Morgunblaðið - 09.05.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Selur Brimnes RE til Rússlands
Alls missa 40 sjómenn vinnuna vegna sölunnar Kaupverð togarans er sagt vera trúnaðarmál
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Útgerðarfélagið Brim hf. hefur
selt frystitogarann Brimnes RE til
rússneskra aðila. Guðmundur
Kristjánsson, forstjóri Brims, stað-
festir í samtali við Morgunblaðið
að búið sé að samþykkja kauptil-
boð í skipið og að 40 manna áhöfn
missi vinnuna vegna sölunnar.
Stefnt er að því að finna önnur
störf innan fyrirtækisins fyrir
starfsfólkið.
Hann segir að kaupverðið sé
trúnaðarmál. „Við fengum gott til-
boð,“ segir Guðmundur.
Varðandi ástæður sölunnar segir
Guðmundur að engin launung sé á
því að mun hagkvæmara sé að
vinna fiskinn í landi en á frystitog-
ara, enda hafi frystiskipum fækkað
gríðarlega á síðustu 4-5 árum. Allt
sé að færast yfir í landvinnslu.
Afhent í byrjun ágúst
Guðmundur segir að skipið verði
afhent nýjum eigendum í byrjun
ágúst næstkomandi.
Brimnes hefur lengi verið meðal
aflahæstu skipa íslenska fiskiskipa-
flotans og var aflahæst árið 2016,
sé makrílafli tekinn með í dæmið.
Brim keypti fyrir skemmstu 34%
hlut í HB Granda fyrir 21,7 millj-
arða króna af Vogun og Fiskveiði-
félaginu Venusi, sem Kristján
Loftsson fer fyrir.
Eins og kom fram í fréttum fyrir
helgi hefur uppgjör vegna kaup-
anna nú þegar farið fram og þar
með hefur stofnast skylda til að
gera öðrum hluthöfum HB Granda
yfirtökutilboð samkvæmt ákvæði
100. gr. laga um verðbréfaviðskipti.
Morgunblaðið/Þórður
Selt Brimnesið sést hér í höfn en nýir eigendur taka við því í ágúst.
Þórður Sverrisson, stjórnarformað-
ur tónlistar- og ráðstefnuhússins
Hörpu, segir það ekki rétt að laun
Svanhildar Konráðsdóttur, forstjóra
Hörpu, hafi hækkað um 20% eftir tvo
mánuði í starfi, líkt og greint hefur
verið frá. „Það voru sagðar falsfrétt-
ir um að laun forstjóra hefðu hækkað
um 20%, sem er rangt,“ segir Þórður
í samtali við mbl.is.
Sautján þjónustufulltrúar í
Hörpu, þar á meðal allir vaktstjórar,
sögðu upp störfum í vikunni í kjölfar
fundar með forstjóranum. Uppsagn-
irnar komu í kjölfar fjölmiðlaumfjöll-
unar um þjónustufulltrúa í Hörpu
sem ofbauð launahækkun forstjóra,
sem var sögð 20%, svo að hann sagði
upp. Þjónustufulltrúar tóku á sig
launalækkun í september 2017 sem
stjórnendur Hörpu sögðu hluta af
samstilltu átaki um að rétta af fjár-
hag hússins.
Þórður vísar í yfirlýsingar stjórn-
ar Hörpu frá því í síðustu viku þar
sem fram kemur að Svanhildur Kon-
ráðsdóttir var ráðin forstjóri í árs-
byrjun 2017 og samkvæmt samningi
áttu laun hennar að vera 1,5 milljónir
króna á mánuði. Í yfirlýsingunni seg-
ir að vegna breytinga á kjarasamn-
ingi VR séu launin nú 1.567.500 kr.
Þá segir að 30. desember 2016 hafi
ný lög verið samþykkt á Alþingi sem
kváðu á um að frá 1. júlí 2017 skyldu
laun forstjóra ríkisfyrirtækja
ákvörðuð af stjórnum þeirra en ekki
kjararáði.
Óskað eftir launalækkun
Svanhildur hefur nú óskað eftir
því að laun hennar verði lækkuð aft-
urvirkt frá 1. janúar 2018 og þau
verði til samræmis við úrskurð
kjararáðs frá 1. júlí 2017, það er rúm-
ar 1,3 milljónir króna. „Það finnst
mér afskaplega drengilegt, því aðal-
atriði í þessu öllu er að það sé friður
um starfsemi hússins,“ segir Þórður.
VR sendi frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem félagið fordæmdi viðbrögð
forsvarsmanna Hörpu við uppsögn-
um þjónustufulltrúanna. Í yfirlýs-
ingu VR kom fram að félagið myndi
hætta viðskiptum við Hörpu „þar til
þetta mál fær eðlilega afgreiðslu“.
Afbókaði félagið tvo viðburði sem
áttu að fara fram í húsinu á þessu ári.
Annar staður hefur verið fundinn
fyrir viðburðinn Fyrirtæki ársins,
sem stéttarfélagið ætlaði að halda
17. maí í Hörpu. Viðburðurinn fer
fram á Hilton Reykjavík Nordica-
hótelinu í staðinn. Einnig hefur verið
hætt við að halda árlegt jólaball VR í
Hörpu og leit stendur yfir að öðrum
stað fyrir það.
Hækkunin sögð „falsfrétt“
Stjórnarformaður segir fréttir af 20% launahækkun rangar VR aflýsir viðburðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harpa í kvöldbirtu Ósætti er meðal
starfsmanna vegna launamála.
Bæjarstjórn Sel-
tjarnarness hef-
ur orð á sér fyr-
ir að vera snögg
að afgreiða mál-
in.
Á síðasta
fundi, sem hald-
inn var miðviku-
daginn 25. apríl
síðastliðinn, var
sett nýtt met.
Fundurinn var settur klukkan
17.00 og honum slitið klukkan
17.03. Á þessum þremur mínútum
afgreiddi bæjarstjórnin níu fund-
argerðir sem innihéldu meðal ann-
ars aðalskipulag Reykjavíkur
2010-2030 og gjaldskrá skipulags-
og byggingarfulltrúa Seltjarn-
arnesbæjar.
Gamla metið var sett 26. febrúar
2014 en sá bæjarstjórnarfundur
stóð yfir í fjórar mínútur. Ásgerð-
ur Halldórsdóttir, bæjarstjóri í
Seltjarnarnesbæ, tjáði Morg-
unblaðinu eftir þann fund að fund-
irnir í bæjarstjórn tækju gjarnan
stuttan tíma sökum þess hve góð
samvinna væri í nefndum bæjarins
milli meiri- og minnihluta.
Það sem af er árinu 2018 hefur
bæjarstjórnin haldið átta fundi og
hafa þeir staðið yfir í samtals 161
mínútu.
Í bæjarstjórn Seltjarnarness
sitja sjö fulltrúar. sisi@mbl.is
Fundurinn
stóð í þrjár
mínútur
Gróttuviti
Bæjarstjórnin á
Nesinu setti nýtt met
Branduglan á myndinni varð á vegi útsendara
Morgunblaðsins skammt frá Hólum í Hjaltadal í
fyrradag. Uglan sat sperrt á girðingarstaur og
fylgdist grannt með því sem fram fór í grennd,
einkum hvort einhver hreyfing væri í gróðri við
staurinn. Á því augnabliki sem myndin var tekin
hafði uglan séð hagamús og steypti sér yfir hana
sekúndubroti síðar. Músin slapp lifandi frá árás-
inni og valhoppaði kát á brott.
Brandugla er dag- og náttfugl en er þó helst á
ferli í ljósaskiptunum og stundar veiðar á ber-
svæði. Hún uppgötvaðist sem varpfugl hér á
landi í byrjun 20. aldar og er algengust sunnan-
lands og fyrir norðan en tiltölulega fáséð eystra
og vestra. sae@mbl.is
Sagan af branduglunni og hagamúsinni
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Khaled Cairo,
sem dæmdur var
í 16 ára fangelsi
fyrir morð, hefur
áfrýjað dómnum
til Landsréttar.
Þetta staðfesti
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson,
verjandi Cairos,
við mbl.is.
Hinn 18. apríl
sl. dæmdi Héraðsdómur Reykjavík-
ur Cairo í 16 ára fangelsi fyrir að
hafa myrt Sanitu Brauna í íbúð við
Hagamel í Reykjavík í september í
fyrra. Ákæruvaldið fór fram á 16
ára fangelsisdóm, en verjandi Cairo
bað um að honum yrði ekki gerð
refsing á þeirri forsendu að hann
væri ósakhæfur.
Áfrýjun málsins er á frumstigi og
til umfjöllunar hjá ríkissaksóknara.
Enn er því ekki ljóst hvenær málið
fer fyrir Landsrétt.
Cairo áfrýjar 16 ára
fangelsisdómi sínum
Khaled
Cairo