Morgunblaðið - 09.05.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykja-
víkur, segir alrangt að hægagangur
einkenni vinnu skipulagsyfirvalda
vegna uppbyggingar í borginni.
Tilefnið er samtal við Pétur Guð-
mundsson, stjórnarformann Eyktar,
í Morgunblaðinu í gær. Sagði Pétur
borgina hafa valdið Eykt miklu fjár-
tjóni með tíðum og óþarfa töfum á
uppbyggingu Höfðatorgs. Nefndi
Pétur jafnframt tafir við byggingu
hótels á Laugavegi 95-99 sem dæmi
um afleiðingar þessa seinagangs.
Hröð uppbygging í borginni
Hjálmar andmælir þessu.
„Ég vísa því algjörlega á bug að
það sé eitthvað sérstaklega hæg
uppbygging hér í borginni. Sú mikla
uppbygging gengur þvert á móti
ótrúlega hratt
fyrir sig á fjöl-
mörgum bygg-
ingarreitum. Þar
nefni ég reitinn í
kringum RÚV,
250 íbúðir við
Hverfisgötu,
Bryggjuhverfi II,
Hafnartorg og
Hlíðarenda, þar
sem húsin spretta
upp. Mikill fjöldi íbúða er þar að rísa
með ótrúlegum hraða. Þannig að það
er alveg gríðarleg mikill og hraður
gangur í þessum málum.“
Haft var eftir Pétri að það hefði
tekið borgina 11 mánuði að afgreiða
eignaskiptalýsingu á Bríetartúni 9-
11 sem er fjölbýlishús á Höfðatorgi.
Varðandi gagnrýni Péturs á máls-
meðferð borgarinnar vegna Höfða-
torgs og Laugavegar 95-99 kvaðst
Hjálmar „ekki þekkja nákvæmlega
hvernig þau mál hafa þróast hjá
byggingarfulltrúa. Það eina sem ég
get sagt í þessu sambandi er að á
reitum eins og Höfðatorgi geta bíla-
stæðamál undir svo stórri lóð verið
flókin. Eignaskiptalýsing þarf til
dæmis að vera í samræmi við deili-
skipulag. Að öðru leyti geri ég ráð
fyrir að þessi embætti skýri út
hvernig þarna var staðið að verki“.
Fjarri því að valda vanhæfi
Hjálmar vísar svo þeim ummæl-
um Péturs alfarið á bug að fortíð
hans sem útvarpsmanns og gagn-
rýnanda Höfðatorgs geri hann van-
hæfan í málefnum Höfðatorgs.
„Þetta kom mér satt að segja
mjög á óvart. Af því að á sínum tíma
hittumst við Pétur nokkrum sinnum
og mér fannst það allt saman ágætis
fundir. Að öðru leyti ætla ég ekki að
vísa í tveggja manna tal. Þó vil ég
nefna að það er rétt sem haft var
eftir Pétri að við höfðum svolitlar
áhyggjur af því að þessi mikli hótel-
turn sem er risinn á Höfðatorgi yrði
mjög einsleit bygging. Það má segja
að það hafi gengið eftir.“
Pétur sagði fyrirheit borgarinnar
um þakbar á Fosshótelsturninum
hafa verið svikin af Hjálmari. Það
hefði valdið Eykt beinu fjártjóni.
„Eitt af því sem kom upp í um-
ræðum var hvort hægt væri að fá
meira uppbrot í húsið. Þá til dæmis
með því að setja þakbar á hótelið
[sem er 16 hæðir]. Það var rætt fram
og til baka. Niðurstaðan varð sú að
slíkt var ekki talið ráðlegt. Leyfilegt
byggingarmagn kom þar líka við
sögu. Með þakbar hefði verið farið
yfir heimilað byggingarmagn.
Það er út í hött að halda því fram
að það hafi eitthvað með mína af-
stöðu að gera að ég hafi sem krít-
ískur fjölmiðlamaður fjallað um
þessa uppbyggingu,“ segir Hjálmar.
Segir íbúðir rísa „með ótrúlegum hraða“
Formaður skipulagsráðs borgarinnar vísar á bug gagnrýni Eyktar á hægagang borgarinnar
Vísar á viðkomandi embættismenn Fortíð hans sem útvarpsmanns hafi engin áhrif á störfin
Morgunblaðið/Hari
Bríetartún 9-11 Eykt byggir húsið.
Hjálmar
Sveinsson
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslu
Íslands skrifuðu í gær undir
kjarasamning að loknum fundi
hjá ríkissáttasemjara. „Það er bú-
ið að semja samning og nú fer
samningurinn í atkvæðagreiðslu,“
segir Guðmundur Úlfar Jónsson,
formaður Flugvirkjafélags Ís-
lands, í samtali við Morgunblaðið.
Flugvirkjar hjá Landhelgis-
gæslunni felldu í síðustu viku
kjarasamning sem var undirrit-
aður 18. apríl síðastliðinn og hafa
boðað verkfall föstudaginn 11.
maí nk. Að sögn Guðmundar
verður unnið að því sem allra
fyrst að gera nýja kjarasamning-
inn aðgengilegan á netinu fyrir
félagsmenn og um leið opna fyrir
rafræna kosningu. Samningurinn
tekur til 18 starfsmanna.
Spurður hvort undirritun ein
og sér fresti verkfalli eða hvort
samningurinn þurfi að vera sam-
þykktur fyrir föstudaginn segir
Guðmundur verkfallsfrestun í
höndum samninganefndanna
tveggja. „Hann þarf ekki endi-
lega að vera samþykktur til þess
að verkfallinu sé frestað. Það er
hægt að fresta verkfallinu þrátt
fyrir að samningurinn sé ekki
samþykktur, en það er bara í
höndum samninganefndanna
beggja að fresta því.“ Spurður
hvort hann telji líklegt að verk-
fallinu verði frestað vildi Guð-
mundur ekki svara því að svo
stöddu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugvirkjar Samningurinn verður
kynntur flugvirkjum gæslunnar.
Flugvirkjar
undirrita
samning
Kosið um samning-
inn á næstu dögum
Um leið og daginn lengir og lofthiti hrekkur
nokkrar gráður yfir frostmarkið hefjast vor-
verkin hjá mörgum, meðal annars starfs-
mönnum Reykjavíkurborgar sem þurfa að sinna
viðhaldi á götum og gangstígum. Vinnuhóparnir
geta oft verið nokkuð plássfrekir við störf sín
enda fylgja þeim oft ýmis tæki og tól, en því fékk
maðurinn í skræpóttu blómabuxunum að kynn-
ast er sá tiplaði fram hjá einum hópnum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tiplað fram hjá vorverkunum í borginni
Eftir veturinn er víða þörf á viðhaldi í höfuðborginni
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ætlar að
leggja fram frumvarp til nýrra persónuverndarlaga á
næstu dögum. Á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun
ræddi dómsmálaráðherra aðdraganda persónuvernd-
arreglugerðar ESB, samningu frumvarps til nýrra
persónuverndarlaga og samráð um frumvarpsdrög
ásamt stöðu frumvarpsins og næstu skref.
Skv. upplýsingum Laufeyjar Rúnar Ketilsdóttur,
aðstoðarmanns dómsmálaráðherra, er verið að ljúka
samráðsferli innan Stjórnarráðsins til samræmis við
verklagsreglur um undirbúning og vinnslu stjórnar-
frumvarpa. Töf hefur orðið á upptöku persónuvernd-
arreglugerðar ESB í EES-samn-
inginn sem hefur áhrif á þinglega
meðferð frumvarps til nýrra per-
sónuverndarlaga. Persónuverndar-
reglugerð ESB tekur gildi í Evrópu
25. maí og því er ljóst skv. upplýs-
ingum dómsmálaráðuneytisins að
vegna tafa á upptöku reglugerðar-
innar í EES-samninginn munu ný
lög, byggð á þeirri þjóðréttarskuld-
bindingu, ekki hafa tekið gildi á Ís-
landi fyrir þann tíma. „Dómsmála-
ráðherra leggur áherslu á að lögin verði sett án
nauðsynlegrar tafar þegar reglugerðin hefur verið tek-
in upp í EES-samninginn,“ segir Laufey.
Frumvarpið um persónuvernd
lagt fram á næstu dögum
Nýju lögin verða ekki komin í gildi fyrir gildistöku reglnanna í Evrópu 25. maí
Innleiðingin
» Persónuverndarreglugerð ESB kemur
til framkvæmda í ríkjum ESB 25. maí.
» EFTA-ríkin hafa undirbúið upptöku
reglugerðarinnar í EES-samninginn og
því næst þarf ákvörðun sameiginlegu
EES-nefndarinnar.
» Dómsmálaráðherra ákvað að leggja
fram frumvarp til nýrra persónuvernd-
arlaga til innleiðingar á reglugerðinni.
Sigríður Á.
Andersen