Morgunblaðið - 07.04.2018, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2018
Hvítur leikur og vinnur.
Georg Maier – Magnús Carlsen
Staðan kom upp í fimmtu umferð
efsta flokks skákhátíðarinnar
GRENKE chess sem stendur yfir
þessa dagana í Karlsruhe og Baden
Baden í Þýskalandi. Það merkilega
við þessa stöðu er að hvítur á þrjá
leiki sem allir leiða til vinnings. Ég er
nánast handviss um að þeir sem eitt-
hvað kunna fyrir sér myndu finna
rétta leikinn án mikillar yfirlegu.
Heimamaðurinn Maier hafði teflt vel
en virtist aldrei afhuga jafntefli gegn
heimsmeistaranum sem hafði greini-
lega teygt sig of langt þegar hér var
komið sögu. Vinningsleikirnir þrír
eru:
A) 39. Hh5.
Svartur á enga haldgóða vörn
gegn hótuninni 40. Hxh7+, t.d. 39. …
De7 40. Hxh7+ Kxh7 40. Hh1+ Kg8
41. 41.Be6+ Hff7 42. Hh6! með hót-
uninni 43. Dh5. Engin vörn finnst.
B) 39. Hh1.
Vinnur einnig t.d. 39. … De7 40.
Hxh7+ Kxh7 41. Hh5+ Kg6 42.
Hh6+! Kf7 43. Dh5+ og mátar.
C) 39. Hf5
– og svartur er varnarlaus, t.d.
39. … Db8 40. Hxf8+ Dxf8 41. Hb1
og vinnur. Hvítur átti nægan tíma
fram að 40. leik til að finna einn þess-
ara leikja. Kannski var hann hrædd-
ur við að vinna. Hann valdi:
39. Ha1?
og eftir …
39. … De7 40. Dxg7+ Dxg7 41.
Hxg7 Kxg7 42. Hxa4 Bc6 43. Hb4 …
sömdu keppendur um jafntefli.
Magnús tefldi strax í fyrstu um-
ferð við hinn nýbakaða áskoranda
Fabiano Caruana. Eins og oft áður
virtist hann hafa í fullu tré við
Bandaríkjamanninn en upp kom
flókið hróksendatafl þar sem peð
svarts voru komin lengra, kóngs-
staðan betri og vinningshorfur þaraf-
leiðandi góðar:
Grenke classic; 1. umferð:
Fabiano Caruana – Magnús Carl-
sen
Svartur á leik og staðan er unnin
en vinningsleikurinn á fátt líkt með
mynstrum sem skákmenn hafa oft í
kollinum í hróksendatöflum. 54. …
Hh7! hefur þann tilgang að hamla för
hvítu peðanna. Aðalbrigðið er svona:
55. Kxd3 Hd7+! 56. Ke4 a5 57. g5 a4
58. g6 Hd8! 59. Hc7 a3 60. g7 a2 og
svartur vinnur. En Magnús valdi að
leika:
54. … a5?
og eftir …
55. h6! He2+ 56. Kxd3 Hh2 57. g5
varð hann að sætta sig við skiptan
hlut …
57. … Hh3+ 58. Kd2 Hh2+ 59.
Kd3
– Jafntefli.
Eftir þessi vonbrigði hefur lítið
gengið hjá Norðmanninum þótt hann
sé að venju með í baráttunni um sig-
urinn. Staðan þegar fjórar umferðir
eru eftir: 1.-3. Caruana, Vachier-
Lagrave og Vitiugov 3½ v. (af 5).
4.-5. Carlsen og Aronjan 3 v. 6.-7.
Anand og Bluebaum 2 v. 8.-10. Hou
Yifan, Maier og Naiditsch 1½ v.
Um það leyti sem aðalmótið hófst
lauk keppni í opna A-flokknum en
þar var mikið mannval á ferðinni og
eitt sterkasta opna mót ársins. Úr-
slitin hafa vakið mikla athygli því að
13 ára Þjóðverji, Vincent Keymer,
bar glæsilegan sigur úr býtum, hlaut
átta vinninga af níu mögulegum og
stal gjörsamlega senunni. Hann er
talinn mesta efni sem Þjóðverjar
hafa eignast um áratuga skeið. Fjór-
ir efstu urðu:
1. Keymer 8 v. (af 9). 2.-4. Koro-
bov, Shirov og Gordievskí 7½ v. Að-
stoðarmaður Keymers og þjálfari á
mótsstað var ungverski stórmeist-
arinn Peter Leko.
Vignir Vatnar Stefánsson, nýorð-
inn 15 ára, tók þátt í þessu móti og
stóð sig ágætlega, hlaut 5½ vinning
af níu mögulegum og hafnaði vel fyr-
ir ofan mitt mót en keppendur voru
hvorki fleiri né færri en 787 talsins.
Faðir hans, Stefán Ḿár Pétursson,
tefldi í opna B-flokknum og hlaut
fimm vinninga af níu mögulegum.
13 ára Þjóðverji
stal senunni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Chessbase
Magnús Carlsen fylgist
með Keymer (t.h.) vinna
Ungverjann Rapport í
lokaumferð opna mótsins.
Skattar leggjast á
okkur öll með einum
eða öðrum hætti en
dýrasti skatturinn er
gjarnan sá sem við átt-
um okkur ekki á að við
greiðum. Þvert á
glærukynningar og full-
yrðingar borgarstjóra,
Dags B. Eggertssonar,
hefur skipulagsstefna
hans skapað lóðaskort.
Skortsstefna hans hefur þannig
hækkað fasteigna- og leiguverð en
þann skatt greiða öll heimili á leigu-
markaði og ungt fólk sem stefnir á
kaup á sinni fyrstu íbúð.
Tímaskattur
En annar og miklu lúmskari skatt-
ur hefur verið lagður á borgarbúa á
kjörtímabilinu: svokallaður tíma-
skattur. Hann leggst á okkur öll sem
ferðumst innan borgarinnar en þó
mest á þann hóp borgarbúa sem búa
austar í borginni. Skatturinn er af-
leiðing af samgöngustefnu borgar-
stjóra.
Í fyrsta sinn í sögu Reykjavíkur
telja borgaryfirvöld það hlutverk sitt
að hægja á allri umferð í borginni og
hafa unnið markvisst að því allt þetta
kjörtímabil. Í Aðalskipulagi vinstri-
meirihlutans er þetta orðað svo: „Göt-
ur verði endurhannaðar sem borg-
arrými með fjölþætt hlutverk.“
Breytingar á Hofsvallagötu, Snorra-
braut, Borgartúni og Grensásvegi eru
því einungis forsmekkur að því sem
koma skal. Hringbrautinni á að gera
sömu skil innan skamms, sem og
Miklubraut, frá Lönguhlíð að
Kringlumýrarbraut og Suðurlands-
brautin verður þrengd. Mikilvægum
samgönguæðum borgarinnar verður
breytt úr stofnbrautum í tengibrautir.
Tafatíminn veldur
aukinni mengun
Tíminn er það dýrmætasta sem við
eigum, hvert og eitt. Þess vegna
skiptir máli hvernig við verjum hon-
um. Þeir sem verða fyrir mestum töf-
um vegna samgöngustefnu borg-
arstjóra greiða, á einu ári, allt að
fimm vikna sumarfríi í þessa glóru-
lausu samgöngustefnu, vegna heima-
tilbúinna tafa í umferðinni. Umferð-
artöf fylgir svo aukin mengun bíla í
lausagangi. Hér er því hvoru tveggja
verið að stela tíma af
fólki og auka umferð-
armengun. Borgarstjóri
og meirihluti hans hefur
því sagt stórum hluta
borgarbúa stríð á hend-
ur og skattlagt hluta af
ævi fólks, haft af okkur
tíma sem við öll viljum
verja annars staðar en í
umferðarteppu.
Glærulausn sem
kostar á annað
hundrað milljarða
Nú þykjast tímaþjófarnir ætla að
leysa þennan heimatilbúna vanda
sinn með glærulausn sem þeir kalla
Borgarlínu. Hún á að vera komin í
fulla notkun árið 2040 eftir 22 ár.
Það er því næsta snilldarhugmynd
meirihlutans að eyða á annað hundr-
að milljörðum í framkvæmd sem
danskir skýrsluhöfundar Borgarlín-
unnar viðurkenna að leysi ekki um-
ferðarvandann.
Við sjálfstæðismenn erum alls ekki
á móti almenningssamgöngum. Það
var Sjálfstæðisflokkurinn sem byggði
upp almenningssamgöngur í borginni
og lagði fyrstu göngu- og hjólastíga í
íslensku þéttbýli. Gott borg-
arskipulag á að endurspegla fjöl-
breytt borgarsamfélag frjálsra ein-
staklinga með ólíkar þarfir,
væntingar og vilja. Við munum því
hafna öfgakenndri og gamaldags
skipulagsstefnu Dags B. sem skapað
hefur sundrungu og ósætti meðal
borgarbúa eftir búsetu. Þess í stað
verða tekin upp nútímalegri og vand-
aðri vinnubrögð. Við munum efla al-
menningssamgöngur, byggja upp
göngu- og hjólastíga sem heilsteypt
samgöngukerfi en jafnframt ráðast í
nauðsynlegar og skynsamar vega-
framkvæmdir því allt þetta helst í
hendur.
Afnemum tímaskattinn í vor.
Höfnum tímaþjófum í vor
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur » Annar og miklu
lúmskari skattur
hefur verið lagður á
borgarbúa á kjör-
tímabilinu: svokallaður
tímaskattur.
Marta Guðmundsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
marta.gudjonsdottir@reykjavik.is
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
GÆÐA BAKKAMATUR
Sjá heimasíðu
www.veislulist.is
Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins,
bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Í yfir 40 ár hefur Veislulist
lagt áherslu á góða
þjónustu og framúrskaran
matreiðslu.
Hádegismatur
Verð
kr. 1.370
Lágmark 3 bakkar
+ sendingargjald
d
MisMUnAndi
RéTTiR AllA dAGA
viKUnnAR
EldUM EinniG fyRiR
MöTUnEyTi
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15