Morgunblaðið - 09.05.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÆNSK GÆÐI Í 90 ÁR
Sænska fyrirtækið Mora hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 90 ár.
Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Mora.
Það er ekki nema von að reyndumborgarfulltrúa ofbjóði um-
gengni kjörinna full-
trúa meirihlutans
um sameiginlega
sjóði borgarbúa.
Svimandi upp-hæðir eru
greiddar í vexti sem
nær væri að beina í verkefni sem bú-
ið er að lofa fólki í átta ár án efnda.
Fyrir þessar kosningar birtastloforðin endurunnin! Mbl.is
greindi frá málinu í gær:
Kjartan Magnússon, borgar-fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
gerði verulegar athugasemdir við
ársreikning Reykjavíkurborgar sem
ræddur var í borgarstjórn í dag
(gær).
Hann sagði ársreikninginn sýnaað meirihlutinn hefur engin
tök á fjármálum borgarinnar:
Þrátt fyrir stórauknar tekjurborgarinnar og hámarksskatt-
heimtu halda skuldir borgarsjóðs
áfram að hækka,“ sagði Kjartan og
vísaði til þess að á árunum 2016 til
ársloka 2017 hækkuðu skuldir
borgarinnar um tæplega 15 millj-
arða króna og nema nú um 99 millj-
örðum.
Enginn skuldsetur sig hins vegarút úr fjárhagsvanda og gildir
þá einu hvort um er að ræða heimili,
fyrirtæki eða sveitarfélag, að mati
Kjartans:
Þetta er þó engu að síðurfjármálastefna vinstri meiri-
hlutans í Reykjavík undir forystu
Samfylkingarinnar: að fresta því að
takast á við hinn óhjákvæmilega
fjárhagsvanda með aukinni skuld-
setningu.“
Kjartan
Magnússon
Fjárhagsóreiða
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 0 léttskýjað
Þórshöfn 8 rigning
Ósló 19 heiðskírt
Kaupmannahöfn 20 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 26 heiðskírt
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 12 skúrir
London 23 alskýjað
París 26 þoka
Amsterdam 26 heiðskírt
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 24 heiðskírt
Vín 19 þrumuveður
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 22 skúrir
Barcelona 19 þrumuveður
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 19 þrumuveður
Aþena 21 þrumuveður
Winnipeg 14 skýjað
Montreal 16 heiðskírt
New York 19 heiðskírt
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:32 22:17
ÍSAFJÖRÐUR 4:16 22:43
SIGLUFJÖRÐUR 3:59 22:26
DJÚPIVOGUR 3:57 21:52
Skemmtiferðaskip Ocean Diamond kemur til
hafnar í Reykjavík í dag, í fyrsta skipti á þessu
sumri. Samkvæmt áætlun á það að leggja að Mið-
bakka í Gömlu höfninni klukkan 11.30.
Ocean Diamond er svokallað leiðangursskip.
Það siglir hringinn í kringum landið með erlenda
ferðamenn og eru áformaðar 14 ferðir í sumar. Sú
síðasta verður farin 28. september. Skipið er 8.282
brúttótonn að stærð og getur tekið 207 farþega og
í áhöfn eru 144 manns. Það kemur við í nokkrum
höfnum á landsbyggðinni. Meðal annars er höfð
viðdvöl í Stykkishólmi, á Ísafirði, Akureyri, Húsa-
vík, Djúpavogi og í Vestmannaeyjum. Áhersla er
lögð á að gefa farþegunum kost á að kynnast land-
inu, náttúrunni og íslenskri menningu.
Iceland Pro Cruises gerir skipið út og þetta er
fjórða sumarið sem fyrirtækið skipuleggur
skemmtisiglingar í kringum Ísland. Systurskip
Ocean Diamond, Ocean Endeavour, mun fara
tvær tíu daga hringferðir um Ísland í júlí.
Risaskipið Celebrity Eclipse, sem kom til lands-
ins á dögunum, er væntanlegt til Reykjavíkur að
nýju næstkomandi sunnudag kl. 13. sisi@mbl.is
Fer 14 hringferðir um Ísland
Ocean Diamond kemur
til Reykjavíkur í dag
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í höfn Ocean Diamond liggur við Miðbakkann.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
hjá embætti Sýslumannsins á höf-
uðborgarsvæðinu vegna kosninga
til sveitarstjórna 26. maí nk. fer
fram í verslunarmiðstöðinni
Smáralind í Kópavogi, á 2. hæð í
vesturenda, frá og með föstudeg-
inum 11. maí. Opið verður alla daga
milli kl. 10 og 22, nema 10. og 20.
maí sem eru uppstigningar- og
hvítasunnudagur. Á kjördag, laug-
ardaginn 26. maí, verður opið milli
kl. 10 og 17 fyrir kjósendur á kjör-
skrá utan höfuðborgarsvæðisins.
Þeir eru þó hvattir til að kjósa fyrir
hvítasunnu ætli þeir að kjósa utan
kjörfundar svo atkvæði þeirra ber-
ist viðkomandi yfirkjörstjórnum
tímanlega. Einnig verður hægt að
kjósa utan kjörfundar á spítölum og
dvalarheimilum höfuðborgarsvæð-
isins og í fangelsinu á Hólmsheiði.
Víða kosið ut-
an kjörfundar
Morgunblaðið/Ernir
Lýðræði Kosið verður til sveitar-
stjórnar 26. maí næstkomandi.