Morgunblaðið - 07.04.2018, Page 27

Morgunblaðið - 07.04.2018, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018 Undanfarin tvö ár hefur staðið yfir hér á landi undirbúningur að nýrri löggjöf um per- sónuvernd. Í ljósi þeirr- ar byltingar sem orðið hefur í söfnun og dreif- ingu persónuupplýs- inga undanfarin ár og í ljósi aukinna möguleika á að sækja og dreifa slíkum upplýsingum er endurskoðun á gildandi löggjöf löngu tímabær. Hvatinn að þessari endur- skoðun er að þessu sinni ný löggjöf ESB, hin svokallaða Persónuvernd- arreglugerð sem samþykkt var árið 2016 og kemur til framkvæmda 25. maí nk. í löndum ESB. Ísland og hin EFTA-ríkin innan EES eru skuld- bundin til þess að innleiða reglugerð- ina og það erum við að gera. Gagnlegar athugasemdir Dómsmálaráðuneytinu hafa borist fjölmargar umsagnir við drög að frumvarpi að nýjum persónuvernd- arlögum. Annars vegar margar ágætar efnislegar athugasemdir um orðalag og framsetningu. Hins vegar athugasemdir um formið og virðist þar einkum þrennt hafa vakið við- brögð. Í fyrsta lagi innleiðingar- aðferðin, sem er sú að setja nýja heildarlöggjöf þar sem hin evrópska reglugerð er lögfest og birt sem fylgiskjal með lögunum en jafnframt eru sett inn í frumvarpið helstu hug- tök og efni nokkurra meginákvæða reglugerðarinnar ásamt sérreglum, undantekningum og viðbótum við reglugerðina, að því marki sem reglugerðin heimilar það. Menn benda réttilega á að þetta sé ekki hefðbundin innleiðingaraðferð á reglugerð ESB. Í öðru lagi virðast menn telja frumvarpið íþyngjandi og umfram það sem reglugerðin krefj- ist. Í þriðja lagi hafa menn áhyggjur af því að ekki náist að innleiða reglu- gerðina fyrir 25. maí. Ísland verði þannig eftirbátur ESB-ríkjanna og það geti skaðað íslensk fyrirtæki. Reglugerðin hefur mikil áhrif á starfsemi allra fyrir- tækja og stofnana og reglugerðin er um margt óvenjuleg. Ég tek því þessar at- hugasemdir um formið alvarlega en tel að mál- efnaleg sjónarmið sem hér verða að nokkru rakin komi til móts við þær. Óvenjuleg innleið- ing óvenjulegrar reglugerðar Þá sjaldan að EFTA-ríkin innan EES innleiða reglugerðir ESB er það almennt gert með því að taka þær beint upp í landsrétt með svo- kallaðri tilvísunaraðferð. Reglugerð- in er þannig tekin upp óbreytt í ís- lenska löggjöf. Þessu er öðruvísi farið þegar tilskipanir eru innleiddar, eins og núgildandi tilskipun ESB um persónuvernd er dæmi um. Þá hafa stjórnvöld val um með hvaða hætti textinn er leiddur í landsréttinn. Samkvæmt þessu ætti hin nýja per- sónuverndarreglugerð þannig að verða innleidd með því eingöngu að þýða texta hennar og birta sem fylgi- skjal með innleiðingarlögunum. Persónuverndarreglugerð ESB hefur hins vegar þá sérstöðu, um- fram reglugerðir ESB almennt, að hún veitir óvenjumikið svigrúm fyrir aðildarríkin til að setja sérreglur um tiltekin atriði, útfæra sum ákvæði hennar eða víkja frá þeim og í sum- um tilvikum er skylt að festa ákveðin atriði sérstaklega í landslög. Reglu- gerðin hefur þannig ýmis einkenni tilskipunar enda segir hún beinlínis í inngangsorðum sínum að aðildarríkj- unum sé heimilt að setja ákvæði í landsrétt sinn um sérreglur svo efni reglugerðarinnar verði skiljanlegt al- menningi. Í þessu ljósi var um tvennt að ræða við innleiðingu. Annar kosturinn er að lögfesta reglugerðina og lögfesta samhliða í ný persónuverndarlög að- eins þær sérreglur sem mælt er fyrir um í reglugerðinni sjálfri. Í Noregi sýnist reyndar verða farin sú leið að samhliða lögfestingu reglugerð- arinnar er lagt fram lagafrumvarp með mörgum sérákvæðum sem breyta mörgum lagabálkum en ekki sett ný persónuverndarlög. Hinn möguleikinn er að setja ný persónuverndarlög sem gefa heild- stæða mynd af öllum helstu reglum á þessu mikilvæga réttarsviði og birta reglugerðina sem fylgiskjal með lög- unum. Þetta dregur ekki á neinn hátt úr gildi reglugerðarinnar. Lögin verða skýr um forgangsáhrif reglu- gerðarinnar. Ég er ekki í vafa um að seinni kost- urinn þjónar almenningi miklu betur en sá fyrri, einkum þeim sem leiða rétt sinn af reglum um persónu- vernd, einstaklingunum, en einnig atvinnulífinu. Þá leiðir þessi aðferð til lagatexta sem er í mun meira sam- ræmi við tungutak íslenskrar lög- fræði. Íþyngjandi og ívilnandi Við nýtingu heimilda reglugerð- arinnar til sérreglna var mjög horft til frumvarpa á Norðurlöndum. Þau ákvæði frumvarpsins sem atvinnu- lífið hefur lýst sem meira íþyngjandi innleiðingu reglugerðarinnar lúta flest að ákvæðum sem hafa verið í ís- lensku persónuverndarlöggjöfinni frá setningu gildandi laga. Þetta eru ákvæði eins og gjaldtökuheimild Per- sónuverndar vegna kostnaðar við eft- irlit, ákvæði um heimild til ákvörð- unar dagsekta og ákvæði um refsingar. Áformað er að halda þeim áfram inni í löggjöfinni svo sem reglugerðin heimilar. Verið er að fara yfir þær gagnlegu ábendingar sem komið hafa fram. Við þá yfirferð er auðvitað brýnt að óþarfa byrðar verði ekki lagðar á atvinnulíf og borgara á sama tíma og ekki má gleyma því að markmið reglugerð- arinnar er að vernda einkalíf fólks á tímum þegar persónuupplýsingar eru markaðsvara og eru jafnvel not- aðar í glæpsamlegum tilgangi. 25. maí nálgast Þó að reglugerðin hafi ekki verið tekin upp í EES-samninginn fyrir 25. maí nk. þá er það mat ráðuneytisins að það ætti ekki að stöðva flæði per- sónuupplýsinga á milli ESB og Ís- lands. EFTA-ríkin hafa verið í nánu samráði við Evrópusambandið um innleiðingu reglugerðarinnar í EES- samninginn og mikil vinna hefur far- ið fram við að tryggja aðlögun þess- arar flóknu löggjafar að lagakerfi EFTA-ríkjanna. Boltinn er nú hjá framkvæmdastjórn ESB en vonir standa til að þaðan verði sú ákvörðun afgreidd fljótlega og mögulegt reyn- ist að leiða reglugerðina í EES- samninginn um það leyti sem hún kemur til framkvæmda innan ESB. Ein afleiðing af veru Íslands í EES hefur verið að frá sjónarhóli ESB hafa EFTA-ríkin ekki verið álitin svokölluð þriðju ríki heldur sem hluti af ESB hvað varðar EES-löggjöf. Á sama tíma hefur ESB tekið ákvörðun um að heimilt sé að senda persónu- upplýsingar til ýmissa þriðju ríkja á grundvelli samninga við þau um að gætt verði fullnægjandi persónu- verndar. Þessir samningar byggðir á eldra regluverki munu halda gildi sínu þar til annað verður ákveðið eins og mælt er fyrir um í 44. gr. reglu- gerðarinnar. Ákveðin hætta er á að lagatæknilega muni EFTA-ríkin falla á milli skips og bryggju þar sem þau teljast ekki þriðju ríki sem njóta ákvörðunar framkvæmdastjórnar ESB um persónuvernd en munu hugsanlega á sama tíma ekki lengur teljast sem fullgildur hluti innri markaðar ESB hvað varðar persónu- vernd. Þar sem staða þessa mála- flokks er í reynd jafnvel betri á Ís- landi en í sumum aðildarríkjum ESB svo ekki sé talað um þriðju ríki er ljóst að slík niðurstaða yrði á skjön við alla skynsemi. Í þessu ljósi er allt kapp lagt á að innleiðingarferlinu ljúki sem fyrst og ég bind enn vonir við að Alþingi fái tækifæri til þess að samþykkja ný persónuverndarlög og þar með verði lokið innleiðingunni fyrir sumarhlé í byrjun júní. Ljóst er þó að reglu- gerðin verður hvorki innleidd í lög á Íslandi né Noregi fyrr en að lokinni umfjöllum sameiginlegu EES nefnd- arinnar. Mikilvæg nýmæli Hin nýja reglugerð felur í sér um- fangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á persónuverndarlöggjöf- inni í 20 ár. Vert er að árétta að einn megintilgangur með persónuvernd- arreglum er að standa vörð um frið- helgi einkalífs manna í tengslum við meðferð persónuupplýsinga. Út- gangspunkturinn er réttindi ein- staklinganna. Veigamesta breytingin með nýju reglugerðinni er því að hún mun gilda um vinnslu allra sem vinna með persónuupplýsingar EES- borgara, án tillits til þess hvort vinnslan fer fram innan svæðisins eða ekki. Réttur skráðra ein- staklinga til aðgangs að persónu- upplýsingum er rýmkaður. Þá kveð- ur reglugerðin á um háar sektir vegna brota á reglunum. Það er ástæða til að vekja athygli á heima- síðu Persónuverndar, www.personu- vernd.is. Þar er ítarleg umfjöllun um nýju reglugerðina. Í tengslum við innleiðingu per- sónuverndarreglugerðarinnar hefur samstarf stjórnvalda við atvinnulíf verið með miklum ágætum. Persónu- vernd hefur staðið fyrir mikilli fræðslu um fyrirhugaðar breytingar. Íslensk þýðing reglugerðarinnar var birt vorið 2017 til að auðvelda aðilum undirbúning og leiðbeiningar frá samstarfsvettvangi evrópskra per- sónuverndarstofnana um afmörkuð atriði nýju löggjafarinnar hafa verið birtar á vef Persónuverndar. Ég legg áherslu á að þetta samstarf haldi áfram þannig að atvinnulíf og hið op- inbera verði samstiga í þessum veigamiklu umbótaskrefum í þágu verndar grundvallarréttinda ein- staklinganna. Eftir Sigríði Á. Andersen »Einn megintilgangur með persónuvernd- arreglum er að standa vörð um friðhelgi einka- lífs manna í tengslum við meðferð persónu- upplýsinga. Útgangs- punkturinn er réttindi einstaklinganna. Sigríður Andersen Höfundur er dómsmálaráðherra. P-dagurinn nálgast Ný fjármálaáætlun sem ríkisstjórnin kynnti á miðvikudag snýst um sókn fyrir íslenskt samfélag. Hún fylgir þannig eftir þeim sáttmála um samfélagslega uppbyggingu sem ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er grundvallað á, rétt eins og fjárlög ársins 2018 gerðu. Fjármálaáætlunin er byggð á sterkri stöðu ríkissjóðs og efna- hagsmála almennt sem er afrakst- ur þeirrar miklu og góðu vinnu sem staðið hefur yfir allt frá hruni. Fyrir síðustu kosningar og við myndun ríkisstjórnarinnar lögðum við áherslu á að hvorki væri hægt að bíða lengur með að tryggja al- menningi hlutdeild í þeirri hag- sæld sem hér hefur ríkt né að bíða lengur með uppbyggingu sam- félagslegra innviða. Í áætluninni sést hvernig við hyggjumst nýta svigrúmið sem hefur skapast vegna velgengni og vinnu und- anfarin ár til að auka velsæld fólksins í landinu. Við erum komin yfir mesta þensluskeiðið og hagvöxtur hefur gefið eftir hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Í þessari þróun er fólgið tækifæri fyrir ríkisstjórnina til að koma með kröftuga innspýtingu í samfélagslega mik- ilvæg verkefni, hvort heldur er á sviði heil- brigðis- og menntamála eða samgangna, og veita hagkerfinu nauð- synlega viðspyrnu. Að ráðast í slík verkefni og uppbyggingu er ekki eingöngu réttlæt- ismál heldur líka mik- ilvægt efnahagslega til að stuðla að áframhald- andi hagsæld í landinu. Með því að auka út- gjöld til samfélagsþjón- ustu og innviðauppbyggingar sköp- um við viðspyrnu í hagkerfinu, en á sama tíma er mikilvægt að skapa aðstæður fyrir frekari vöxt. Við þurfum að tryggja þekking- arhagkerfinu slíkar aðstæður. Þess vegna ætlum við að afnema þakið á endurgreiðslu kostnaðar fyrir- tækja við rannsóknir og þróun eins og kallað hefur verið eftir. Þá höldum við líka áfram að auka framlög til menntamála, ekki síst háskólastigsins. Útgjöld til heilbrigðismála munu aukast um 40 milljarða króna á næstu fimm árum frá því sem er í fjárlögum yfirstandandi árs. Þetta þýðir að við getum minnkað greiðsluþátttöku sjúklinga þannig að hlutdeild þeirra hérlendis verði sambærileg því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum. Forgangs- raðað verður í þágu geðheilbrigðis- mála og heilsugæslunnar um land allt. Fyrirhugaðar eru breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem vinna á í samráði við forsvarsmenn heildar- samtaka örorkulífeyrisþega. Fram- lög til velferðarmála jukust um 11,7 milljarða í síðustu fjárlögum en ætlunin er að auka framlög til þessa málaflokks um aðra 28 millj- arða á tímabilinu, sem er langt umfram lýðfræðilega þróun. Sú aukning mun ekki síst nýtast til að bæta kjör örorkulífeyrisþega. Við ætlum að vinna að því með verkalýðshreyfingunni að draga úr skattbyrði lágtekjuhópa. Sá efna- hagslegi stöðugleiki sem við sækj- umst eftir og viljum stuðla að með skynsamlegri efnahagsstjórn og innspýtingu ríkisfjármuna í hag- kerfið stendur nefnilega ekki einn og sér – hann fer hönd í hönd við félagslegan stöðugleika sem há- vært ákall er um í samfélaginu. Það er forgangsverkefni þessarar ríkisstjórnar að stuðla að fé- lagslegum stöðugleika í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins og þeg- ar horft er til þess hvernig við for- gangsröðum fjármunum. Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir því að ríkið nýti fjármagn úr fjár- málakerfinu í innviðaframkvæmdir. Miklum hluta þessara fjármuna verður varið í uppbyggingu í vega- kerfinu á næstu árum en þar eru brýn verkefni framundan um land allt. Í áætluninni er sérstaklega kveðið á um að á árinu verði farið í viðræður við sveitarfélögin á höf- uðborgarsvæðinu um þátttöku rík- isins í borgarlínuverkefninu. Samgönguframkvæmdir eru þó ekki einu fjárfestingarnar sem eru framundan. Framkvæmdir við nýj- an Landspítala halda áfram á árinu með uppbyggingu meðferð- arkjarna. Margboðað Hús íslensk- unnar mun rísa á kjörtímabilinu, fjárfest verður í nýjum þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna og ráðist verður í framkvæmdir til að hlúa að og vernda ýmsar náttúruperlur í umsjá ríkisins. Þá eykur ríkis- stjórnin framlög til umhverfismála um 35% sem endurspeglar þann einbeitta vilja hennar að ná raun- verulegum árangri í umhverfis- og náttúruvernd. Sáttmáli ríkisstjórnarinnar snýst um þau mikilvægu verkefni sem þarf að ráðast í til að bæta lífskjör og auka velsæld í landinu. Ný fjár- málaáætlun tryggir að ráðist verð- ur í þessi verkefni og mun þannig skila sterkara samfélagi og betri lífskjörum fyrir almenning á Ís- landi. Eftir Katrínu Jakobsdóttur »Ný fjármálaáætlun sem ríkisstjórnin kynnti á miðvikudag snýst um sókn fyrir ís- lenskt samfélag. Katrín Jakobsdóttir Höfundur er forsætisráðherra. Sókn fyrir samfélagið Morgunblaðið/Hari Uppbygging „Að ráðast í slík verkefni og uppbyggingu er ekki eingöngu réttlætismál heldur líka mikilvægt efnahagslega,“ segir í greininni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.