann er bruggaður í Ölvisholti og
verður fyrst um sinn aðeins fáan-
legur í Skálholti. Úrslit í sam-
keppni um nafn á bjórnum verða
kynnt í næstu viku.
„Þetta var búið að vera í skoðun
í smátíma en þegar ég kom til
starfa ákvað ég að koma þessu í
gang aftur. Mér fannst þetta alveg
sjálfsagt, að eiga Skálholtsbjór,“
segir Erla en bjórinn verður seldur
á veitingastaðnum í Skálholti.
„Hugmyndin að bjórnum er
sprottin frá miðaldakvöldverðinum
sem við höfum verið að bjóða upp
á, þar sem mjöður Þorláks helga er
borinn fram. Vildum við því gera
sérstakan Skálholtsbjór og verður
hann að bera viðeigandi heiti. Því
fannst okkur upplagt að leita til
fólksins eftir tillögum. Nafnið á
bjórnum verður sögulegt nafn eða
heiti úr fortíðinni, en það verður
erfitt að velja úr fjölda tillagna við
færsluna á Facebook. Við erum al-
veg himinlifandi yfir viðbrögð-
unum og hversu hugmyndaríkir
þegnar okkar þjóðar eru.“
Bjórinn er eins og áður segir
bruggaður í Ölvisholti. Þessi fyrsta
útgáfa verður nokkuð hefðbundinn
lagerbjór, að sögn Erlu, en stærri
áform eru á teikniborðinu.
„Það verður örugglega gerður
jólabjór og svo er verið að brugga
lífrænan tómatbjór sem unninn er í
samstarfi við Akur í Laugarási.“
Erla kveðst ekki telja að margir
verði ósáttir við þetta uppátæki, að
nota nafn Skálholtsstaðar í
tengslum við sölu á áfengi.
„Ég hef ekki heyrt neinar gagn-
rýnisraddir og held að fólk taki
mjög vel í þetta. Við erum með vín-
veitingaleyfi hérna og þeir sem
vilja geta komið og notið Skálholts-
bjórsins. Við erum einfaldlega að
reyna að fá fleiri til að heimsækja
Skálholt. Hér er nóg pláss fyrir
fleiri ferðamenn.“
Bjórinn verður kynntur til leiks
hinn 5. maí. Nk. þriðjudag verður
hins vegar tilkynnt um sigurveg-
ara í nafnasamkeppni á bjórnum.
Fær hann að launum kassa af
Skálholtsbjór og miðaldamálsverð
fyrir sex. Fjölmargar forvitnilegar
tillögur hafa borist á Facebook-
síðu Skálholts, m.a. Prófastur,
Kardinálinn, Siðbót, Passía og
Himnaríki.
Bjór helgaður Skálholti
Skálholt Erla Þórdís, markaðsfulltrúi í Skálholti, við Skálholtskirkju.
Sérstakur bjór
fer í sölu á hinu
forna biskupssetri
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íbúar hins sameinaða sveitarfé-
lags Sandgerðis og Garðs munu fá
tækifæri til að greiða atkvæði um
5 tillögur að nýju nafni fyrir sveit-
arfélagið. Greidd verða atkvæði
aftur um þau tvö nöfn sem flest
atkvæði fá í fyrri umferð.
Atkvæðagreiðslan verður raf-
ræn og fer fram um leið og tillög-
urnar hafa verið valdar, vænt-
anlega í byrjun maí. Ákveðið
hefur verið að börn fædd árið
2001 geti tekið þátt, það er að
segja þau sem verða 17 ára á
árinu 2018.
Ráðherra sveitarstjórnarmála
hefur staðfest sameiningu sveitar-
félaganna tveggja sem íbúarnir
samþykktu í almennri atkvæða-
greiðslu í nóvember. Undirbún-
ingsstjórn og Róbert Ragnarsson
verkefnastjóri hafa unnið að und-
irbúningi með því að samræma
tölvukerfi, fara yfir starfsmanna-
mál og fleira. Róbert segir að
starfsfólkið sé jákvætt fyrir þess-
um breytingum og sjái ýmis tæki-
færi.
Sameingin tekur formlega gildi
10. júní þegar ný sveitarstjórn
kemur saman til síns fyrsta fund-
ar, kýs í embætti og ræður bæj-
arstjóra.
Nota ekki gömlu heitin
Sérstök nafnanefnd auglýsti eft-
ir tillögum um nafn á hið nýja
sveitarfélag. Meðal annars var
leitað til nemenda í grunnskól-
unum. Bárust 392 tillögur, að vísu
margar eins eða svipaðar. Róbert
segir að lagt hafi verið upp með
að velja nýtt nafn á sameinað
sveitarfélag og því komi ekki til
greina tillögur sem vísa til fyrri
eða núverandi heita sveitarfélag-
anna. Nafnanefndin valdi 15 til-
lögur úr og óskaði eftir áliti ör-
nefnanefndar. Hún mælti með
tveimur tillögum og lagðist ekki
gegn fimm til viðbótar. Nefndin
lagðist hinsvegar gegn 8 tillögum.
Róbert segir að nafnanefndin
hafi ákveðið á fundi í fyrradag að
óska eftir áliti örnefnanefndar á
tveimur tillögum til viðbótar. Þeg-
ar það liggur fyrir verða valdar 5
tillögur sem lagðar verða fyrir
íbúa í almennri atkvæðagreiðslu.
Kosið verður á milli
fimm tillagna um nafn
392 tillögur um nafn á nýtt sveitarfélag á Suðurnesjum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tákn Gamli vitinn á Garðskaga er eitt helsta tákn sveitarfélagsins Garðs og
verður eitt af táknum sameinaðs sveitarfélags á Rosmhvalanesi.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrirhugað eldi Arctic Sea Farm í
Arnarfirði mun hafa verulega já-
kvæð áhrif á hagræna og sam-
félagslega þætti. Áhrif á botndýra-
líf á nærsvæði kvíanna verða
talsvert neikvæð en þau verða þó
staðbundin og afturkræf. Heildar-
niðurstaða frummatsskýrslu fyrir-
tækisins sem Skipulagsstofnun
hefur nú kynnt er sú að í flestum
tilvikum verða áhrif eldisins óveru-
leg.
Í frummatsskýrslunni eru metin
áhrif 4.000 tonna eldis á laxi í
sjókvíum á þremur eldissvæðum í
Arnarfirði.
Langur undirbúningstími
Undirbúningur hefur staðið lengi
yfir. Fyrst var hugsunin að ala þar
regnbogasilung og byrjað var á
matinu í samvinnu við Fjarðalax
sem fyrir var með eldi í Arnarfirði.
Fjarðalax sameinaðist síðar Arnar-
laxi. Arctic Sea Farm vinnur nú að
matinu sjálfstætt og hyggur á lax-
eldi. Samkvæmt bráðabirgðamati
Hafrannsóknastofnunar á burðar-
þoli Arnarfjarðar er hægt að vera
með allt að 20 þúsund tonna fram-
leiðslu þar.
Arctic Sea Farm stækkar ört.
Það vinnur að því að tvöfalda
framleiðslu sína í Dýrafirði, upp í
þau 4.200 tonn sem leyfi er fyrir,
og í framtíðinni er stefnt að 10
þúsund tonna framleiðslu. Einnig
hefur það fengið rekstrar- og
starfsleyfi fyrir 6.800 tonna sjó-
kvíaeldi í Patreksfirði og Tálkna-
firði.
Auk þess vinnur fyrirtækið að
því að fá eldisleyfi fyrir 8.000
tonna framleiðslu í Ísafjarðardjúpi
en mikil óvissa er um þá fram-
kvæmd vegna tillagna um lokun
Djúpsins fyrir sjókvíaeldi.
Allir geta kynnt sér frummats-
skýrsluna á vef Skipulagsstofnunar
og víðar og gert athugasemdir til
22. maí næstkomandi.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sjókvíar Fóðurskip mun fylgja laxeldi Arctic Sea Farm í Arnarfirði eins og
algengast er orðið þar sem laxeldi er stundað í stórum stíl.
Óveruleg áhrif lax-
eldis í Arnarfirði
Samstæða
» Arctic Sea Farm er dóttur-
fyrirtæki Arctic Fish. Fyrir-
tækið er aðallega í eigu
norskra og pólskra fyrirtækja.
» Arctic Fish rekur auk sjó-
kvíaeldisins stóra og fullkomna
seiðastöð í Tálknafirði og
vinnslu afurða á Ísafirði.
» Samstæðan er með skrif-
stofur í Hafnarfirði og á Ísa-
firði.
Ákveðið er að bæjarfulltrúar í
sameinuðu sveitarfélagi Sand-
gerðis og Garðs á Suðurnesjum
verði níu en nú eru sjö bæjar-
fulltrúar í hvoru sveitarfélagi.
Stærstu flokkarnir hafa tilkynnt
framboð við kosningarnar í maí
og eru forsetar bæjarstjórnar
beggja gömlu sveitarfélaganna í
framboði, Einar Jón Pálsson í
Garði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
Ólafur Þór Ólafsson í Sandgerði
fyrir Samfylkinguna, auk Daða
Bergþórssonar í Sandgerði sem
leiðir lista Framsóknarflokksins.
Þeir vinna allir að undirbúningi
sameiningar og sitja í undirbún-
ingsstjórn.
Forsetarnir bjóða sig fram
NÍU BÆJARFULLTRÚAR KOSNIR